Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 55
MINNINGAR
JOHANNES
PÉTURSSON
+ Jóhannes Péturs-
son fæddist í
Skjaldar-Bjarnarvík
á Ströndum 3. ágúst
1922. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Eir 5. september síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Graf-
arvogskirkju 14.
september.
Einhverja nóttina koma
skógarþrestimir
að tína reyniber af trjánum
áður en þeir leggja í langferðina yfir hafið,
en það eru ekki þeir sem koma með haustið
það gera lítil börn með skólatöskur.
(Vilborg Dagbjartsd.)
Eins og fram kemur í ljóðinu eiga
sér stað ákveðin tímamót er hausta
tekur. Farfuglarnir hverfa á braut,
gróðurinn leggst í dvala og nóttin
verður lengri, dekkri og kaldari.
Hvert fljúga fuglarnir? Af hverju
hverfa litrík blómin? Hvers vegna
verður myrkrið birtunni yfirsterk-
ara?
Þegar sumri hallar skiptir náttúr-
an um búning. Græni litur laufanna
fölnar, gulir og rauðir tónar glæða
tilveruna lífi og söngur farfuglanna
verður blandinn gleði og tilhlökkun
þegar þeir flögra af trjánum með lít-
ið rautt reyniber í gogginum. A
sama tíma eiga sér stað þáttaskil í
lífi margra Þeir finna fyril•
lífsmunstrinu breytast og búa sig
undir veturinn.
Svöl sumargolan breytist smám
saman í næðandi blást-
ur. Tærir regndrop-
amir verða að hvítum
flyksum sem falla þar
sem Vetur konungur
hefur valið þeim stað.
Að lokum klæða trén
sig úr sumarskrúðan-
um og leggjast undir
hvítan feld vetrarins.
Þegar slæða fellur á
sólina er eins og geisl-
ar hennar nái ekki að
teygja sig inn í brjóst
okkar allra. Birtan
dvínar og kvíði og leiði
eiga auðveldara með að skjóta rót-
um í huga okkar. Nokkrir útvaldir
yfirgefa þennan heim sem okkur er
ætlað að lifa í og þroskast. Sumir
hverfa snögglega á braut og án
skýringa. Aðrir hafa átt hér langa
og viðburðaríka dvöl og kveðja þeg-
ar sumar lífs þeirra er á enda.
Sorgin er ávallt erfið og fæstir
komast yfir hana en okkur lærist að
lifa með henni og verður ljóst að
betri tímar eru fram undan. Vetur-
inn er myrkur og líður seint en í
amstri hversdagslífsins rofar fljótt
til á ný. Grá skýin víkja fyrir heið-
skírum himni, sólin brýst fram, hlý
og umlykjandi, og hefur týnt föl-
grárri slæðunni. Snjórinn bráðnar
og úthvíldur gróðurinn teygir anga
sína í átt að gula hnettinum. Með
rísandi sól vex ný von innra með
okkur. Ilmur vorsins vekur þrá, eflir
vilja og veitir okkur gleði. Fugla-
söngurinn heyrist að nýju og í kór-
inn bætast ungar óþjálfaðar raddir
sem rétt hafa brotist út úr dimm-
unni.
Haustið er erfiður tími sem vekur
okkur til umhugsunar um okkar eig-
ið líf. Það er eins og miðkafli í eilífri
hringrás lífsins sem gerir okkur
kleift að ígrunda fortíðina og líta
björtum aúgum til framtíðarinnar.
Ef við reynum ekki sorgina og erfið-
leikana er ómögulegt að leita ham-
ingjunnar og njóta hennar.
Með þessum orðum vil ég minnast
afa míns sem lést 5. september síð-
astliðinn. Mér þótti afar vænt um
hann og leit upp til hans. Því miður
fékk ég ekki sopið úr viskubrunni
hans síðustu árin en þess í stað gat
ég endurgoldið þá umhyggju og ást
sem hann sýndi mér þegar ég var
barn. Ljós réttlátra logar skært, en
á lampa ódauðlegra slokknar.
Afi minn, nú ert þú floginn með
fuglunum á slóðir frelsis og friðar.
Ég sakna þín.
Anna Björnsdóttir.
Formáli minningargreina
ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um
hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn,
um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks •
hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum
sjálfum.
STEFANIA
SIGURVEIG
SIGURÐARDÓTTIR
+ Stefanía Sigur-
veig Sigurðar-
dóttir fæddist á Ak-
ureyri 8. ágúst 1933.
Hún lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 1. sept-
ember síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Grensás-
kirkju 8. september.
Nú er hún Didda
okkar farin og þá fer
svo að minningamar
leita á þá sem eftir eru.
