Morgunblaðið - 11.06.2000, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
U mh ver físlista-
verk afhjúpuð
Akrancs. Morgunblaðið.
Á DÖGUNUM voru afhjúpuð sjö
umhverfislistaverk á Akranesi sem
staðsett eru við sjávarsíðuna. Þessi
listaverk tengjast „sjávarlist" sem er
dagskrá um menningu og listir.
Þessi dagskrá er samstarfsverkefni
Akraneskaupstaðar og Reykjavíkur
menningarborgar Evrópu árið 2000.
Tvö listaverkanna eru staðsett við
Langasand og er annað þeirra eftir
Auði Vésteinsdóttur og nefnist „Á
floti“. Hitt er eftir Helenu Guttorms-
dóttur og nefnist „Liðinn tími“. Á
opnu svæði við Leyni, rétt innan við
Dvalarheimilið Höfða, eru tvö lista-
verk. „Veðrafiskar" eftir Marlies
Wechner og „Himnaríki" eftir Jón-
ínu Guðnadóttur. Við Elínarhöfða
enj þrú verk. „Tálbeitan" eftir
Bjarna Þór Bjarnason, „Veiðar“ eft-
ir Philippe Ricart og „Sæti“ eftir
Guttorm Jónsson.
Allir listamennirnir eiga það sam-
merkt að vera annaðhvort uppaldir á
Akranesi eða búa þar í dag. Oll verk-
in segja sögu sem tengist sjávarút-
veg með einhverjum hætti. Á Akra-
nesi var einn fyrsti vísirinn að
sjávarþorpi á íslandi og þar hefur
verið skipulögð útgerð frá sautjándu
öld. Veiðar, vinnsla og sala á sjávar-
afurðum hafa verið ein meginuppi-
staðan í afkomu bæjarbúa um aldir.
Ymsar tækninýjungar í sjávarútvegi
tengjast Akranesi í gegnum tíðina og
má þar nefna hliðarskrúfu, kraft-
blökk, síldardælu og karfaveiðar svo
nokkuð sé nefnt.
Fjölbreytt dagskrá á næstunni
Ymsir fleiri viðburðir sem tengj-
ast þessari dagskrá hafa verið í
gangi og verða út árið. Þar má nefna
leiklist, tónlist, listaverkasýningar
og síðar í sumar verður m.a. kristni-
tökusýning með írsku ívafi, sýning í
tilefni 70 ára afmælis Akraneshafnar
og kortasýning á vegum Landmæl-
inga ríkisins. Þá munu ýmsir lista-
menn sýna verk sín.
Himnaríki eftir Jónínu Guðnadóttur.
Aðalfundur Félags um
Listaháskóla Islands
UM þessar mundir eru fimm ár liðin
frá stofnun Félags um Listaháskóla
Islands. Þessa verður minnst á aðal-
fundi félagsins sem haldinn verður
14. júní nk. kl. 20.00 í sal Listahá-
skólans í Laugarnesi. Myndlistar-
deild Listaháskólans tók til starfa sl.
Haust og á hausti komanda bætist
leiklistardeild skójans við. Tónlistar-
deild mun væntanlega taka til starfa
árið 2001 eða 2002. Á aðalfundinum
mun nýr deildarstjóri leiklistardeild-
ar, Ragnheiður Skúladóttir, segja
frá undirbúningi að starfi hinnar
nýju deildar skólans. .
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Tálbeitan eftir Bjarna Þór Bjarnason.
Á floti eftir Auði Vésteinsdóttur.
Dans
stöðumæl-
anna á
geisladiski
KOMINN er út geisladiskur-
inn Dans stöðumælanna. Á
diskinum eru lög eftir Ingva
Þór Kormáksson sem samin
hafa verið við ljóð skálda sem
eiga það sameiginlegt að hafa
starfað á Borgarbókasafni
Reykjavíkur. Tónlistin er lag-
rænt popp með tilvísunum í
brasilíska bossanova-tónlist,
djass, vísnatónlist og salsa-
tónlist. Þau skáld sem eiga
ljóð á diskinum eru Hannes
Sigfússon, Snorri Hjartarson,
Anton Helgi Jónsson, Einar
Ólafsson, Kristín Ómarsdótt-
ir, Hrafn A. Harðarson,
Gunnar Dal, Þóra Jónsdóttir,
Pjetur Hafstein Lárusson,
Friðrik Guðni Þórleifsson,
Oddur Björnsson, Magnús
Gestsson, Emma Hansen,
Þórhallur Þórhallsson, Úlf-
hildur Dagsdóttir, Jón
Björnsson og Michael Pollock.
