Morgunblaðið - 23.09.2000, Side 18

Morgunblaðið - 23.09.2000, Side 18
„Við teljum að þarna hafí verið brotið jafnræði á milli íbúa og sveit- arfélaga og lögfræðingur okkar er að ræða þessi mál við félagsmálaráðuneytið núna.“ Varnargarðurinn verður tilbúinn árið 2003 í Morgunblaðinu þann 31. ágúst I síðastliðinn kemur fram að íbúar við Dísarland telji sig engu bættari með snjóflóðavarnargarðinn þar sem þeir þurfi eftir sem áður að rýma húsin sín líkt og undanfarin ár, en síðasta vetur þurftu þeir að rýma hús sín 11 sinnum. Ólafur sagði að það hefði verið sama hvaða leið hefði verið valin, k alltaf hefði þurft að rýma hús þegar það gerði aftakaveður. Hann sagði I að eftir að varnargarðurinn væri | risinn ætti staða íbúa við Dísarland, varðandi rýmingar, ekki að vera verri en margra annarra á svæðinu. Ólafur sagði að fyrirtækin For- verk og Línuhönnun væru nú að vinna að hönnun snjóflóðavarnar- garðsins og útboðslýsingu verksins og að þeirri vinnu ætti að verða lok- ið fyrir áramót. Hann sagði að t stefnt væri að því að bjóða verkið út í janúar eða febrúar og að verktak- | ar ættu því að geta hafið fram- f kvæmdir næsta vor. Hann sagði að verkinu myndi væntanlega ljúka ár- ið 2002. Að sögn Ólafs er áætlaður heild- arkostnaður vegna verksins um 450 milljónir og greiðir Ofanflóðasjóður 90% kostnaðarins en Bolungarvík- urbær 10%. BÆJARYFIRVÖLD í Bolungarvík munu ekki kaupa upp hús íbúa í Dísarlandi, íbúðargötunni sem stendur næst Traðarhyrnu, fjallinu sem snjóflóðin féllu úr árið 1997. Ól- afur Kristjánsson bæjarstjóri sagði að þegar hefði verið tekin ákvörðun um það að byggja snjó- flóðavarnargarð fjrrir ofan götuna og að samkvæmt lögum væri óheim- ilt að kaupa upp hús og ráðast í gerð snjóflóðavarnargarðs á sama tíma. „Við erum búin að gera allt sem við getum til þess að verða við ósk- um íbúanna við Dísarland," sagði Ólafur. „Lög heimila bara ekki hvort tveggja í senn, varnir og upp- kaup húsa og það er hlutur sem við ráðum ekki við.“ Ólafur sagði að bæjaryfirvöld hefðu gjarnan viljað verða við ósk- um íbúanna. Hann sagði að þau hefðu lagt óskir íbúanna fyrir um- hverfisráðuneytið og félagsmála- ráðuneytið, sem færu með málefni snjóflóðavarna, en að ekki hefði verið hægt að verða við óskunum, þar sem þær teldust ekki standast 11. grein laga um varnir gegn snjó- flóðum og skriðuföllum. í 11. grein laganna segir m.a.: „Ef hagkvæmara er talið, til að tryggja öryggi fólks gagnvart ofan- flóðum, er sveitarstjórn heimilt að gera tillögu til ofanflóðanefndar um kaup eða flutning á húseignum í stað þess að reisa varnarvirki eða beita öðrum varnaraðgerðum.“ Ólafur sagði að bæjarstjórnin hefði samþykkt að láta reyna á þessi lög. Fyrirdráttur í Laxá á Refasveit Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason Sinfóníuhljómsveit Islands leikur í Stykkishólmi. Morgunblaðið/Jón Sig. Hængur í neti. Pétur Brynjólfsson og Jón Árni Jónsson að landa einum hæng úr Laxá á Refasveit. Eftirtekjan fremur rýr Blönduósi - Það er nokkuð algengt hjá veiðiréttareigendum laxveiði- áa að veiða á haustin lax í klakið. Kallast það ýmist fyrirdráttur eða ádráttur og felst í því að fara með net um hylji árinnar og fanga hænga og hrygnur og rækta und- an þeim seiði sem síöan er sleppt aftur í ána í fyllingu tímans. Bændur við Laxá á Refasveit í A-Húnavatnssýslu drógu fyrir í vikunni og var eftirtekjan frekar rýr, tveir hængar og ein hrygna. Er það í samræmi við veiðina í sumar en rétt um 60 laxar komu úr ánni sem er langt undir því sem best gerist. Á myndinni má sjá Jón Árna Jónsson frá Sölvabakka og Pétur Brynjólfsson frá Hólalaxi með annan tveggja hænga sem veiddust í Göngumannahyl. Þeir fiskar sem í netin komu voru flutt- ir að Hólum í Iljaltadal og geymd- ir þar fram í miðjan október eða að þeim tíma að frjómáttur lax- anna verður í hámarki. Sinfoníuhlj ómsveitin lék í Stykkishólmi Stykkishólmi - Það hefur verið margréttað á tónlistarborði Hólm- ara síðustu daga. Hver stórviðburð- urinn á fætur öðrum á tónlistar- sviðinu. Fyrr í þessum mánuði hélt Wiener Opernball Damenensemble Vínartónleika í Stykkishólmskirkju. Á föstudagskvöldið var komið að Sinfóníuhljómsveit íslands að leika fyrir bæjarbúa. Mættu á milli 70 og 80 hljóðfæraleikarar og héldu tón- leika í íþróttahúsinu. Flutt voru tvö verk. Á fyrri hluta tónleikanna flutti hljómsveitin píanókonsert nr. 1 í d-moll op. 15 eftir Johannes Brahms. Einleikari var Italinn Andrés Lucchesini. Áheyrendur fengu að heyra á síðari hluta tón- leikanna verk eftir Jean Sibelius, Sinfoníu nr. 1 í e-moll op 39. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Rieo Saccani. Upphaflega var ætlað að tónleik- arnir yrðu í Stykkishólmskirkju, en í ljós kom að svo stór hljómsveit rúmaðist ekki í kirkjunni og því varð að flytja þá í íþróttahúsið þar sem hljómgæðin eru ekki eins mik- il. Það eru mikil tíðindi í ekki stærra bæjarfélagi þegar 80 manna sinfóníuhljómsveit kemur í heim- sókn og býður upp á flutning slíkra stórverka. Því miður var aðsóknin minni en vonast var til, en þeir gestir sem mættu kunnu vel að meta flutning hljómsveitarinnar og var hljóðfæraleikurum og stjórn- anda þakkað vel í lokin. mjög fjölbeytt úrval af HAUSTLAUKUM - margar tegundir. Notið tækifærið áður en moldin frýs og setjið haustlaukana niður í garðinn, svo þið getið notið fagurra blóma þegar vorar. Hún Cuðbjörg Kristjánsdóttir garðyrkjumaður veitir ykkur ráðgjöf um val og meðhöndlun á haustiaukum milli kl. 13 og 16 nk. laugardag og sunnudag. GARÐHEIMAR GRÆN VERSLÚNARMIÐSTÖÐ STEKKJARBAKKA 6 • REYKJAVÍK • SÍMI 540 3300 TILBOÐ Á FALLEGUM ERIKUM 2 Erikur 650 kr., 1 Erika í potti 695 kr. 18 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ ----—^— Framkvæmdir við snjóflóðavarnar- garð í Bolungarvík Hús við Dísar- land verða ekki keypt upp

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.