Morgunblaðið - 23.09.2000, Síða 32
32 LAUGAEDAGUR' 23. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ'
NEYTENDUR
Hlaupahjól innkölluð
í Bretlandi
London. Morpinblaðið.
HLAUPAHJÓLIN sem nýlega
hafa náð miklum vinsældum með-
al barna og ungmenna í Bretlandi
reynast mörg hver slysagildra og
vöruðu talsmenn bresku Neyt-
endasamtakanna við notkun
þeirra í vikunni.
Foreldrar voru hvattir til þess
að kanna hiaupahjói barna sinna
ítarlega eftir að meira en 25.000
hlaupahjól voru innköiluð vegna
alvarlegra framleiðsiugalla.
Nokkrar tegundir hiaupahjóla
voru fjarlægðar úr hilium versl-
ana eftir mikia slysaöldu. Tíu ára
stúlka missti framan af fingri við
að stýrisstöng hlaupahjólsins féll
saman þegar hún var að setja hjól-
ið saman. Fleiri áþekk slys urðu til
þess að ákveðið var að hætta sölu
þessarar tegundar hiaupahjóla,
sem kaiiast Olop 900, þrátt fyrir
að þau hafi áður staðist öll örygg-
ispróf.
Framieiðendur hlaupahjóla af
tegundinni Mojo Motiv og Arrow
hafa innkallað hjól sín vegna
framleiðslugalla. Mojo Motiv-
hjólin voru kölluð inn vegna þess
að óttast var að stýrið væri ekki
nægilega vel fest við stýrisstöng
hlaupahjólanna. Fulltrúar fram-
Morgunblaðið/Ásdís
Þegar hafa um 25.000 hlaupa-
hjól verið innkölluð í Bretlandi
leiðsluráðs töldu að börnum staf-
aði hætta af hjóiunum af þeim sök-
um.
Varnarefni í 43% ávaxta
og grænmetis í Bretlandi
London. Morgunblaðið.
HLUTFALL ávaxta og
grænmetis sem innihalda
leifar skordýraeiturs og
illgresiseyðis hefur auk-
ist stórlega að undan-
fömu í Bretlandi.
Kannað var ferskt
grænmeti og ávextir í
fjölmörgum verslunum
og þar á meðal helstu
stórmörkuðum landsins
og fundust varnarefni í
nær helmingi grænmet-
isins og ávaxtanna. Tölu-
verður hluti reyndist
jafnframt innihalda
magn yfir leyfilegum mörkum,
þ.ám. vom perur, paprikur og
salat.
Umhverfisvemdarsamtök
segja niðurstöðurnar alvarlega
viðvömn, en rannsóknin var
gerð á vegum vinnuhóps um leif-
ar plágueyða fyrir tilstuðlan
bresku ríkisstjómarinnar.
Hlutfallið hefur aukist
um 10% milli ára
Alls reyndust 43% grænmetis
og ávaxta innihalda vamarefni
og hefur hlutfallið aukist um
10% á milli ára. Níu af hverjum
tíu appelsínum og helmingur
allra epla reyndust innihalda
varnarefni en magn þeirra
reyndist samt sem áður innan
viðmiðunarmai-ka.
Hins vegar reyndist ein af
hverjum fimm perum innihalda
efnið chlormequat, sem getur
valdið óþægindum í maga. Efnið,
sem bannað er í Bretlandi, er
notað til þess að tryggja
reglulega lögun peranna.
Spænskar paprikur
innihéldu meira magn af
efninu mathahidophos en
löglegt er. Þá innihéldu
11% bresks og innflutts
salats ólöglegt magn
varnarefna. Eitt sýnis-
hom reyndist jafnframt
innihalda efni sem ekki
er samþykkt til notkun-
ar.
Aukaefni á
jarðarberjum
Einnig mátti finna aukaefni í
80% jarðarberja og 72% af sell-
eríi og 7% af selleríi innihélt
meira af varnarefnum en ráðlegt
þykir.
Talsmenn vinnuhópsins hafa
sagt í breskum fjölmiðlum að
helst megi rekja vandamálið til
ræktunaraðferða á Spáni, Hol-
landi, Belgíu og Frakklandi og
gagmýndu harkalega notkun
varnarefna sem eingöngu væri
ætlað að bæta útlit ferskvöru.