Við ólumst allar upp austur á Vopna-
firði og þekktumst þar en fluttum
síðar til Reykjavíkur. Þar stofnuðum
við saumaklúbb sem Didda gekk til
liðs við þegar hún flutti suður fyrir
nokkrum árum. Þetta var alltaf glað-
vær hópur og ekki minnkaði fjörið
þegar hún bættist við. Við munum
sakna þess að sjá hana ekki framar
taka bakföll og springa af hlátri, og
hláturinn hennar Diddu smitaði svo
sannarlega út frá sér. Hún var einn
af þessum sólargeislum sem bæta
allt og alla í kringum sig og alltaf leið
manni vel aftir að hafa hitt hana.
Þessi saumaklúbbur er með ein-
dæmum matglaður og því hljóp
heldur betur á snærið hjá okkur
Fréttir á Netinu
þegar Didda bættist í
hópinn með allan sinn
myndarskap. Hjá
henni var sauma-
klúbbnum alltaf haldin
matarveisla. Margir
réttir og allir góðir. Já,
það var gaman að
borða hjá Diddu en
best var samt að finna
hlýjuna og gleðina sem
alltaf fylgdi henni og'
notalegt að sjá hvað
Guðmundur tók þátt í
þessu með henni af
mikilli ánægju.
Kannski ekki frítt við
að smá öfundar gætti hjá okkur hin-
um að sjá hvað hann var dæmalaust
lipur í uppvaskinu.
Við kveðjum Diddu okkar með
kærri þökk, heimurinn er fátækari
án hennar.
Við vottum Guðmundi, Sigga og
öðrum aðstandendum okkar dýpstu
samúð.
Vina, ég kveð þig klökk,
kveðjamínfullafþökk.
Þú gengin ert Guðs á veg
gekkst hann þinn ævistíg.
(Ásta.)
Bergþóra, Asta,
Arnbjörg, Laufey,
Sigríður og Margrét.
vDmbl.is
AUGLYSINGA
ATVIIMIMU-
AUGLÝSINGAR
J
Deildarstjórastaða
/Staða deildarstjóra í Leikskólanum Kvarnarborg við Árkvörn er laus til
| umsóknar. Einnig vantar til starfa leikskólakennara og starfsmenn með
j aðra menntun og/eða reynslu.
Kvarnarborg er þriggja deilda leikskóli þar sem dvelja 62 börn samtímis.
- Upplýsingar veitir Sigrún Baldursdóttir, LeikskóLastjóri í síma 567 3199.
Umsóknareyðublöð má nálgast á ofangreindum
ieikskóla, á skrífstofu Leikskóia Reykjavíkur,
og á vefsvæði, www.leikskolar.is.
JHe
Leikskólar
Reykjavíkur
Skapandi starf með
börnunum í Jörfa
i Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar i leikskólanum Jörfa:
tvær stöður leikskólakennara
staða leikskólasérkennara
1 Jörfi er við Hæðargarð 27A. í leikskólanum er aðaláhersla lögð á að efla
tjáningu barna. Vinna með hana skiptistí sex svið: tilfinningatjáningu,
tónsköpun, leikræna tjáningu, myndsköpun, hreyfingu og málrækt.
a Umsóknum skat skitað til leikskólastjóra Jörfa, Ástu Júlíu Hreinsdóttur,
sem einnig veitir allar nánari upptýsingar í síma 553 0347.
Umsðknareyðublöð má nálgast á ofangreindum
leikskóla, á skrifstofu Leikskóla Reykjavikur
og á vefsvæði, www.leikskolar.is.
-aip
JfLei
Leikskólar
Reykjavíkur
ÍHorþunblabib
Blaðbera
vantar
á Huldubraut og Marbakka-
braut í Kópavogi,
á Básbryggju í Reykjavík.
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvasðinu
FUIMOIFt/ MANNFAGNAÐUR
Hollvinafélag
lagadeildar Háskóla íslands
Aðalfundarboð
Reykjavík, 23. september 2000
Aðalfundur Hollvinafélags lagadeildar Háskóla
íslands verður haldinn fimmtudaginn 28. sept-
ember næstkomandi í stofu L-102 í Lögbergi
og hefst kl. 17:15.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Að loknum aðalfundi mun dr. Ármann Snævarr,
prófessor, spjalla um hollvinafélög almennt,
gildi þeirra og hlutverk og dr. Páll Sigurðsson,
prófessor, forseti lagadeildar, flytja ávarp.
Félagar í Hollvinafélagi lagadeildar eru hvattir
til að mæta á fundinn sem er opinn öllum
velunnurum deildarinar.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundurinn verður haldinn þriðjudaginn
26. september kl. 18.00.
íþróttafélag Revkiavíkur.