Morgunblaðið - 15.04.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 65
UMRÆÐAN 1
Opið bréf til
Heilbrigðisstofn-
unar Austurlands
Eins og fram hefur
komið í fjölmiðluin und-
anfarið stendur til að
loka fæðingardeildinni
við Heilbrigðisstofnun
Austurlands í Neskaup-
stað í sex vikur í sumar.
Af þessu tilefni vil ég
óska eftir skýringum á
ákveðnum atriðum sem
mér fínnast ekki hafa
komið nægilega skýrt
fram.
Þess má geta að fyrir
okkur ljósmæðurnar
kemur þessi ákvörðun
sem þruma úr heiðskíru
lofti. Ákvörðunin er til-
kynnt um miðjan mars,
þegar búið er að ganga frá ráðningu
ljósmæðra fyrir sumarið, en fyrir þá
sem ekki þekkja til, er töluverðum
erfíðleikum bundið að útvega fagfólk í
svo skamman tíma. Við höfum ekki
fengið faglegar skýringar á ráðstöf-
uninni né heldur rökstuðning fyrir því
hvers vegna verið er að loka á bráða-
þjónustu fyrir bamshafandi konur á
Austurlandi.
Heilbrigðisstofnun Austurlands í
Neskaupstað hefur yfir að ráða ágæt-
lega búinni fæðingardeild þar sem
fylgt hefur verið eftir framþróun á
sviði fæðingarhjálpar. Nýlega feng-
um við stórt baðkar sem nýtist vel
sem verkjastillandi þáttur á útvíkkun-
artímabilinu og þar af leiðandi minnk-
ar það oft notkun verkjalyfja. Við
leggjum áherslu á rólegt og notalegt
andrúmsloft og eflum þannig öryggis-
kennd verðandi foreldra og ófædds
bams þehTa. Hins veg-
ar vitum við líka að á
neðri hæðinni er skurð-
stofa og læknar á vakt
allan sólarhringinn.
Með lokun fæðingar-
deildar Heilbrigðis-
stofnunarinnar er verið
að loka á alla bráðaþjón-
ustu fyrir bamshafandi
konur og ófædd böm
þeirra á Austurlandi.
Fæðing bams getur
aldrei talist eðlileg fyrr
en hún er afstaðin og
sem betur fer enda
flestar fæðingar þannig.
En við vitum að það er
ekki algilt og margt sem
getur komið upp á. Til dæmis getur
fæðing stöðvast, m.a. vegna misræm-
is á milli mjaðmagrindar og bams,
súrefnisskoi’ts hjá bami í fæðingu,
stöðu bams, þ.e. þverlegu, sitjanda-
stöðu, afbrigðilegrar höfuðstöðu,
framfalls á naflastreng, fastrar fylgju
og blæðingar í tengslum við fæðingu.
Allt kallar þetta á skjótar aðgerðir
sem krefjast úrlausna þegar í stað.
Framköllun fæðingar (þ.e. konur
gengnar lengur en 42 vikur) fer ekki
fram á sjúkrahúsi þar sem ekki er
skurðstofa.
Hver eru faglegu sjónarmiðin?
Mér er það hulin ráðgáta hvemig
Heilbrigðisstofnun Austurlands á að
geta varið þessa ákvörðun sína að
loka þeirri bráðaþjónustu sem ég hef
talið hér upp og stofna þar með ör-
yggi bamshafandi kvenna og ófæddra
Bóthildur
Steinþórsdóttir
mt J
■7T
' Enduivinnið á fðlEeqan hátt!
Sýnikennsla í kmkkumálun í dag
Nýttu sultu- eða rauðkáls-
krukkuna í fallegan blömavasð
eðahvaásemer.
Opið virkð daga 10-18
og laugardaga 10-16
* Á, *■ ■ —
LanöhoKsveöur 111 Sími 568 6500
j,a www.fondra.is ^ >t
Heiibrigðisþjónusta
Með þessu, segir
Bóthildur Steinþórs-
dóttir, er verið að loka
á bráðaþjónustu fyrir
barnshafandi konur
á Austurlandi.
bama þeirra í hættu. Það væri for-
vitnilegt að vita hverjir voru faglegir
ráðgjafar þeirra í þessu máli. Hvaða
sérfræðingar og þá er ég að tala um
fæðingar- og kvensjúkdómalækna og
hvaða Ijósmæður? Því ekki minnist ég
þess að hafa verið spurð álits.
Mæðravemd og
ungbamaeftirlit
Ekki er allt búið enn, því einnig
þarf að sinna mæðravemd, sónar-
skoðimum og ungbamaeftirliti í okk-
ar fjarveru. Óheimilt er skv. 4. og 5.
gr. ljósmæðralaga að aðrir en Ijós-
mæður sinni mæðravemd. Það kem-
ur því í hlut starfandi lækna við stofn-
unina að bæta því ofan á sína vinnu,
sem er nóg fyrir.
Vegna breytinga í sumar lokar
Kvennadeild Landspítalans sængur-
kvennagangi-B frá 15. júní og fækkar
um 8 rúm. Allt bendir til þess að kon-
ur verði sendar sem fyrst heim þaðan
í sumar, þ.e. innan 36 klst. frá eðlilegri
fæðingu. Hvað tekur við þegar kon^
rnnar koma heim? Fá þær heima-
þjónustu á Austurlandi? Aðeins Ijós-
mæður hafa leyfi til þess að sinna
þeirri þjónustu skv. samningi sem
gerður hefur verið milli Ljósmæðra-
félags íslands og Tryggingastofnunar
ríkisins.
Óskað er eftir rökstuddu svari.
Höfundur er [jósmóðir og lyúkrun-
arfræðingur við Heilbrigðisstofnun
Austurlands á Neskaupstað.
Vandaðir amertskir svefnsófar með
innbyggðri springdýnu. Frábær iausn þegar
sameina þarf fallegan sófa og gott rúm.
Við bjóðum margar gerðir, mikið úrval
áklæða og lita.
Teg. Lazfoai B225 x D88 x H97 cm.
Teg. Lazfts8 BI92 x D86 x H86 cm.
HÚSGAGNAHÖLLIN
Teg. Lazfo6o BI80 x D88 x H77 cm.
Bíldshöfða, 110 Reykjavík
s.510 8000 www.husgagnahollin.is
stum?
{ i
r
Þú kemst þartgaö sem þig langar og getur gert þaö sem þú vilt á Trek, Gary Fischer og Klein
hjólunum frá Erninum. Trauslbyggö og vönduö hjól fyrir þó sem kalla ekki allt ömmu sína.