Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 42
42 LAUGAKDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Með augum
sérfræðinga
„Þetta varauðvitað byltingarkennd
hugmynd, að ætla skemmtanafólkinu
slíka markaðskegðun. En viti menn, að
fimmtán mánaða starfi loknu voru nið-
urstöður sérfræðinganna birtar. “
Eitt sinn þótti fólki
sjálfsagt að trúa
eigin augum. Ef það
sá atburði, eða
áreiðanlegir menn
sögðu af þeim fréttir, þá höfðu
þeir gerst í raun og sann. Þá var
lífíð einfaldara og enn óþekkt að
hægt væri að sérhæfa sig í hverju
handtaki.
Núna er öldin auðvitað önnur,
sérfræðingar á hverju strái og
varla að fólk geti skipt um ljósa-
peru heima hjá sér án þess að fá
diplóma upp á það fyrst. Sérhæf-
ingin leiðir auðvitað til þess að
margir veigra sér við einföldustu
verkum, af því að þeir hafa ekki
til þeirra lært. Það er hins vegar
verra þegar sérfræðingadýrkun
gengur svo út í öfgar að farið er
að ganga út
VIÐHORF
Eftir Hönnu
Katrínu
Friðriksson
frá því sem
vísu að fólk sé
ófært um að
draga álykt-
anir af því
sem fyrir augu ber.
Þeir sem stýra sérfræðinga-
þjóðfélögum reiða sig auðvitað á
kannanir sérfræðinga til að átta
sig á hvað er að gerast og hverjir
eru að gera hvað. í Banda-
ríkjunum sat hópur sérfræðinga
og rembdist eins og rjúpan við
staurinn í fimmtán mánuði við að
kanna afþreyingariðnaðinn þar í
landi, þ.e. þá sem framleiða kvik-
myndir, tónlist og tölvuleiki.
Astæða könnunarinnar var að af
einhverjum ástæðum hafði sá
grunur læðst að sérfræðingunum
að skemmtanafólkið markaðssetti
vöru sína hjá bömum og ungl-
ingum, jafnvel þótt kvikmyndim-
ar væra uppfullar af ofbeldi, text-
ar í tónlistinni væra álíka grófir
og hver tölvubardagamaðurinn á
fætur öðram væri klofinn í herðar
niður á skjánum.
Þetta var auðvitað byltingar-
kennd hugmynd, að ætla
skemmtanafólkinu slíka markað-
shegðun. En viti menn, að fimm-
tán mánaða starfi loknu vora nið-
urstöður sérfræðinganna birtar.
Og þær renndu stoðum undir
þessar ótrúlegu hugmyndir.
Skemmtanafólkið auglýsir til
dæmis ofbeldisfulla fram-
leiðsluvöra sína, sem er bönnuð
bömum innan 17 ára, í ungl-
ingatímaritum og í auglýsinga-
tímum sjónvarpsþátta sem vitað
er að unglingar horfa á. Af þeirri
„bönnuð innan 17-vöra“ sem sett
var á markaðinn frá 1995 til 1999,
höfðu um 80% kvikmyndanna og
70% tölvuleikjanna verið markað-
ssett meðal unglinga undir 17 ára.
Og í prafusýningum í Hollywood,
þar sem könnuð era viðbrögð
áhorfenda við nýjum kvikmynd-
um, sátu böm allt niður í 10 ára
hin keikustu og horfðu á myndir
sem síðar vora bannaðar innan
17, nema í fylgd með fullorðnum.
Sérfræðinganefndin leyfði sér því
að fullyrða að skemmtanafólkið
værivísvitandi að markaðssetja
vöra sína, sem bönnuð væri böm-
um, hjá bömum.
Hver hefði nú getað ímyndað
sér slíkt og þvílíkt? Það er eins
gott að hafa ósérhlífna sérfræð-
inga, sem era fúsir að leggja nótt
við dag í fimmtán mánuði til að
fletta ofan af óskundanum. Al-
menningur hafði ábyggilega enga
hugmynd um þessi ósköp. Hefur
kannski nokkur orðið var við að
unglingamir sæktu stíft á hryll-
ingsmyndir af ýmsum toga? Er
unglingastjömunum, sem leika í
þessum myndum, virkilega ekki
ætlað að höfða til roskinna áhorf-
enda? Era þess dæmi að því sé
komið inn í höfuðið á börnum á
þau verði að eignast tölvuleiki,
þar sem helsta keppikeflið er að
kála sem flestum? Nú gátu yfir-
völd prísað sig sæl að hafa sér-
fræðinga á sínum snæram, því
ekki gat almenningur áttað sig á
þessari skelfilegu þróun án fimm-
tán mánaða könnunar.
