Morgunblaðið - 10.06.2000, Page 2
2 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Brautin var reynd á kynningarmdti sem haldið var í gær.
Skrúfubúnaður
Hríseyjarferju
kominn til landsins
NÚ HILLIR loksins undir að nýja
Hríseyjarferjan verði komin í sigl-
ingar milli Hríseyjar og lands, eftir
langa bið. Að sögn Péturs Bolla Jó-
hannessonar, sveitarstjóra í Hrís-
ey, er nýr skrúfubúnaður kominn
til landsins, heldur fyrr en búist
var við.
Við tekur uppsetning búnaðarins
og sjósetning. Bundnar eru vonir
við að ferjan verði komin til Hrís-
eyjar fyrir Fjölskylduhátíðina um
miðjan júlí, ári síðar en upphaflega
stóð til.
Eins og áður segir hefur biðin
eftir nýju ferjunni reynst ansi löng.
Um síðustu áramót var samningum
rift við danskan framleiðanda
skrúfubúnaður, en þá þraut að-
standendur ferjunnar þolinmæðina.
Eftir það var hafist handa við að
útvega nýjan búnað sem nú er
kominn til landsins tíu dögum fyrr
en til stóð. „Nú er unnið að því að
tengja nýja drifbúnaðinn og dytta
að því sem til þarf. Að því loknu
taka síðan við prufusiglingar áður
en ferjan verður afhent," sagði Pét-
ur Bolli. Að sögn hans vonast menn
til að hún verði komin í gagnið fyr-
ir hina árlegu Fjölskylduhátíð, en
ekkert væri öruggt í þeim efnum.
„Þetta verður bara að hafa sinn
gang,“ sagði Pétur Bolli að lokum.
Formaður Sleipnis telur verkfall geta staðið fram á mitt sumar
Hyggjast kæra lögbanns-
úrskurð sýslumanns
Rúlla gler-
kúlum til
sigurs
ISLANDSMEISTARAMÓTIÐ í gler-
kúluspili verður haldið í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum dagana 10.-
12. júní og verður keppnin opin öll-
um sem náð hafa 7 ára aldri.
Sigurvegarinn mun taka þátt í
heimsmeistarakeppni í glerkúlu-
spili, sem haldin verður í ferða-
mannahéraðinu Charente Maritime
á vesturströnd Frakklands í ágiíst.
Keppnin er haldin á vegum franska
fyrirtækisins Mondial Billes og er
Islandsmótið eitt af mörgum lands-
mótum í glerkúluspili sem haldin
eru víðs vegar um heim.
Keppnin hér er einstök þar sem
hún verður í fyrsta sinn haldin á sér-
stakri braut úr 15 tonnum af svört-
um sandi. Keppendur geta skráð sig
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
jafnóðum og keppnin fer fram.
Andri Þór Valgeirsson
Lýst eftir 12
ára dreng
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir 12 ára gömlum dreng, Andra Þór
Valgeirssyni, kt. 100388-2199. Síðast
er vitað um ferðir hans um klukkan
15.00 mánudaginn 5. júní.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um ferðir Andra eru beðnir að snúa
sér til lögreglunnar í Reykjavík.
FORSVARSMENN bifreiðastjóra-
félagsins Sleipnis hyggjast kæra
úrskurð sýslumannsins í Reykjavík
um lögbann á verkfallsaðgerðir
Sleipnis gegn starfsmönnum Teits
Jónassonar ehf. og Austurleiðar.
Óskar Stefánsson, formaður Sleipn-
is, segir úrskurðinn hleypa kjara-
deilunni í enn harðari hnút en ella
og kveðst hann óttast að verkfall
Sleipnis dragist á langinn og standi
jafnvel fram á mitt sumar.
Sleipnismenn og viðsemjendur
þeirra áttu óformlegan fund hjá rík-
issáttasemjara í gærkvöldi en Óskar
gerði ekki ráð fyrir tíðindum af
þeim fundi. Hann sagði að Sleipnis-
menn hefðu orðið fyrir miklum von-
brigðum með lögbannsúrskurð
sýslumannsins í Reykjavík en að
þeir væru löghlýðnir menn og
myndu því vitaskuld hlýða honum.
Hins vegar myndu þeir strax eftir
helgi kæra úrskurð sýslumannsins.
