Morgunblaðið - 10.06.2000, Side 46
£6 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ésCHWAB
Eldtraustir
öryggisskápar
VEGNA umfjöllunar fjölmiðla
um glefsur úr bréfí sem sent var
aðstandendum heimilismanna á
Hrafnistu í Reykjavík tel ég ástæðu
til að bréfíð verði birt í heild, þann-
ig verði leiðréttur sá misskilningur
sem fram hefur komið.
Það hafa aldrei þótt vönduð
vinnubrögð að sópa rykinu undir
rúmin og láta það hlaðast þar upp
aðgerðalaust. Okkur þótti því nauð-
synlegt og heiðarlegt að upplýsa
aðstandendur heimilisfólksins um
þau vandamál sem við er að etja.
Enginn getur stuðlað að lausn né
skilið vandamál sem honum er
ókunnugt um. Aðstandendur eiga
rétt á að fylgjast með framvindu
mála, sama á hvorn veginn þau
þróast.
Starfsfólk og aðstandendur eiga
það sameiginlegt að bera velferð
heimilisfólks öldrunarstofnana fyrir
brjósti, bæði nú og í framtíðinni.
Einn þátturinn er að hlúa að
starfsfólki þannig að bæði verði eft-
irsóknarvert að starfa með öidruð-
um og starfsfólk endist í starfi.
Á nýafstaðinni alþjóðlegri öldr-
unarráðstefnu í
Reykjavík og í viðtali
við Morgunblaðið 6.6.
sl. kom fram hjá
bandaríska prófess-
ornum Barböru
Bowers að ástandið í
öldunarhjúkrun væri
betra hér en í Banda-
ríkjunum. Þar væri
m.a. skortur á hæfu
starfsfólki, starfs-
mannaveltan væri
125%, fjármagn væri
ónógt því að öldrunar-
hjúkrun er dýr og af-
leiðingarnar eru lé-
legri hjúkrun.
Stefnum við ekki
hraðbyri í þessa átt ef við spyrnum
ekki við fótum og horfumst í augu
við staðreyndir? En það getur bæði
verið harkalegt og sárt.
„Rvk. 29.05.00
Ágæti aðstandandi.
Tilefni þessa bréfs er að greina
ykkur aðstandendum heimilis-
manna á Hrafnistuheimilinu frá
þeirri vanmönnun og miklu starfs-
mannaveltu sem við höfum átt við
að stríða að undanförnu og fram-
undan er.
Skortur á starfsfólki hefur aldrei
verið meiri á öldrunarstofnunum og
eru lág laun aðalorsökin. Öldrunar-
stofnanir eru engan veginn sam-
keppnisfærar miðað við almennan
vinnumarkað. Fólk sem gjarnan vill
vinna hjá okkur hefur einfaldlega
ekki efni á því og er að auki að gef-
ast upp vegna mikils
álags.
Þegar við horfum til
komandi sumars er út-
litið mjög slæmt. Ekki
hefur fengist nægjan-
legur fjöldi aðhlynn-
ingarfólks til sumaraf-
leysinga, né fagfólk til
að leysa af hjúkrunar-
fræðinga og sjúkra-
liða. Við sem berum
ábyrgð á velferð og
umönnun heimilis-
fólksins sjáum ekki
fram á annað en neyð-
arástand.
Nú lítur út fyrir að
við getum átt fullt í
fangi með að sinna grunnþörfum
heimilisfólksins í sumar. Það gætu
komið dagar þar sem ekki næðist
að klæða alla heimilismenn á hjúkr-
unardeildum og erfiðlega gengi að
baða alla sem þurfa aðstoð.
Verði ástandið viðvarandi þarf að
grípa til neyðarráðstafana sem
gætu verið:
• Draga úr inntökum á mjög
veikum einstaklingum.
• Aðstandendur taki ættingja
heim tímabundið, t.d. um helgar.
• Aðstandendur sinni ættingjum
inni á heimilinu t.d. aðstoði við að
klæða, hátta og aðstoði á matmáls-
tímum.
Vinsamlegast hafið samband við
deildarstjóra á þeirri deild sem
ættingi þinn dvelur, því ástandið er
misslæmt á deildunum. Ef þú og
Mannekla
Starfsfólk og aðstand-
endur eiga það sameig-
inlegt, segir Ragnheið-
ur Stephensen, að bera
velferð heimilisfólks
öldrunarstofnana fyrir
brjósti, bæði nú og í
framtíðinni.
þínir veita aðstoð inni á heimilinu
er góð skipulagning nauðsynleg.
Það er mikiíl styrkur fyrir okkur á
Hrafnistuheimilinu að hafa gott
samband og að skilningur ríki á
milli aðstandenda og starfsfólks.
Með kveðju og ósk um gott sam-
starf.
Ragnheiður Stephensen hjúkrun-
arforstjóri
Sveinn H. Skúlason forstjóri"
Upphaflega stóð til að senda bréf
til aðstandenda heimilismanna
beggja Hrafnistuheimilanna í
Reykjavík og Hafnarfirði. Þegar á
síðustu stundu rættist að mestu úr
mönnunarmálum í Hafnarfirði þótti
ekki ástæða til að senda út bréf
vegna heimilisins þar.
Höfundur er hjúkrunarforstjóri
Hrafnistuheimilanna.
www.mbl.is
AUGLYSIIMGA
UMRÆÐAN
Velferð lieimilisfólks
öldrunarstofnana í öndvegi
Ragnheiður
Stephensen
ATVINNU*
AUGLÝSINGAR
Frá Grunnskólanum
í Þorlákshöfn
x Kennara í hannyrðum vantarvið Grunnskólann
í Þorlákshöfn næsta skólaár. Einnig vantar
kennara í myndmennttil áramóta v/barns-
burðarleyfis.
