Morgunblaðið - 01.09.2000, Qupperneq 6
Steypudælur
Nýjar steypudælur spara þér
tíma og peninga. Kynntu
þér öfluga steypuþjónustu á
www.bmvalla.is
Söludeild í Fornalundi
Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050
STEYPU
ÞJÓNUSTA
www.bmvalla.is
6 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hópur fslandsvina á EXPO 2000
Morgunblaðið/RAX
Veiðimaður brytjar selkjöt ofan í hundana sína. Ragnar tók þessa mynd
á hafísnum iyrir utan Thule árið 1988.
Ragnar hefur unnið að verkefn-
inu í 15 ár. Hann hefur ferðast vítt
og breitt um Grænland, Færeyjar
og ísiand og skráð lífshætti sem
eru við það að hverfa á norðurslóð-
um. Sýndar verða 120 myndir sem
hann hefur að miklu leyti tekið á
ferðalögum sínum fyrir Morgun-
blaðið, en hann hefur einnig fengið
styrki til einstakra hiuta verkefnis-
ins. Sýningin fer fram að kvöldi til í
útileikhúsi sem tekur 5.000 gesti.
Ljósmynd/Christian Augustin
Hjónin Vera og Werner Heimann eru miklir fslandsvinir og hyggja á sjöundu pílagrímsferð sína þangað á
næsta ári. Á milli þeirra stendur Lovísa Haddorp, leiðbeinandi Veru við íslenskunámið.
Þeir sem lengst eru
komnir lesa Snorra-Eddu
>• ,
Meðal gesta á þjóðardegi Islands á
Heimssýningunni í Hannover í fyrradag var
hópur íslenskunemenda frá Hamborg,
undir leiðsögn Lovísu Haddorp. Sigurbjörg
Þrastardóttir hitti Lovísu og lærisveina
hennar við íslenska skálann.
LOVÍSA Haddorp hefur nær alla
sína ævi búið í Þýskalandi, en í tæpa
hálfa öld hefur hún aðstoðað Þjóð-
verja við íslenskunám. Sjálf hefur
hún ávallt haldið lifandi tengslum
við land og þjóð, talar hiklausa ís-
lensku og kemur reglulega í heim-
sókn til ættingja á Islandi. „Móðir
mín var íslensk, úr Mosfellssveit, en
giftist til Þýskalands. Eftir stríð, ár-
ið 1947, fór ég til íslands og nam
norræn fræði í fjögur ár við Háskóla
Islands. Um tíma var ég á báðum
áttum hvort ég ætti að setjast þar
að, en á endanum ákvað ég að fara
aftur til Þýskalands þar sem ég hef
búið síðan.“ Lovísa starfaði lengst af
sem grunnskólakennari en þegar
hún lét af störfum tók hún að sér
kennslu í íslensku fyrir almenna
borgara í Hamborg. „Fyrst voru
þetta eins konar námsflokkar á veg-
um borgarinnar, en nú er þetta eig-
inlega á einkavegum, þó í húsnæði
sem borgin leggur til. Við hittumst
einu sinni í viku og námsefnið er af
ýmsum toga. Til dæmis lesum við
mikið Morgunblaðið - ég fæ laugar-
dagsblaðið alltaf sent. Svo erum við
líka með hefðbundnar kennslubæk-
ur og fagurbókmenntir, allt upp í
Snorra-Eddu á forníslensku fyrir þá
sem lengst eru komnir.“
Nemendur Lovísu hafa verið á
öllum aldri í gegnum tíðina, en tíu af
hinum tryggustu brugðu sér með
henni á heimssýninguna í tilefni
þjóðardags íslands. „Sumir eru
búnir að vera hjá mér lengi, eins og
hún Vera hérna sem hefur sótt hjá
mér tíma í tuttugu og fjögur ár,“
segir Lovísa og tekur utan um Veru
Heimann, sem hjá henni situr.
„Flest af þessu fólki hefur heimsótt
Island oft, því sá sem fer þangað
einu sinni langar alltaf þangað aft-
ur.“
Vera segist sex sinnum hafa kom-
ið til Islands og hyggur á sjöundu
ferðina á næsta ári ásamt manni sín-
um Werner. „Já, þá ætlum við að
ferðast um hálendið, Mýrdalsjökul,
Lakagíga og ekki síst Herðubreið-
arlindir í átt að Kverkfjöllum,“ segir
Werner og ber öll örnefnin skamm-
laust fram þótt ekki sæki hann ís-
lenskutíma sjálfur. Þær Vera og
Lovísa tala hins vegar íslensku við
blaðamann og kveðjast alsælar með
heimsókn sína á heimssýninguna.