Að geisladisknum stendur
hópur flytjenda sem kallar sig
Ljóðabrot. Þetta er annar
geisladiskurinn sem gefinn er
út undir því nafni og kom sá
fyrri út 1990. Þetta er hins
vegar áttundi geisladiskurinn/
breiðskífan sem hefur að
geyma tónlist eftir Ingva Þór
Kormáksson. Diskurinn er
seldur til styrktar Dauf-
blindrafélaginu en útgáfan
tengist í og með flutningi að-
alsafns Borgarbókasafns í
nýtt húsnæði í Tryggvagötu í
ágústmánuði nk.
Þrenning á
tónleikum á
Sýningnm
lýkur
Ljósaklif, Hafnarfirði
Sýningu Steinu Vasulka, Hraun
og mosi, í Ljósaklifi, vettvangi
fyrir skúlptúr og umhverfislist,
lýkur miðvikudaginn 14. júní.
Sýningarrými Ljósaklifs er op-
ið alla daga kl. 14-18.
Sýningin er styrkt af menning-
armálanefnd Hafnarfjarðar og
menntamálaráðuneytinu.
Gallerí Sölva Helgasonar
Myndlistarsýningu Óla G. Jó-
hannssonar í Gallerí Sölva Helga-
sonar að Lónkoti í Skagafirði lýk-
ur 11. júní. Yfirskrift sýningar-
innar er Handanum dyntótta
vinda og eru á henni sjö stórar
nýjar blekteikningar.
Varmárþingi
KRISTJANA Helgadóttir þver-
flautuleikari, Victoria Tsarevskaya
sellóleikari og Iwona Jagla píanó-
leikari koma fram tónleikum á
Varmárþingi, menningarhátíð Mos-
fellsbæjar, mánudagskvöldið 12. júní
kl. 21 í Varmárskóla.
Flutt verða verkin Extremes eftir
Barböru Kolb, en það er frumflutn-
ingur hér á landi, Villa-Lobos, The
jet whistle og tríó eftir C.M. von
Weber.
Morgunblaðið/Ásdís
Leikarar Þjdðleikhússins æfa Kirsuberjagarðinn.
Tuminas æfir Kirsuberjagarðinn
GAMANLEIKURINN Kirsuberja-
garðurinn eftir Anton Tsékov verð-
ur fyrsta frumsýningin á Stóra sviði
Þjóðleikhússins í haust og hafa æf-
ingar staðið undanfarnar vikur.
Leikstjóri er Rimas Tuminas frá
Litháen, höfundur leikmyndar er
landi hans, Adomas Jacovskis, sem
starfar nú í fyrsta sinn við Þjóðleik-
húsið, höfundur búninga er Vytaut-
as Narbutas og höfundur tónlistar
Faustas Latcnas. Þýðandi er Ingi-
björg Haraldsdóttir.
Þetta er í fjórða sinn sem Rimas
Tuminas setur upp við Þjóðleikhús-
ið, en hann hefur áður sett upp
Mávinn, Don Juan og Þrjár systur.
Leikendur í Kirsuberjagarðinum
eru Edda Heiðrún Backman, Ingv-
ar E. Sigurðsson, Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Baldur Trausti Hreinsson,
Sigurður Skúlason, Edda Arnljóts-
dóttir, Valdimar Örn Flygenring,
Brynhildur Guðjónsdóttir, Örn
Árnason, Vigdís Gunnarsdóttir,
Guðrún S. Gísladóttir, Randver
Þorláksson og Róbert Arnflnnsson.