Og af því að könnun sérfræð-
inganna var unnin fyrir ráða-
menn, þá raku þessir sömu ráða-
menn upp til handa og fóta. Sumir
þeirra vilja taka fast á málum og
hefja aðgerðir með handafli, eða
hveiju því afli sem þeir hafa yfir
að ráða. Aðrir vilja eiga tví- eða
þríhliða viðræður við skemmtana-
fólkið. Ymiss konar samtök, sem
eiga að sjálfsögðu að láta í sér
heyra þegar svona niðurstöður
era birtar, létu auðvitað í sér
heyra. Allt var eins og átti að
vera.
Forsetaframbjóðandanum AI
Gore var nóg boðið. Hann til-
kynnti að skemmtanafólkið yrði
að gjöra svo vel að taka sig á inn-
an sex mánaða, annars myndi
hann skella á það lagasetningu.
Það er, ef hann verður þá kominn
í Hvíta húsið eftir sex mánuði. -
„Það er nógu erfitt að reyna að
ala upp börn í þessu þjóðfélagi án
þess að afþreyingariðnaðurinn
geri foreldram enn erfiðara fyr-
ir,“ sagði varaforsetinn, en hafði
ekki fleiri orð um málið þar sem
hann var að flýta sér á fjáröflun-
arsamkomu, þar sem skemmtana-
fólkið var við stjómvölinn. Reikn-
að var með að hann hefði um 640
milljónir íslenskra króna upp úr
því krafsinu.
Andstæðingur hans, George W.
Bush, var sammála því að
skemmtanafólkið þyrfti að taka
sig á, en taldi Gore hins vegar
eiga Óskarsverðlaunin skilið fyrir
heilaga vandlætingu sína.
Skemmtanafólkið tók auðvitað
þátt í farsanum. Samtök leik-
stjóra sögðu að herða þyrfti innra
eftirlit í kvikmyndaiðnaðinum.
Fólkið sem markaðssetti ofbeldið
hjá bömum og unglingum á sem
sagt að setja reglur um hvemig
ekki eigi að markaðssetja ofbeldi
hjá bömum og unglingum, þess-
um hópum sem halda uppi bíóun-
um. Einn leikstjórinn sagði að
könnun sérfræðinganna þýddi
alls ekki að núverandi kerfi við
kvikmyndaeftirlit væri úr sér
gengið, heldur væri hún kærkom-
ið tækifæri til viðræðna og kerfið
þyrfti að vera í sífelldri þróun. Sá
hafði greinilega lært að tala það
skrítna tungumál, pólitík.
Það undarlega er hins vegar, að
almenningur í Bandaríkjunum
lætur sér fátt um niðurstöður
sérfræðinganna finnast. Það
bendir líklega til þess að ekki
þurfti sérfræðinga til að draga
ályktun af því sem blasir við. Það
er enn óhætt að trúa eigin augum.
En kannski verður meira mark
tekið á vandlætingu sérfræðinga
en vandlætingu óbreyttra for-
eldra.
Sjúkraþjálfun
aldraðra
hrömunarbreytingar í
lungnavefnum koma
fram. Þetta veldur því
að úthald minnkar og
lungun þola verr álag.
Afkastageta hjarta- og
æðakerfis minnkar sem
hefur í för með sér
bjúgmyndun. Því er
hreyfing mjög mikil-
væg til að örva blóðrás-
ina.
Áhrifa gætir einnig á
meltingarveginn sem
rýmar, minni vöðva-
styrkur hægir á þar-
mahreyfingum og fæð-
an er því lengur að
meltast og færast niður
ALMENNINGUR
hefur komist að raun um
að heilbrigt lífemi og þ. á
m. hreyfing af ýmsu tagi
er nauðsynleg til að
halda heilsu og kröftum
sem lengst. Með aldrin-
um hægir á líkams-
starfsemi og almenn
fæmi einstaklingsins
minnkar og því er mikil-
vægt fyrir þá sem eldri
era að stunda reglu-
bunda líkamsþjálfun.
Hvemig getur sjúkra-
þjálfun dregið úr áhrif-
um líkamlegarar hröm-
unar? Hvað gerir
Inga Margrét
Róbertsdóttir
sjúkraþjálfari á öldrun-
arlækningadeild?
Líkamlegar breytingar
Með aldrinum eiga sér stað ýmsar
breytingar í stoðkerfi líkamans. Vöðv-
ar rýma þar sem vöðvafrumur rýma
og jafnvel hverfa. I stað þeirra sem
hverfa kemur trelja- og fituvefur. Með
aldrinum dregur eirrnig úr virkni svo-
kallaðra hvatbera svo orkunýtingin er
ekki sem skyldi. Úrkölkun beina er
mjög algeng og beinum hættir til að
brotna við minnsta álag. Úrkölkun er
talin vera fjóram sinnum algengari hjá
konum en karlmönnum og talið er að
30% kvenna yfir 65 ára aldri séu með
úrkölkun. Slitbreytingar verða í liða-
mótum og bijóskið á liðflötum beina
eyðist. Þetta veldur því að liðurinn
verður verr til þess fallinn að taka
þunga og mæta álagi því bijósk endur-
nýjast ekki. Bandvefíir, svo sem í lið-
böndum og sinum, missir teygjanleika
og mýkt. Minna beinmagn í líkaman-
um og minnkað vökvamagn í bijósk-
þófum hryggjar veldur því að fólk
lækkar með aldrinum.
