Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 75
KIRKJUSTARF
Dómkirkjan.
Safnaðarstarf
Samkirkjuleg
guðsþjónusta í
Dómkirkjunni
Á pálmasunnudag verður sam-
kirkjuleg guðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni kl 11.
Fulltrúar kristinna safnaða taka
þátt í guðsþjónustunni með ritn-
ingarlestri og bænargjörð. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson, dóm-
kirkjuprestur prédikar og hugleið-
ir einingu kristinna frammi fyrir
atburðum kyrruviku og páska. Við
guðsþjónustuna syngur Kór
Menntaskólans í Reykjavík, m.a.
messuþætti eftir W.Á. Mozart við
hljófæraundirleik nemenda úr
skólanum. Marteinn H. Friðriks-
son stjórnar og leikur á orgelið.
í guðsþjónustunni gefst sérstakt
tækifæri til undirbúnings undir
stórhátíð páskanna á kristnihátíð-
arári.
Kvennakirkjan
í Grafar-
vogskirkju
Kvennakirkjan heldur guðþjón-
ustu í Grafarvogskirkju á Pálma-
sunnudag, 16. apríl kl. 20.30. Yfir-
skrift messunnar er: Fátækt og
ríkidæmi. Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir alþingiskona prédikar. Séra
Anna Sigríður Pálsdóttir annast
prestsþjónustu. Anna Sigríður
Helgadóttir syngur einsöng við
píanóleik Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur sem jafnframt stjórnar al-
mennum messusöng ásamt Kór
Kvennakirkjunnar. Kaffi á eftir í
safnaðarheimilinu. Allir eru vel-
komnir í messur Kvennakirkjunn-
ar og eru íbúar Grafarvogs sér-
staklega hvattir til að nota
tækifærið nú. Messur Kvenna-
kirkjunnar eru haldnar í hinum
ýmsu kirkjum á höfuðborgarsvæð-
inu einu sinni í mánuði.
Kirkja Krists -
Eining og
aðgreining
Á fræðslumorgni í Hallgríms-
kirkju nk. sunnudag, 16. apríl, kl.
10 f.h. mun dr. Einar Sigurbjörns-
son prófessor flytja erindi um efn-
ið: Kirkja Krists. Eining eða að-
greining. Þetta er síðasti fræðslu-
morgunn vetrarins. Enda þótt
flestir hér á landi tilheyri þjóð-
kirkjunni og öðrum evangelísk-lút-
herskum trúfélögum, hefur öðrum
kristnum trúfélögum fjölgað hér á
undfanförnum árum. Hvers vegna?
Eru ástæðurnar félagslegar eða
guðfræðilegar? Er þetta spurning
um stfl fremur en kenningar?
Rómversk-kaþólska kirkjan og
fulltrúar þeirrar lúthersku hafa
nýlega gefið út sameiginlegan
skilning á deiluefni siðbótartímans
um réttlætingu af trú. Hvað veldur
þá ágreiningi? Hvers vegna geta
prestar í lúthersku kirkjunni ekki
þjónað í þeirri rómversku og öf-
ugt, eins og gerist með lútherskum
og ensku biskupakirkjunni? Hvað
sameinar alla þessa sundurleitu
hópa, svo þeir verðskuldi samheit-
ið „Kirkja Krists“? Einar Sigur-
björnsson er sérfróður um kirkju-
deildafræði og hefur m.a. skrifað
um einingarviðleitni kristinna
kirkjudeilda. Það verður án efa
fróðlegt að heyra hann svara ein-
hverjum framangreindra spurn-
inga í erindi sínu.
Að erindinu loknu, kl. 11, hefst
barnastarf í umsjá Magneu Sverr-
isdóttur og guðsþjónusta í umsjá
séra Sigurðar Pálssonar.
Kvöldmessa í
Grensáskirkju
Annað kvöld verður kvöldmessa
í Grensáskirkju og hefst hún kl.
20.
Reynt er að hafa allt yfirbragð
kvöldmessunnar hlýlegt og aðlað-
andi en jafnframt kyrrlátt. Messu-
formið er mjög einfalt, valdir
sálmar sem auðvelt er að syngja í
almennum söng og töluðu máli
stillt í hóf. í messunni er altaris-
ganga, tækifæri til að mæta
Drottni sjálfum í heilögu sakra-
menti brauðs og víns.
Á morgun er pálmasunnudagur.
Við tekur kyrra vika; helgasti tími
kirkjuársins fer í hönd. Víða er
fermt á pálmasunnudag og því lítið
um aðrar almennar guðsþjónustur.
Verið öll velkomin í Grensás-
kirkju að kvöldi pálmasunnudags!
Sr. Olafur Jóhannsson
/
Biskup Islands
prédikar í
Laugarnes-
kirkju
Á pálmusunnudegi mun biskup
íslands, herra Karl Sigurbjörns-
son, prédika og þjóna við messu í
Laugarneskirkju kl. 11:00.
Drengjakór Laugarneskirkju mun
syngja, en um þessar mundir fagn-
ar hann 10 ára afmæli. Kórstjóri
er Friðrik S. Kristinsson. Sigrún
Þórsteinsdóttir leikur á orgelið en
sóknarprestur mun þjóna með
biskupi. Sunnudagaskólinn verður
á sínum stað undir handleiðslu
Hrundar Þórarinsdóttur.
Er ástæða til að hvetja sóknar-
fólk til að fjölmenna til kirkju af
þessu góða tilefni.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
kl. 12.30. Sýnd verður stutt kvik-
mynd frá Leipzig. Fram verður
borin tvíréttuð heit máltíð. Allir
velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs-
son.
Seljakirkja. Vorferðalag barna-
starfsins. Lagt verður af stað frá
Seljakirkju kl. 11.00. Ferðinni
verður heitið til Eyrarbakka. Þar
verður barnaguðsþjónusta. Barna-
kór Seljakirkju syngur í guðsþjón-
ustunni. Boðið verður upp á pylsur
og farið í fjöruferð. Áætluð heim-
koma er um kl. 15.00. Ferðin og
veitingar eru í boði safnaðarins.
Foreldrar velkomnir með.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.
Akraneskirkja. Kirkjuskóli kl.
ll.TTT-starf (10-12 ára) kl. 13.
Stjórnandi Elín Jóhannsdóttir.
KEFAS, Dalvegi 24. Laugardagur:
Samkoma kl. 14. Ræðumaður
Björg R. Pálsdóttir. Mikil lofgjörð
og söngur. Þriðjud: Bænastund kl.
20.30. Miðvikud: Samverustund
unga fólksins kl. 20.30.