Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fjarnám við Verkmenntaskólann á Akureyri fær lofsverða umfjöllun í skýrslu OECD
Áætlað að nem-
endur verði um
600 á næsta ári
Sú hugmynd hefur verið viðruð að heimavist við Verkmennta-
skólann á Akureyri verði komið fyrir í þessu húsi, en þar er Há-
skólinn á Akureyri nú með starfsemi.
Morgunblaðið/Kristján
Iljalti Jón
Sveinsson
YFIR 500 manns stunda nú fjarnám við
Verkmenntaskólann á Akureyri og er gert
ráð fyrir að nemendum muni fjölga í um
600 á næsta ári. Hjalti Jón Sveinsson
skólameistari segir að við það nálgist skól-
inn það markmið að geta sinnt eftirspurn.
Meiri skilningur sé nú fyrir gildi fjark-
ennslunnar hjá ráðuneyti menntamála.
Fjarkennsla við Verkmenntaskólann á
Akureyri sem hófst árið 1994 hlaut lof-
sverða umsögn í skýrslu OECD sem nýl-
ega er komin út og fjallar um nýbreytni í
skólastarfi.
Hjalti Jón sagði að skólinn hefði í boði
fjölbreytt námsframboð og mikil reynsla
væri komin á þessa starfsemi. Sífellt væri
verið að þróa áfanga og nýverið fékk skól-
inn styrk úr Þróunarsjóði framhaldsskóla
til að vinna að verkefni á þessu sviði.
„Við sinnum mörgum mismunandi hóp-
um í fjarnáminu, m.a. sjáum við að hluta til
um áfanga sem kenndir eru við Fram-
haldsskólann á Laugum, við sjáum líka um
grunnskólanemendur austur á fjörðum sem
eru að taka áfanga á framhaldsskólastigi,
sem og nemendur á Grundarfirði, þá mán
nefna símenntunarmiðstöðvar og fangelsi
sem við höfum einnig á okkar könnu. Þá
erum við með nemendur út um allan heim í
rauninni en íslendingar í útlöndum eru
stór hluti af okkar nemendum og þar er
bæði um að ræða fólk á framhaldsskóla-
aldri og eldra.
Forsvarsmenn Verkmenntaskólans á Ak-
ureryri hafa átt í viðræðum við forsvars-
menn Landssanbands íslenskra útvegs-
manna um með hvaða hætti unnt er að efla
og auka áhuga ungs fólks á störfum tengd-
um sjávarútvegi en sem kunnugt er var
kennsla við útvegssvið skólans á Dalvík
felld niður í haust þar sem nemendur voru
af skornum skammti.
Hjalti Jón sagði að horft væri til þess að
ná inn í skólann þeim sem starfað hafa á
togurum um skeið og þekkja til starfsins.
Fyrirhugað er að laga námið í framtíðinni
að þeim aðstæðum sem sjómenn búa við en
það yrði byggt upp á þann hátt að þeim
yrði gert kleift að stunda það ýmist heiman
frá sér eða af sjónum að hluta til og síðan
tækju við staðbundnar lotur þar sem t.d.
yrði hægt að nýta frí milli túra.
Hjalti Jón kvaðst vænta þess að sam-
starf við útvegsmenn og atvinnurekendur
yrði gott enda hugnaðist þeim hugmyndin
vel. Þá hafa einnig verið viðraðar hug-
myndir um að efna til endurmenntunar-
námskeiða fyrir starfandi skipstjórnendur.
Engin heimavist er við Verkmenntaskól-
ann og hafa forsvarsmenn hans lengi haft
áhyggjur vegna þess en brýn þörf þykir á
að koma upp heimavist við skólann. Nem-
endur skólans munu fá aðgang að nýrri
heimavist sem rekstrarfélagið Lundur mun
reisa við Menntaskólann á Akureyri en
Hjalti Jón segir ljóst að þörf sé fyrir meira
rými en þar muni bjóðast.
Skólameistari hefur farið þess á leit við
bæjaryfirvöld á Akureyri að ekki verði um
sinn byggt á lóð á horni Þórunnarstrætis
og Mímisvegar, skammt neðan skólans, en
þar væri ákjósanlegt að reisa heimavist í
tengslum við skólann. Bæjarráð fjallaði um
erindið í síðustu viku en niðurstaða liggur
ekki fyrir. Lóðinni hefur fyrir allnokkru
verið úthlutáð til byggingaverktaka.
Hjalti Jón hefur einnig viðrað þá hug-
mynd sína við bæjaryfirvöld og starfsmenn
menntamálaráðuneytis hvort hugsanlegt
væri að koma fyrir heimavist í núverandi
húsnæði Háskólans á Akureyri við Þing-
vallastræti. Starfsemi háskólans mun á
næstu misserum verða flutt að framtíðar-
stað hans við Sólborg en við það losnar
húsnæðið sem er á þremur hæðum og með
góðum kjallara.
