Morgunblaðið - 01.09.2000, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÚRVERINU
Skagstrendingur með 49 milljónir í tap
Júpiter ÞH fékk sfld við Norejy
Reynt að færa rekstur
Nasco til betri vegar
Skagstrendingur Úr milliuppgjöri 2000 - Samstæða
Rekstrarreikningur jan. -júni 2000 1999 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 1.125 1.162 -3%
Rekstrargjöld 862 953 -10%
Afskriftir -92 -77 -20%
Fjármagnsliðir -52 -3 -1700%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 119 130 -8%
Tekju- og eignarskattur -47 -3 -1500%
Hagnaður ársins -49 130
Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 3.505 2.974 +18%
Eigið fé 1.041 1.093 -5%
Skuldir 2.464 1.880 +31%
Skuldir og eigið fé samtals 3.505 2.974 +18%
Kennitölur og sjóðstreymi 2000 1999 Breyting
Eiginfjárhlutfall 29,7% 29,7%
Veltufjárhlutfall 0,94 0,97
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 209 174 +20%
SKAGSTRENDINGUR hf. var rek-
inn með 49 milljóna króna tapi fyrstu
sex mánuði ársins 2000, en á sama
tímabili árið áður var 130 milljóna
króna hagnaður af rekstrinum.
Hagnaður fyrir afskriftir og vexti
nam 263 milljónum króna en á sama
tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 209
milljónum króna. Fjármagnsgjöld að
frádregnum fjármunatekjum námu
52 milljónum króna en voru þrjár
milljónir króna fyrir sama tímabil í
fyrra. Meginástaeða hækkunar fjár-
magnsgjalda var gengistap sem nam
38 milljónum króna en á sama tíma-
bili 1999 var gengishagnaður ein
milljón króna. Reiknaðir skattar
námu 46,5 milljónum króna en voru
þrjár milljónir fyrir sama tímabil í
fyrra. Af sköttum eru 45 milljónir
króna reiknuð tekjuskattsskuldbind-
ing en félagið hefur nú fullnýtt yfír-
færanlegt tap fyrri ára.
Tap vegna hlutdeildarfélaga
122 milljónir króna
Áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga
voru neikvæð um 122 milljónir króna
á tímabilinu en fyrir sama tímabil
1999 voru 3 milljóna króna jákvæð
áhrif af rekstri hlutdeildarfélaga.
Neikvæð áhrif af rekstri hlutdeildar-
félaga fyrstu sex mánuði ársins skipt-
ast í hlutdeild í rekstrartapi og af-
skrift á yfirverði hlutafjár í Nasco.
I fréttatilkynningu kemur fram að
gert hafi verið ráð fyrir að rekstrar-
forsendur félagsins yrðu heldur lak-
ari en á liðnu ári, m.a. vegna olíuverð-
hækkana og lækkunar á afurðaverði
rækju. „Ef frá er talinn rekstur hlut-
deiidarfélaganna Nasco og Laka Ltd
skilaði rekstur félagsins því sem
áætlað var, en töluvert tap varð á
rekstri Nasco og Laka Ltd á tímabil-
inu. Skýrist það að mestu af lélegri af-
komu rækjuveiða og -vinnslu. Ráð-
stafanir hafa verið gerðar til að mæta
erfiðu rekstrarumhverfi í rækjuþætti
Skagstrendings. í byijun árs voru
gerðar umfangsmiklar endurbætur á
rækjuvinnslu félagsins á Skaga-
strönd sem aukið hafa afköst og
lækkað framleiðslukostnað. Rækju-
vinnslunni hefur verið tryggt nægj-
anlegt hráefni út þetta ár.
