Morgunblaðið - 11.06.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JÚNÍ 2000 25
„Þegar sveitar-
stjórnir huga ekki að
því að ná unga fólk-
inu heim yfír sumarið
með því að bjóða því
störf við hæfí, eru
þær einnig búnar að
missa það af svæðinu
til frambúðar.“
um landsbyggðarinnar sé hversu
óduglegir menn eru að koma sér á
framfæri og bíði þess að verkefnin
komi til þeirra. Tekur þú undir þessa
skoðun?
„Ég hugsa að talsvert sé til í þessu.
Það tengist því að ekki er mjög mikil
menntun eftir í fámennustu sveitar-
félögunum og þau hafa einangrast
dálítið í gegnum tíðina af þeim sök-
um. Ég tel að það sem helst hrjái
landsbyggðina sé skortur á frum-
kvæði, frumkvöðlum og fjármagni.
Ég hef verið í sambandi við mörg
sveitarfélög og almennur vilji er til að
gera eitthvað í málunum en menn eru
oft ekki nægilega hugmyndaríkir. Fái
þeir tilbúinn pakka á borðið eru þeir
oft mjög jákvæðir. Einnig hafa marg-
ir sveitarstjórnarmenn komið auga á
það að menningartengd ferðaþjón-
usta sem byggist á sérstöðu svæðis-
ins sé leið landsbyggðarinnar til að
auka gæði í ferðaþjónustu.
Hluti vandans innan sveitanna er
að daglegt amstur virðist vera nóg og
verkefnum fjölgar stöðugt en fólkinu
ekkert. Sömuleiðis vinna sumar
sveitarstjómir í nokkurs konar sjálf-
boðavinnu eða að menn era jafnvel
þar af illri nauðsyn. Á landsbyggðinni
eru menn orðnir allt í öllu og hafa
hreinlega ekki tíma fyrir nýjungar,
en einnig er of um að ræða skort á
stefnumörkun og hugsun til framtíð-
ar.“
Sérsöfnin hafa vakið athygli
Eittafverkefnum Sögusmiðjunnar
hefur verið að gera úttekt á söfnum á
landsbyggðinni og segir Jón að staða
þeirra sé tvískipt. Annars vegar séu
þau eins og steinrunnin tröll, þ.e.
stöðnuð og lítil hugmyndavinna í
gangi þrátt fyrir að miklir möguleik-
ar séu fyrir hendi. Ástæðuna telur
hann að sums staðar megi rekja til
víxlverkunar lítils fjármagns og lítils
skilinings heimafyrir. Það valdi því að
h'tið sé gert sem leiði af sér fáa gesti
og þá verður enn minna fjármagn til
og þannig viðhaldist hringrásin.
Hins vegar eru söfn þar sem mikil
hugmyndaríki ræður ferðum og á það
jafnvel við um ákveðin landsvæði.
„Uppgangur sanfnanna er sjálfsagt
einstaklingsbundinn að einhverju
leyti, en þó virðast sérsöfnin eða
mai-gar nýju sýninganna höfða til
ferðalanga. Sem dæmi má nefna
Vesturfarasetrið á Hofsósi og Njálu-
sýninguna en báðar njóta mikiis
stuðnings eða hafa afbragðs fram-
takssama eldhuga sem leiða þau
áfram. Einnig er Ijóst, að víða úti á
landi sárvantar fræðimenn og sam-
vinna ferðaþjónustunnar og fræði-
mannanna þyrfti að vera mun meiri.
Sama á við um fræðimenn og söfnin.
Síðast en ekki síst vantar
samstarfsvettvang milli þessara
þriggja aðila, þ.e. ferðaþjónustu,
fræðimanna og menningarstofnana
til þess að samspilið geti orðið virki-
lega kröftugt og haft keðjuverkandi
áhrif í gæðamálum og allri uppbygg-
ingu.“
Fleiri akademiur út á land
Jón er einn af fjörutíu sjálfstætt
starfandi fræðimönnum í Reykjavík-
urAkademíunni, þar sem sjálfstætt
starfandi fræðimenn hafa aðsetur og
vinna bæði að sjálfstæðum verkefn-
um sem og samstaifsverkefnum í
nafni Akademíunnar.
Stærstu verkefnin sem Jón er að
vinna að um þessar mundir er hand-
bók um menningartengda ferðaþjón-
ustu og stórt rannsóknarverkefni um
þjóðtrú bama, en að því kemur fjöldi
þjóðfræðinga, listamanna og grunn-
skólakennara. „Rannsóknarverkefn-
ið er tvenns konar, annars vegar ætl-
um við að gefa út bók, setja upp
sýningu og vef um þetta efni, sem
höfða á til bamanna. Hins vegar er
fræðileg rannsókn þjóðfræðinga á
barnamenningu. Gert er ráð fyrir að
verkefnið standi yfir næstu þrjú ár.
Handbókina byrjuðum við að
skrifa 1998 og verður hún væntan-
lega gefin út á næsta ári. Við nýtum
okkur óhemju miklar erlendar rann-
sóknir um hvemig standa eigi að
ferðaþjónustu til þess að hún nýtist
fólki og byggðalögum á sem jákvæð-
astan hátt. Þessu verkefni tengjast
síðan ýmis önnur smærri verkefni,
þannig að alltaf er nóg um að vera.“
_-Með tilkomu ReykjavikurAka-
demíunnar hafa fræðimenn orðið
sýnilegri almenningi að mörgu leyti.
Væri ekki hægt að setja upp svipaðar
akademíur víðar um landið?
