Morgunblaðið - 01.09.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000 63
FRÉTTIR
Messa og
útivist í
Viðey
KOMANDI helgi verður hin næst-
síðasta með ákveðinni dagskrá í Við-
ey. Áfram verður þó, að venju, hægt
að biðja staðarhaldara um göngu-
ferðir, staðarskoðun o.fl. fyrir hópa.
Klaustursýningunni var lokað á
fimmtudag og hestaleigan hætti um
síðustu helgi.
Gönguferð laugardagsins verður
um Vestureyna. Farið verður frá
kirkjunni kl. 14.15, gengið sem leið
liggur framhjá Klausturhól, um Klif-
ið niður á Eiðið og þar yfir á Vestur-
eyju. Þar verða Afangar, hið þekkta
umhverfislistaverk R. Serra, skoðað,
steinar með áletrunum frá 19. öld,
gömul ból lundaveiðimanna og fleira.
A þessari leið er margt örnefna í
eynni og nágrenni hennar. Þau eiga
mörg skemmtilega sögu, sem reynt
verður að draga fram í dagsljósið á
göngunni. Fólk er beðið að búa sig
eftir veðri og vera vel skóað. Gangan
tekur rúma tvo tíma. Gjald er ekki
annað en ferjutollurinn, sem er 400
kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir
börn.
A sunnudag verður messa kl. 14.
Sr. Hjalti Guðmundsson messar með
aðstoð Dómkórs og dómorganista.
Sérstök bátsferð verður með kirkju-
gesti kl. 13.30. Eftir messu verður
staðarskoðun. Hún hefst í kirkjunni,
sem verður sýnd ásamt Stofunni,
fornleifagreftrinum og öðru þar í
næsta nágrenni. Staðarskoðun tekur
rúma klukkustund.
Veitingahúsið í Viðeyjarstofu er
opið og reiðhjól lánuð án endurgjalds
við bryggjusporðinn í Bæjarvör.
----------------------
Laugardags-
kaffi Samfylk-
ing-arinnar
FYRSTI laugardagsfundur Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík verður
nk. laugardag á kaffihúsinu Sólon
Islandus, á mótum Ingólfsstrætis og
Bankastrætis. Yfirskrift fundarins
er „Staða menntunar á íslandi“.
Fjallað verður um kjör kennara,
þær afleiðingar sem kennaraskortur
hefur á skólahald og hvernig bæta
megi úr.
Leitað verður svara við eftirfar-
andi spurningum á fundinum: Hver
er staðan? Hver er vandinn? Hvern-
ig má bæta? Hver er menntastefna
Samfylkingar? Framsögumenn á
fundinum verða tveir, Svanfríður
Jónasdóttir, alþingismaður Samfylk-
ingarinnar og fyrrum kennari, og
Guðrún Ebba Olafsdóttir kennari,
formaður Félags grunnskólakenn-
ara.
Fundurinn hefst kl. 11 stundvís-
lega.
Folaldið Gæfa er í Dýragarðinum Slakka ásamt fleiri dýrum.
Síðasta starfs-
helgin í Slakka
SUMARSTARFI Dýragarðsins í asti starfsdagurinn á sunnudag.
Slakka, Laugarási, Biskupstung- Opnað verður aftur 1. júní á næsta
um, lýkur nú um helgina og er síð- ári en aðsókn hefur verið mjög góð.
Tísku- og Ijósmyndaförðun
hefst 11. sept.
Skráning í síma 562 7677
FLOTT FÖT
Full búð af ttýjum vörum
fyrir skólami
Air Force dúnúlpurnar komnar!
Ekta dúnn, vind- og vatnsheldar,
margir litir
Kringlunni
ZEAL er ó neðstu hæS við hliðina ó Nanoq og síminn er 588 7171.
Bómullar- og rúllukragabolir fró kr. 790 til 990
ang- og flísgallar fró kr. 1.290 til 2.990
uxur kr. 1.290
Flís peysur fró kr. 1.990 til 2.700
Buxur fró kr. 1.990 til 2.490
Anorakkar með flís fóðri kr. 2.990
Úlpur kr. 4.500
Kuldagallar kr. 5.990
Pæju Íeðurlíkis jakkar kr. 2200 - 2290
Grafarvogs-
dagurinn á morgun
GRAFARVOGSDAGURINN er nú
haldinn hátíðlegur í þriðja sinn laug-
ardaginn 2. september og er í ár einn-
ig viðburður í menningarverkefninu
Ljósbrot, sem er á dagskrá hjá
Reykjavík menningarborg Evrópu
árið 2000.
Á Grafarvogsdaginn verður Mátt-
arstólpinn, hvatningarverðlaun
hverfisnefndar Grafarvogs og Mið-
garðs, afhentur við hátíðlega athöfn.
Ahersla er lögð á að verðlauna þá sem
vinna sjálfboðastörf í þágu Grafar-
vogsbúa og standa lýrir nýsköpun
fremur en starfsemi sem launuð er af
opinberum stofnunum.
Á dagskrá Grafarvogsdagsins er
einnig hin árlega Grafarvogsglíma,
þar sem lið frá stofnunum og félögum
í hverfinu (m.a. lögreglan, Fjölnis-
menn og leikskólastjórar) taka þátt í
spennandi keppni sem felst í margvís-
legum óvenjulegum þrautum.
Dagskrá hefst kl. 9.30 með göngu-
ferð frá Iþróttamiðstöðinni Dalhús-
um. Einar Bimir verður leiðsögumað-
ur og segir frá áhugaverðum stöðum
á leiðinni. Kl. 10-12 í íþróttamiðstöð-
inni og sundlauginni verður yoga í há-
tíðarsal Fjölnis, efri hæð: Þórður
Marelsson kynnir yoga og skráning
hefst á námskeið sem hefjast 11. sept-
ember. Vatnaleikfimi í sundlauginni.
Kl. 13-14.30 verður Fjölnis-messa í
Grafarvogskirkju. Kvintett úr Skóla-
hljómsveit Grafarvogs spilar. Af-
hending Máttarstólpans: Formaður
hverfisnefndar, Guðrún Erla Geirs-
dóttir, afhendir hvatningarverðlaun
Hverfisnefndar Grafarvogs og Mið-
garðs. Kl. 15-21 verður dagskrá við
Gufunesbæ: Handverksmarkaður,
veitingatjald, hestar, tónlist, klifur,
leiktæki, grill o.fl. Kl. 15-16 er Graf- ^
arvogsglíman, kl. 16-17 Kassabílara-
lly og kl. 16-18 er Söguherbergi:
Börn af leiknámskeiðum hafa skreytt
söguherbergið þar sem skáld úr
hverfinu lesa fyrir krakkana. Kl. 18
hefst samkeppni um bestu köku Graf-
arvogs og kl. 19.30-21 verðrn- síðan
varðeldur og brekkusöngur: Skátar
hverfisins halda uppi stemningunni.
Kl. 20.30 hefst flugeldasýning og að
því loknu verður ball fyrir alla fjöl-
skylduna í félagsmiðstöðinni Fjörgyn
til kl. 24. Hljómsveitin Á móti sól leik-
ur. Fjörug fjölskylduskemmtun. Að-
gangseyrir 500 kr. Frítt fyrir 12 ára
og yngri í fylgd med fullorðnum.
Leðurkápa