Ekki gert ráð fyrir að kaupa nýtt
skip í stað Tahkuna
Gerður hefur verið samningur um
sölu á skipi Laka Ltd, Tahkuna
EK-9903 og verður skipið væntan-
lega afhent nýjum eigendum í byrjun
næsta mánaðar. Ekki er gert ráð fyr-
ir að kaupa skip í stað Tahkuna að svo
stöddu. Með kaupum á 36,6% hlut í
Nasco ehf. var stefnt á að efla og
tryggja samstarf um útgerð rækju-
frystiskipa og hráefnisöflun en
rækjufiystitogamir Örvar og Tahk-
una hafa verið gerðir út til veiða á
Flæmingjagrunni á veiðileyfum sem
Nasco hefur aflað. Par sem Nasco
byggir rekstur sinn nær eingöngu á
útgerð rækjuskipa og rækjuvinnslu,
ásamt sölu rækjuafurða og -hráefnis,
hefur versnandi rekstrarumhverfi
komið illa niður á rekstri félagsins.
Markvisst er unnið að aðgerðum af
hálfu hluthafa og stjómenda Nasco
sem vonast er til að færi rekstur fé-
lagsins til betri vegar,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Afkoma seinni hluta ársins ræðst,
eins og afkoma annarra sjávarút-
vegsfyrirtækja, einkum af því hvem-
ig rekstraramhverfi félagsins þróast
þar sem gangur veiða og vinnslu, þró-
un gengis, olíverðs og afurðaverðs
mun hafa afgerandi áhrif á afkomu
félagsins. Með fyrirvara um þróun
fyrmefndra þátta er gert ráð fyrir að
hagnaður verði af reglulegri starf-
semi Skagstrendings á árinu, að því
er kemur ennfremur fram í fréttatil-
kynningu frá Skagstrendingi.
Greiningardeild Kaupþings telur
jákvætt að framlegð Skagstrendings
eykst á milli ára og eins aukning í
veltufé.
„Sé rekstur Skagstrendings borinn
saman við önnur sjávarútvegsfyrir-
tæki er staða félagsins nokkuð sterk.
Framlegðarhlutfall landvinnslu fé-
lagsins hefur verið lágt eða um 4% á
síðasta ári en er neikvætt um rúm 2%
á fyrri árshelmingi í ár. Framlegðar-
hlutfall útgerðar er gott og helst
óbreytt í 29% milli ára. Brúttófram-
legð er yfir meðaltali og arðsemi eigin
fjár út frá hagnaði síðustu tólf mán-
aða er með því betra sem gerist í
greininni. Veltufé sem hlutfall af
tekjum er einnig með því hæsta sem
sést í greininni í heild. Markaðsvirði
félagsins er í dag um 2,7 milljarðar og
V/H hlutfall m.v. tólf mánaða hagnað
er 19 og er það með því lægsta sem
sést í samanburði við önnur fyrirtæki.
Svo virðist sem nokkurra aðgerða sé
þörf til þess að ná viðunandi framlegð
út úr rekstri hlutdeildarfélaga og arð-
semi út úr rækjuvinnslu félagsins,"
segir í morgunpunktum Kaupþings.
7.300 fyrir tonnið
NÓTASKIPIÐ Júpiter ÞH frá Þórs-
höfn fékk um 400 tonn af síld í
norskri lögsögu á miðvikudag og
landaði aflanum í Vedde í morgun.
Nú era rúmlega 15.000 tonn era
eftir af kvóta íslendinga í norsk-ís-
lensku sfldinni. Sjávarútvegsráðu-
neytið hefur ákveðið að veiða megi
55% af kvóta í norskri lögsögu og ís-
lendingum því heimilt að veiða þar
um 8.700 tonn.
Að sögn Jóns Axelssonar, skip-
stjóra á Júpiter ÞH, fékkst sfldin við
Lófóten. Sfldinni verður landað í
bræðslu í Vedde, sem er skammt frá
Álasundi, en að sögn Jóns era
bræðslur í Norður-Noregi lokaðar
um þessar mimdir. Hann segir að
gott verð fáist fyrir sfldina til
bræðslu en hinsvegar sé enn betra
verð fyrir sfld til manneldisvinnslu.