„Ég er sannfærður um að það væri
hægt og hvet fræðimenn eindregið til
að hópa sig saman eða mynda ein-
hvers konar samstarfsvettvang. Ég
held að það sé gríðarlega mikilvægt
félagslega íyrir þá að hittast og skipt-
ast á skoðunum. Mér iitist frábær-
lega á að hafa akademíu í hverri sveit
og tengja þær saman í landsakadem-
íu. Best væri ef við gætum stofnað
akademíu líka í Svíþjóð, Noregi og
Danmörku og tengt saman í svipaðan
vettvang, þar sem menn væra sjálf-
stætt starfandi," segir Jón.
Hann tekur ennfremur -fram að
hugmyndir verði til þar sem nokkrir
koma saman og þá sé bara eftir að
koma þeim á framfæri. Hann nefnir
sem dæmi, að tengslamyndunin í
ReykjavíkurAkademíunni hafi verið
fjölbreytt innan hópsins og í hverri
viku haldi einhver fræðimannanna
kynningu á hugmyndum sínum, verk-
efnum eða grein sem hann er að
vinna að og tekur við gagnrýni eða
nýjum hugmyndum frá viðstöddum.
„Þannig reynum við að styrkja þessa
þverfaglegu nálgun og finnum það
gríðarlega vel hvað fjörlegar viðræð-
ur ýta undir hugmyndaflug," segh-
hann.
Fyrirmyndarsveitarfélag
-Heldwðu að sveitarfélög ættu að
fara út íþað að laða til sín fræðimenn
eins og sum eru að gera í sambandi
við kennara?
„Ég held að það væri stórsniðugt.
Mér finnst sveitarfélög vera helst til
feimin að taka upp á nýjungum eða að
skapa sér sérstöðu í mannlífinu. Ég
myndi vilja sjá þau taka meðvitaða
ákvörðun um að verða til íyrirmynd-
ar á einhveiju sviði, auk þess að halda
dampi á sem flestum sviðum. Það
gæti eflaust orðið mikil og góð vörn í
byggðaþróuninni.“
-Nú hefur þú skoðað
ferðamennskuna töluvert. Telw þú
að hún styrki byggðirnar það mikið
að sveitarfélög ættu mai'kvisst að
vinna að því að efla hana?
„Já, ég tel að þetta sé ein mikilvæg-
asta atvinnugreinin í augnablikinu
sem menn hafa til að efla byggðina.
Aðeins era nokkur ár síðan ferða-
menn fóru að flykkjast til Reykjavík-
ur yfir veturinn. Ég sé enga ástæðu
til annars en þeir fari að sækjast í
kyrrð og ró landsbyggðarinnar yfir
vetrarmánuðina og vera einir með
sjálfum sér eða jafnvel í vetrarævin-
týri, útivist og að reyna á sig.“
-Nýjasta lausnarorðið fyrir at-
vinnulífá landsbyggðinni virðist vera
fjar- og gagnavinnsla. Telwþú að of
mikil trú sé áþessum þáttum?
„Mér hefur aldrei fallið í geð þegar
eitthvað eitt á að bjarga öllu. Það
hlýtm- alltaf að þurfa marga sam-
verkandi þætti til að snúa vörn í sókn
og þá er sama hvort um er að ræða
ferðamálafulltrúa, atvinnuþróunarfé-
lög eða fjarvinnslu. Ég er einnig dá-
lítið hræddur um að verkefnin í
mörgum fjarvinnslustöðvunum verði
þess eðlis að launin verði lág og muni
að mestu leyti felast í auðveldri hand-
avinnu eins og innslætti upplýsinga
og afgreiðslu gagna. Það væri mjög
óæskilegt.“
Jón tekur fram að auðvitað geti
sveitarfélögin ekki gert allt, en það
sem þau taki sér fyrir hendui- eigi þau
að gera vel. í hans huga eiga sveitar-
félögin að leggja áherslu á góða skóla,
mannlíf og menningu og síðan að
byggja upp ferðaþjónustu sem at-
vinnugrein framtíðarinnar. Hann
segist reyndar ákaflega undrandi á
því að ekkert sveitarfélag hafi sett
sér það markmið að verða fjölskyldu-
vænt til dæmis með tilliti til þess að
byggja upp framúrskarandi skóla
með frábæram kennuram.
„Fjölskylduvænt samfélag held ég
að væri eitthvað sem sveitarfélög
gætu stefnt að til að laða til sín gott
fólk,“ segir hann.
FreistaMdi
borgir9
f MMheit sol
og fraMiOHdi
lÖMd
Fer&aœvintyri arsins
gerast í haust
Sérler&ir fyrirfar- og gullkortkafa Visa
St. Pétursborg
Damakus
Luxor
Cancún
2.-8. okt.
9.-16. ok.
16.-23. okt.
13.-21. nóv.
20.-28. nóv.
Borgarsmellir fyrir alla VisaUortUafa
Búdapest
Prag
Hamborg
Vín
2.-5. nóv.
9.-12. nóv.
16.-19. nóv.
23.-27. nóv.
30. nóv.-4.des.
A.&rarfe**&,r
Ríó de Janeiro
6.-14. nov.
SeV.Ha
Nyi fer6abœklÍMgurÍHN
segir ollo sögiina
Kynnið ykkur þessi freistandi ferðaævintýri
í nýja sérferðabæklingnum sem fylgdi með
Morgunblaðinu á föstudaginn.
Fa&u MpplýsÍMgar og bóka&u
fer& ó vvww* urvalut$yna is
ÚRVAL-IJTSÝN
Lágmúla 4: sími 585 4000, grænrnúmér: 800 6300,
Kringlan: sími 585 4070, HaTnaHÍf8írsTmT565 2366,
Keflavík: sfmi 4211353, Akureyri: sfmi 462 5000,
Selfoss: sími 482 1666
• og hjá umboðsmönnum um iand allt.
www.urvalutsyn.is