Morgunblaðið - 11.06.2000, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR11. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
í stuði
með
sleikjó
Þ AÐ var vel tekið á móti
þeim sem fóru á for-
sýningu myndarinnar 28
dagar í Stjöraubíó í vik-
unni, það fengu allir sleiki-
brjóstsykur. Myndin 28
dagar er nýjasta mynd
hinnar gullfallegu Söndru
Bullock þar sem hún svipt-
ir sig sykurhulunni og leik-
ur konu sem á við áfengis-
^ vandamái að stríða.
Bíógestir skemmtu sér hið
besta og var góður rómur
gerður að myndinni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Stelpurnar kunnu vel að meta sleikibrjóstsykurinn og Söndru sætu.
Morgunbíaðið/Jim Smart
a r þ
r
Vinsælasta kvikmynd á Islandi í dag
101Reykjavík
Hausverkur.is * * * ú?
101 Reykjavík er kvikmynd á
heimsmælikvarða.
DV ***
Meinfyndin Reykjavíkursaga.
Mbl ***
Lýtalaust leikstýrð, skrifuö og leikin...
101 Reykjavík er bráðhress afþreying,
léttgeggjuð og gamansöm ...
Þarf maöur að biðja um meira.
Bylgjan * * *
Þaö er ekki oft sem maöur getur
skellihlegið á íslenskum myndum.
Frábær skemmtun, allir í bíó.
Rás 2 * * *
Stórgóö frammistaða allra, flott áferð
og kraftmikill taktur í skondnum
samtíðarspegli.
MYNDBÖND
Peningakast
Bandarísk fyrirmynd
(American Perfect)
DKAMA
•k-k'k
Leikstjóri: Paul Chart. Handrit:
Paul Chart. Aðalhlutverk: Robert
Forster, Araanda Plummer, Fair-
uza Balk, Christ Saradon, David
Thewlis. (96 mfn) England. Mynd-
form, 1998. Bönnuð innan 16 ára.
HINN undarlegi sálfræðingur
Jack er á leiðinni til Utah þar sem
hann telur að samhengi heimsins sé
úr ákvörðunum
sem teknar eru af
handahófi. Einn
daginn ákveður
hann að kasta pen-
ingi upp á hvort
hann eigi að drepa
persónu sem hon-
um er illa við eða
ekki og ekki líður á
löngu þar til hann
er orðin að stórhættulegum fjölda-
morðingja. Vegamyndir eru ekki
nýjar undir sólinni og það er erfitt að
finna nýja fleti á þessum geira, en
Paul Chart veit það vel og hefur
ákveðið að draga fram allar þær öfg-
ar sem vegamyndirnar bjóða upp á.
Ofbeldið í myndinni er yfirgnæfandi
eins og í „Natural Born Killers"
skrumskælir hún hryllinginn með
því að vita ekki hvar á að stoppa.
Stærsti kosturinn við myndina er
leikurinn og er Robert Foster („Pulp
Fiction“), sem leikur Jack af hreinni
snilld, fremstur í fríðum flokki. Af
öðrum leikurum má benda á Thewl-
is, Saradon og Plummer, en hlutverk
þeirra eru hvert öðru skrítnara.
Þetta er ekki mynd fyrir alla og
munu án efa jafn margir hata hana
og elska en það er aðal góðra „cult“-
mynda.
Ottó Geir Borg
Pólitísk
margröddun
Fallegt fólk
(Beautiful People)
GAMAN-DKAMA
★★★
Leikstjóri: Jasmin Dizdar. Handrit:
Jasmin Didzar. Aðalhlutverk:
Charlotte Coleman, Charles Kay,
Rosalind Ayres, Roger Sloman,
Heather Tobias, Danny Nussbaum.
(108 mín) England. Myndform,
1999. Myndin er bönnuð börnum
innan 16 ára.
HÉR er rakin saga nokkurra
Lundúnabúa sem virðast ekkert
tengjast í fyrstu en þegar á líður
myndina hafa ein-
staklingarnir mildl
áhrif hver á annan á
einn eða annan hátt.
Þessi skemmti-
lega mynd tekur á
mörgum alvarleg-
um umfjöllunarefn-
um eins og Bosníu-
stríðinu, vímuefn-
um, fótboltabullum
og ólöglegum innflytjendum. Hún
nær að koma sögu sinni til skila með
því að tvinna saman margar ólíkar
sögur en í dag virðist það gífurlega
vinsæll framsetningarmáti í kvik-
myndalistinni. Það er alltaf eitthvað
að gerast í myndinni og stundum
verður algjör ringulreið en það er
aldrei leiðinlegt að fygjast með at-
burðarásinni. Leikstjórinn og hand-
ritshöfundurinn Didziar hefur góða
stjóm á öllu saman og nær að skapa
litríkar og eftirminnilegar persónur.
Niðurstaða myndarinnar er að fólk
eigi að sýna meira umburðarlyndi
gagnvart því sem það þekkir ekki og
það er sjaldan að mynd komi svona
boðskap á jafn skemmtilegan og
frumlegan hátt til skila.
Ottó Geir Borg