Morgunblaðið - 10.06.2000, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Kattaofnæmi
Kí'otuir
Likamsrækt
Nýtt lyf gegn astma
virðist gagnlegt gegn
kattaofnæmi.
Hraustur maður deyr
síður úr krabbameini
en óhraustur.
Hrotur meðhöndlaðar
m.þ.a. nema burt vef
með útvarpstíðnibylgjum.
Parkinsons
Ákveðið lyf virðist
draga úr ósjálfráðum
hreyfíngum.
Astmalyf vinnur
á kattaofnæmi
The New York Times Syndicate.
NÝTT astmalyf virðist einn-
ig vinna á einkennum katta-
ofnæmis, að því er vísinda-
menn við Johns Hopkins
sjúkrahúsið í Baltimore í
Bandaríkjunum greina frá.
Lyfið zafirlukast, sem selt
er undir nafninu Accolate,
virkar vel gegn astma, bæði
hjá bömum og fullorðnum.
Vísindamennirnir prófuðu
lyfið á 18 manns í viku og
gáfu fólkinu ýmist zafirluk-
ast eða gervilyf á meðan það
dvaldi í svonefndu „kattar-
áskorunarherbergi", sem
var teppalagt heimiii
tveggja heimiliskatta. í her-
berginu var dýna sem var
hrist rétt áður en sjúkling-
urinn kom inn.
í herberginu komust
sjúklingarnir „í mjög nána
snertingu við ketti, tíu til
hundrað sinnum sterkari of-
næmisvalda en búast mætti
við á venjulegu heimili", að
sögn vísindamannanna. Nið-
urstaða rannsóknarinnar
varð sú, að töluvert minni
ofnæmiseinkenna varð vart
hjá þeim sem tóku lyfið, og
var greint frá þessu í tíma-
ritinu Journal of Allergy
and Clinical Immmunologyí
síðasta mánuði.
Zafirlukast tilheyrir ný-
legum flokki astmalyfja,
Morgunblaðið/Kristinn
Köttur í búðarferð.
svonefndum „leukotine anta-
gonists", sem stöðva efni er
lungnafrumur losa og valda
ofnæmiseinkennum. „Við
prófuðum kattaofnæmi vegna
þess að það er það sem við er-
um að gera, en það er í raun-
inni gott módel fyrir hvers-
konar astmaofnæmi. Það má
reikna með að ef lyf virkar vel
á einn ofnæmisvald þá virki
það líka á aðra,“ sagði einn að-
alhöfunda rannsóknarinnar,
dr. Robert Wood, aðstoðar-
prófessor í barnalækningum.
Einungis eitt annað lyf er í
sama flokki og zafirlukast og
kveðst Wood telja að það
muni virka á mjög svipaðan
máta. Verið er að gera hlið-
stæða tilraun með virkni þess.
Zafirlukast er gefið í pillu-
formi, og sagði Wood að ekki
hefði orðið vart neinna alvar-
legra aukaverkana. Nokkrir
sjúklingar kvörtuðu undan
vægum höfuðverk, og einn
vegna niðurgangs.
Svipuð rannsókn á virkni
zafirlukast á kattaofnæmi var
gerð við Háskólann í Kaliforn-
íu, þar sem vísindamenn
komu sér upp álíka katta-
áskorunarherbergi og komust
að sömu niðurstöðu, að þeir
sjúklingar sem tóku lyfið
fundu fyrir vægari ofnæmis-
einkennum.
Úr íslensku lyfjabókimii
Accolate
Innihaldsefni: Zafirlukast.
Lyfjaform: Töflur: 20 mg.
Notkun: Accolate er notað
til að fyrirbyggja astma og
sem viðhaldsmeðferð við
astma. Accolate er leukotr-
íenviðtækjablokki, sem
hindrar áhrif efna sem nefn-
ast leukotríen. Leukotríen
valda m.a. þrengingu og
bólgum í berkjum. Hömlun á
áhrifum leukotíena bætir
astmaeinkenni og getur
komið í veg fyrir astmaköst.
