Morgunblaðið - 01.09.2000, Page 70
70 FÖSTUDAGUR1. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Warner-kvikmyndarisinn í vanda
Falskur Stormur?
-t
EIGINKONA og dætur skipstjór-
ans Billy Tyne sem George Clooney
leikur með miklum tilþrifum í The
Perfect Storm hafa höfðað mál
gegn framleiðendum myndarinnar
Warner-bræðrum fyrir að hafa sýnt
hann í „fölsku og niðrandi ljósi“.
Þær vilja ennfremur sækja kvik-
myndarisann til saka fyrir að hafa
gert kvikmyndina án samráðs við
sig og þar með ráðist harkalega að
friðhelgi einkalífs síns.
Warner hefur lýst undrun á þess-
um ásökunum og í yfirlýsingu segir
þeim verði alfarið neitað og
málshöfðuninni varist með kjafti og
klóm á grundvelli tjáningarfrelsis.
Myndin er byggð á samnefndri
metsölubók eftir Sebastian Junger
sem studdist einungis lauslega við
raunverulega atburði - þ.e.a.s. ein-
ungis þá sem áttu sér stað í landi en
háskaleikurinn sem Billy Tyne og
áhöfnin á Andreu Gail lenti í árið
1991 er getgátur einar. Aðstand-
endur skipstjórans halda því fram
að myndin gangi hinsvegar mun
lengra en Junger í skáldskapnum
og hreinlega misnoti minningu
raunverulegra einstaklinga í því
skyni að kynda undir aðdráttaraflið
og gróðavonina.
Gerðist þetta kannski aldrei?
Reuters
. .komið
heim0g
saman!
FJÖLBREYTT ÚRVAL - STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI
Úrval HTH-innréttinganna er mjög fjölbreytt, þar sem útfærslur
geta verið margvíslegar. Afgreiðslutími á HTH-innréttingum er fjórar
vikur, en getur farið í sex vikur ef um sérsmíði er að ræða.
ÖLL TÆKI í ELDHÚSIÐ
Auk eldhúsinnréttinga er boðið upp á öll tæki, sem þarf í
nútímaeldhús, svo sem eldunartæki hvers konar, viftur, háfa,
kæliskápa, frystiskápa, vaska, blöndunartæki, Ijós o.fl. Séu raftækin
keypt með eldhúsinnréttingunni, bjóðast þau á heildsöluverði.
HÖNNUN OG RÁÐGJÖF
Við veitum fólki ráðgjöf og leggjum fram hugmyndir að því hvernig
best er að haga innréttingunni þar sem þarfir fjölskyldunnar eru
hafðar í fyrirrúmi.
mi 530 280.0
www.ormsson.is
Lfttu inn f glæsflegan sýníngarsal að Lágmúla 8, 3. hæð
og kynntu þér málið.
Gæði og glæsileiki í fyrirrúmi
MYNPBONP
Samleikur
stórleikkvenna
Annars staðar en hér
(Anywhere But Here)
D r a in a
★★★
Leikstjóri: Wayne Wang. Handrit:
Alvin Sargent. Aðalhlutverk: Susan
Sarandon, Natalie Portman. (109
mín.) Bandarfkin 1999. Skífan.
Öllum leyfð.
MÆÐGUR einar á báti flytja þær
Sarandon og Portman sig um set
vestur eftir til Beverly Hills þar sem
rótlausa móðirin
Sarandon, uppfull
af draumórum, ætl-
ar þeim mægðum
betra líf og bjartari
framtíð. Jarð-
bundna dóttirin
Portman vildi hins-
vegar hvergi fara
og undi sér vel við
látlaust smábæjar-
lífið í faðmi vina og nánustu ættingja.
Móðirin getur hinsvegar ekki hugsað
sér að líf dótturinnar verði eins dap-
urt, tilbreytingalítið og uppfullt af
vonbrigðum líkt og hún telur sitt eig-
ið hafa verið. Sem búast mátti við
reynist Beverly Hills ekki sú paradís
sem móðirin gerði sér vonir um en
hún lætur sér ekki segjast og er
sannfærð um að lukkan snúist þeim
mæðgum í hag fyrr en síðar.
Þessi hjartnæma mynd Taívan-
búans Waynes Wangs fjallar á afar
trúverðugan og væmnislausan máta
um samskipti ólíkra mæðgna. Trú-
verðugleiki myndarinnar og áhrifa-
máttur er fyrst og fremst samleik
tveggja stórleikkvenna að þakka.
Sarandon hefur margsannað styrk
sinn en hin unga Portman sýnir hér
svo um munar að stórleikurinn í Leon
var alls engin byrjandaheppni heldur
frumraun upprennandi stórstjömu.
Skarphéðinn Guðmundsson
-----------------
MYNPBÖND
Deilt við
dómarann
Hinn seki
(The Guilty)
Spennumynd
★%
Leikstjóri: Anthony Waller. Hand-
rit: Simon Burke og William Dav-
ies. Aðalhlutverk: Bill Pullman,
Gabrielle Anwar og Joanne Whall-
ey. (107 mín) Bandaríkin, 1999.
Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
HINN seki er spennumynd í
myrkari kantinum, sem lýsir óförum
lögfræðingsins Callum Crane (Pill
Bullman). Sá hefur
byggt upp mikinn
starsframa og á von
á því að verða út-
nefndur hæstarétt-
ardómari. Hann
fremur glæp hins
vegar er hann
nauðgar samstarfs-
konu sinni á stefnu-
móti en reynir síð-
an að breiða yfir málið. Kvikmyndin
segir frá nokkrum persónum, m.a.
syni Cranes, og hvemig örlög þeirra
fléttast saman í atburðanna rás.
Handritshöfundurinn hefur nokkuð
margra þræði í hendi og verður sam-
fléttun þeirra dálítið ólfldndaleg. Á
móti vegur það hvemig myndin gefur
sér tíma í persónusköpun og staldrar
við þá sálarangist sem persónumar
sem koma að málinu upplifa. Þá kem-
ur fléttan nokkuð á óvart þegar líður
að síðari hluta myndarinnar, og fær
hún plús fyrir það að taka dálítið
óvænta stefnu. Of margt er þó of ein-
feldningslegt og stirðbusalega fram-
sett til að myndin geti talist góð.
Heiða Jóhannsdóttir