Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 55
+ Bjarni Guð-
mundsson bif-
reiðastjóri fæddist í
Túni í Flóa 26. jan-
úar 1908. Hann lést á
Landakoti 4. apríl
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Fossvogskirkju 12.
apríl.
Nú hafa kvatt með
fárra vikna millibili
bræðurnir Jón og
Bjarni Guðmundssyn-
ir báðir kenndir við
bæinn Tún þar sem
sama ættin hefur búið síðan 1823.
Minning þess sem þetta ritar um
þá bræður er tengd rauðum Benz-
bílum sem koma færandi varning-
inn heim á hóflegum hraða niður
Gaulverjabæjarveg. Undir stýri
jafnlyndir og geðprúðir menn svo
af ber. Það er kostur, seint ofmet-
inn, í starfi sem byggist á stöðug-
um mannlegum samskiptum enda-
lausu snatti og „reddingum".
Ef einhver telst meðal frumherja
í bflstjórastétt og flutningum á Is-
landi þá fyllir Bjarni í Túni þann
flokk. Hann var ásamt Guðmundi
Jónassyni brautryðjandi í hálendis-
ferðum og hópferðum
en vöruflutningar
urðu fyrirferðarmestir
í starfi Bjarna. Hvort
tveggja. er í dag
tæknivædd nútímaat-
vinnugrein og varla
nokkur starfandi í dag
sem getur ímyndað
sér aðstæður á upp-
hafsárunum.
1933 byrjaði Bjarni
og fyrsta farartækið
var Ford 30 kassabíll.
Uppúr 1940 fer Jón
bróðir hans að keyra
með honum og fleiri
komu að þegar bílaflotinn var
stærstur. Jón sá um að fara til okk-
ar í Gaulverjabæjarhreppi á fastri
áætlun í hverri viku. Það var oft
líflegt á hlaðinu í Gaulverjabæ þeg-
ar bílarnir streymdu á bæjarhlaðið.
Traktorar, Landrover,Willys og
síðar Bronco. Úr Pörtunum komu
þeir stundum rasssíðir, hlaðnir
pokum með allskyns jarðávöxtum
nánast allt árið. Rófupokar víða að
og eggjakassar úr timbri fullir af
ferskum eggjum sem myndu telj-
ast náttúruvæn afurð í dag. Allt
þetta ásamt öllum mögulegum öðr-
um varningi fluttu bræðurnir frá
Túni fyrir íbúana hér og voru
hreinlega partur af tilveru fólks. I
fersku minni er þegar Jón birtist
kíminleitur fyrir jólin með kassa af
ilmandi eplum og hvítölið sem
hann sótti fyrir okkur í Ölgerðina.
Bjarni birtist hins vegar á vorin
með skilum flytjandi „útlenda"
áburðinn. Alltaf með bros á vör og
pípuna á sínum stað. Þegar ég tók
við búskap af föður mínum 1984
hélt ég að sjálfsögðu áfram við-
skiptum við Bjarna. A honum var
enda ekkert lát. Samfellt flutti
hann hingað vörur í 60 ár. 85 ára
gamall rétti hann mér síðast
áburðarpoka, hoppaði jafnfætis
niður af pallinum og vippaði sér
undir stýri. Yfir kaffibollanum var
gaman að spjalla við Bjarna og
mér er ekki grunlaust um að hann
hafi haft gaman af að koma hingað.
Farið að hægjast um og hann
spurði frétta af flestum bæjum. Að
spjalla við hann var líkt og að hrað-
spóla til baka enda fylgdi aldurinn
nánast öldinni. Bjarni talaði hins
vegar sjálfur um gamla fólkið og
taldi sig sjálfan ekkert sérstaklega
í þeim flokki þó hann næði 92 ára
aldri. Hann var heilsuhraustur og
hans eina sjúkrahúslega var síðasti
mánuðurinn í hans lífi.
Rykskýið þyrlast upp á Bæjar-
hreppsveginum. Rauður flutninga-
bíll fer héðan með stefnuna á mitt
Ingólsfjallið. Þetta er síðasta ferð-
in.
Valdimar Guðjónsson.
