Morgunblaðið - 10.06.2000, Side 32

Morgunblaðið - 10.06.2000, Side 32
Visindavefur Háskóla íslands Eru GSM-sImar skaðlegir heilsunni? VISINDI Á undanförnum vikum hefur Vís- indavefurinn meðal annars fjail- að um öryggi fjórdrifsbíla, orsakalögmál og óvissulögmál, verð á rjóma og mjólk, kvótakerfi, verðmæti loftsteina, nafn auðnu- tittlings, vettlinga og handklæði, sjaldgæf og löng orð, græðgi og hlutabréfaverð, breytingar á hlutverki peninga, gos í hálf- fullum flöskum, andefni, vísindaskáld- skap, dýrafjöldann í heiminum, innhverfa íhugun, sólargang í Hveragerði, merkingu orðsins sál, svifflug, sköpun eða þróun mannsins, muninn á ávöxtum og græn- meti, loga við lágt hitastig, menntun geimfara, grunnliti listmálara og sjónvarpsskjáa, sjávarföll, meintan ónytj- ungshátt Sókratesar, Area 51, dygð og dyggð, fiutning ensku frá Germönum, fyrstu tölvuna, heimildaskrár, kertaþráð, verslun L.H. Múllers, skrýtnar „sannanir“ í stærðfræði og fjölda gíga á tunglinu. Af þessu má sjá að gestir og höfundar Vísindavefjarins láta sér fátt mannlegt óviðkomandi og þar ættu allir að geta fundið sér fróðleik sem vekur áhuga. Eru GSM-símar skaðlegir heilsunni? SVAR: Fjölmiðlar flytja reglulega fréttir af þvi hve hættulegt kunni að vera að nota farsíma. Þar er skýrt frá áhyggjum manna af því að farsímar kunni að valda krabbameini eða heilaskemmdum með einkennum eins og svefntruflunum, minnistapi, höfuðverk, ógleði og svima svo nokk- uð sé nefnt. Hér er mikið í húfi því að minnsta kosti 500 milljónir manna nota farsíma daglega og fer þeim stöðugt fjölgandi. Farsímar senda og taka á móti út- varpsbylgjum á örbylgjutíðni á bilinu 450-1800 megarið (MHz). NMT- kerfið notar 450 MHz og GSM-kerfin í Evrópu og víðar nota 900 MHz. Á þessu tíðnibili eru engar visbending- ar um að tíðnin sjálf skipti máli fyrir hugsanleg skaðleg áhrif á lifandi ver- ur. Þegar farsími er notaður fara þess- ar bylgjur um loftnet sem er haldið upp að eyra eða gagnaugasvæði. Ör- bylgjur af þessari tíðni hita mnhverf- ið og hafa áhyggjur manna einkum beinst að því að farsímanotkun hiti heilann og valdi þannig skemmdum á honum. Venjulegur farsími sendir með orku sem er um 1 watt og út- reikningar benda til þess að notkun hans gæti hækkað hitastig staðbund- ið í heilanum um 0,1°C. Slík hita- hækkun gæti tæplega valdið skemmdum þar sem sótthiti getur hækkað líkamshitann, og þar með hitann í heilanum, um nokkrar gráð- ur án þess að valda skemmdum. Ef örbylgjur írá farsímum eru heilsu- spillandi væri því um að ræða annars konar áhrif en hitahækkun; gallinn er sá að ekkert er vitað um hvaða áhrif gæti verið að ræða. Örbylgjur frá farsímum eru ekki jónandi, eins og röntgengeislar og geislun frá geislavirkum efnum, og ættu því ekki að geta valdið skemmd- um á erfðaefninu (DNA), stökkbreyt- ingum eða krabbameini. En hvað er vitað um þessa hluti, hvaðan kemur sú vitneskja og eru til öryggisstaðlar sem við getum treyst? Mjög viðamiklar rannsóknir hafa verið gerðar til að kanna hvort far- símanotkun sé hættuleg. Rannsóknir hafa verið gerðar á lifandi frumum og dýrum sem hafa verið langtímum saman í missterku örbylgjusviði. Þannig hafa verið fundin mörk fyrir styrk örbylgna sem hefur ekki áhrif á www.opinnhaskoli2000.hi.is lifandi verur og út frá því hafa verið settir öryggisstaðlar fyrir fólk, sem eru svolítið mismunandi eftir löndum en eru oftast um það bil 2% af áður- nefndum mörkum í dýratilraunum. Farsímar og sendar fyrir farsíma liggja langt innan þessara öryggis- staðla. Gerðar hafa verið margar dýratilraunir með örbylgjur af svip- uðum styrk og farsímanotendur verða fyrir og næstum engin þeirra sýnir áhrif á líkamsstarfsemina. Einstaka tilraunir sýna einhvers konar áhrif en ýmist hefur ekki tekist að endurtaka þær eða niðurstöðurnar