„Þetta er demantssfld, um 300
grömm og yfir. Aflinn fékkst aðallega
í tveimur köstum en við köstuðum
reyndar fimm sinnum en sfldin var
hinsvegar rosalega stygg. Við náum
sfldinni ekki til vinnslu því við eram
ekki með kælibúnað um borð. Við
voram með ís en það dugar ekki til að
kæla aflann, því siglingin er löng, um
400 mflur, og sjórinn er um 12 gráðu
heitur. Við ætlum að reyna að taka
meira af ís í næsta túr og vera styttri
tíma á miðunum til að reyna að koma
aflanum í vinnslu. Við fáum 7.300
krónur fyrir tonnið í bræðslu en það
fást 17 til 20 krónur fyrir kflóið til
vinnslu og verðið fer hækkandi.
Norsku og færeysku skipin sem era á
þessum veiðum stóla öll á manneldis-
vinnsluna og era að skapa gríðarleg
verðmæti."
Góð veiði í
Sfldarsmugunni
Júpiter ÞH var eina íslenska skipið
á sfldarmiðunum við Noreg en Þor-
steinn E A var á leiðinni á miðin í gær.
„Við leituðum að sfld í Sfldarsmug-
unni en þar hafa Danir fengið góðan
afla undanfamar vikur. Það virðist
hinsvegar hafa dregið úr því. Við
komum síðan í sfld norður af Tromsö
og fengum þar 120 tonn og enduðum
síðan út af Lófóten. Norðmenn hafa
veitt töluvert af sfld á þessu svæði en
einkum innan 12 mflna línunnar en
þangað megum við ekki fara. Þetta er
ágætis upphitun fyrir síldarvertíðina
heima í haust,“ sagði Jón skipstjóri.
Morgunblaðið/Guðmundur SL Valdimarsson
Hvalur sprengdur
SPRENGJUDEILD Landhelgis-
gæslunnar sprengdi fyrr í vikunni
dauðan hval sem var á reki í Faxa-
flóa. Um var að ræða 8 metra langa
hrefnu en að sögn Krisljáns Þ.
Jónssonar, skipherra á varðskipinu
Ægi, var talið að af hvalnum stafaði
siglingahætta fyrir minni báta. Því
hafi verið kallað eftir aðstoð
sprengjudeildarinnar. „Það kemur
fyrir að eyða þurfi dauðum hvölum
á siglingaleiðum. Hræið var drag-
úldið og flaut því vel. Það var því
mjög erfitt að sökkva því. Það hefði
kostað stórfé að draga hræið
lengra á haf út, auk þess sem það
væri einungis frestun á vandanum
en engin lausn,“ segir Kristján.
Helgi Jóhannsson hættir hjá
Samvinnuferðum-Landsýn
HELGI Jóhannsson,
framkvæmdastjóri
Samvinnuferða-
Landsýnar hf., hefur
óskað eftir því að láta
af störfum. Hann seg-
ir að þessi ákvörðun sé
alfarið hans en að hon-
um hafi fundist tími til
kominn að breyta til.
Hann hafi starfað hjá
fyrirtækinu frá árinu
1978 og þar af sem
framkvæmdastjóri í 16
ár. „Ég ákvað að klára
Flugfrelsishugmynd-
ina og þar sem hún er
nú komin á finnst mér
kominn tími til að nýr
maður taki við og haldi þessu starfi
áfram. Það er mjög krefjandi að
vera framkvæmdastjóri í fyrirtæki
eins og Samvinnuferðum-Landsýn í
þeirri samkeppni sem verið hefur.
Samvinnuferðir-Landsýn hafa á
þeim tíma sem ég hef verið fram-
kvæmdastjóri margsinnis ratt
markverðum nýjungum braut á
sviði ferðamála og hafa umsvif
ferðaskrifstofunnar
aukist verulega á þess-
um árum. „Flugfrelsi“
hefur til að mynda án
eða haft í för með sér
mjög miklar breytingar
á ferðamarkaði og aukið
mjög framboð ódýrra og
hagkvæmra ferðamögu-
leika til og frá landinu.
Ég er viss um að jafnvel
helstu keppinautar fyr-
irtækisins myndu sam-
þykkja að Samvinnu-
ferðir-Landsýn eigi
stóran þátt í því að gera
ferðalög að almennings-
eign. Og við getum full-
yrt að umhverfið hér á
landi í þessum efnum væri töluvert
annað ef Samvinnuferða-Landsýn-
ar hefði ekki notið við. Þetta hefur
skilað sér mjög ríkulega til almenn-
ings.
