Morgunblaðið - 01.09.2000, Side 4
4 FÖSTUDAGUR1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Fermingarbörn sækja nú fræðslunámskeið í Neskirkju.
Pétur Sólnes Jónsson og Thelma Marfn Jónsdóttir láta vel af fermingar-
fræðslunni í Neskirkju.
80 fermingarbörn sækja
sumarnámskeið í Neskirkju
ÁTTATÍU fermingarböm sækja
nú fræðslunámskeið í Neskirkju.
Sr. Öm Bárður Jónsson hefur yf-
immsjón með námskeiðinu. Að
hans sögn er þetta nýjung í Nes-
kirkju og Iáta krakkamir vel af
framtakinu. „Námskeiðið er til-
raunaverkefni Neskirkju og
fræðslu- og þjónustudeildar
kirkjunnar,“ segir Öm. „Við vild-
um bjóða krökkunum upp á tvo
valkosti. Annars vegar að sækja
sumarnámskeiðið, sem hófst með
guðsþjónustu á sunnudaginn var,
og hins vegar að koma hingað
einu sinni í viku yfir veturinn. 80%
krakkanna völdu sumarnámskeið-
ið, en við reiknum með að ferma
um hundrað böra,“ segir Öm.
Öm segir sumarnámskeiðið
kærkomið fyrirkomulag. „Þetta
hentar mörgum fjölskyldum mjög
vel. Flestar þeirra eru komnar úr
sumarleyfum og foreldramir em
famir að vinna aftur. Börnin em
ein og skólinn er ekki byrjaður,"
segir Örn. Hann segir sumar-
námskeiðið frábrugðið hinum
hefðbundnu vetrarnámskeiðum. „
Bömin fara í vettvangsferðir,
kynnast hjálparstarfi kirkjunnar
og horfa svo á kvikmynd um Jesú
sem byggð er á Lúkasarguðspjalli.
Myndin er sýnd í fjórum hlutum
og þau vinna verkefni upp úr
henni. Með þessu fyrirkomulagi
höfum við meiri tíma með börnun-
um þessa viku fyrir skólasetningu.
Börain fara öll í Hagaskóla og
verður skólinn settur á föstudag-
inn næstkomandi. Að skólasetn-
ingu lokinni förum við með börnin
að Úlfljótsvatni og lýkur ferðinni
svo í Skálholti. Við reynum að
virkja foreldrana og fá þá til þess
að taka þátt f fermingamndirbún-
ingnum, en að námskeiðinu loknu
sækja börnin guðsþjónustu reglu-
lega og vinna svo tengd verkefni á
Netinu."
Sniðug hugmynd
Thelma Marín Jónsdóttir og
Pétur Sólnes Jónsson sækja nám-
skeiðið og láta vel af. „Mér finnst
þetta mjög sniðug hugmynd," seg-
ir Thelma. „Það er miklu þægi-
legra að sækja svona námskeið áð-
ur en skólinn byijar. Ég er mikið í
íþróttum og á mér mörg önnur
áhugamál sem einungis er hægt
að sinna utan skólatfma. Það hent-
ar mér því tnjög vel að fara í
fermingarfræðsluna núna.“ Pétur
Sólnes er sammála Thelmu. Hon-
um finnst gott að fá að kynnast
krökkunum áður en hann byrjar í
skólanum. „Ég var í Vesturbæjar-
skólanum og er sá eini þaðan. Með
því að sækja þetta sumarnámskeið
get ég kynnst krökkunum sem ég
fermist með áður en ég byija í
skólanum," segir hann og bætir
við að hann sé þegar búinn að
kynnast skemmtilegum krökkum.