„Það er svo gaman að heyra ís-
lensku útundan sér á förnum vegi,
eins og hér á svæðinu í kringum ís-
lenska skálann. Svo eru íslensku
hestarnir alltaf skemmtilegir," segir
Vera. Lovísa er á leið á Sjálfstætt
fólk í Schauspielhaus Hannover og
hlakkar mikið til. „Þetta er allt dá-
samlegt og það er óvenjumikið fjör í
fólkinu hér í dag.“
Þá eru þær roknar, en áður taka
þær loforð af blaðamanni um að
póstsenda greinina til Hamborgar
um leið og hún birtist. „Það yrði vel
þegið. Þá getum við nefnilega ljós-
ritað hana og notað í kennslustund."
ujosmyna/>Jnnsuan Augustm
Friðrik Sophusson og Ólafur Ragnar Grímsson voru báðir á ráðstefn-
unni um íslenska orku.
s
Islensk orka í
alþjóðlegu samhengi
ISLENSK orkufyrirtæki stóðu í
gær fyrir ráðstefnu um orkumál á
Islandi á heimssýningunni í Hann-
over. Áttatíu gestir frá ýmsum þjóð-
löndum sóttu ráðstefnuna sem þótti
takast vel. Meðal gesta var Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands.
Ráðstefnan bar yfirskriftina „ís-
lensk orka í alþjóðlegu samhengi.“
Erindi á ráðstefnunni fjölluðu um
orkumál á íslandi út frá þremur
meginþáttum; vatnsafli, jarðhita og
áform um að gera ísland að fyrsta
vetnissamfélagi í heimi. Rætt var
um hvernig Islendingum hefði tek-
ist að nýta sér þá orku sem landið
býr yfir og nýjungar á því sviði.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, sagði
gesti ráðstefnunnar einkum hafa
verið frá fjármála- og tæknifyrir-
tælqum og hafi komið víða að.
Meðal þess sem fjallað var um á
ráðstefnunni var tilraunaverkefni
Islenskrar Nýorku hf. sem vinnur
að tilraunum með notkun vetnis á
strætisvagna í Reykjavík.
Landsvirlqun, Órkuveita Reylqa-
víkur, Hitaveita Suðurnesja og
RARlK stóðu að ráðstefnunni.
Ásdís Halla Braga-
dóttir bæjarstjóri
Garðabæjar
BÆJARSTJÓRN Garða-
bæjar réð í gær Ásdísi
Höllu Bragadóttur stjórn-
málafræðing í starf bæjar-
stjóra Garðabæjar. Hún
tekur við af Ingimundi Sig-
urpálssyni. Asdís Halla
lauk B.A.-prófi í stjórn-
málafræði frá Háskóla ís-
lands árið 1991 og meist-
aragráðu í opinberri stjómsýslu frá
Harvard-háskóla vorið 2000. Minni-
hluti bæjarstjómar Garðabæjar-
greiddi atkvæði gegn því að Ásdís
Halla yrði ráðin og sagði hana langt
frá því að vera hæfasta umsækj-
andann um stöðuna.
í yfirlýsingu sem minnihlutinn
sendi frá sér í gær segir að menntun
Ásdísar taki ekki reynslu mai'gra
annarra umsækjenda fram auk þess
sem hún sé „gjörsamlega óskrifað
blað í sveitarstjórnarmálum." Minni-
hlutinn átelur aðdraganda og vinnu-
brögð SjáKstæðisflokksins
við ráðningu bæjarstjórans.
Auglýsingin um starfið hafi
verið sjónarspil og ætlað að
slá ryki í augu fólks. Frá
upphafi hafi verið stefnt að
því að ráða Ásdísi Höllu.
Laufey Jóhannsdóttir,
forseti bæjarstjórnar, vísar
þessari gagnrýni á bug. „Við
myndum aldrei nokkum tímann leyfa
okkur slík vinnubrögð," sagði Laufey.
Hún segir Ásdísi Höllu hafa öðlast
mikla innsýn í sveitarstjórnarmál í
þegai’ hún var aðstoðarmaður
menntamálaráðhema frá 1995-1999.
Ásdís Halla sagðist í gær vonast
eftir því að sér tækist að vinna að upp-
byggingu Garðabæjar í sátt og sam-
lyndi við minnihluta bæjarstjómar.
Hún taldi menntun sína og reynslu
nýtast vel í starfi auk þess sem hún
hafi lengi búið í Garðabæ og því kunn-
ug málefnum bæjarfélagsins.
Verk
Ragnars
Axelssonar
í Frakklandi
VERK Ragnars Axelssonar Ijós-
myndara hafa verið valin til sýn-
ingar á árlegri hátfð og ráðstefnu
frétta- ogtímaritaljósmyndara sem
haldin verður í Perpignan í Frakk-
landi 2.-17. september. Stjórnend-
ur hátíðarinnar velja á hverju ári
8-10 verkefni til að sýna á tveimur
skyggnusýningum sem haldnar eru
í fyrstu viku hátíðarinnar, en hana
sækja margir atvinnumenn í fag-
inu. Þangað flykkist mikill fjökli
ljósmyndara, myndstjóra og um-
boðssala hvaðanæva úr heiminum.
Mjög eftirsóknarvert telst að fá
verk sín valin til sýningar af að-
standendum ráðstefnunnar, en Is-
lendingur hefur ekki hlotið þann
heiður fyrr en nú.