Morgunblaðið - 15.04.2000, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 63
UMRÆÐAN
Þróunarhjálp
á Indlandi
Caritas
Á þessari föstu, segir
Sigríður Ingvarsdóttir,
safnar kaþólska kirkjan
--------------7--------
og Caritas á Islandi í
samvinnu við Caritas í
heilbrigðisaðstoðar. En jafnframt
þarf að hjálpa þessu nauðstadda
fólki til sjálfshjálpar, örva það til
menntunar og vísa því veginn til
markvissari hagkerfa hinna van-
þróuðu ríkja. Málin varða alla
heimsbyggðina, og þar er engin
þjóð fírrt ábyrgð, jafnvel þótt hún
sé fámenn og búi við ystu höf.
En samtímis má jafnframt og
ekkert síður sjá það fagra og já-
kvæða í veröldinni,
sem hvarvetna blasir
við, guði sé lof. Þar
vegur þyngst kær-
leiksboðskapur kristn-
innar, sem alls staðar
segir til sín, ekki síst
þegar óvæntir atburð-
ir og ytri aðstæður
kalla á samstöðu eða
samhjálp. Kærleikur-
inn segir til sín í margs
konar alþjóðlegu
hjálparstarfi. Fegurð
og jákvæðni sem varða
eiga veg okkar, koma
og skýrt fram á sviði
vísinda og lista, þar
sem mannshugurinn
rís hvað hæst. Það á meðal annars
við um afrek og árangur í læknis-
fræði. Það á við um
bókmenntir, tónlist og
myndlist, þegar þessar
greinar rísa hæst í
fegurð og snilld.
Á páskum og öðrum
helgidögum er kjörið
tækifæri til að hlúa að
því fagra og jákvæða í
hugarheimi okkar. Það
er hægt að gera með
því að við leggjum
okkar af mörkum,
hvert og eitt, til að lina
þjáningar þessa fólks
sem stendur höllum
fæti í lífsbaráttunni.
Níu milljónir af þeim
tólf milljónum barna
létu lífið vegna næringarskorts á sl.
ári í þriðja heiminum þar sem
Sigríður
Ingvarsdóttir
skorturinn er hluti hins daglega
lífs. Caritas og kaþólska kirkjan á
íslandi hvetja landsmenn til að
styrkja þetta verkefni í Tezpur á
Indlandi. Hver króna, sem við
leggjum af mörkum, hefur margfalt
meira gildi þegar hún er komin til
Indlands. Söfnunin fer fram í öllum
messum í kaþólsku kirkjunni á ís-
landi, 16. apríl 2000.
Einnig má leggja málefninu lið
með því að greiða inn á reikning
Caritas á íslandi í íslandsbanka við
Lækjargötu 513-14-202 500.
Caritas á íslandi og kaþólska
kirkjan óskar landsmönnum öllum
gleðilegrar og slysalausrar páska-
hátíðar.
Höfundur er formaður Caritas
á íslandi.
Danmörku fé til að
styrkja verkefni í Tezp-
ur á Indlandi.
Engin hátíð rís hærra í hugum
kristinna manna en hátíð uppris-
unnar, páskahátíðin. Það fer vel á
því að halda hátíð til minningar um
upprisu Jesú Krists, sigurhátíð lífs-
ins yfir dauðanum, þegar vorið er í
þann mund að vekja gróðurríkið í
umhverfi okkar til nýs lífs af vetrar-
svefni. Vorið er árvisst kraftaverk í
ríki náttúrunnar, er táknrænt fyrir
fagnaðarboðskap páskanna, fyrir-
heitin í kristinni kenningu, sigur
lífsins yfir ógnaröflum umhverfis-
ins.
Á páskahátíðinni rifja kristnir
menn um víða veröld upp frásagnir
guðspjallanna af píslargöngu Krists
og krossdauða sem minna okkur
óhjákvæmilega á þjáningar milljóna
fólks víða um heim á okkar dögum.
I þjáningu Krists, sem guðspjöllin
greina frá, felst meðal annars og
ekki síst ákall til þín og mín um
hjálp handa þeim sem þjást í dag.
Og það þarf ekki að leita langt yfir
skammt að þjáningunni.
Á þessari föstu safnar kaþólska
kirkjan og Caritas á Islandi í sam-
vinnu við Caritas í Danmörku fé á
föstunni til að styrkja verkefni í
Tezpur á Indlandi. Flestir fátæk-
lingar í Tezpur hafa ekki fengið
neins konar skólagöngu og eru því
hvorki læsir né skrifandi. Æðri
menntun er fyrst og fremst fyrir
fólk af hærri stéttum. Lágstéttar-
fólk og stéttleysingjar eiga litla von
um menntun því oft neyðist það,
sakir fátæktar, til að setja börn sín
ung í vinnu. Jafnvel þótt lágstéttar-
fólk vildi mennta börn sín er það
ógjörningur þar sem skólavist er
kostnaðarsöm. Þar að auki er lítið
um skóla til sveita.
Næringarskortur í þriðja heimin-
um er mikill og milljónir barna
deyja végna næringarskorts á
hverju ári. Sú hörmulega staðreynd
blasir við að vannærð börn voru yfir
200 milljónir árið 1998 í vanþróuðu
ríkjunum. Hungurdauði er óverj-
andi á öld menntunar, þekkingar og
tækniundra. Að ekki sé nú talað um
mannúð og náungakærleik.
Hörmungar í þriðja heiminum
hrópa sem aldrei fyrr á hjálp um-
heimsins. Fyrst og fremst aðstoð
við fæðuöflun og skólagöngu auk
EKKI BERA ÖLL
AUKAKÍLÓIN!
Hef hjálpað fjölda fólks með frábærum
árangri. Hvað með þig?
_____Uppl. í slma 698 3600.
Bókhaldskerfi
KERFISÞRQUN HF.
http://www.kerfisthroun.is/.
Ertuá
ferdinni ?
-,;
Ö
Select
Alltaf ferskt...
www.skell.is
V
i
%