Morgunblaðið - 01.09.2000, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000 65
í
í
1
E
|
BRIDS
Umsjnn Guðniundur I’áll
Arnarson
SPIL dagsins er frá opnu
sveitakeppninni í Stokk-
hólmi, þar sem íslenska
sveitin vann undankeppnina
en datt svo út í næstu um-
ferð í stuttum útsláttarleik.
Bræðurnir Anton og Sigur-
björn Haraldssynir voru
með spil NS og fóru í nokk-
uð harða slemmu:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
4 KD4
» G103
♦ G1094
* AK8
Suður
* Á3
v ÁK7654
♦ KD2
4 D6
Vestur Norður Austur Suður
- Anton - Sigur-
björn
1 tígull Pass 1 hjarta
Pass lgrand Pass 21auf
Pass 2 hjörtu Pass 3 hjörtu
Pass 3 spaðar Pass 3grönd
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 4spaðar
Pass 51auf Pass 5 tíglar
Pass 6 hjörtu Allirpass
Kerfi bræðranna er „eðli-
legt“ að grunni til, en fullt af
„óeðlilegum" tækninýjung-
um. Fyrst vekur Anton á
Standard-tígli og fær
hjartasvar. Anton sýnir 12-
14 punkta og jafna skiptingu
með einu grandi, en síðan
krefur Sigurbjörn með
tveimur laufum og fær upp
þrílit í hjarta frá makker.
Sigurbjörn hækkar í þrjú
hjörtu, sem er krafa og
slemmuáhugi. Anton segir
frá spaðafyrirstöðu, Sigur-
björn „bíður“ með þremur
gröndum og fær næst að
vita um lauffyrirstöðu hjá
Antoni. Fjórir tíglar er líka
fyrirstöðusögn, en nú vill
•Miton ekki gera meira að
sinni og slær af. En Sigur-
björn heldur áfram með fyr-
irstöðusögn í spaða og þegar
Anton fer framhjá fjórum
gröndum lofar hann stakri
tölu iykilspila (einum ás í
þessu tilfelli). Sigurbjörn
spyr næst um trompdrottn-
inguna með fimm tíglum og
Anton ákveður að GlOx sé
drottningarígildi og stekkur
í slemmu!
Þetta er löng sagnröð og
auðvitað þurftu mótherjarn-
m að spyrja vel út í merk-
ingu hverrar sagnar. Út-
skýringarnar virtust ekki
koma vestri neitt á óvart og
hann spilaði út laufhundi án
þess að hugsa sig mikið um.
Það þótti Sigurbirni athygl-
isvert. Hann bjóst við að
vestur hefði a.m.k. lyft ann-
arri augabrúninni ef hann
ætti trompdrottninguna og
það tæki hann hugsanlega
lengri tíma að spila út ef það
væru komnar tvær hjarta-
drottningar í stokkinn! Sig-
urbjörn tók því á hjartaás,
fór inn í borð á spaða og
svínaði hjartagosa. Það
gekk - austur átti Dxx í
hjarta.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síman-
úmer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað hcilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
ÍDAG
Arnað heilla
leifsson, Hafnargötu 125,
Bolungarvík. I tilefni þess
bjóða hann og eiginkona
hans, Guðrún Sveinbjörns-
dóttir, ættingjum og vinum
að þiggja veitingar og gleðj-
ast með þeim í Félagsheimili
Bolungarvíkur frá kl. 18-21
á afmælisdaginn.
n /\ ÁRA afmæli. í dag, 1.
I V/ september, verður
sjötug Erla Hafliðadóttir,
Brunnum 14, Patreksfirði
frá Hvallátrum í Rauða-
sandshreppi. Eiginmaður
Erlu var Kristján Jóhannes-
son, hann lést 1986. Erla
tekur á móti gestum með
fjölskyldu sinni í Félags-
heimilinu á Patreksfirði í
dag milli kl. 17 og 21.
Q A ÁRA afmæli. í dag,
ÖU föstudaginn 1. sept-
ember, verður áttræður
Eskhild Jóhannesson,
Holtsgötu 1, Sandgerði.
Hann tekur á móti ættingj-
um og vinum laugardaginn
2. september frá íd. 15-17 í
Samkomuhúsinu í Sand-
gerði.
/? A ÁRA afmæli. í dag,
OU fóstudaginn 1. sept-
ember, verður sextugur
Gylfi Guðmundsson, skóla-
stjóri Njarðvíkurskóla,
Hamragarði 11, Keflavik.
Eiginkona hans er Guðrún
Jónsdóttir, kennari. Hjónin
eru stödd í Delhí á Indlandi
á afmælisdaginn.
SKÁK
llinsjón Helgi Áss
Grétarsson
43...Rf3+! 44.gxf3 gxf3 og
hvítur gafst upp enda eru
fótgönguliðar svarts á
þriðju reitaröðinni engin
lömb að leika við!
STAÐAN kom upp á
ofurmótinu í Polan-
ica Zdroj er lauk fyr-
ir skömmu með sigri
Borisar Gelfands.