Hægt er að vera einkennalaus með salmonellu
Fólk í matvælaframleiðslu
þarf að sýna varkárni
Staðfest tilfelli af salmonellusýkingu voru í
gær 106 talsins en talið er að það sé aðeins
hluti sýktra. Meðal sýktra eru kannski ein-
staklingar sem taka þátt í að útbúa mat en
eru jafnvel einkennalausir. Allir við matar-
gerð þurfa að gæta hreinlætis við störf sín.
„ALLS eru nú 106 staðfest sjúk-
dómstilfelli frá 11. september síðast-
liðnum en talið er að raunverulegur
fjöldi sýkinga sé töluvert meiri, er-
lendar rannsóknir sýna að staðfest
sýkingartilfelli séu aðeins 5 til 10%
sýkinga," segir Asmundur E. Þor-
kelsson matvælafræðingur hjá Holl-
ustuvernd ríkisins. „Hér getur því
hæglega verið um níu hundmð
manns að ræða og í þessum fjölda er
kannski að finna fólk sem tekur þátt
í að útbúa mat, það er fólk sem vinn-
ur til dæmis á veitingastöðum og í
matvælafyrirtækjum.“
Ásmundur segir þekkt með mat-
areitrun eins og salmonellu að með-
an fólk sé ennþá með niðurgang,
sem er eitt af sjúkdómseinkennun-
um, og jafnvel í einhvem tíma eftir
að það er orðið einkennalaust sé það
engu að síður að skilja bakteríuna út
með hægðum. Þá er hættan alltaf sú
að ef fólk gætir þess ekki að þvo sér
vandlega um hendumar að bakter-
ían geti borist í þau matvæli sem það
meðhöndlar.
Fólk sem starfar við matvæla-
framleiðslu er hvatt til að láta
strax vita ef það hefur grun um
að vera sýkt af salmonellu.
„Reglan er sú að smitberar mega
ekki vinna við matvælaframleiðslu
vegna hættu á að sýklamir berist í
matvæli. Sú krafa er gerð til stjóm-
enda matvælafýrirtækja að þeir geri
nýjum starfsmönnum ljóst mildl-
vægi þessa og era þeir beðnir um að
láta vita ef þeir hafa minnsta gran
um að vera sýktir,“ segir Ásmundur
og bætir við að venjan sé síðan yfir-
leitt sú að umræddir starfsmenn fá
Almennar ráðleggingar
Á neimasíðu Hollustuvemdar
•íkisins kemur fram að ástæður
matarsjúkdóma af vöidum salm-
onéllu séu m.a.ófullnægjandi
upphitun eða kæling matvara,
inengun frá starfsfólki, hráefn-
um eða óhreinum áhöldum í til-
búin matvæli. Hér koma nokkr-
ar almennar ráðleggingar.
• Huga að hreinlæti, þvo
hendur oft og án undan-
teknínga eftir salemisnotkun,
bieyjuskipti og hreinsun úr-
gangs eftir gæludýr.
• Haida soðnum matvælum
frá iiráum matvælum til að
hindra krossmengun. Þvoið allt-
,if skurðbretti og önnur áhöld
begar skipt er úr einni gerd
hráefnis yffr í aðra.
• Gæta þess vandlega ad
natvæli séu nægilega eldud/
hituð áður en þeirra er nevtt. Ef
halda þarf tilbúnum mat iieít-
■ im, haldið honum þá vel neituin
■Oa vfir 6()°C.
• Skola allt hrátt grænmeti
og salöt vel fyrir neyslu.
ekki að snúa til starfa fyrr en þeir
hafa skilað þremur neikvæðum sýn-
um.
Mesta hættan er að sögn Ás-
mundar meðan fólk er enn þá með
sjúkdómseinkenni en hættan er þó
ekki liðin hjá þó að þeirra gæti ekki
lengur enda geta einkennalausir
smitberar borið salmonellasýkla í
hægðum vikum eða jafnvel mánuð-
um saman.
