Morgunblaðið - 10.06.2000, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/arnaldur
Hópurinn frá Sunnuhvoli saniankominn á tröppum Hæstaréttar ásamt Símoni.
Morgunblaðið/amaldur
Jóhann, Eiríkur og Kristín Edda voru hæstánægð með heimsóknina.
Leikskóla-
börn heim-
sækja
Hæstarétt
LEIKSKÓLINN SunnuhvoII við
Vífilsstaði heimsótti Hæstarétt í
fyrradag. Símon Sigvaldason,
skrifstofustjóri Hæstaréttar,
leiddi börnin um vistarverur
hússins og sagði þeim undan og
ofan af þeim störfum sem þar eru
unnin. Börnin, sem eru á aldrin-
um 4-6 ára, fylgdust andaktug
með, en fagurbláar skikkjur dóm-
ara virtust vekja mesta hrifningu.
Það var stilltur og prúður hóp-
ur sem rölti um Hæstarétt og
vonandi voru þarna á ferð upp-
rcnnandi löghlýðnir borgarar. Að
minnsta kosti kváðust þau öll
fylgja settum reglum í leikskólan-
um og heima hjá sér, enda ættu
þau annars von á skömmum.
Börnin fengu öll glaðning í
poka og í kveðjuskyni tóku þau
lagið í anddyri Hæstaréttar og
sungu fullum hálsi „Best er að
vera bóndakona" og „Á Sunnu-
hvoli er gaman“. Heimsóknin er
liður í þemavinnu um fjölskyld-
una sem leikskólinn hefur verið
að vinna í vetur. Foreldrar hafa
verið hvattir til að fá börnin í
heimsókn á vinnustaði sína, en
Símon á tvær dætur á Sunnu-
hvoli, þær Erlu og Sonju, sem að
sjálfsögðu fylgdu leikskólasystk-
inum sinum á vinnustað pabba
sins.
Menningarhátíð Mosfellinga
Listahátíðin
Y armárþing
Valgeir Skagfjörð
Yarmárþing hefst í
dag og stendur til
17. júní, en það er
menningar- og listahátíð í
Mosfellsbæ sem er borin
uppi af listamönnum sem
búa og starfa í Mosfells-
bæ og nágrenni. Valgeir
Skagfjörð, framkvæmda-
stjóri Varmárþings, var
spurðm- hvað yrði á dag-
skránni í dag.
„Setningarathöfnin
verður klukkan 14 í Ála-
fosskvos þar sem stígur á
stokk Karlakórinn Stefnir
og syngur á þjóðlegum
nótum. Leikfélag Mos-
fellssveitar flytur sveita-
annál og í kjölfarið verða
opnaðar myndlistarsýn-
ingar á vinnustofum
myndlistarmannanna í
Alafosskvos. Þess má geta að
Egill Ólafsson og Jónas Þórir
verða sérstakir gestir við opnun
myndlistarsýninganna. Um
kvöldið verður lifandi músik í
veitingahúsunum Asláki og Ala-
foss-föt best.“
- Hefur áður verið haldin
svona menningarhátíð í Mos-
fellsbæ?
„Nei, þetta er gert í samstarfi
við Reykjavík - menningarborg
Evrópu árið 2000. Ákveðið var
að ráðast í þetta þar sem mjög
margir listamenn búa og starfa í
Mosfellssveit og það er í raun
ótrúlega fjölbreytt félags- og
menningarstarf í sveitinni."
- Hvað annað verður á dag-
skrá menningarhátíðarinnar?
„Fjölmargt er á dagskrá þessa
daga og meðal efnis má nefna
kórsöng en mjög margir kórar
eru starfandi í Mosfellssveit. Þá
má nefna söngtónleika þar sem
Diddú kynnir fjóra unga söngv-
ara úr MosfeUsbæ í Varmár-
skóla á miðvikudagskvöld hins
14. júní. Þær Kristjana Helga-
dóttir, Viktoria Tzarevskaya og
Iwona Jagla halda tónleika í
Varmárskóla, 12. júní kl. 21 fyrir
píanó, flautu og selló. Stórir
rokktónleikar verða í íþróttamið-
stöðinni á Varmá, þar troða upp
ungar hljómsveitir i Mosfellsbæ,
svo sem Mannamúll, Moussief,
Spildog, Vígspá og fleiri. Lax-
nessdagskrá verður í Hlégarði
þriðjudagskvöldið 13. júní. Þar
mun Halldór Guðmundsson út-
gáfustjóri Máls og menningar
spjalla um skáldið og heimahag-
ana. Áiafosskórinn syngur lög
við texta eftir Halldór Laxness
og Leikfélag Mosfellssveitar
leikur þætti úr verkum Halldórs,
m.a. „Innansveitarkróniku“ og
„I túninu heima“.“
- Hvað með útivist og íþróttir?
