Morgunblaðið - 10.06.2000, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 10.06.2000, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 9 FRÉTTIR Samgönguráðherra segir eðlilegt að Landssíminn hafí frumkvæði að nýjum sæstreng Kemur vel til greina að fleiri komi að því verki STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra telur eðlilegt að Landssím- inn undirbúi og hafi frumkvæði að því að vinna að lagningu á nýjum sæstreng til íslands, en fmnst vel koma til greina að fleiri komi að því verki. „Það þarf að meta það og skoða hvort það geti verið hagkvæmt fyrir alla aðila að það verði á vegum fé- lags, sem fleiri kæmu inn í en ein- göngu Síminn," sagði Sturla í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Þetta er feiknarlega mikilvægt verkefni fyrir okkur Islendinga, en það er sjálfsagt að gefa fleirum færi á því að leggja fjármagn inn í þetta verk- efni.“ Samgönguráðherra svaraði fyrir- spurn Þórólfs Árnasonar, forstjóra Tals, efnislega með þessum hætti á opnum fundi Sjálfstæðisflokksins um fjarskiptamál á miðvikudags- kvöld. Varpaði fram hugmynd um einkaframkvæmd Þórólfur kvaðst í gær hafa spurt ráðherra í framhaldi af samtali, sem þeir hefðu átt áður, hvort stjórnvöld hygðust beita sér fyrir einkafram- kvæmd um sæstreng. „Það er málefni þjóðarinnar allrar að hafa samgöngumar í sæstrengn- um opnar,“ sagði Þórólfur. „Það er eitt af mestu öryggis- og framfara- málum þjóðarinnar að vera ekki upp á aðra komin með þetta. Við eigum ágætis fyrirmynd í þessum efnum í Speli og framkvæmdinni um Hval- fjarðargöng." Þórólfur sagði að hleypa ætti fjár- festum að verkefninu og kvaðst vita til þess að lífeyrissjóðirnir ættu í raun fáa kosti í fjárfestingum og skuldabréfamálum. Þá ættu sjóðir, einstaklingar og fyrirtæki mikið undir því að fjarskipti væru í lagi og mörg fyrirtæki væri ekki hægt að reka á alþjóðlegum grunni án þess. „Eg fullyrði að Nýsköpunarsjóður og atvinnusjóðir ýmsir mundu vilja koma að svona verkefni og þar með minnka áhættu fjarskiptafyrirtækj- anna sjálfra," sagði Þórólfur. „Pjar- skiptafyrirtækin sjálf eiga ekki endi- lega að bera áhættuna af slíkri framkvæmd, en sjá hins vegar um umferðina í gegnum strenginn." Hann sagði að þar með væri komið verkefni, sem gæfi innlendum fjár- festum farveg fyrir sitt fé, en staðan væri þannig nú að ofgnótt væri af fé og verkefni vantaði. Atvinnulífið allt og þjóðarbúið myndi vilja taka þátt í svona verkefni og fráleitt væri að þetta yrði alfarið á vegum Landssím- ans. „Þá ætti eitt símafyrirtæki, sem meira að segja er farið að einkavæða þannig að það gæti hugsanlega lent í meirihlutaeigu erlends fyrirtækis, til dæmis, Teledanmark, lífæð lands- ins,“ sagði hann. „Ég held að betra væri að láta fjármagnið ráða þessum farvegi sjálft.“ Onnur félög geta með sama hætti ráðist í slíka framkvæmd Sturla Böðvarsson sagði að Landssíminn sem sjálfstætt fyrir- tæki hefði fulla burði hvort sem hann væri í eigu ríkis eða annarra til að www.mbl.is undirbúa lagningu sæstrengs og leggja síðan mat á hvort hann standi einn að þessu eða hleypi öðrum inn. „Með sama hætti geta önnur félög ráðist í slíka framkvæmd í von um að hafa arð af henni,“ sagði hann. „En það þarf auðvitað að meta hversu mikil afkastageta þarf að vera í slík- um streng og miðað við það er varla hægt að gera ráð fyrir að í bili sinni nema einn strengur til viðbótar þjón- ustunni til íslands. Mér finnst hins vegar eðlilegt að Síminn, þetta stóra og öfluga fyrirtæki, hrindi þessu af stað, en eins og þekkt er er íslands- sími aðili að Kantat-sæstrengnum þannig að fleiri hafa áhuga á að geta sinnt þessari þjónustu." Morane Flott bikíní og sætir sumarkjólar TEEIMO Laugavegi 56 Hjá okkur versla ungar konur Við erum með tiskufatnað í stærðum upp í 56 Ríta TÍSKUVERSLUN Eddufelli 2 Bæjarlind 6 $.557 1730 $.554 7030. Opið mán,—fös. frá kl. 10—18, lau. 10-15. Gili, Kjalarnesi s. 566 8963/892 3041 Ný sending Eitthvert besta úrval landsins af vönduðum, gömlum, dönskum húsgögnum og antikhúsgögnum Opið lau.-sun. frá kl. 15-18, þri.-fim. 20.30-22.30 ^^^isa^S^uro-raðgreiðslw^^^S^fti^iánan^arnkomulagi^lafur^^^^^^^^ GRILLMARKAÐUR - Gasgrill frá 15.900-* samsett og heimsent Komdu og skoðaðu árgerð 2000. ^ Char-Broil Tilboð um fría heimsendingu gilda aöeins á höfuðborgarsvæðinu. 'Gaskútur fylgir ekki. EIGUM VARAHLUTI 0G FYLGIHLUTI FYRIR GASGRILL. GRILLÁHÖLD í ÚRVALI. 0PIÐ I DAG 10-16 Grandagarði 2, Rvík, sími 580-8500 RIIGGUR OG FJOLSKYLDUVÆNN Gunnar Bernhard ehf. LiViL HONDA Civfc 5 dyra VTEC 115 hestöfl, 1500 vél, 2 loftpúðar, ABS, styrktarbitar í hurðum, sparneytinn, i blönduðum akstri 6,51/100 km 1,495.000kr.- Vatnagörðum 24 • s. 520 1100 AKRANES: Bili/er sf„ sími 431 1985. AKUREYRI: Höldur hf„ simi 4613000. KEFLAVÍK: Bílasalan Bílavík, sími 421 7800. VESTMANNAEYJAR: BHaverkstæðið Bragginn, sími 481 1535.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.