Allan þennan tíma hafa hin ýmsu
stéttarfélög og ekki síst stjórn
Samvinnuferða-Landsýnar staðið
sem klettur að baki mér og hefur
stjórnin mátt þola margar óvenju-
legar hugmyndir og sýnt mikla
framsýni þegar grænt ljós var gefið
á þær,“ segir Helgi
Kostnaður við hraða uppbygg-
ingar Samvinnuferða-Landsýnar
hefur verið meiri en áætlanir gerðu
ráð fyrir og meðal annars þess
vegna hefur rekstrarafkoma þess
verið óviðunandi um nokkurt skeið.
Helgi segir að ósk hans um að láta
af störfum tengist ekki slakri af-
komu fyrirtækisins. Hann segist þó
ekki víkjast undan þeirri ábyrgð
sem hann beri á afkomunni. Fyrir-
tækið sé að fara í gegnum mjög
merkilega breytingu. Það sé að
breytast í að verða eins konar sam-
bland af flugfélagi og ferðaskrif-
stofu. Hann segir að það verði mjög
spennandi verkefni fyrir nýjan
framkvæmdastjóra að koma að því.
„Það þarf að aðlaga reksturinn
þessari nýju mynd á ferðaskrifstof-
unni og þar finnst mér að nýr mað-
ur eigi að taka við.“
Helgi mun að ósk stjórnar Sam-
vinnuferða-Landsýnar gegna starfi
framkvæmdastjóra þar til eftir-
maður hans tekur til starfa.
Helgi Jóhannsson
framkvæmdástjóri.
Siávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna
14 nemendur
frá 11 löndum
SJÁVARÚTVEGSSKÓLI Háskóla
Sameinuðu þjóðanna verður settur í
þriðja sinn í dag. Athöfnin verður í
sal á 1. hæð Sjávarútvegshússins við
Skúlagötu og hefst kl. 17.
Sjávarútvegsskólinn er formlegt
samvinnuverkefni Hafrannsókna-
stofnunarinnar, Háskóla íslands,
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins
og Háskólans á Akureyri, en að auki
er leitað til fjölda annarra stofnana,
fyrirtækja og einstaklinga við fram-
kvæmd þess.
Fagfólk frá
þróunarlöndunum
Námið í skólanum tekur sex mán-
uði og er sniðið að þörfum fagfólks
frá þróunarlöndum þar sem sérstök
áhersla er lögð á fiskveiðar í efna-
hagslegri og félagslegri uppbygg-
ingu. Námið í skólanum er hagnýtt
og byggt upp með hliðsjón af vinnu-
aðstæðum og forgangsverkefnum
heima fyrir eins og kostur er. Sér-
verkefni nemenda era sérstaklega
sniðin að þörfum hvers og eins og
miðað við að þau nýtist nemendum
með beinum hætti í starfi.
Fyrsta árið komu sex nemendur
til náms, annað árið níu og í ár eru
þeir 14 talsins. Skólinn er að mestu
leyti rekinn sem íslenskt framlag til
þróunaraðstoðar, en að auki ber Há-
skóli Sameinuðu þjóðanna hluta
kostnaðar og að þessu sinni styrkir
Þróunarsamvinnustofnun íslands
sérstaklega þátttöku tveggja nem-
enda og verkefni á vegum Evrópu-
bandalagsins einn.
Sex konurí hópnum
Nemendurnir munu stunda nám á
fimm sérsviðum, þ.e. fiskifræði,
gæðastjórnun í meðhöndlun og
vinnslu sjávarfangs, rekstri sjávar-
útvegsfyrirtækja, veiðarfærafræði
og veiðistjómun. í hópnum nú eru
sex konur og hafa þær aldrei verið
fleiri. Nemendur koma frá 11 lönd-
um: Úganda, Kenýa, Malaví, Mós-
ambík, Grænhöfðaeyjum og Gambíu,
Kína, Víetnam og Sri Lanka, og
Kúbu og Mexíkó.