Morgunblaðið - 10.06.2000, Page 42

Morgunblaðið - 10.06.2000, Page 42
42 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 5----------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ AÐALHEIÐ UR TRYGGVADÓTTIR + Aðalheiður Tryggvadótlir fæddist í Gufudal á Barðaströnd 13. febrúar 1911. Hún lést á sjúkrahúsinu á ísafirði 31. maí síð- astliðinn á nítugasta aldursári. Foreldrar Aðalheiðar voru Tryggvi Agúst Páls- son bóndi á Kirkju- bóli við Skutulsfjörð > og kona hans Krist- jana Sigurðardóttir. Aðalheiður ólst upp hjá foreldrum sínum á Kirkjubóli í hópi tíu systkina. Hinn 21. mars 1935 giftist Aðal- heiður Sigurði Sveins Guðmunds- syni frá Hnífsdal. Foreldrar hans voru Guðmundur Einarsson fisk- matsmaður í Hnífsdal og kona hans Bjarnveig Magnúsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík. Aðalheiður og Sigurður eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Guðmundur Tryggvi, f. 28.10. 1935, kvæntur Kristínu R. Einarsdóttur og eiga þau tvær dætur, Bjarnveigu Brynju, f. 28.9. 1957 og Aðalheiði Önnu, f. 8.2. 1962 og fimm barnabörn. 2) Krist- ján Birnir, f. 2.3. 1937, var kvæntur Gerði Kristinsdóttur. Kristján lést af slys- förum 5.4. 1986. Kristján og Gerður eignuðust sjö börn, Sigurð, f. 27.9. 1962, Sigurborgu, f. 23.10. 1963, Ástu, f. 21.12. 1964, d. 13.11. 1965, Heiðar Birni, f. 31.3. 1969, Víking, f. 26.3.1972, Hlyn, f. 10.4. 1974 og Júlíu Hrönn, f. 19.7. 1976. Barnabörn þeirra eru nú orðin níu. 3) Kristjana Sóley, f. 25.5. 1941, gift Jóni Halldórssyni. Börn þeirra eru fjögur, Hildur Halla, f. 20.8. 1962, Sigurður Arn- ar, f. 8.6. 1964, Aðalheiður Edda, f. 5.6. 1970, og Bjarki Þór, f. 21.6. 1976. Barnabörn Jóns og Sóleyjar eru fimm. 4) Sigurður Heiðar, f. 1.4. 1945, kvæntur Einhildi Jóns- Það er ekki auðvelt fyrir mig að ímynda mér tilveruna án þín sem allt- af gæddir allt svo miklu lííi í kringum þig elsku mamma. Þrátt fyrir þinn háa aldur var dans og létt lund allra meina bót í þínum huga. Á síðustu misserum voru það æ oftar systkini þín og foreldrar sem voru þér efst í huga og þú fannst fyrir nálægð þeirra og væntumþykjan lýsti frá þér. Þér var það fullkomlega eðlilegt að taka gesti þína með þér í hug- leiðslu og leyfa þeim að njóta með þér góðviðris og Ijúfrar anganar í berja- -^tnó í Kirkjubólshlíð. Það var alltaf auðvelt að gleyma vetri og kulda og smávægilegum vandræðum í þinni návist. Ég vil þakka þér fyrir allt það góða sem þú leyfðir mér að upplifa með þér bæði í æsku minni og á mín- um fullorðinsárum. Það hlýjar mér um hjartarætumar að rifja upp það ástríki og hlýju sem alla tíð ríkti milli þín og pabba. Þú kveiðst því aldrei að þurfa að yfirgefa þennan heim en hafðir einstakt lag á að njóta þess að vera hér og draga fram hið létta og jákvæða í tilverunni. Ég bið algóðan almáttugan Guð að leiða þig um ókomna tíð og hjálpa þér að rata í faðm þeirra sem þú elskaðir og á undan þér eru farnir. Takk fyrir jllt, elsku mamma. Þinn sonur, Ólafur Sigurðsson. færi ég henni fyrir alla þá ástúð og hlýju sem hún sýndi mér alla tíð. Álla mín var ekki hávaxin kona, en því stærri var hún að andlegu at- gjörvi. Aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni, en fram á síðasta dag brýndi hún fyrir fólkinu sínu að vera gott hvert við annað. Ekki fór hún varhluta af erfiðleik- um í lífinu, það vita allir sem til þekkja, en aldrei lét hún bugast. Létt lund hennar, jákvæðni og kjarkur báru hana áfram. Hún var hetjan. Alla átti bamaláni að fagna og hef ég séð endurspeglast í afkomendum hennar marga af