„Hollustuvemd finnst sérstök
ástæða til að minna bæði starfsfólk í
matvælaiðanaði og sérstaklega þá
sem reka slík fyrirtæki á þetta atriði
og hafa það í huga sérstaklega þessa
dagana þar sem svo margir smitber-
ar era í þjóðfélaginu. Aðan-áðlegg-
ingin er sú að ef starfsfólk hefur
minnsta gran þess efnis að það hafi
fengið matai-sýkingu að það ráðfæri
sig við lækni eða stjómendur í fyrir-
tækinu," segir Ásmundur og bætir
við að helstu sjúkdómseinkenni séu
niðurgangm’, kviðverkir, sótthiti,
höfuðverkur, ógleði og uppköst sem
geti varað allt frá fáeinum dögum
upp í nokkrar vikur.
Mikilvægt að skola
grænmeti vel
Ásmundur kveðst vilja nota tæki-
færið og minna landsmenn á mikil-
vægi þess að huga að hreinlæti því
það dragi úr útbreiðslu sýkla.
„Við ráðleggjum fólki að skola vel
grænmeti áður en þess er neytt en
það era tvær gildar ástæður fyrir
því. Annars vegar er það vegna
vamarefna sem notuð eru í garð-
yrkju. í öðru lagi getur grænmeti
borið óhreinindi úr jarðvegi, svokall-
aðar jarðvegsbakteríur, og jafnvel
verið saurmengað ef notað hefur
verið lélegt vatn erlendis til að skola
það. Það er því góð og gild regla að
skola ávallt allt grænmeti."
Umhverfisráðuneytið, Hollustu-
vemd ríkisins og Landlæknisem-
bættið gáfu í sumar út sérstakan
bækling, Vamir gegn matarsýking-
um og matareitranum, og hægt er
að nálgast hann ókeypis á heimasíðu
Hollustuvemdar ríkisins á Netinu
og þá var hann einnig sendur á öll
heimili landsmanna í vor sem leið.
Nánari upplýsingar um matarsýk-
ingar er einnig hægt að nálgast á
heimasíðu Hollustuvemar; www.-
hollver.is
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kjúklingabitarnir munu fást í ölium verslunum Nóatúns og í KÁ.
Kaupás hefur fengið einkasöluleyfí
fyrir Chester Fried Chicken
Skyndibitar sem eru
seldir á yfír 3.000
stöðum í heiminum
KAUPÁS hefur fengið einkasölu-
leyfi fyrir skyndibitakjúklingum
sem seldir era undir merki Chester
Fried Chicken.
Nóatún hefur þegar hafið sölu á
skyndibitunum í sjö matvöraversl-
um, í Rofabæ, Grafarvogi, Hóla-
garði, Nóatúni 17, JL-húsinu og í
Keflavík og einnig fást þeir hjá KÁ
á Selfossi.
Ætlunin er að opna Chester
Fried Chicken í öllum verslunum
Nóatúns fyrir eða um áramótin
2001.
Að sögn Jóns Þorsteins Jónsson-
ar, markaðsstjóra hjá Nóatúni, hef-
ur salan það sem af er verið framar
björtustu vonum.
í Bandaríkjunum og Kanada era
yfir þrjú þúsund staðir sem selja
skyndibitana og eru þeir aðallega í
verslunarkeðjum, meðal annars í
verslununum Wall-Mart, Safeway,
Casa Ley og Food Lion og á bens-
ínstöðvum Chevron, Texaco og
Esso. A Spáni mun Esso, undir
merkinu Tiger Market, opna 50 út-
sölustaði á bensínstöðvum víðsveg-
ar um Spán og í Þýskalandi eru
þeir seldir í Wall Mart. í Englandi
hefur veitingahúsakeðjan Rainfor-
est einnig opnað Chester Fried-út-
sölustaði.
Á næstu 12 mánuðum verða yfir
60 staðir opnaðir í Skandinavíu.
Jón segir að Chester Fried
Chicken byggi á gömlum grunni en
vörumerkið er í eigu Giles Enter-
prises, sem var stofnað árið 1952
Nánari upplýsingar um Chester
Fried Chicken fást á netsíðu fyrir-
tækisins, www.chesterfried.com.