Morgunblaðið - 11.06.2000, Blaðsíða 64
!heim að dyrum
www.postur.is
PÓSTURINN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ(SMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
ÍSWgw&V'" -
. > : , . - . , v
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Vöruflutningabifreið valt á Suðurlandsvegi í gær o g þurfti að loka honum í um tvær klukkustundir.
Almenn deild í
framhaldsskólum
Allt nám
n*verður ein-
ingabært
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
ákvað á útmánuðum að allt nám í
framhaldsskólum landsins yrði ein-
ingabært og hefur öllum skólameist-
urum framhaldsskólanna borist bréf
þess efnis. Þetta felur meðal annars
í sér að nemendur, sem ekki hafa
náð lágmarksárangri á lokaprófi úr
grunnskóla, geta sótt einingabært
nám í framhaldsskóla. í þessu skyni
verður boðið upp á almenna braut í
flestum framhaldsskólum landsins.
Á almennri braut geta nemendur
meðal annars sótt áfanga í þeim fög-
*pum sem þeir stóðust ekki á sam-
ræmdum prófum í 10. bekk, nokk-
urs konar upptökuáfanga, en einnig
verða aðrir áfangar í boði. Aðal-
steinn Eiríksson, deildarstjóri hjá
menntamálaráðuneytinu, segir í
samtali við Morgunblaðið að form-
lega komist almenna brautin í gagn-
ið haustið 2001 þegar nýjar innrit-
unarreglur í framhaldsskólana hafi
tekið gildi, en engu að síður fari
nokkrir skólar af stað með brautina
strax næsta haust. Aðalsteinn segir
að gert sé ráð fyrir því að almenn
braut taki eitt til tvö ár, en skólun-
um sé sjálfum falið að ákveða
hversu umfangsmikil brautin verð-
ur.
' - Almenna brautin er ekki einungis
ætluð þeim nemendum sem náð hafa
slökum árangri á samræmdum próf-
um í 10. bekk, heldur er hún meðal
annars einnig ætluð þeim sem eru
óákveðnir í námi
Viðræður ÍE og heilbrigðisstofnana vegna gagnagrunns
Frumdrög að samn-
ingi lig'gja fyrir
SAMNINGAVIÐRÆÐUR ís-
lenskrar erfðagreiningar og stjórn-
enda nokkurra heilbrigðisstofnana
um aðgang að upplýsingum úr
sjúkraskrám landsmanna til flutn-
ings í miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði eru í fullum gangi þessa
dagana skv. upplýsingum Jónu
Bjarkar Guðnadóttur, framkvæmda-
stjóra starfrækslunefndar gagna-
grunnsins.
Gerð slíkra samninga er þó hvergi
lokið en fyrstu drög að samningum
milli IE og nokkurra sjúkrastofnana
litu dagsins ljós fyrir nokkrum dög-
um og eru til skoðunar.
íslensk erfðagreining hefur að
undanfömu haldið kynningar- og
umræðufundi með starfsfólki á u.þ.b.
helmingi allra heilbrigðisstofnana á
landinu um fyiirætlanii- sínar.
Skv. ákvæðum rekstrarleyfis sem
heilbrigðisráðherra veitti ÍE í janúar
sl. á fyrirtækið að greiða ríkissjóði
íyrstu greiðslu árgjalds vegna
rekstrarleyfisins að fjárhæð 70 millj-
ónir kr. 1. júlí næstkomandi ef samn-
ingar liggja fyrir við Sjúkrahús
Reykjavíkur og/eða Ríkisspítala,
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og
tvær aðrar heilbrigðisstofnanir í öðr-
um landsfjórðungum. Er talið ólík-
legt að formlegir samningar geti leg-
ið fyrir á þeim tíma þar sem mikil og
flókin vinna er enn eftir.