bestu eiginleikum hennar. Alla mín var orðin þreytt undir lokin og farin að þrá hvíldina. Ég er þess fullviss, að hún hefur átt góða heimkomu. Nú hefur hún hitt aftur Sigga manninn sinn, sem lést fyrir þremur ámm, Kristján son sinn, sem lést fyrir fjórtán árum og alla aðra ástvini sína sem famir voru á undan henni. Þar hafa orðið fagnaðarfundir. Elsku Alla mín, ég kveð þig með þessum orðum: Farþúífiiði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt (V. Briem) Kristín (Didda). Elskuleg tengdamóðir mín Aðal- heiður Tryggvadóttir er látin. í örfá- um orðum langar mig að minnast hennar og þakka þá gæfu að hafa fengið að vera samvistum við hana rúm fjörutíu ár. Hjartans þakklæti GARÐH EIMAR BLÓMABÚÐ • STEKKJARBAKKA 6 N SÍMI 540 3320 > V Elsku Alla mín. Ég stend við dán- arbeð þinn ásamt nokkrum af þínum nánustu aðstandendum. Það blikar tár á hverjum hvarmi. Einhver rödd hvíslar að mér að ég eigi ekki að gráta 89 ára gamla konu sem var södd lífdaga, heilsan og lífskrafturinn horfinn, en í Spámanninum stendur: „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá hug þinn og sjá, þú grætur yfir því sem var gleði þín.“ En hver var meiri gleðigjafi í lífi okkar en einmitt þú? Ég kynntist þér fyrir rúmum 30 ár- um er leiðir okkar Heiðars lágu sam- an og var mér vel tekið eins og reynd- ar öllum sem á vegi þínum urðu. Þegar andlát ber að höndum Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan % ,.r S sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. dóttur og eiga þau þrjú böm, Ein- ar Pétur, f. 3.3. 1971, Hrefnu Sif, f. 15.6. 1972, Elísabetu, f. 1.2. 1985. Einnig á Heiðar dótturina Aðalheiði Björk, f. 9.9. 1964. Barnabörn eru fjögur. 5) Magnús Reynir, f. 17.10. 1948, kvæntur Hafdfsi Brandsdóttur. Saman eiga þau soninn Sigurð Sveins, f. 9.7. 1986. Einnig á Magnús Einar Snorra, f. 27.6. 1971 og Bjarn- veigu, f. 21.8. 1975. Stjúpbörn Magnúsar eru Eva Björk Árna- dóttir, f. 13.11. 1970, Dagrún Ell- en Árnadóttir, f. 31.7. 1972 og Kristján Örn Kristjánsson, f. 19.1. 1978. Barnabörn Magnúsar og Hafdísar eru fimm. 6) Ólafur Gunnar, f. 7.11. 1950. Uppeldis- dóttir Aðalheiðar og Sigurðar er Kristjana Kristjánsdóttir, f. 11.12.1929 sem flutti til þeirra tíu ára gömul þegar móðir hennar, sem var systir Aðalheiðar lést. Kristjana er gift Jens Hjörleifs- syni, f. 13.11. 1927, og eru börn þeirra Sigríður, f. 29.4. 1950, El- ísabet, f. 16.9. 1952, Hjörleifur Kristinn, f. 7.8. 1955, og Aðalheið- ur f. 20.11. 1964. Kristjana og Jens eiga þrettán barnabörn og tvö barnabarnabörn. Útför Aðalheiðar fer fram frá ísafjarðarkirkju í dag, og hefst at- höfnin klukkan 11. Minningamar eru svo ótal margar sem koma upp í hugann: Sunnudags- bíltúr út á Árbakka, allir mættir í kaffi til ykkar Sigga og setið og skrafað í litlu stofunni; jóladagur, húsið fyllist af lífi, stórfjölskyldan samankomin, hlaðið borð af dýrindis veitingum og þú í essinu þínu; sjö- tugsafmælið þitt, stórveisla í Félags- heimilinu í anda Ollu Tryggva, sungið og dansað, ekkert kynslóðabil, ungir sem aldnir í dansinn, barnabömin vinir og vandamenn. Það var lengi viðmið hjá mínum börnum ef glaðst var yfir einhveiju: „En það var svo miklu skemmtilegra í afmælinu hennar ömmu.“ Sumarið 78 stóðum við Heiðar í húsbyggingu, búið að selja íbúðina og nýja húsið ekki til- búið, það vantaði að brúa bilið í örfáar vikur. Við vomm boðin velkomin á Árbakka, nóg pláss fyrir fjögurra manna fjölskyldu hjá ykkur Sigga. Eina athugasemdin sem kom frá þér var: „Maður kynnist ekki bamaböm- unum fyrr en mpður býr á sama heimili og þau.