BJARNI
GUÐMUNDSSON
STEFANÍA SIGUR-
BERGSDÓTTIR
+ Stefanía Sigur-
bergsdóttir
fæddist að Eyri í Fá-
skrúðsfirði 18. júní
1915. Hún lést á Elli-
heimilinu Grund í
Reykjavík 7. apríl
síðastliðinn og fór
útfór hennar fram
frá Fossvogskapellu
13. apríl.
Elsku amma, þá ert
þú farin. Eftir þín erf-
iðu veikindi þá er það
okkur huggun að þér
líður þó vel núna. Mínar fyrstu
minningar um þig eru úr Skaftfelli
þar sem ég kom oft
sem krakki. Þar var
okkur alltaf vel tekið
og það var alltaf
spennandi að fá að
kíkja inn í búr og í
kökudunkana og
pönnukökurnar þínar
eru örugglega þær
bestu í heimi. Alltaf
varst þú í góðu skapi,
dugmikil og full af
lífskrafti. Ekki voru
það fá verkin semþú
saumaðir og heklaðir
og prýða í dag hús
barna þinna og
ömmubarna. Svo má ekki gleyma
ullarsokkunum og vettlingunum
sem þú prjónaðir á okkur krakk-
ana sem komu sér vel á köldum
vetrardögum. En það jafnaðist
ekkert á við það þegar maður kom
kaldur inn og þú nuddaðir á manni
tærnar með þínum hlýju höndum.
Við áttum margar góðar stundir
saman í Skaftfelli þegar ég var lít-
ill drengur og oft var gripið í spil
og spjallað. Við krakkarnir lékum
okkur oft í garðinum sem enn stát-
ar af þínum fögru verkum. Svo
fluttir þú úr litla fallega firðinum
suður til Kópavogs, og þar fékk ég
að njóta þess að dvelja hjá þér í
nokkra mánuði og ekki vantaði
umhyggjuna og hlýjuna frá þér.
Og það var svo notalegt að vera í
ömmuhúsum, þegar ég kom einn í
stórborgina til að fara í skóla, þar
til pabbi og mamma fluttu suður.
Ég þakka fyrir allt og megi guð
geyma þig, elsku amma.
Birgir Ómar Ingason.
Sérfræðingar
í blóinaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Blómabúði
m
Ú^aúðskom
v/ Possvogski»*l<jtt0a»*ð
Sími: 554 0500
Gróðrarstöðin “
mtcm •
Hús blómanna
Blóinaskreytingar
við öll tækifæri.
Dalvcg 32 Kópávogi sími: 364 2480
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður
Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt
verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar.
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu.
V
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
i
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útfór hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við fráfall eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GESTS EYJÓLFSSONAR
garðyrkjubónda,
Heiðmörk 42,
Hveragerði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna deil-
dar 11E á Landspítalanum.
Halldóra Guðlaug Steindórsdóttir,
Eyjólfur Gestsson,
Sigrún V. Gestsdóttir, Sigursveinn K. Magnússon,
Steindór Gestsson, Ólöf Jónsdóttir,
Guðríður Gestsdóttir, Kristján B. Gíslason,
Sigurbjörn Á. Gestsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
ÁSTRÍÐAR R. JÓNSDÓTTUR,
Byggðarenda 19,
Reykjavík.
Jón Sigurðsson og fjölskylda.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og stuðning vegna andláts og útfarar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
FRIÐRIKU HALLGRÍMSDÓTTUR,
sambýlinu Bakkahlíð 39,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækninga-
deildar FSA og sambýlisins í Bakkahlíð 39 fyrir
frábæra umönnun og stuðning.
Hjörleifur Hallgríms Herbertsson, Hallbjörg Þórhallsdóttir,
Örn Herbertsson, Nanna Kristín Jósepsdóttir,
Rafn Herbertsson, Svala Tómasdóttir,
Sveinbjörn Smári Herbertsson, Hansína Sigurgeirsdóttir,
Hjörtur Herbertsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð vegna
andláts okkar elskulega sonar, bróður, mágs
og dóttursonar,
STEINARS VILHJÁLMS JÓHANNSSONAR.
Sigríður Vilhjálmsdóttir,
Kristín María Kjartansdóttir, Ingólfur Hauksson,
Hannes Jóhannsson, Beth Marie Moore,
Kristín María Gísladóttir.