í skólanum stunda um 260 nemendur nám og
milli 30 og 40 starfsmenn vinna við skólann.
Á staðnum er glæsilegt íþróttahús og mikið
íþróttalíf. Sveitarfélagið útvegar ódýrt hús-
næði. Boðið er upp á heilsdagsvistun í leikskól-
anum.
Laun greidd eftir viðbótarsamningi milli
kennara og sveitarstjórnar.
Allar nánari upplýsingar hjá skólastjóra eða
aðstoðarskólastjóra í símum 483 3621
og 895 2099.
IMAUÐUIMGARSALA
Uppboð
Framhald uppbods á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjólfum sem hér segir:
Austurvegur 18—20 e.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Ársæll Ásgeirsson,
gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf„ Ibúðalánasjóður og sýslumaður-
inn á Seyðisfirði, miðvikudaginn 14. júní 2000 kl. 10.00.
Háholt 3, Vopnafirði, þingl. eig. Þórður Helgason, gerðarbeiðandi
Byggðastofnun, þriðjudaginn 13. júní 2000 kl. 15.30.
Laufás 12, Egilsstöðum, þingl. eig. Oddrún Sigurðardóttir, gerðar-
^beiðandi Sparisjóður Súðavíkur, miðvikudaginn 14. júní 2000 kl.
14.00.
Miðgarður 7a, Egilsstaðir, þingl. eig. Agnes Úlfarsdóttir og Kristján
Þ. Björgvinsson, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður, miðvikudaginn
14. júní 2000 kl. 14.30.
Teigasel II, Norður-Héraði, þingl. eig. Jón Friðrik Sigurðarson, gerð-
arbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins, miðvikudaginn 14. júní 2000
kl. 16.00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
y- 2. júnf 2000.
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðar verða boðnar upp við lögreglustöðina,
Vesturgötu 17, Ólafsfirði, miðvikudaginn 21. júní 2000
kl. 11.30:
IV-032 SM-342
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði,
7. júní 2000.
FUIMOIR/ MAIMIMFAGIMAQUR
Arsfundur 2000
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda verður haldinn
í A-sal á 2. hæð í Bændahöllinni við Hagatorg
í Reykjavík, þriðjudaginn 20. júní 2000 og hefst
kl. 16:00.
Dagskrá ársfundarins verður eftirfarandi:
1. Flutt skýrsla stjórnar.
2. Kynntur ársreikningur.
3. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt.
4. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins.
5. Önnur mál.
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyris-
þegar, eiga rétt til fundarsetu. Sjóðfélagar eru
hvattirtil að nýta sér rétt sinn og mæta á árs-
fund sjóðsins.
Þeir sem vilja nýta sér þennan rétt þurfa að
tilkynna það skrifstofu sjóðsins í síðasta lagi
13. júní og munu þeir fá afhent fundargögn
í upphafi fundar.
Lífeyrissjóður bænda.
5UMARHÚS/LÓÐIR
Sumarbústaðalóðir
í Biskupstungum
Á Reykjavöllum er verið að útbúa nýtt sumarbú-
staðahverfi. Þar er ævintýralegt útsýni yfir Ármót
og til jökla og Heklu. Lóðirnar eru leigulóðir og
eru ca hálfur hektari að stærð. Innifalið í stofn-
gjaldi er vegur og lagnir fyrir heitt og kalt vatn
að lóðarmörkum og heildargirðing umhverfis
hverfið. Innifalið ertengigjald fyrir heitt vatn.
Greiðslukjör. Verið velkomin að skoða.
Uppl. í símum 897 3838/486 8706 og 861 8689.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Samspil manns og nóttúru.
Fræðsluferð ■ Krýsuvík
11. júní, árdegisganga fró
Seltúni í Krýsuvíkurskóla. Há-
degishressing, fuglaskoðun
o.fl. ó Krýsuvíkurbjargi.
Allir velkomnir. Verð 800.- Inni-
falin hádegishressing í Krýsuvík-
urskóla.
í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ í
tilefni árþúsundaverkefnis.
Fjallganga 12. júní: Móskarðs-
hnúkar - Trana - Kjós (austan
Esju). Verð 1200, allir velkomnir.
Þad líður að Jónsmessunni,
næturganga yfir Fimmvörðu-
hóls 23. - 25. júní og ó Dag-
málafjall (ný leið). Bókið tím-
anlega.
Annar í hvítasunnu 12. júní
a. kl. 10.00 Jeppadeildarferð.
Innstidalur - Hengilssvæðið.
Létt jeppa- og gönguferð fyrir allé
fjölskylduna. Hafið pylsur mef
(pylsugrill). Brottför frá Esso, Ár-
túnshöfða. Verð, 800 kr. á bíl f. fé
laga og 1.000 kr. f. aðra.
b. ki. 10.30 Djúpavatn — Sogir
— Höskuldarvellir.
Um 4 klst. gönguferð um fjöl-
breytta leið. Brottför frá BSl. Verð
1.400 kr. f. félaga og 1.600 kr. f
aðra.
Gönguferðir yfir Fimmvörðuhál;
um hverja heigi.
Jónsmessunæturganga yfir Fimm
vörðuháls og Jónsmessuhelgi
Básum 23.-25. júni.
Spennandi sumarleyfisferðír:
1.—5. júlí Hesteyri — Aðalvík.
1. -8. JÚLÍ KVERKFJÖLL -
VATNAJÖKULL, SKlÐAFERÐ.
2. -5. júlí Á Lónsöræfum.
30.7—6.8 Miðhálendisperlur Úti-
vistar.
Lifandi heimasíða Útivistar:
utivist.is