Skammtar: Læknir ákveð-
ur ætíð skammta fyrir hvem
einstakling. Venjulegur
skammtur handa fullorðnum
er 20 mg tvisvar á dag.
Læknir getur hækkað
skammt í mest 40 mg tvisv-
ar á dag ef þurfa þykir.
Matur getur haft áhrif á að-
gengi lyfsins, því skal ekki
taka það með mat. Töflurnar
skal gleypa og drekka vatn
með. Accolate er notað til að
koma í veg fyrir astmaköst
og á því að taka það sam-
fellt. Lyfið er ekki ætlað
börnum yngri en 12 ára.
Aukaverkanir: Algengar:
Höfuðverkur og meltingar-
óþægindi eru algengustu
aukaverkanimar. Sjaldgæf-
ar: Ofnæmi, með ofsakláða
og bjúg þekkist. Útbrot.
Einnig tímabundin truflun á
starfsemi lifrar.
Athugið: Gæta skal varúð-
ar hjá þeim sem eru með
skerta lifrarstarfsemi.
Fylgjast skal vel með þeim
sjúklingum sem eru á blóð-
þynningarlyfjum samtímis
töku Accolate. Accolate er
ekki notað til að meðhöndla
skyndileg astmaköst. Það er
notað til að koma í veg fyrir
að astminn versni og til að
hafa stjórn á sjúkdómsein-
kennum astmans. Þess
vegna er lyfið tekið samfellt,
þó svo að öll astmaeinkennin
séu farin. Mikilvægt er að
halda áfram að taka Accol-
ate eins lengi og læknir gef-
ur fyrirmæli um, til að við-
halda stjórn á astmanum.
Meðganga og brjöstagjöf:
Lyfið ætti ekki að nota á
meðgöngutíma nema brýna
nauðsyn beri til. Lyfið skilst
út í móðurmjólk og ætti því
ekki að taka það meðan á
brjóstagjöf stendur nema
læknir ráðleggi svo.
Til frdðleiks: Lyf sem
notuð eru fyrirbyggjandi við
astma eru ný á markaðnum
og er Aecolate eitt það
fyrsta í þeim flokki hér á
landi.
Afgreiðsla: 28 eða 98 töfl-
ur í þynnupakkningu.
• Nánar á Netinu:
www.netdoktor.is.
Skaða refsingar börn ?
Gylfi Ásmundsson sálfræðingur svarar spurningum lesenda
Spurning: Getur það verið skað-
legt fyrir börn að beita þau refs-
ingum? Ef svo er, hvemig á þá að
halda uppi aga og venja bömin af
ósiðum og óþekkt?
Svar: í hugum margra em refs-
ingar á börnum fólgnar í því að
hirta þau líkamlega með fleng-
ingu, kinnhesti eða ámóta aðgerð-
um. Slíkar refsingar tíðkuðust
mikið hér áður fyrr og þóttu sjálf-
sagður þáttur í uppeldi barna.
Máltæki eins og „Sparaðu vönd-
inn og spilltu barninu" eða „Við
berjum líkamann til að bjarga sál-
inni,“ eru vitnisburður um þetta
og þóttu í eina tíð góð og gild
kristileg kenning. Nú em flestir
þeirrar skoðunar að þetta séu
ómannúðlegar aðferðir, oftast
gagnslitlar og geta verið skaðleg-
ar. í sumum löndum hafa líkam-
legar refsingar beinlínis verið
bannaðar, t.d. í skólum.
Refsingar þurfa þó ekki að vera
líkamlegar og em það sjaldnast.
Þær geta stundum átt við og ver-
ið gagnlegar. Hins vegar er það
mun áhrifaríkara til að kenna
bömum rétta og æskilega hegðun
að nota umbun fyrir það sem þau
gera vel heldur en að refsa fyrir
það sem þau brjóta af sér. Agi er
bömum nauðsynlegur, ekki aðeins
til þess að móta hegðun þeirra
heldur ekki síður til að skapa
þeim öryggiskennd. Til þess að
svo megi verða þarf aginn að vera
jákvæður og þroskandi fremur en
að brjóta barnið niður.