“ I dag sé ég sann- leiksgildi þessara orða þinna, þegar ég sjálf er orðin margföld amma. Það sem átti að vera örfáar vikur varð að sex mánuðum og eitt er víst, okkur leið vel. Ég minnist líka afmælisdagsins þíns fyrir fimmtán árum, fjölskyldan saman komin á Hlíf, lítil stúlka aðeins þrettán daga gömul er lögð í arma afa og ömmu, þið svo glöð og undr- andi yfír hennar fyrstu heimsókn á Hlíf, þær áttu eftir að verða margar og ánægjulegar. Afi átti líka krakku á náttborðinu sínu sem var gædd þeim töframætti að nammið þvarr aldrei. Þú kvaddir þennan heim á afmæl- isdaginn minn. Það var mjög blendin tilfinning, bæði ljúf og svolítið sár, en í framtíðinni verður svo gott að minn- ast þín á þessum degi eins og reyndai- alla daga, þetta verður dagurinn okk- ar. Ég sé sjálfa mig umkringda barnabörnunum mínum, þá nota ég tækifærið og segi þeim sögur af ömmu Öllu sem líka á afmæli þennan dag, bara svolítið öðravísi afmæli. Það verða ljúfar og fallegar sögur af ykkur Sigga afa sem áttuð heima í „stóra húsinu" við ána í Hnífsdal þar sem öllum fannst gott að koma, börn- um og fullorðnum, skyldum sem vandalausum, hvort sem var sunnu- dagur, afmælisdagur, hátíðisdagur eða bara ósköp venjulegur dagur, all- ir dagar voru góðir í návist ykkar. Ég þakka fyrir allar þessar stundir og bið þér Guðs blessunar. Þín tengdadóttir, Einhildur Jónsdóttir. Hún amma mín er dáin. Hún Alla Tryggva. Mig langar að skrifa nokk- ur orð til hennar og þakka henni fyrir allar gömlu góðu stundirnar sem við áttum saman. Hún amma var alltaf í góðu skapi. Hana langaði alltaf til þess að dansa og syngja. Hana langaði alltaf til þess að gera eitthvað skemmtilegt. Hún var sólargeisli. Hún var sól. Hún var sívinnandi. Eldaði og þreif. Ræktaði jarðarber í garðinum. Hellti uppá kaffi og bakaði pönnsur handa öllum sem ráku inn nefið. Hún kenndi mér að leggja kapal þegar mér leiddist. Hún sagði mér að vara mig á stelpunum. Hún sagði mér að leita ævintýranna. Hún spil- aði Rommí við okkur Einar Snorra, þegar við skrópuðum í menntó. Hún amma var yndisleg og falleg kona. Hún var með stórt hjarta og mjúkar heitar hendur. Hún var glöð og ánægð með lífið allt til síðasta dags. Elsku amma. Mér finnst eins og ég sjái þig fyrir mér; lítil stelpa í hvítum kjól með rauðum rósum, uppi í sól- bjartri Amardalshlíðinni að tína að- albláber. Þannig lýstir þú þér fyrir mér. Þannig mun ég minnast þín. Elsku amma mín, Guð geymi þig ogvarðveiti. Einar Pétur Heiðarsson. í yndisleik vorsins milliblómaogrunna siturungmóðir með bamáhnjámsér andlithennarsól bros hennar ylhlýir geislar Rafael í allri sinni dýrð Fegurðoggóðvild þetta tvennt og eitt hvað er umkomulausara í rangsnúnum heimi Ogþómestaföllu ogmunlifaallt (Snorri Hjartars.) Yndisleg kona, Aðalheiður Tryggvadóttir, er fallin frá í hárri elli og við kveðjum hinstu kveðju í dag. Það má með sanni segja að andlit hennar hafi verið sól og bros hennar ylhlýir geislar eins og Snoni Hjart- arson kvað í Ijóði sínu. Alla, eins og,hún var alltaf kölluð, var í orðsins fyllstu merkingu alveg einstök kona, alltaf jákvæð og glöð hvernig sem aðstæður vora og get ég ímyndað mér að lífið hafi ekki alltaf Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. verið henni mjög auðvelt. Ég var svo lánsöm að fá að alast upp með Ár- bakkafólkinu og kynnast Óllu vel. Eftir að ég flutti frá Hnífsdal fyrir rúmum 30 árum hittumst við því mið- ur alltof sjaldan en síðast þegar ég heimsótti hana fyrir nokkram áram var hún orðin ekkja og lá á