Morgunblaðið - 23.09.2000, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 9
Vinna við gerð Landskrár fasteigna langt á veg komin
V er ður ky nnt notend-
um um áramótin
STEFNT er að því að kynna nýtt
samhæft gagna- og upplýsingakerfí
um allar fasteignir í landinu fýrir
helstu notendum um áramótin og
síðan almenningi í kjölfarið. Unnið
hefur verið að gerð þessa gagna-
grunns, sem gengur undir heitinu
Landskrá fasteigna, frá árinu 1992
en um næstu áramót taka gildi
þrenn lög sem samþykkt voru á Al-
þingi í vor og fólu í sér nauðsynleg-
ar breytingar á gildandi lögum um
fasteignaskráningu.
Jón Vilberg Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri á skráningar- og þró-
unarsviði Fasteignamats ríkisins,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
gert væri ráð fyrir því að á fjórum
árum yrði mynduð ein altæk skrá
yfír allar fasteignir í landinu sem
eigi að nýtast öllum opinberum aðil-
um og einkaaðilum. Er þetta gert
með því að keyra saman skrár sveit-
arfélaga, Fasteignamats ríkisins og
þinglýsingabækur sýslumanna.
Jón Vilberg kynnti starfsemi
Landskrár fasteigna á ráðstefnu um
grunngögn í kortagerð á Grand
Hóteli á fimmtudag. Hann segir að
verkefnið kosti um 615 milljónir
króna og skiptir þar mestu kostnað-
ur við innslátt upplýsinga úr
þinglýsingabókunum, en þær munu
Á að leiða til
lækkunar rekstr-
arkostnaðar
vera síðasta opinbera skráin sem
ekki hefur verið tölvuvædd. Verður
þessi kostnaður greiddur með við-
bótarskatti til fjögurra ára sem var
samþykktur á Alþingi í maí.
Ráðist var í könnun eða athugun
á þessu verkefni árið 1992 og var sú
könnun á vegum stýrihóps ráðu-
neytisstjóra, sambands íslenskra
sveitarfélaga og Reykjavíkurborg-
ar, að sögn Jóns Vilbergs. Frá 1995
hafa síðan staðið yfir tilraunaverk-
efni bæði í Kópavogi og á Selfossi
og var þar komið á samstarfi milli
sveitarfélags, Fasteignamats og
sýslumanns.
Markmið samstarfsins var að
hver þessara aðila nýtti sér þær
upplýsingar sem hinir hefðu slegið
inn.
Eiga í viðræðum við Tölvu-
nefnd um gagnagrunninn
Landskrá fasteigna verður mið-
lægur gagnagrunnur og þegar Jón
Vilberg var inntur eftir því hvernig
þessi mál stæðu gagnvart lögum og
reglum um persónuvernd sagði
hann að viðræður stæðu yfir við
Tölvunefnd um þau mál. „En það
verður í raun engin breyting, það
gilda nú þegar reglur um aðgang að
þessum gögnum og það stendur
ekki til að breyta þeim í veigamikl-
um atriðum," sagði hann.
„Grundvallarreglan er sú að hver
sem er á þess kost að fara á skrif-
stofu sýslumanns og fá ljósrit af
þinglýstu skjali. Þegar þetta er hins
vegar komið á tölvutækt form, verð-
ur aðgangur að upplýsingunum
takmarkaður og það er gert ráð fyr-
ir því að fyrirspurn eftir kennitölu
eiganda verði ekki heimiluð öðrum
en skattayfirvöldum og lögreglu."
Sagði Jón Vilberg að stofnun
Landskrár fasteigna ætti að leiða til
lækkunar á kostnaði enda væri mun
hagstæðara að geyma allar upplýs-
ingar á einum stað. Upplýsingamar
verða jafnframt geymdar á staf-
rænu formi sem ætti að geta sparað
fasteignasölum tíma og vinnu og
viðskipti ættu þar af leiðandi að
geta gengið hraðar fyrir sig, auk
þess sem öryggið yrði meira þar
sem framvegis yrði aðeins um eina
skrá með þessum upplýsingum að
ræða og því ekki hætta á að mis-
ræmi væri í upplýsingum.
Samtök atvinnulífsins
Opinberir
starfsmenn
hækka
meira
en aðrir
LAUN opinberra starfsmanna og
bankamanna höfðu hækkað um
8,3% á öðram ársfjórðungi þessa
árs frá sama tíma í fyrra. A þessu
tímabili fengu þeir 3% samning-
bundna launahækkun um sl. ára-
mót. A almennum markaði nam
hækkunin 5,7% á sama tímabili, en
á öðrum ársfjórðungi þessa árs var
meginþorri kjarasamninga á al-
mennnum vinnumarkaði endurnýj-
aður.
Þessar upplýsingar koma fram á
heimasíðu Samtaka atvinnulífsins,
en tölurnar eru byggðar á launa-
vísitölu Hagstofunnar.