í heila fækkar taugafrumum og
þyngd heilans minnkar. Þetta hefur
einkum áhrif á viðbragðsflýti, viðkom-
andi er lengur að bregðast við áreiti.
Ýmsar líffræðilegar breytingar verða
á skynfærum, þ.e. augum, eyrum,
lyktarlíffærum og bragðlaukum. Aug-
un missa aðlögunarhæfni sína og
heymardeyfð verður algeng. Lyktar-
skyn þverr og bragðlaukum fækkar,
en hvort tveggja veldur gjaman lyst-
arleysi.
Öndunarvöðvar slappast með aldr-
inum, bijóstkassinn verður stífari, og
meltingarveginn. Öldran hefur áhrif
á rúmmál þvagblöðrannar og því
finna aldraðir gjaman fyrir tíðum
þvaglátum og bráðri þvaglátaþörf
jafnt á degi sem nóttu. Við þjálfun
Heilsa
Hvernig getur sjúkra-
þjálfun dregið úr
áhrifum líkamlegrar
hrörnunar? spyr Inga
Margrét Rdbertsdóttir.
Hvað gerir sjúkra-
þjálfari á öldrunar-
lækningadeild?
aldraðra verður sjúkraþjálfari að
taka tillit til ofangreindra þátta.
Sjúkraþjálfun
Ljóst er að með aldrinum minnkar
mótstöðuafl líkamans gegn sjúkdóm-
um og að aldraðir era lengur að ná sér
en yngra fólk. Því verður að sýna þol-
inmæði og hafa góðan tíma til þjálfun-
ar og framfara. Hægt er að draga úr
áhrifum líkamlegrar hrömunar á
ýmsan hátt með sjúkraþjálfun. Taka
má dæmi um einstakling með slitgigt.
I slíkum sjúkdómi eyðist liðbrjóskið
og einkennin geta meðal annars verið
verkir, stirðleiki og rýmun vöðva.
Sjúkraþjálfari notar aðferðir
sjúkraþjálfunar til að draga úr ein-
kennum slitgigtar með því að nota æf-
ingar, nudd og ýmiss konar
rafmagnstæki sem meðal annars
draga úr verkjum og bæta blóðrás.
Æfingar styrkja vöðva og hægja á úr-
kölkun og vöðvarýmun. Því er æski-
legt að einstaklingurinn þjálfi sig
daglega á einn eða annan hátt, s.s.
hreyfi alla liði líkamans og gangi bæði
stiga og á jafnsléttu. Hjálpartæki
geta einnig komið að gagni. Þannig
getur stafur t.d. minnkað verki í
þungaberandi liðum og aukið jafn-
vægi í göngu.
Aldraðir koma inn á öldranarlækn-
ingadeildir ýmist af heimili sínu eða
sjúkrahúsi. Á öldranarlækningadeild
vinna ýmsir fagaðilar, s.s. félagsráð-
gjafar, hjúkrunarfræðingar, iðju-
þjálfar, læknar, sjúkraliðar og sjúkra-
þjálfarar saman að því að meta og
veita þjónustu eftir þörfum hvers ein-
staklings.
Sjúkraþjálfun er einn þáttur þeirr-
ar meðferðar sem veitt er á öldrunar-
lækningadeild. Við upphaf meðferðar
skoðar sjúkraþjálfarinn sjúklinginn
og ákveður síðan meðferð með tilliti
til ástands viðkomandi og sjúkdóma
hans. Meginmarkmið þjálfunarinnar
beinist í flestum tilvikum að því að
auka fæmi hins aldraða svo að honum
megi auðnast að takast á við daglegt
líf að nýju. Meðferð sjúkraþjálfarans
getur falist í fjölbreytilegri einstakl-
ingsmeðferð, hópæftngum, ráðgjöf og
vali á hjálpartækjum, fræðslu og
fleiru. Þegar líður að heimferð þarf
oft að fara í heimilisathugun, lagfæra
og útvega hjálpartæki svo að ein-
staklingurinn geti lifað sem sjálfstæð-
ustu lífi heima hjá sér.