Bjartsýnn á lausn
„Staðan er óviðunandi, við getum ekki
búið við þessar aðstæður lengur en það er
líka ljóst að það verður ekki byggð heima-
vist nema til komi fjárframlög frá ríki og
bæ, það gengur ekki upp að reisa slíkt hús-
næði fyrir lánsfé,“ sagði Hjalti Jón. Yfir
eitt þúsund nemendur stunda nám við skól-
ann, þar af er aðkomufólk um fjögur
hundruð talsins. Allir nemendur þurfa nú
að leigja húsnæði í bænum en skólameist-
ari telur farsælla að bjóða heimavistarrými
fyrir ungmenni undir 18 ára aldri. Nokkrir
úr hópi nemenda Verkmenntaskólans hafa
fengið íbúðir hjá Félagsstofnun stúdenta
og taldi skólameistari ekki ólíklegt að frek-
ara samstarf gæti orðið þar á milli.
„Ég er bjartsýnn á að við finnum ein-
hverja leið til að reisa heimavistenda geng-
ur þetta ekki lengur upp, það verður eitt-
hvað að fara að gerast," sagði Hjalti Jón.
Islenska myndasafnið gefur út myndaöskju um Akureyri á 20. öld.
Akureyrarmyndir
syndar í Deiglunni
Svalbakur EA-2 í klakaböndum við Togarabryggjuna á Akureyri,
myndin er tekin veturinn 1970 þegar verið er að landa karfa úr skipinu,
en maðurinn á bryggjunni er Þorvaldur Ólafsson.
LJÓSMYNDAASKJAN ísland í
eina öld Akureyri kemur út laugar-
daginn 23. september og samhliða út-
gáfu hennar verður opnuð ljós-
myndasýning í Deiglunni á Akureyri.
Það er íslenska myndasafnið sem
gefur Ijósmyndaöskjuna út, en áður
hafa samskonar öskjur um Vest-
mannaeyjar og ísafjörð komið út. ís-
lenska myndasafnið mun í tilefni
aldamótanna gefa út nokkrar ljós-
myndaöskjur um kaupstaði og lands-
hluta á íslandi
A sýningunni í Deiglunni verða
myndir sem margar hverjar hafa
aldrei birst áður. Fjölmargir mynda-
smiðir koma við sögu, m.a. Hallgrím-
ur Einarsson, Jón og Vigfús, Þor-
steinn Jósepsson, Mats Wibe Lund
og Golli. Elstu myndimar eru frá
Þjóðminjasafninu og Minjasafninu á
Akureyri og sýna þær glöggt um-
skiptin sem orðið hafa á Akureyri á
20. öld. Á ljósmyndasýningunni í
Deiglunni verða myndimar tuttugu
sýndar í stóm formi, allt að 1 m x 1,50
m, auk þess sem níu aðrar myndir
eftir Mats Wibe Lund og fleiri verða
þar til sýnis. Myndirnar era allar til
sölu, en einnig er hægt að panta þær í
mismunandi stærðum eftir óskum
hvers og eins. Ljósmyndasýningin í
Deiglunni stendur til sunnudagsins 1.
október. Hún verður opin frá kl. 14-
18 um helgar og frá kl. 17-21 virka
daga. Aðgangur er ókeypis.
Myndaöskjunni ísland í eina öld
Akureyri fylgir bók eftir Kristján
Sigurjónsson með ítarlegum skýr-
ingatexta fyrir hveija mynd auk yfir-
litsgreinar um þróun byggðar, at-
vinnulífs og samfélags á Akureyri á
síðustu hundrað áram.
íslenska myndasafnið er deild inn-
an útgáfufyrirtækisins Genealogia
Islandorum - gen.is og er tilgangur
safnsins að skrá og varðveita gamlar
og nýjar myndir af landi og þjóð í
samvinnu við ýmis önnur ljósmynda-
söfn. ísland í eina öld Akureyri er
þriðja Ijósmyndaaskjan sem íslenska
myndasafnið gefur út um kaupstaði á
þessu ári. Mikil vinna hefur verið lögð
í val mynda, myndvinnslu, textagerð,
prentun og öskjugerð til að gera
STOFNUN Vilhjálms Stefánsson-
ar og Háskólinn á Akureyri bjóða
til málstofu með Dr Lassi Heininen
sem mun ræða um efnið „Northern
Dimension as a political concept of
North Europe“.Dr Heininen er
fræðimaður við Norðurslóðastofn-
unina í Rovaniemi í Finnlandi og
formaður samtakanna Rannsókn-
arþing norðursins (Northern Res-
myndaöskjumar sem best úr garði.