sjúkra- húsinu á ísafirði. Það var mér mjög kær stund og ánægjulegt að hún skyldi þekkja mig því svo var komið þá að hún þekkti ekki alltaf sitt fólk. Hún vildi fá fréttir af mínum högum og er mér sérstaklega minnisstætt þegar ég sagði henni að ég ætti fimm börn og væri orðin amma að hún skellihló og sagði „þú svona lítil Sigga, þetta gastu“. Dæmigert fyrir Öllu því hún tjáði sig ekki mikið um öll sín afrek. Hún var nákvæmlega jafnlítil og átti sjálf sex börn og ól þar að auki upp móður mína frá unglings- aldri en hún hafði þá missti móður sína, Sigríði Tryggvadóttur, systur Öllu. Það var mömmu mikil gæfa að fá að fara til þeirra sæmdarhjóna Öllu og Sigga Sveins á þessum erfiðu tímum í hennar lífi og veit ég að hún var þeim afar þakklát fyrir það. I umræddri heimsókn vora mamma og pabbi með og var gaman að fylgjast með spjalli þeirra þriggja. Alla fór strax að rifja upp allt það skemmtilega í gegnum tíðina og minna á hvað oft hafi verið gaman og þau ljómuðu öll og hlógu mikið. Það var ekki venja Öllu að minnast ein- hverra erfiðra tíma og velta sér upp úr þeim. Mér finnst í minningunni sem hún hafi alltaf verið brosandi og frá henni stöfuðu endalaust ylhlýir geislar jafnvel þegar hún skammaði strák- ana sína fyrir einhver strákapör gerði hún það brosandi og þegar hún lá fárveik uppi í rúmi og gat sig varla hreyft sagði hún brosandi: „Það er þessi haus á mér Sigga mín eina ferð- ina enn“ þannig að maður gerði sér í raun pkki grein fyrii' hvernig henni leið. Ég hugsa því oft til hennar í mín- um höfuðverkjum og öðram erfið- leikum og spyr: „Hvernig skyldi Alla hafa bragðist við á svona stundum?" og það er ekki að því að spyrja; allt verður miklu léttara. Elsku Alla, ég vil fyrir hönd mömmu, sem dáði þig, pabba, sem alltaf leit á þig sem bestu tengdamóð- ur, og systkina minna og fjölskyldna okkar þakka fyrir að fá að hafa lifað með þér og fengið að kynnast mann- kostum þínum. Fjölskyldu þinni sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigríður Jensdóttir. Elskuleg frænka mín Aðalheiður Tryggvadóttir, Alla, eins og hún var kölluð, er látin. f mínum huga var hún ein af þeim konum sem hvað að- dáunarverðastar era hvað varðar æðraleysi og kjark. Á unga aldri minnist ég þess að er hún dvaldi í heimsókn hjá foreldram mínum á Kirkjubóli í Skutulsfirði að sumri til, með þijú ung börn sín, barst frétt um að eiginmaður hennar Sigurður S. Guðmundsson (Siggi Sveins) hefði stórslasast í sprengingu úti í Hnífsdal. Flugvélin Öminn, rauð sjóflugvél, var fengin til að flytja hann til Reykjavíkur á sjúkrahús. Það lét hátt í fjöllunum þegai' vélin hóf sig á loft. Þrátt fyrir að allt væri gert sem læknar réðu við missti Sig- urður sjónina að fullu fyrir lífstíð. Með börnin sín þrjú og þrjú bætt- ust við síðar og blindan mann sinn vann Alla sitt lífsstarf svo til fyrir- myndar var, alltaf svo lífsglöð og bjartsýn. Þessi fjölskylda sýndi síðar hvað í henni bjó og nú er framsýni og dugnaður þeirra hluti af sögu ísa- fjarðar og þeirrar byggðar, þar sem þau hafa komið við. Þegar ég kveð Öllu, foðursystur mína, era mér efstar í huga allar þær ánægjustundir sem ég naut á heimili hennar, sem skilja eftir þær minning- ar sem hvað mestu varðar þegar til baka er litið. Aðalheiður kveður nú síðust af stóram systkinahópi. Það virkar þannig á mig eins og vissum kafla í sögunni ljúki. Alla var öllum fyrirmynd með lífi sínu og fyrir það er henni nú þakkað með samúðarkveðjum til hennar nán- ustu. Ólafur Tr. Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.