Með hugtakinu ,dærni“ er m.a. átt
við getu fólks til að framkvæma at-
hafnir daglegs lífs, s.s. að standa upp,
setjast, klæðast, matast o.þ.h. For-
senda þessa er að hafa ákveðna
líkamlega og andlega getu. Veikindi,
sjúkdómar og slys hafa oft áhrif á
fæmi aldraðra og er þá markviss
sjúkraþjálfun áhrifavaldur þess hvort
einstaklingurinn geti dvalist á heimili
sínu eða þurfi að vistast á stofnun.
Hægt er að hjálpa einstaklingum með
skerta fæmi með þjálfun og útvegun
hjálpartækja. Það auðveldar þeim að
lifa daglegu lífi og léttir umönnun
þeirra. Algeng hjálpartæki era stafir,
göngugrindur, spelkur, handföng, sa-
lemisupphækkanir o.fl.
Það að halda heimili gefur lífinu
tilgang og viðheldur færninni. Reynt
er eftir fremsta megni að gera fólki
kleift að dvelja sem lengst á heimili
sínu, stundum með utanaðkomandi
aðstoð, s.s. heimilishjálp, heimahjúkr-
un og heimasjúkraþjálfiin.
Hötundur er sjúkraþjálfnri B.Sc.
ORÐATILTÆKIÐ,
„énginn veit hvað átt
hefur fyrr en misst hef-
ur,“ á svo sannarlega við
þegar einstaklingur
missir röddina. Það get-
ur komið lyrir hjá sjúkl-
ingum en jafnframt hjá
einstaklingum sem hafa
atvinnu af því að nota
röddina án þess að sjúk-
dómar eða slys séu or-
sökin. Sá hópur sem
þarf að treysta á röddina
í starfi fer stækkandi.
Sífellt fleiri atvinnu-
greinar bætast í þann
hóp sem telur söngvara,
leikara, kennara, presta,
stjómmálamenn, sölumenn og fleiri
sem hingað til hafa haft lifibrauð af
röddinni. I störfum er tengjast við-
skiptagreinum hefur aukist að stjóm-
endur, millistjómendur og verkefnis-
stjórar þurfi að kynna verkefni eða
selja hugmynd þar sem framsögn og
raddbeiting skiptir talsverðu máli.
Einstaklingur undir miklu álagi þarf
að geta treyst á að röddin sé í lagi og
að allir aðrir þættir er lúta að fram-
sögn og því að miðla 1 töluðu máli, skili
sér í trausti til við-
fangsefnisins og þess
er að málinu kemur. Æ
stærri hluti af starfi tal-
meinafræðinga, sem
hafa röddina sem
sérsvið, felst í því að
leiðbeina og fræða um
heilbrigði raddarinnar
og það hvemig forðast
skuli raddvandamál.
Miklar framfarir
hafa átt sér stað í með-
höndlun ýmissa radd-
vandamála sem era
vegna aðgerða, sjúk-
dóma eða slysa. Radd-
þjálfun getur hjálpað í
mörgum tilvikum en
talmeinafræðingurinn þarf jafnframt
að vinna í nánu samstarfi við sér-
fræðinga á sviði háls-, nef- og eyma-
lækninga auk annarra sérgreina, s.s.
taugasérfræðinga. I sumum tilvikum
þarf að reyna raddþjálfun fyrir eða
eftir aðgerð á raddböndum eða aðra
meðferð sem oft er ákveðin í sam-
vinnu þessara aðila.
Stærsti hópurinn sem leitar til okk-
ar er með hæsi vegna hnúta á radd-
böndum. Það er yfirleitt vegna of
Mál
Æ stærri hluti af starfí
talmemafræðinga felst í
því, segir Bryndís Guð-
mundsdóttir, að leið-
beina og fræða um heil-
brigði raddarinnar og
það hvernig forðast
skuli raddvandmál,
mikillar raddnotkunar og þarf sá hóp-
ur fræðslu um hvað megi betur fara í
raddbeitingu og raddnotkun. Hnútar
á raddböndum sem era fjarlægðir af
lækni koma gjaman aftur ef engu er
breytt í raddbeitingu. Nýleg rann-
sókn á raddvandamálum íslenskra
skólabarna sýndi langvarandi hæsi
hjá 3,17% drengja og 1,42% stúlkna á
aldrinum 6-12 ára. Þetta era oft
böm sem eru mikið í raddfrekum
tómstundum, s.s. íþróttum. Þá hefur
stór hluti þessara bama verið með
tíðar öndunarfærasýkingar eða
asthma með tilheyrandi ertingu í
slímhúð í hálsinum. Hætta er á að
langvarandi hæsi fylgi þessum böm-
um fram á fullorðinsár og hafi jafnvel
áhrif á starfsval þeirra í framtíðinni.
Höfundur er talmeinofræðingur hji
Tnlþjálfun Reykjavíkur.
Geturðu treyst
á röddina?
Bryndís
Guðmundsdóttir