Hollenski stór-
meistarinn Loek Van
Wely (2643) hafði
svart gegn Vassilí
Ivansjúk (2719).
Svart.ur
á leik.
LJOÐABROT
SJÓMAÐUR,
DÁÐADRENGUR
Hann var sjómaður, dáðadrengur
- en drabbari, eins og gengur -
hann sigldi í höfn
um snæfexta dröfn,
þegar sfldin sást ekki lengur.
Svo breiðan um herðar og háan
hjá Hijómskálanum ég sá hann.
Hið kyrrláta kveld
lagði kvöidroðans eld
á flóann svo breiðan og bláan.
Nú er skipið hans horfið héðan,
ég hef ekki lengi séð hann,
en knálegir menn
þó koma hér enn
- þeir stytta mér stundir á meðan.
Samt hendir, ef hálfur er máni,
ég haga mér eins og kjáni,
í landöldu hljóm
ég heyi'i hans róm
frá Malmö, Marseilles eða Spáni.
Ragnar Jóhnnnesson.
STJÖRJVUSPÁ
eflír Frances Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gefínn fyrir krefjandi
verkefni ogsparar þig
hvergi við lausn þeirra.
Láttu samt framann ekki
biinda þig.
Hrútur
(21. mars -19. aprfl)
Þótt þér finnist hlutirnir
aidrei ganga nógu hratt fyrir
sig verður þú að venja þig af
eilífum aðfinnslum við sam-
starfsmenn þína. Beittu lip-
urð.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Vinur er sá sem til vamms
segir. Taktu því aðfinnslum
vinar þíns vel, en mundu
hverjir eru viðhlæjendur og
bíða þess eins að þér mistak-
ist.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) AA
Þú átt í vændum frjótt tíma-
bil og ættir að finna þér sem
mestan tíma til sköpunar-
starfa. Biddu þína nánustu að
sýna þér biðiund á meðan.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Eftir rólega siglingu á lygn-
um sjó dregur allt í einu til
tíðinda hjá þér. Vertu við-
búinn því versta, þá áttu hæg-
ara með að lægja öldurnar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Þú getur ekki ætlast til þess
að mál leysist af sjálfu sér. Þú
verður að vera reiðubúinn að
leggja þitt af mörkum, þótt
það kosti einhverjar fórnir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Margur verður af aurum api.
Gættu sjálfsvirðingar þinnar
vel og láttu ekki draga þig út í
einhvern dáraskap, þótt heit-
ið sé gulli og gi-ænum skóg-
um.
Vog rrx
(23.sept.-22.okt.)
Það er aldrei of seint að bæta
við menntun sína og til þess
eru ótal möguleikar. Kynntu
þér framboðið og þú finnur
efalaust eitthvað við hæfi.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að byggja meira á
innsæi þínu þegar þú ræðst
til atlögu við flókin verkefni.
Það er góð regla að skrifa
hugsanir sínar hjá sér
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) cKO
Notaðu vald þitt mildilega og
bezt væri að þú þyrftir aldrei
til þess að grípa. Þú verður
líka að gangast við ábyrgð
þinni undanbragðalaust.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) mP
Það er engin ástæða fyrir þig
að vera með einhvern leikara-
skap til þess að ná athygli
annarra. Kynntu bara mál-
stað þinn af festu.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) wsií
Það er aldrei að vita hvenær
gamlir vinir birtast á ný og
engin ástæða til þess að láta
það siá sig út af laginu.
Brostu bara að bernskubrek-
unum.
Fiskar ^
(19. feb. - 20. mars)
Það er ekki rétt að bera
einkamál sín út á torgum.
Taktu þér tíma til þess að
fara í gegn um málin og finna
lausn á þeim og afgreiddu
þau svo.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byégðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Langur laugardagur,
opið kl. 10-16
30% afsláttur af blómvöndum og ilmvörum.
Tilboðsslá.
%istan
\_» Laugavegi 99,
Laugavegi 99, sími 551 6646
ÚTSÖLULOK
20% AUKAAFSLÁTTUR
Nýjar vörur streyma inn
Opið laugardag kl. 10-17, sunnudag kl. 13-17
Pokemon
Fyrir stelpur og stráka
Bolir 1.790
Flísbolir 2.590
Jogging frá 2.990
Fóðraðar buxur
frá 2.990
Barrvakot
Xringlunni 4-6 sirm 588 1B4o
Mörkinni 6, sími 588 5518
Tilboðsslá á
löngum laugardegi
Nyjar vorur
Full búð af
nýjum
haustvörum
Stærðir
36—52
Drastir verð frá 14.900
Kjólar verð frá 6.900
Frakkar verð frá 9.900
t>í&kuhús
Hverfísgötu 52,9Ími5625110
Hársnyrtir/sveinn
Hársnyrtistofa í Hafnarfirði óskar eftir starfskrafti
í hlutastarf.
Upplýsingar í síma 865 7750 eða 698 I664.