Morgunblaðið - 01.09.2000, Page 36
36 FÖSTUDAGUR1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ekkí einkavæðing?
Katrín Ásta
Fjeldsted Möller
Undirritaðar, sem
eru þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík og sér-
stakir áhugamenn
um íslenzka heil-
brigðisþjónustu, rak í
rogastanz við lestur
fréttar á forsíðu Dags
fimmtudaginn 24.
ágúst sl. Fyrirsögn
fréttarinnar er „Ekki
cinkavæðing" og
byggist hún á viðtali
við Ingibjörgu
Pálmadóttur, heil-
brigðis- og trygg-
ingaráðherra. Þar er
haft eftir ráðherra að
frekari einkavæðing í heilbrigðis-
kerfinu sé ekki á döfinni - og við það
stönzuðum við stöllur.
Stjórnarsáttmálinn
í stjórnarsáttmála núverandi rík-
isstjórnar segir m.a. eftirfarandi um
skipan heilbrigðismála: „Skoðaðir
verði möguleikar á breyttu rekstr-
arformi einstakra þjónustuþátta
eða stofnana heilbrigðisþjónustunn-
ar til að tryggja landsmönnum góða
þjónustu en auka jafnframt ábyrgð
stjórnenda á rekstrinum. Kannaðir
verði möguleikar á auknu samstarfi
og verkaskiptingu sjúkrastofnana
þannig að nýjungar og fjölbreytni í
þjónustu fái notið sín og faglegur
metnaður aukist. Skilja þarf á milli
hlutverks ríkisins sem kaupanda
þjónustu annars vegar og veitanda
hennar hins vegar í því skyni að
auka ráðdeild. Mikilvægt er að
virkja áfram hugvit og þekkingu
starfsfólks í greininni þannig að
aukinni ábyrgð fylgi ódýrari og
betri þjónusta." Með slíka stefnuyf-
irlýsingu í farteskinu er ferðin í átt
til einkavæðingar í heilbrigðiskerf-
inu rétt nýhafin og fjarri lagi að hér
skuli láta staðar numið. Þótt ýmis-
legt hafi verið gert á undanförnum
árum í þessa veru þarf að taka rétt-
an pól í hæðina nú.
Meira sjálfstæði
Á undanförnum árum hafa fjöl-
margir hópar heilbrigðisstarfs-
manna lýst áhuga sínum á að takast
á við rekstur einstakra þátta heil-
brigðisþjónustunnar. íslenzkt heil-
brigðisstarfsfólk er vel menntað og
hefur til að bera sterkan vilja, frum-
kvæði, hugvit og sjálfstæði til að
skipuleggja og veita tiltekna heil-
brigðisþjónustu í samræmi við
þekkingu sína og kröfur heilbrigðis-
yfirvalda og fagfélaga á hverjum
tíma.
Við sameiningu Sjúkrahúss
Reykjavíkur og Ríkisspítala nýver-
ið hafa skapazt ótal mörg tækifæri
til að brjóta upp starfsemi sjúkra-
hússins í smærri einingar og taka
ákvörðun um að færa rekstur ein-
stakra eininga á hendur fagfólks,
skv. sérstökum samningi stjórnar
sjúkrahússins eða yfirvalda þar um.
Einnig er nauðsynlegt að skoða
rekstur stoðstarfsemi sjúkrahúss-
ins og leita til utanaðkomandi aðila
varðandi þá starfsemi. Er eðlilegt
að okkar mati að yfirmenn spítalans
og stjórnvöld hrindi slíkum hug-
myndum í framkvæmd sem allra
fyrst.
Ríkið þarf ekki
að miðstýra öllu
Tímabært er að taka nýja stefnu í
rekstri í heilsugæzlunni. Þjónusta
heilsugæzlunnar og umfang er af
þeim toga að kjörið er að flytja
Rekstrarfyrirkomulag
Heilbrigðisþjónusta er á
Islandi talin til samfé-
lagslegrar þjónustu,
segja Ásta Möller og
Katrín Fjeldsted. Um
það er almenn samstaða
í þjóðfélaginu.
ábyrgð á rekstri einstakra stöðva
alfarið í hendur fagaðila. Með því
móti má bera saman rekstur, gæði
og árangur þjónustunnar, auk þess
sem samkeppnisandinn er skerptur.
