Morgunblaðið - 11.06.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2000 29
Hvers vegna samræður
vísinda og trúarbragða?
Vilhjálmur Lúðvíksson Gunnar Kristjánsson
BÆNDAFERÐIR KYNNA
Spennandi
haustferðir
Þörf á „nýjum sið“
Tuttugasta öldin var mesta framfaraskeið
tækniþekkingar og hagvaxtar sem mannkynið
hefur upplifað. En jáfnframt var hún öld
mestu grimmdarverka og blóðsúthellinga sem
sagan getur um. Framundan blasa við glæstir
möguleikar byggðir á
enn nýrri þekkingu,
m.a. á sviði lífvísinda.
Miklar væntingar
hafa vaknað en jafn-
framt er spurt hvort
sú þekking leiði til
heilla eða ófarnaðar.
Fjölgun mannkynsins,
ásókn í auðlindir nátt-
úrunnar og uppsöfnun
og dreifing úrgangs-
efna ógna tilvist
mannsins á jörðinni.
Mannkynið er þegar
farið að hafa svo mik-
il áhrif á náttúru
jarðar að það gæti
hugsanlega kollvarpað því brothætta jafnvægi
sem ríkt hefur svo lengi sem tegundin „viti
borinn maður“ hefur verið til. Framtíðin er
þannig tvísýn.
Vísindin eru mál alis mannkynsins en mis-
munandi sjónarmið, hugmyndafræði - menn-
ingarviðhorf, trúarbrögð og menntun skilur
að menn og þjóðir. Þekkingu er beitt í marg-
víslegum tilgangi þar scm sórstakir hagsmun-
ir og mismunandi gildismat einstaklinga, fyr-
irtækja og þjóða ræður ferðinni. Afleiðingin
er oft svæðisbundin misskipting jarðargæða,
átök um landrými, auðlindir, völd og við-
skiptahagsmuni. En hnattvæðingin - hinn
þungi straumur samtímans - setur menn og
þjóðir í æ meira návígi. Örlög allra eru sam-
tengd, hagsmunir eru samtvinnaðir. Við kom-
umst ekki lengur hjá því að finna sameiginleg-
an grunn til að lifa í sátt í smækkandi heimi.
Vísindunum og trúarbrögðunum hefur bæði
verið beitt til góðs og ills, en þau í öllum sín-
um margbreytileika bera í sér sameiginlegan
sannieiks- og vísdómskjarna sem hugsanlega
má kristalla í leiðsögn til farsællar framtíðar,
„nýjan sið“ handa nýrri öld. Víða um heim
stendur umræða um þetta.
Gagnkvæm virðing-
Trú og vísindi snerta ólík svið í lífi mannsins. Til
að einfalda málið mætti segja að vísindin snúist
einkum um leit að aukinni þekkingu og beitingu
hennar en trúarbrögðin séu sá vettvangur þar sem
maðurinn glímir við tilvistarspurningar sem vakna
með öllum mönnum.
Það er ekkert nýtt að
samræður fari fram um trú
og vísindi. En nú virðist
sem nýr áhugi hafi vaknað
víða um heim. Ein megin-
ástæðan er sú að menn sjá
brýna þörf fyrir samvinnu
trúarbragða og vísinda í
ört breytilegum heimi.
í trúarbrögðunum er
fengist við trúarheimspeki-
legar spurningar um það
sem skiptir manninn mestu
máli í þessu lífi, og þar er
spurningin um tilgang lífs-
ins efst á blaði, einnig er
spurt um líf og dauða og
um mörg grundvallaratriði í lífi einstaklinga og
samfélaga. I trúarbrögðunum hefur maðurinn fund-
ið merkingarbæra heildarmynd af tilvist sinni allri,
auk þess sem þau mynda undirstöðu undir siðferðis-
leg viðhorf og breytni einstaklinga og samfélaga.
í þessum efnum þarf ekki að vera neinn árekstur
við raunvísindin. Enda hafa virtir vísindamenn á öll-
um sviðum ávallt verið framarlega í sveit þeirra
sem ganga fram ( nafni trúarinnar. Og vísindainað-
urinn hlýtur að fást við sams konar tilvistarspurn-
ingar og aðrir. Raunvísindin sjálf vekja oft spurn-
ingar um tilgang og merkingu þar sem svör liggja
ekki á lausu auk þess sem siðferðislegar spurningar
koma í vaxandi mæli inn á borð raunvisindamanns-
ins.
Trú og visindi hafa því afgerandi áhrif á allt sam-
félag manna á þessari jörð. Þetta verður þeim mun
augljósara þegar litið er til heimsins alls. Og hér er
það ekki aðeins þekkingarlcitin sem málið snýst um
eins og oft áður, heldur einnig sú viðleitni að efla
mannúð og réttlæti um víða veröld, vernda lífríkið
og varðveita frið milli þjóða.