Gerður hefur verið greinarmun-
ur á þremur tegundum refsinga.
Hin fyrsta er líkamlega refsingin.
Önnur er fólgin í því að neita
baminu um ást foreldra sinna,
segja eða gera eitthvað sem barn-
ið skilur á þann veg. „Ég vil ekki
eiga þig, ef þú ert svona vondur
strákur," eða tala ekki við barnið í
lengri tíma, jafnvel dögum saman.
Bam sem óttast um ást foreldra
sinna er líklegt til þess að verða
öryggislaust og kvíðið og gæti
fengið ýmis geðræn einkenni.
Þriðja tegund refsingar getur
hins vegar oft verið jákvæð og
þroskandi. Hún byggist á að stýra
baminu með samblandi af umbun
Uppeldi
og mildri refsingu. Segjum sem
svo að barnið hafi þann ósið að
þvo sér aldrei um hendumar fyrir
matinn. Foreldri, sem notar stýri-
aðferðina í uppeldinu, beitir
hvorki skömmum eða líkamlegri
hirtingu, en gæti sagt við barnið:
„Ef þú þværð þér um hendurnar,
máttu fá ís á eftir eins og við hin,
annars ekki.“ Barnið fær þá tvo
kosti að velja um og getur sjálft
ráðið hvorn hann tekur. Að þessu
leyti er refsingin jákvæð fyrir
sjálfstæði og þroska barnsins.
Aðferðir við beitingu aga hafa
mikil áhrif á sjálfsmynd og sjálfs-
virðingu barnsins. Börn sem fá að
jafnaði jákvæðan aga þroska með
sér skýrari sjálfsmynd og innra
öryggi. Hin sem em beitt nei-
kvæðum aga eins og líkamlegum
refsingum eða andlegu ofbeldi
fyllast óömggi og hafa lágt sjálfs-
mat og þurfa því fremur að monta
sig eða sýnast.
Sumir fræðimenn telja þó að
líkamleg refsing geti verið rétt-
lætanleg og gagnleg undir vissum
kringumstæðum og á vissum
aldri. Að refsa börnum undir
tveggja ára aldri hefur litla þýð-
ingu, og eftir 6 ára aldur hefur
barnið oftast þroskað með sér
nægilega siðferðis- og sektar-
kennd til að hægt sé að stýra því
á jákvæðan hátt. A aldrinum
tveggja til sex ára getur stundum
þurft að grípa inn í óæskilega eða
jafnvel hættulega hegðun hjá
börnum, t.d. ef þau hlaupa út á
umferðargötu, með því að „taka í
þau“. Þá verður refsingin að
koma strax, svo að hún komi að
gagni og bamið tengi saman or-
sök og afleiðingu. Frestun á refs-
ingu gerir aðeins illt verra. For-
eldrar sem nota hirtingu við slík
tækifæri verða þó alltaf að beita
henni af hófsemi og skynsemi.
Ekki verður of mikil áhersla
lögð á það, að umbun og verðlaun
fyrir það sem vel er gert, er þeg-
ar til lengri tíma er litið að jafnaði
besta aðferðin til að aga böm á
þroskandi hátt. Öll böm þurfa
hrós og uppörvun, og stundum
getur verið nægilegt að horfa
framhjá því sem miður fer, en
veita hinu góða sem gert er já-
kvæða athygli. Þótt sumum finn-
ist kannski ólíku saman að jafna,
má fá fyrirmynd að barnauppeldi
í því hvernig góðir tamningamenn
meðhöndla hesta. Þeir beita lagni,
umbun og mildum refsingum og
gæta þess að bestu eiginleikar
hestsins fái að mótast og njóta
sín.
•Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það
sem þeim liggur á hjarta. Tek-
ið er á móti spurningum á virk-
um dögum milli klukkan 10 og
17 1 síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok,
Fax: 5691222. Einnig geta les-
endur sent fyrirspurnir si'nar
mcð tölvupósti á netfang Gylfa
Ásmundssonar:gy!fias(S>li.is.