Jafnframt sagði hann að þeir
hygðust skrifa Blaðamannafélagi
íslands og leggja fram kvörtun
vegna forsíðumyndar í DV á
fimmtudag sem tengdist verkfalls-
vörslu Sleipnismanna. Sagði Óskar
að þeir teldu að myndin hefði verið
sviðsett.
Aðspurður sagði Óskar að lög-
bannið kæmi án efa til með að
lengja kjaradeilu Sleipnis og at-
vinnurekenda því menn efldust við
mótlætið ef eitthvað væri. „Þessi
tíðindi í deilunni liðka ekki fyrir og
ég spái löngu verkfalli miðað við þá
þróun sem orðið hefur. Ég spái orð-
ið verkfalli fram á mitt sumar,“
sagði hann.
Enginn bílstjóranna hjá Teiti
Jónassyni í Sleipni
„Lögbannið breytir ekki öðru en
því að það sem ég sagði við Óskar er
rétt, að ég var ekki í verkfalli og að
hann hafði ekki leyfi til að stöðva
mig í vinnunni," sagði Teitur Jónas-
son, forstjóri og eigandi Teits Jón-
assonar ehf, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Kvaðst Teitur hafa krafist lög-
banns á verkfallsaðgerðir Sleipnis
vegna þeirrar einföldu staðreyndar
að engir bílstjóranna á hans vegum
væru félagsmenn í Sleipni. Lang-
flestir þeirra væru í Eflingu - stétt-
arfélagi og Efling væri búin að
semja við atvinnurekendur, raunar
væri þegar farið að greiða hærri
laun í samræmi við þann samning.
Hann sagði jafnframt alveg klárt að
bílstjórar hjá Teiti Jónassyni ehf. og
Austurleiðum hefðu ekki gengið í
störf Sleipnismanna.
Verkfallsverðir á vegum Sleipnis
stöðvuðu nokkra bíla frá Teiti í Vík í
Mýrdal snemma í gær en að öðru
leyti skarst ekki verulega í odda í
verkfallsdeilunni. Teitur sagði hins
vegar engan vafa leika á því að að-
gerðir Sleipnismanna hefðu haft
skaðleg áhrif á rekstur sinn. Hann
hefði m.a. neyðst til að aflýsa nokkr-
um ferðum með erlenda ferðamenn.
Kvaðst hann vonast til að lögbannið
yrði til þess að aksturinn gengi
snurðulaust um hvítasunnuhelgina.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Lögregla og deildir Rauða krossins í Húnavatnssýslum hófu í gær
átak til að vekja fólk til umhugsunar í umferðinni.
Átak í umferðar-
öryggismálum
Blönduósi. Morgunblaðið.
LÖGREGLAN og Rauðakross-
deildirnar í Ilúnavatnssýslum
hófu í gær átak til að vekja fólk til
umhugsunar um þær reglur sem
fara á eftir í umferðinni.
Átakið er fólgið í því að dreifa
spjaldi sem hefur að geyma ljós-
myndir af áhöfnum lögreglu- og
sjúkrabifreiða í Húnavatnssýsl-
um. Á spjaldinu kemur fram ósk
þessa fólks um að vegfarendur
geti ferðast óhappalaust og án að-
stoðar lögreglu eða sjúkraliðs um
vegi landsins. Sjúkraflutninga-
og lögreglumenn stöðvuðu fjölda
bifreiða og dreifðu spjaldinu.
Lögreglumennirnir á Blöndu-
ósi, sem þekktir eru fyrir að hafa
liorn í síðu þeirra sem aka hraðar
en lög leyfa og stöðvað hafa ófáa
ökumcnn af þeirri ástæðu, létu
vel af því að stöðva fólk í þeim til-
gangi einum að sýna umhyggju.
Hvort sem það var tilviljun eður
ei að hefja þetta kynningarátak í
nágrenni Þrístapa, þar sem síð-
asta aftaka á íslandi fór fram, er
það ósk þeirra sem að þessu átaki
standa að brátt iíði að siðustu af-
skiptum af þeim sem aka of hratt.
Sérblöð í dag
MSbMIR
ALAUGARDOGUM
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir sérblað
um ferðamál.
Héðinn Gilsson kominn til FH/Cl
Kristinn Guðbrandsson hættur
með Keflavík/Cl
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is