IE þarf að semja við á fimmta tug
heilbrigðisstofnana um allt land auk
margra tuga sjálfstæðra heilbrigðis-
starfsmanna. Skv. upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær er
mikið starf óunnið áður en hægt
verður að hefja flutning heilbrigðis-
upplýsinga í gagnagrunninn og óvíst
hvenær byrjað verður að skrá gögn í
grunninn. Þarf m.a. að koma á fót
sérstakri dulkóðunarstofnun á veg-
um tölvunefndar og ganga frá nýju
rafrænu sjúkraskrárkerfi á sjúkra-
stofnunum. Ekki hefur heldur verið
tekin ákvörðun um hvar gagna-
grunnurinn verður til húsa.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Tryggðu þér betri vaxtakjör og lægri þjónustugjöld með því að sameina
kosti Heimilislínu og Heimilisbanka.
®BÚNAÐARBANKINN
HEIMILISLÍNAN
Truustur banki
wwtv.bi.ix
Frímann Viðar Sigurðarson snýr heyinu í Gerðateignum.
Sláttur hafinn undir
Eyjafjöllum
Ilolli. Morgunblaðið.
AÐ Ásólfsskála hóf bóndinn Sig-
urður Grétar Ottósson slátt
snemma í gærmorgun í Gerða-
teignum og strax að loknum slætti
sneri Frímann Viðar sonur hans
heyinu.
Iljónin Sigurður Grétar og
Katrín Birna Viðarsdóttir segja að
teigurinn hafi verið vel sprottinn.
Borið hefði verið á fyrir 42 dögum
og þetta hey væri ígildi kjarnfóð-
urs ef það næðist strax í rúllur
eins og útlit væri fyrir.
Þau hjónin sögðu heyskaparútlit
gott og bjuggust þau við að hey-
skapur færi á fullt á næstu 10 til
15 dögum. Bestu túnin væru slegin
tvisvar og siðan beitt í þriðja sinn.
Suðurlands-
vegi lokað er
vörubíll valt
LOKA þurfti Suðurlandsvegi í tvo
og hálfan tíma eftir að malarflutn-
ingabíll með fullfermi valt skömmu
fyrir klukkan ellefu í gær milli
Vesturlandsvegar og Rauðavatns.
Flutningabíllinn var að koma að
austan eftir Suðurlandsvegi og ætl-
aði að beygja til hægri inn á Vest-
urlandsveg þegar hann valt og
voru sjúkrabíll, tækjabíll og krana-
bíll sendir á vettvang. Bílstjórinn
var einn í bflnum en að sögn lög-
reglu var ekki vitað hve mikið
hann var slasaður. Hann er ekki í
hættu, en hlaut meiðsl á fótum. Bif-
reiðin valt á vinstri hlið og gekk því
erfiðlega að losa hann úr bflnum.
------------------
Aukin leiðni
í Jökulsá
LEIÐNI í Jökulsá á Sólheima-
sandi var með mesta móti í gær.
Að sögn Reynis Ragnarssonar
lögreglumanns í Vík í Mýrdal, sem
hefur mælt leiðni í ánni frá því í
hlaupinu sem varð í júlí á síðasta
ári, er þetta mesta leiðni sem
mælst hefur í ánni síðan þá. Reynir
segir að mikil hveralykt sé af vatn-
inu, en svo virðist sem vatn úr heit-
um uppsprettum hafi runnið í ána.
----------*-#-4---
Fullbókað í
innanlandsflug
FULLBÓKAÐ var í flestallar vélar
Flugfélags íslands á föstudag og í
gær og á morgun eru nær allar vélar
einnig fullar.
Jóna Gunnarsdóttir, vaktstjóri hjá
Flugfélagi íslands á Reykjavíkur-
flugvelli, segir flug til og frá vellinum
hafa gengið mjög vel, sérstaklega
þegar þær framkvæmdir sem þar
standa yfir séu hafðar í huga.
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út miðvikudaginn 14. júní.
Um hvítasunnuhelgina verður
fréttaþjónusta á fréttavef
Morgunblaðsins www.mbl.is.