Þegar litið er lengra aftur í tím-
ann kemur í ljós að það er einungis
á þeim ársíjórðungum sem kjara-
samningar eru endurnýjaðir á al-
mennum markaði að launahækkan-
ir á almennum vinnumarkaði fara
fram úr hækkunum hjá hinu opin-
bera, þ.e. á fyrstu tveimur ársfjórð-
ungum ársins 1995 og á 2. ársfjórð-
ungi 1997. Þetta gerðist ekki á 2.
ársfjórðungi þessa árs, þegar flest-
ir kjarasamningar á almennum
vinnumarkaði voru endurnýjaðir,
vegna mikils launaskriðs hjá hinu
opinbera.
Samanburður er
vandkvæðum bundinn
Samtök atvinnulífsins taka fram
að samanburður á milli opinbera og
almenna markaðarins sé ýmsum
vandkvæðum bundin, en þarna sé
um að ræða sambærilegar tölur
milli ára fyrir hvort svið um sig.
Þær gefi því rétta mynd af þróun-
inni.
Bent er á að launaskriðið fari
vaxandi milli fyrsta og annars ár-
sfjórðungs þessa árs. Sé litið yfir
tvö síðustu samningstímabil, þ.e.
hækkanir frá 1. ársfjórðungi 1995,
komi í ljós að launaþróun opinberra
starfsmanna hafi farið samtals 15%
fram úr almenna markaðinum.
Nýtt — Nýtt
Úlpur, buxur, peysur, pils
Gott verð — Góð þjónusta
Rita
SKUVERSLU
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið mán,— fös. frá kl. 10—18,
lau. 10-15.
3tettnir
sæjar
Glaðværar
cjeilur
Kðiiretm
-vinur vina sinna.
ý..'- J;
yiSflíi
Heilsulatexdýnur og
rafmagnsrúmbotnar
Þegar kemur að því að velja rúm
eða dýnu eru gæðin, úrvalið og
reynslan okkar megin.
Opið laugardaga kl. 10-15
www.lystadun.is
Yfírhafnir, kvartbuxur
og peysur
hj&QýGafhhiMi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Ný sending
l um»
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
DOMUS MEDICA
við Snorrabraut - Rvík
Sími 551 8519
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Rvík
Sími 568 9212
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
ÞROSKAMIÐUÐ NÁMSKEIÐ
FYRIR EINSTAKLINGA
haldin á Ránargötu 8A
AÐ TAKAST A VIÐ BREYTINGAR
Fjallað er um breytingar almennt og breytingar í eigin lífi.
Leiðbeinendur: Sr. Bragi Skúlason, Ragna Ragnarsdóttir
og Þuríður Hjálmtýsdóttir.
Tími: 3 okt., 5. okt., og 11. okt. kl. 17-19.
AÐ TAKAST Á VIÐ KREFJANDI VERKEFNI
Fjallað er um leiðir til að takast á við krefjandi verkefni út B . Skú|ason
frá eigin forsendum. Leiðbeinandi: Þuríður Hjálmtýsdóttir. Smkrahúsprestur
Tími: 12. okt., 19. okt., og 26. okt. kl. 16.30-18.30. og kennari.
GILDRUR í SAMSKIPTUM MÆÐRA OG DÆTRA
Námskeið fyrir mæður, sem vilja leita jákvæðra leiða í
tengslum við dætur sínar. Stuttir fyrirlestrar, æfingar,
hugleiðingar og samræður.
Leiðbeinandi: Ragna Ragnarsdóttir.
Tími: 25. okt., 1. nóv., 8. nóv., 15. nóv. kl. 17-19.
SJÁLFSTRAUST ÞITT
Námskeið fyrir unglingsstúlkur á aldrinum 16-18 ára. Ragna Ragnarsdóttir
Fjallað er um eigin styrk og leiðir til að viðhalda og sálfræðingur.
styrkja sjálfstraust sitt og gleði af því að lifa.
Leiðbeinandi: Þuríður Hjálmtýsdóttir.
Tími: 3. okt., 10. okt., 17. okt., 24. okt. kl 15-17.
ÞAÐ ER GOTT AÐ VERA KARLMAÐUR
Námskeið fyrir karla á aldrinum 25-50 ára.
Farið yfir hlutverk karlmanna, styrk, vináttusambönd,
fjölskyldubönd. Leibeinandi: Sr. Bragi Skúlason.
Tími 10. okt. kl. 17-19.
Þuríður Hjálmtýsdóttir
Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiðunum er ýmist 8 sálfræðingur
eða 12 manns. Á öllum námskeiðunum er lögð áhersla á 09 ennarl
öruggt og styðjandi andrúmsloft, næmi og virðingu fyrir
öðrum.
Skráning og nánari upplýsingar í símum 691 4462,
867 5458 og 864 1864 eða á netföngum:
gragna@simnet.is eða thuridur@kvasir.is