Fræðimenn á sviði trúarbragða og raunvísinda
eru því óðum að átta sig á því að gagnkvæm virðing
auðveldar þeim hið óhjákvæmilega: að finna leiðir
til að starfa saman í sátt og samlyndi.
Wales, Suður-England og London. Gist verður
í Cardiff, Folkestone og London. Þetta er 11
daga ferð sem hefst 29. september og lýkur
9. október.
tSuður-Þýskaland, Ítalía og Svartiskógur (í
Þýskalandi). Gist verður í Ulm, Torbole við Garda-
vatn (7 nætur) og loks í Oberkirch í Svartaskógi.
Flogið til Frankfurt 10. október, heim 21. október.
3Gist tvær nætur á Norður-írlandi skammt frá
Belfast og seinni tvær næturnar rétt fyrir vestan
Dublin. Flogið til Dublinar 12. október og heim
16. október.
4Þýskaland, Ítalía, Frakkland, Svartiskógur.
Flliðstæð ferð og ferð nr. 2. Flogið til Frankfurt
18. október og heim 28. október.
SMoseldalurinn í Þýskalandi. Gist sjö nætur hjá
vín- og ferðaþjónustubændum í Leiwen. Farið
verður í ferðir frá Leiwen flesta daga. Flogið til
Frankfurt 22. október og heim 29. október.
Sameiginlegur kvöldverður er í öllum ferðum nema í
Leiwen og síðustu þrjú kvöldin í haustferð 1 (London).
Fjölbreyttar skoðunarferðir eru flesta daga og gisting
á mjög góðum hótelum. Góðir fararstjórar verða með
hópunum.
Verð ferða er frá kr. 53.000 í kr. 86.600
Ef áhugi er fyrir hendi, þá er um að
gera að flýta sér að hafa samband við
Bændaferðir í síma 563 0300.
Þið fáið allar upplýsingar um verð og ferðatilhögun.
^ J
Fréttir á Netinu d^mbl.is £=ITTH\ZAíD A/ÝT7
Heimsþekktir framsögumenn
Til ráðstefnunnar í júlí hafa boðað
komu sína nokkrir heimsþekktir
einstaklingar. Má þar kannski
frægastan telja Jose Ramos Horta,
Nóbelsverðlaunahafa frá Austur-
Tímor, en auk hans verða þar Thom-
as R. Odhiambo frá Kenýa, en hann
er forseti Vísindaakademíu Afríku,
Thierry Gaudin, sem er formaður
ráðgjafanefndar frönsku ríkis-
stjórnarinnar, sem fjallar um horfur
á 21. öldinni, bandaríski trúarheim-
spekingurinn Nancey Murphy, og
danski guðfræðingurinn Niels Hen-
rik Gregersen, varaformaður Evr-
ópusambands vísinda- og trúfræði-
rannsókna (ESSAT). Meðal inn-
lendra framsögumanna verða Sig-
rún Aðalbjarnardóttir prófessor,
Ástríður Stefánsdóttir heimspek-
ingur og læknir, og Páll Skúlason
heimspekingur og háskólarektor.
Dagskrá ráðstefnunnar er byggð
upp í kringum fimm meginefni.
Fimmtudaginn 6. júlí verður fjallað
um tvö þeirra, sem nefnast „Tæki-
færi og takmörk vísinda og trúar“
og „Eðli og tilgangur mannlífs“;
föstudagurinn 7. júlí verður helgað-
ur öðrum tveimur, sem nefnast
„Framtíðarhlutverk vísinda og
trúar í samfélagi manna“ og „Um-
hyggja fyrir framtíð jarðar“. Laug-
ardagurinn 8. júlí er fimmta og síð-
asta efnið tekið fyrir, „Framtíðin og
gæði lífsins".
Höfuðstöðvar ráðstefnunnar
verða í Háskólabíói, en sérstakir
dagskrárliðir verða við Gvendar-
brunna, í Svartsengi, á Þingvöllum,
á Nesjavöllum og í Viðey, þar sem
ráðstefnan verður sett, 5. júlí kl.
18.00, með þátttöku forsætisráð-
herra og biskups íslands.
Ráðstefnan fer fram á ensku.
HÍTEC
reu/ch
Sundbolir
Regnjakkar
Reebok skór
Barnaskór m/rh
Fótboltaskór
Útivistarjakkar
Útivistarbuxur
dcJckas ^SPEEDÖ^
Verö áður Verð nú
2.500-3.500 kr. 1.490 kr.
5.990 kr. 2.490 kr.
4-10.000 kr. 990-1.990 kr.
3.700 kr. 1.990 kr.
3.990 kr. 990 kr.
11.990 kr. 4.990 kr. 1
5.990 kr. 2.990 kr. 1 i
Rccbok
OZON
GEAH
Gott start fyrír sumaríð!
Mikið úrval af íþróttagöllum, peysum,
buxum, hlaupaskóm, sandöíum, regnjökkum,
úlpum ofl. ofl.
böltámaðQr'nn
LAUGAVEGI 23 • SÍMI 551 5599