Vitað er að mesta starfsánægja er
meðal fagfólks sem fær sjálfstæði
og sjálfræði til að móta starf sitt í
samræmi við beztu þekkingu á
hverjum tíma. Margt má gott segja
um miðstýrt heilsugæzlufyrirkomu-
lag hér á landi einkum vegna þess
að til starfa í heilsugæzlu hefur
fengizt einvalalið. Hins vegar hafa
tækifæri til að gera þjónustusamn-
inga við fagfólk um rekstur læknis-
og hjúkrunarþjónustu í heilsugæzl-
unni ekki verið nýtt og er það mið-
ur. Fagfólk í heilsugæzlu hefur
margoft lýst yfir vilja til gera sam-
komulag við heilbrigðisyfirvöld um
rekstur heilsugæzlustöðva á eigin
ábyrgð. Sterk hefð er fyrir því hér á
landi að einkaaðilar beri ábyrgð á
og reki hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða. Það er skoðun okkar að áfram
skuli haldið á þeirri leið og fögnum
við nýgerðum samningi um rekstur
hjúkrunarheimilis við Sóltún. For-
sendur fyrir slíkum samningum eru
að fyrir liggi ákveðin gæðaviðmið
um þjónustu sem veita á og hefur
sérlega vel verið staðið að þeim
þætti í samningum við væntanlegan
rekstraraðila þessa nýja hjúkrunar-
heimilis.
Virkjum frumkvæðið
Heilbrigðisþjónusta er á íslandi
talin til samfélagslegrar þjónustu.
Um það er almenn samstaða í þjóð-
félaginu. Vegna eðlis þjónustunnar
er eðlilegt að stærstur hluti hennar
sé fjármagnaður af hinu opinbera.
Framangreindar hugmyndir breyta
því viðhorfi ekki. Hins vegar gætu
þær leitt til betri nýtingar þess fjár
sem til ráðstöfunar er til heilbrigð-
ismála um leið og frumkvæði og
starfsgleði fagfólks er nýtt og gæði
þjónustunnar aukin. Það á ætíð að
vera markmiðið.
Ásta Möller er hjúkruimrfræðingur
og Katrín Fjeldsted læknir. Þær eru
þingmenn Reykvíkinga.
BRIDS
Uinsjón Arnðr G.
Ragnarsson
Bridsdeild Félags eldri borgara
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Glæsibæ fimmtud. 24. ágúst.
22 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Ólafur Ingvarss. - Jóhann Lútherss. 244
AuðunnGuðm.-AlbertPorsteinss. 236
Halla Ólafsd. - Margrét Margeirsd. 235
Árangur A-V:
Bergljót Rafnar - Soffía Theódórsd. 272
Bergur Porvaldss. - Þórólfur Meyv. 246
Helga Helgad. - Þórhildur Magnúsd. 241
Tvímenningskeppni spiluð mánud.
28. agúst. 22 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
AlbertÞorsteinss.-AuðunnGuðm. 254
Þórarinn Árnas. - Fróði B. Pálss. 253
Þorsteinn Sveinss. - Jóhann M. Guðm. 247
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss.247
Árangur A-V:
Magnús Halldórss. - Þorsteinn Laufdal 287
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 250
Bysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 239
Bridsfélag Suðurnesja
Næstkomandi mánudag hefst
haustdagskrá félagsins með upphit-
unartvímenningi. Viku síðar hefst
fyrsta verðlaunamót vetrarins en
það er þriggja kvölda tvímenningur
þar sem tveir bestu telja til verð-
launa. Kappkostað verður að hefja
spilamennsku ekki síðar en 19.40.
Það hefst ekki nema félagar mæti
fyrir 19.30.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Vetrarstarf Bridsdeildar Sjálfs-
bjargar hefst mánudaginn 4. sept-
ember næstkomandi kl. 19, með eins
kvölds tvímenningi.
Spilað verður í félagsheimili
Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu
Hátúni 12. Frekari upplýsingar gefa
Páll í síma 551-3599 eða 891-8139 og
Karl í síma 562-9103 eða 898-9014.
oa
VWMWÍÖ
<s Skólavö
Póstsendum
Skólavörðustíg 12, sími 561 6111
m
Tilboðsdagar
Úrval af rúmfatnaði
Myndefni í metratali
Ungbarnafatnaður o.fl.
Njálsgötu 86, sími 552 0978
Verð áður 3.995
nú 2.495
Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Domus
Opið frá kl. 10-16
Ef þú kaupir Maxi Cosi (0—13 kg) barnastól þessa
helgi, færðu pokann á 950 kr. (fúllt verð 3.950)
9ifífa
Klapparstíg 27,
ALLT FYRIR BÖRNIN sími 552 2522.
15% afsláttur
á morgun
og ncestu viku
af bámullargarni
□ansarar frá dansskóla Auðar og
Johanns Arnars syna línudans.
Eikólalúðrasveit Kopavugs
marserar niður Laugaveginn í
fjörugum takti ng harmonikku-
leikari verður á ferðinni ng
þenur nikkuna af list.
tVljnlkursamsalan verður með
kgnningu á því sem í buði er
af mjnlkurdrgkkjum fgrir
skálabömin í vetur.
Langur laugardagur
Loðfóðraðir
barnakuldaskór
Teg.: 3389
Litir: Brúnn og svartur
Stærðir: 23-33