„Maður hefur heldur ekkert að
gera síðustu vikuna áður en skól-
inn byijar og það er ágætt að
nota tfmann. Eg æfi sund á vet-
uma og get því einbeitt mér að
því eftir skóla.“
Landssíminn með 656 milljónir í hagnað
LANDSSÍMINN 00^^ Úr milliuppgjöri 2000
Rekstrarreikningur jan. -júni 2000 1999 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 7.913 6.689 +18,3%
Rekstrargjöld 4.576 3.916 +16,9%
Afskriftir 2.083 1.590 +31,0%
Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld) -227 -152 +49,4%
Hagnaður fyrir skatta 1.028 1.032 -0,4%
Áhrif dótturfélaga -31 -20 +57,5%
Hagnaður tímabilsins 656 651 +0,8%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 27.624 25.543 +8,1%
Eigið fé 13.437 13.004 +3,3%
Skuldir og skuldbindingar 14.187 12.543 +13,1%
Skuldir og eigið fé samtals 27.624 25.543 +8,1%
Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Eiginfjárhlutfall 49,0% 51,0%
Veltufjárhlutfall 0,78 1,43 +25,4%
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 2.852 2.274
Grunnskdlarnir byija í dag
Fjölmargar sektir
vegna hraðaksturs
GSM-
kerfið
skilar
miklum
hagnaði
LANDSSÍMI íslands hf. skilaði í
gær milliuppgjöri þar sem fram
kemur að hagnaður á fyrri árs-
helmingi hafi verið 656 milljónir
króna, sem er nánast sami hagnað-
ur og á sama tímabili í fyrra.
Áætlanir gerðu ráð fyrir heldur
minni hagnaði, 600 milljónum
króna, og þær gera ráð fyrir 1.292
milljóna króna hagnaði fyrir árið í
heild. Miðað við þá tölu og eigið fé
í upphafi ársins, sem var þrettán
milljarðar króna, þá verður arð-
semi eigin fjár tæplega tíu prósent
á þessu ári.
Þórarinn V. Þórarinsson, for-
stjóri Landsímans, segist vera
sáttur við afkomu fyrirtækisins.
Ávöxtun eigin fjár sé heldur að
batna, vöxturinn sé heilbrigður og
afkoman hafi haldist þrátt fyrir
mikla lækkun á mikilvægum þátt-
um í þjónustunni. Verð á milli-
landasímtölum hafi til að mynda
lækkað um 37% frá því fyrir ári.
Stærstur hluti hagnaðarins, 549
milljónir króna eða 84%, hefur
orðið til vegna farsímaþjónustunn-
ar. Þetta er hærra hlutfall en í
fyrra, en þá var hlutur farsíma-
kerfisins í hagnaði innan við sex
krónur af hverjum tíu yfir árið í
heild. Fjárbinding í farsímakerfinu
er um 12% af heildarfjárbindingu
fyrirtækisins. Þórarinn segir af-
komu fyrirtækisins byggjast í
óheppilega miklum mæli á GSM-
rekstrinum og að þessu þurfi að
breyta, m.a. með því að ná niður
kostnaði í fastlínukerfinu.
Sérstök afskrift viðskiptavildar
að fjárhæð 420 milljónir króna
kemur inn í reikninginn vegna
endurmats á verðmæti Pósts og
síma. Þessi afskrift nam 197 millj-
ónum króna í fyrra, en viðskipta-
vildin er afskrifuð á fimm árum og
verður að fullu afskrifuð í lok árs-
ins 2001. Þegar þessar sérstöku
afskriftir hafa verið dregnar frá
tölunum í ár og í fyrra sést að aðr-
ar afskriftir hafa hækkað um 39%
á milli ára. í fréttatilkynningur frá
Símanum kemur fram að þessi
aukning afskrifta stafi einkum af
mikilli fjárfestingu í tæknibúnaði á
síðustu árum, en hann afskrifist
hratt.
Mikil aukning fjárfestinga
í öðrum félögum
Fjárfestingar Símans í félögum í
tengdri starfsemi hækkuðu úr 88
milljónum króna á fyrri hluta síð-
asta árs í 836 milljónir króna nú.
Fyrirtækið gerir ráð fyrir að fjár-
festingar þessar skili auknum
tekjum á næstu árum, auki arð-
semi þess og renni fleiri stoðum
undir reksturinn, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Á fyrstu mánuðum ársins var
hlutur dótturfélaga í rekstri Sím-
ans neikvæður um 31 milljón
króna og er það 11 milljónum
króna verri niðurstaða en á sama
tímabili í fyrra.