„Þeir þættir skipa að sjálf-
sögðu veglegan sess; á hvíta-
sunnudag klukkan 11 hefst
Varmárganga sem er gönguferð
meðíram Varmá, leiðsögumenn
eru Guðný Haíldórsdóttir og
Magnús Guðmundsson en þau
eru formaður og varaformaður
umhverfisnefndar
sveitarinnar. Á annan
í hvítasunnu verður
gönguferð og gróður-
setning með skóg-
ræktarfélaginu í sveit-
inni. Síðast en ekki
síst verður nýtt útivistarsvæði
við Ullarnesbrekkur vígt klukk-
an 15 á annan hvítasunnudag og
þar verða leikir fyrir æskuna,
gi-illað fyrir fólk, skátar reisa
leiktæki og skólahljómsveitin
leikur."
- Hefur svona listahátíð mikið
gildi fyrir sveitina annað en
skemmtanagildi þessa daga?
► Valgeir Skagfjörð fæddist 8.
maí 1956. Hann lauk prófi frá
Leiklistarskóla fslands 1987 og
hefur starfað sem sjálfstæður
leikhúslistamaður allar götur
si'ðan. Nú er hann framkvæmda-
stjóri Varmárþings 2000. Valgeir
er í sambúð með Guðrúnu Gunn-
arsdóttur söngkonu og dag-
skrárgerðarmanni á Stöð 2 og
eiga þau þrjár stúlkur.
„Hún færir Mosfellingum
heim sanninn um það að þeir
hafi mikið af frambærilegu fólki
á menningarsviðinu og sýnir
fram á að unnið er mikið og
óeigingjarnt starf innan þeirra
mörgu lista- og menningarfélaga
sem starfa í sveitinni. Það er
ekki tilviljun að úr þessum jarð-
vegi hefur sprottið mikið af efni-
legu listafólki, ekki síst tónlist-
arfólki, sem m.a. kristallast í
hinni stóru skólahljómsveit
sveitarinnar og öllu því kórstarfi
sem unnið er í hinum átta kórum
sem starfa í Mosfellssveit og ná-
grenni. Þetta samstarf færir líka
sveiturígana saman.“
- Er mikil liststarfsemi á
gamla Álafosssvæðinu?
„Hún er talsverð; fyrir utan
þá níu listamenn sem sýna þar á
listahátíð eru fjölmargir aðrir
sem sáu sér ekki fært að vera
með, eins og Tolli, Magnús
Kjartansson og fleiri. Aðstaðan
þar er mjög góð fyrir listamenn
þótt auðvitað megi bæta um bet-
ur, húsin eru orðin gömul og
sumt farið að láta á sjá.“
- Eiga Mosfellingar margar
hefðir sem koma fram á þessari
lista- og menningarhátíð?
„Álafosshlaupið á sér tals-
verða sögu og núna verður
hlaupið frá Álafossbúðinni
mánudaginn 12. júní. Skráning
hefst í hlaupið klukkan 17.30 við
Álafossbúðina og síðan verður
hlaupið af stað klukkan 19 og
farnar nokkrar leiðir. Kóramótið
er líka hefðbundið - föstudaginn
16. júní munu sjö kórar hefja
upp raust sína í íþróttamiðstöð-
inni á Varmá. Þess má geta að
kvikmyndafélagið
Umbi er starfandi hér
og fyrir nokknim ár-
um sýndi félagið allar
myndir sínar í sveit-
inni. Nú mun félagið
sýna „Úngfrúin góða
og húsið“ í Hlégarði föstudaginn
16. júní klukkan 17.“
- Er mikill kostnaður samfara
þessari hátíð?
„Það er töluverður kostnaður
við að halda þessa hátíð en þetta
tekst með góðum vilja þátttak-
enda. Frír aðgangur er á vel-
flesta viðburði en selt á vægu
verði inn á nokkra.
Unnið er mik-
ið og óeigin-
gjarnt starf á
þessari hátíð