eru í andstöðu við aðrar tilraunir. Rannsóknir á fólki eru að mestu leyti faraldsfræðilegar og beinast að því hvort farsímanotendum sé hættara en öðrum við að fá krabbamein (til dæmis heilaæxli), hrörnunarsjúk- dóma í heila eða hvítblæði svo eitt- hvað sé nefnt. Hér gildir svipað og um dýratilraunimar: I nær öllum rannsóknum á fólki finnst ekkert samband milli farsímanotkunar og sjúkdóma en í einstaka rannsókn hef- ur fundist slíkt samband. Sama gildir um senda í dreifikerfi fyrir farsíma en loftnet fyrir slíka senda eru ýmist í sérstökum tumum eða á húsþökum. Samkvæmt stöðlunum er hættu- legt að koma nær loftnetunum en 5- 10 metra en rannsóknir á þeim sem búa eða starfa í húsum sem hafa far- símaloftnet á þakinu benda ekki til heilsuspillandi áhrifa. I nýlegri rann- sókn á fólki kom í ljós að farsímar höfðu viss örvandi áhrif á heilann, juku einbeitingu og flýttu fyrir ákvarðanatöku. Hvort þetta er rétt, jákvætt eða neikvætt eða hvort það hefur þýðingu fyrir heilsufar vitum við ekki. Ef allt er tekið saman bendir flest til þess að notkun farsíma sé hættulaus fyrir heilsuna en við getum ekki ennþá verið alveg viss og því er sjálfsagt að fara varlega. Ekki er heldur hægt að útiloka að vissir hóp- ar í þjóðfélaginu, til dæmis böm og unglingar, séu viðkvæmari fyrir þess- um áhrifum en aðrir. Farsímaframleiðendur hafa staðið sig frekar illa, ekki gert mikið til að draga úr örbylgjugeislun frá símun- um inn í heilann og dregið lappimar með að gefa upp styrk útgeislunar fyrir hveija tegund farsíma. Það sem við getum gert er að nota farsíma sem minnst, kaupa á símann sérstaka hlíf sem minnkar útgeislun og nota handfrjálsan búnað, en að vísu er um- deilt hvort handfrjáls búnaður minnki örbylgjugeislun inn í heilann. Að einu leyti era farsímar öragg- lega hættulegir en það er þegar öku- menn nota þá í akstri. Nú er búið að sýna svo rækilega fram á aukna slysatíðni af völdum farsímanotenda í umferðinni að hvert landið á fætur öðra, þar á meðal flest lönd í Norður- Evrópu, hafa bannað slíka notkun. Við bendum lesendum einnig á svar Viðars Guðmundssonar prófess- ors í eðlisfræði við spumingunni Era rafsegulbylgjur frá farsímum og öðr- um raftækjum skaðlegar heilsunni eða erfðaefninu? Magnús Jóhannsson, prófessor í læknisfræði við Háskóla Islands Hafa risafyrirtæki eða vest- ræn samfélög hag af því að önnur ríki eða fólk búi við skort og ánauð? SVAR: Almennt gildir hið þveröfuga. Rík lönd hafa mun meiri hag af viðskipt- um innbyrðis en af viðskiptum við fá- tæk lönd. Skiptir þá engu hve stór fyrirtækin sem eiga í viðskiptunum era. Sem dæmi má nefna að viðskipti Bandaríkjamanna við nágranna sína fyrir norðan, Kanada, skipta Banda- ríkjamenn miklu meira máli en við- skipti þeirra við nágranna sína fyrir sunnan, Mexíkóbúa. Ástæðan er ein- föld, þegar búið er að leiðrétta fyrir fólksfjölda framleiða íbúar ríkra landa meira en íbúar fátækra (þess vegna era þeir ríkir!) og hafa því meira að bjóða til útflutnings. íbúar ríki'a landa hafa einnig meiri kaup- getu en íbúar fátækra landa og rík lönd era því vænlegri markaður en fátæk lönd. Fleiri dæmi má nefna. Viðskipti Evrópubúa við íbúa Norður-Ameríku skipta Evrópubúa mun meira máli en viðskipti við fátækari heimsálfur. Það er til dæmis sáralítið upp úr viðskipt- um við Afríku að hafa, lítið hægt að kaupa þaðan nema einstaka hrávörar og íbúar Afríku hafa lítil tök á að kaupa vörur frá Evrópu. Enn má nefna dæmi. Islendingar hafa engan hag af viðskiptum við Norður-Kóreu, eitt fátækasta land heims, en talsverðan hag af viðskipt- um við Suður-Kóreu, við kaupum t.d. af þeim alls konar iðnvaming svo sem bíla á hagstæðu verði. Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla íslands ■ i I Matargerð Kryddið er út um allt Þar sem sjálfsagt þykir að nóg sé til af mat þykir hann yfírleitt meira spennandi ef hann er kryddaður á þann hátt að menn fáj notað hans til fullnustu. Krydd er lítið orð, en spannar afar víðfeðmt svið. Allt það sem bragðbætt getur mat og gefíð aukabragð, keim, lykt og hvaðeina sem virkar lystauk- andi. Menn geta fengið dellu fyrir kryddi, alveg eins og hestamennsku, skíðum, veiði- skap og skák. INGVAR Sigurðsson matreiðslum- eistari á veitingahúsinu Argentínu er mikill áhugamaður um krydd. Hann ræktar krydd úti í garði, inni í stofu og sækir oft krydd út í guðs græna náttúruna. Hann eldar oft heima hjá sér og gerir þar margar tilraunir sem síðan rata sumar á matseðil Argentínu. Áhugi Ingvars á kryddjurtum vaknaði á unglingsárunum og nán- ast samhliða matreiðsluáhuganum. „Þegar svona áhugi kviknar áttar maður sig fljótt á því að íslensk náttúra er afar auðug af alls kyns kryddi. Margt af því er vel falið og það getur þurft að leita vel að sumu og prófa sig áfram. Sumt er hægt að rækta heima fyrir, ýmist inni eða úti, en flestar þeirra teg- unda sem þar um ræðir eiga það sameiginlegt að vaxa hægt og þurfa mikið ljós . Það er of lítil náttúruleg birta hér á landi, vaxt- artími jurta of langur og veður of umhleypingasöm fyrir margar teg- undir. Þær eru rétt að skríða upp núna og þótt sumar megi nota jafnóðum þá verður að bíða eftir öðrum langt fram á sumar. Þá þarf að vakta jurtirnar sérstaklega vel, þær sem vaxa í stofunni þurfa t.d. alltaf raka mold. Það þýðir ekki að gleyma að vökva þær eins og sum stofublóm virðast þola,“ segir Ing- var. Einn kubb í einu Það er alltaf spurning hvernig kryddjurtir séu best meðhöndlað- ar, sumar eru best nýttar nýjar, t.d. graslaukur, en aðrar eru þurrkaðar og muldar niður. Eigi ekki að nota ferska kryddjurt strax og hún er tekin upp, heldur geyma hana til lengri tíma, þá not- ar Ingvar gjarnan það ráð að frysta jurtirnar í vatni í ísmolabox- um og þannig getur hann notað eins mikið eða lítið í einu og hann kærir sig um. Þannig má lengi geyma góða kryddjurt. Ingvar segir marga „helmingi pældari" en hann í jurtafræðunum, ekki síst þar sem margar jurtir hafa yfir að búa lækningarmætti. Hann einbeiti sér að því sem mat- artengt sé í umræddum jurtum og hann nefnir nokkrar sem ýmist finnast í görðum, úti í móa eða sem rækta má heima í stofu. Kerfillinn góður „Hér vex víða villtur kerfill í görðum. Þetta eru tvær tegundir, fjallakerfill og Spánarkerfill og virðast íslenskar aðstæður henta honum vel. Þessi jurt er þekkt fyr- ir að vaða yfir annan gróður og leggja garða undir sig ef ekki er spornað við honum. Það er milt anísbragð af Spánarkerflinum sem passar vel í salöt, ýmsa eftirrétti og bæði krapís og rjómaís," segir Ingvar. Hann nefnir einnig einiber sem vaxa víða og segir að einungis eigi að nota berin. Þau passi sem með- læti, t.d. í salöt. Kúmen vex víða hér á landi, seg- ; ir Ingvar, t.d. sé fullt af kúmeni í Viðey. „Kúmenið virðist bragð- meira eftir því sem það vex norðar á hnettinum. Það er vel þekkt krydd hér á landi, t.d. í brennivíni og kringlum, en það má nota það í margt annað, t.d. er mjög gott að bragðbæta gúllas með kúmeni,“ segir kokkurinn. Morgunfrúin býr einnig yfir kryddeiginleikum, þ.e.a.s. blöðin af henni og þau vill Ingvar nota í sós- ur og salöt. Birkigreinar og blóðberg Ingvar segist vita til þess að sumir þurrki og mylji blöð af birki yfir steikta og grillaða kjötrétti þó ekki hafi hann reynt það sjálfur. Hins vegar noti hann og fleiri þurrkaðar birkigreinar á gasgrill til að fá ákveðinn keim í grillmat. „Eg er hrifinnaf blóðbergi á steik- ur. Blóðbergið er einnig mjög gott j í alls konar legi og allir þekkja blóðbergste. Það má samt ekki rugla blóðbergi saman við lam-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.