Auglýsingastofan Skaparinn sá um
hönnun Akureyraröskjunnar. Christ-
opher Lund, forstöðumaður Islenska
myndasafnsins, annaðist mynd-
vinnslu en Páll V. Bjamason sá um
myndaritstjórn. Ritstjóri og umsjón-
armaður verksins var Kristján Sigur-
jónsson. Svansprent ehf. sá um
prentun og Félagsbókbandið Bókfell
ehf. um bókband og öskjugerð.
earch Forum). Málstofan kemur í
framhaldi af heimsókn forseta
Finnlands til Akureyrar og ræðu
forsetans um samstarf á norður-
slóðum (sjá www.svs.is).
Málstofan fer fram á ensku og
verður í stofu K202 í nýbyggingu
Háskólans á Akureyri við Sólborg
kl. 16.15 á mánudag, 25. septem-
ber. Allir velkomnir.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Æðraleysis-
messa á sunnudagskvöld kl. 20.30. Sr.
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Krossband-
ið sér um tónlistina. Kynning á starfi
12- spora hópa og kaffisopi í Safnaðar-
heimilinu á eftir. Guðsþjónusta í Seli kl.
14 á sunnudag og kl.16 á Hlíð. Morgun-
söngur kl. 9 á þriðjudagsmorgun.
Mömmumorgunn kl. 10 til 12 á mið-
vikudag. Kristín Valdimarsdóttir sér
um fræðslu um heyrnarskerðingu og
heyrnarleysi. Allir verðandi og núver-
andi foreldrar velkomnir. Kyrrðar- og
fyrirbænastund kl. 12 á fimmtudag og
hefst hún með orgelleik. Bænaefnum
má koma til prestanna. Hægt að fá létt-
an hádegisverð í Safnaðarheimilinu eft-
ir kyrrðarstundina. Æfing hjá Bama-
og unglingakór kirkjunnar í kapellunni
kl. 16.30 á fimmtudag.
GLERÁRKIRKJA: Bamasamvera og
guðsþjónusta kl. 11 á morgun, sameig-
inlegt upphaf. Foreldrar hvattir til að
koma til kirkju ásamt börnum sínum.
Hádegissamvera kl. 12 til 13 á miðviku-
dag. Orgelleikur, fyrirbænir, sakra-
menti. Léttur hádegisverður í safnað-
arsal á vægu verði. Opið hús fyrir
mæður og böm á fimmtudag kl. 10 til
12. Æfing bamakórs kirkjunnar verð-
ur kl. 17.30 á fimmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudaga-
skóli kl. 11 á morgun, sunnudag. Bæn
kl. 19.30 sama dag og almenn samkoma
kl. 20 um kvöldið. Heimilasamband kl.
15 á mánudag. Hjálparflokkur kl. 20 á
miðvikudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bæna-
stund í dag, laugardag, kl. 20. Sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30 á
morgun, sunnudag. Reynir Valdimars-
son læknir kennir úr Orði Guðs. Léttur
málsverður að samkomu lokinni. Al-
menn vakningasamkoma kl. 16.30
sama dag þar sem Þórir Páll Agnars-
son mun predika. Á sama tíma verður
samkoma fyrir krakka 7 til 12 ára og
einnig bamapössun fyrir böm eins til 6
ára. Fyrirbænaþjónusta.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður í Möðravalla-
kirkju sunnudaginn 24. september kl.
14.00.
Fermingarbörn alls prestakallsins
verða kynnt fyrir söfnuðinum, beðið
verður fyrir þeim og starfinu í vetur.
Mætum öll og njótum samveru Guðs.
Sóknarprestur.
PÉTURSKIRKJA: Messa í dag, laug-
ardag kl. 18, og á morgun, sunnudag,
kl. 11 í kirkjunni við Hrafnagilsstræti 2.
EFLING MENNINGARSTARFS
Á NORÐURLANDI
Opinn fundur verður haidinn þriðjudaginn
26. september kl. 13.00-16.00 á Fiðiaranum,
Akureyri, 4. hæð.
Framsögumenn verða frá menningarstofnunum
og samtökum á Norðurlandi.
Starfshópur menntamálaráðherra um eflingu
menningarstarfs á landsbyggðinni
tekur þátt í fundinum.
A
Atvínnuþróunarfélag
Eyjafjarðar
Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra,
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar,
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga.
4
&
mmmm
W
Málstofa um norðlægu vídd-
ina sem pólitískt hugtak í
N or ður-E vr ópu