Þegar Þórarinn er spurður um
hvaða áhrif það hafi að ríkið eigi
allt hlutafé í Landssímanum segir
hann að það þurfi ekki fara í graf-
götur með það að eignaraðild rík-
isins hljóti alltaf að setja vissar
hömlur á það hversu hratt fyrir-
tækið geti brugðist við nýjum að-
stæðum og inn á hvaða svið það
geti farið. Af þeim ástæðum sé af-
ar æskilegt að fá inn fleiri eigend-
ur að fyrirtækinu.
ALLS höfðu 91 ökumenn verið sekt-
aðir vegna hraðaksturs síðastliðna
þrjá daga, samkvæmt upplýsingum
lögreglu í gærdag. Umferðardeild
lögreglunnar í Reykjavík hefur verið
með sérstakt átak í tilefni þess að
skólar eru að hefja göngu sína á nýj-
an leik eftir sumarleyfi og tekið upp
reglubundnar hraðamælingar í íbúð-
arbyggð í nágrenni skóla í borginni.
Auk sekta er eitthvað um að öku-
menn hafi verið sviptir ökuréttind-
um vegna hraðakstur. Sautján ára
piltur var t.d. sviptur ökuréttindum
til þriggja mánaða í fyrradag eftir að
hann mældist á 107 km hraða á
Strandvegi 1 Grafarvogi en þar er
leyfilegur hámarkshraði 50 km/klst.
„Við gerum þetta til að hægja á
umferðinni á þessum stöðum," sagði
Karl Steinar Valsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í samtali við Morgun-
blaðið.
Karl Steinar segir að lögreglan
Stjórn SAMFOK hefur afhent Ingi-
björgu sólrúnu Gísladóttur borgar-
stjóra og Guðrúnu Ebbu Ólafsdótt-
ur, formanni samninganefndar
félags grunnskólakennara, bréf þar
sem lýst er þungum áhyggjum vegna
yfirvofandi kennaraskorts í skólum í
vetur.
í fréttatilkynningu frá stjóminni
segir að óvissa sú, sem ríkir vegna
skorts á kennurum og öðru starfs-
fólki grunnskóla og stöðunnar í
samningaviðræðum kennara og við-
semjenda þeirra, sé óþolandi.
í bréfi sínu til borgarstjóra og for-
manns samninganefndar kennara
muni áfram fylgjast sérstaklega vel
með umhverfi grunnskóla á næstu
dögum. Lögreglan verður síðan með
sérstakan viðbúnað á mánudag og
þriðjudag í næstu viku þegar yngstu
nemendur grunnskóla hefja skóla-
göngu. „Við erum þá við skólana í
upphafi skóladags og fylgjumst með
að allt fari vel fram og ökumenn aki á
réttum hraða í grennd skólanna.
Karl Steinar segir að mörg þús-
und nemendur sem nú hefja skóla-
göngu hafi farið í gegnum umferðar;
skóla lögreglunnar í síðustu viku. I
næstu viku mun lögreglan í sam-
vinnu við Strætisvagna Reykjavíkur
kenna nemendum í 3. bekk um-
ferðarreglur í kringum strætis-
vagna. „Það hefur verið geysilega
mikil þátttaka í þessu verkefni und-
anfarin ár. Það hefur líka skilað ár-
angri því að slysum bama í kringum
stóra bíla hefur fækkað verulega
undanfarin ár.“
segir m.a. að Jjóst sé að kennara-
skortur leiði af sér ólgu í skólastarfi
og óöryggi fyrir nemendur og kenn-
ara.
„Stjórn SAMFOK hvetur
samningsaðila til að nýta vel þann
tíma sem framundan er og hefja við-
ræður þegar í stað því Ijóst er að
kjarasamningar kennara eru afar
flóknir og krefjast töluverðra endur-
bóta og yfirlegu. Þannig aukast lík-
urnar á því að viðunandi samkomu-
lag náist milli aðila, fleiri kennarar
fáist til starfa og þungum áhyggjum
verði létt af nemendum og foreldrum
um framtíð skólastarfs í Reykjavík."
Stiórn SAMFOK
+ —u----------
Oþolandi óvissa vegna
skorts á kennurum