Morgunblaðið - 23.09.2000, Page 64
(34 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
IDAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skraddarinn
opnar
verslun við
Laugaveginn
VERSLUNIN Skraddarinn Be-
spoke hefur opnað verslun að
Laugavegi 85. Verslunin selur
kvenfatnað og er opin virka daga
frá kl. 11-18 og á laugardögum kl.
10-14. Eigendur verslunarinnar eru
Anna Rut Steinsson og Helga Sól-
rún Sigurbjörnsddttir.
Ijósmynd/Friðrik Öm
Vetrarstarf
KFUM
o g KFUK
að hefjast
VETRARSTARFI KFUM og
KFUK verður formlega ýtt úr vör á
morgun, sunnudag, kl.
17 í húsi félaganna, Holtavegi 28.
Þá verður samkoma helguð bama-
og æskulýðsstarfi félaganna. KFUM
og KFUK hafa rekið barna- og ungl-
ingastarf í meira en 100 ár. Sumar-
-1 búðastarfið í Vatnaskógi, Vindáshlíð,
Ölveri Kaldárseli og Hólavatni er
löngu orðið þekkt og á undanförnum
árum hafa um 7.000 böm tekið þátt í
starfi félaganna með einhverjum
hætti á hverju starfsári.
A komandi vetri munu félögin
reka starf fyrir böm og unglinga á
aldrinum 9-16 ára á 10 stöðum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu auk fimm
staða úti á landi.
Hægt er að fá nánari upplýsingar
um það á skrifstofu félaganna á
heimasíðunni www.kfum.is.
’ A samkomunni á morgun mun for-
maður KFUK í Reykjavík, Þórdís
Ágústsdóttir, flytja ávarp. Ástríður
Jónsdóttir segir frá starfi á meðal
eldri stúlkna í KFUK í Grafarvogi og
Tómas Ingi Torfason kynnir starf
æskulýðsnefndar KFUM og KFUK
í Reykjavík. Ræðumaður verður
Helgi Gíslason, æskulýðsfulltrúi
KFUMogKFUK.
Á eftir samkomunni verður boðið
upp á léttan kvöldverð á vægu verði.
Göngudagur
FÍ og SPRON
SUNNUDAGINN 24. september er
ý sérstakur göngudagur á vegum
Ferðafélags íslands og SPRON.
Boðið verður til tveggja mismunandi
gönguferða.
Ki. 10.30 á sunnudagsmorgun
verður farið i göngu frá Bláfjöllum í
Heiðmörk. Gengið er frá skíðasvæð-
inu í Bláfjöllum og er gönguleiðin
áætluð 10-12 km, undan fæti að
mestu leyti og er reiknað með að hún
taki 3,6-4 kist.
Seinni ferðin hefst kl. 13 og þá
liggur leiðin um göngustíga í Heið-
mörk sem nú skartar sínum fögru
haustlitum. Báðir hópamir hittast
svo í göngulok og þiggja hressingu.
Brottför í báðar ferðir er frá BSÍ og
Mörkinni 6. Þátttökugjald er ekkert.
r Um helgina er haustlita- og grill-
ferð í Þórsmörk og um næstu helgi,
29. sept., er önnur haustferð í Þórs-
mörk í samstarfi við Landgræðslu
ríkisins og Skógrækt ríkisins. Þar
verður að vanda mikið um að vera en
þessar ferðir hafa átt miklum vin-
sældum að fagna undanfarin ár, seg-
ir í fréttatilkynningu.
„Varðsveitin“
í bíósal MÍR
„VARÐSVEITIN" (Karaúl) nefnist
rússnesk kvikmynd frá 1990, sem
sýnd verður í bíósal MIR, Vatnsstíg
10, nk. sunnudag, 24. sept., kl. 15.
Leikstjóri myndarinnar er Alexander
Rogozhin. Sagt er að kveikjan að efni
þessarar kvikmyndar hafi verið raun-
verulegir atburðir, sem áttu sér stað í
sovéska hemum á níunda áratugnum,
þegar óbreyttur liðsmaður í gæslu-
sveit á vegum fangelsismálastofnunar
Sovétríkjanna skaut nokkra félaga
sína til bana en þeir höfðu lagt hann í
einelti, auðmýkt með ýmsu móti og
kúgað og beitt ofbeldi.
I kvikmyndinni, sem gerist að
mestu í sérútbúnu fangelsi, er aðal-
persónan nýliðinn Andrei Iversen,
ungur maður og mjög vandur að virð-
ingu sinni. Hann þolir ekki að einn fé-
laganna eða fleiii saman auðmýki
annan eða aðra og lítillækki, og hann
hefur megna andstyggð á ofbeldi
eldri hermanna gagnvart nýliðum, en
slíkt hefur lengi viðgengist í hemum
og verið látið átölulaust af yfirmönn-
um með vísan til svokallaðra „stjóm-
skipunar utan reglna", segir í frétta-
tilkynningu.
Enskur texti er með myndinni. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Segja fanga-
verði ekki hafa
stundað njósnir
ARI Björn Thorarensen hefur, fyr-
ir hönd Fangavarðafélags íslands,
sent Morgunblaðinu eftirfarandi
athugasemd til birtingar:
,Að undanfömu hefur verið ráð-
ist harkalega að fangavörðum við
Fangelsið að Litla-Hrauni af fáum
íbúum á Eyrarbakka. Að okkar
mati hafa einstaka fjölmiðlar velt
sér óeðlilega upp úr málinu og ekki
leitað fanga í fréttaöflun sinni sem
skyldi.
Það að bera það upp á heila stétt
manna að þeir stundi persónu-
njósnir um íbúa á Eyrarbakka er
mjög alvarlegt og alrangt. Fanga-
verðir hafa ekki notað eftirlits-
myndavélar til að njósna um fólk
heldur einungis til eftirlits við
fangelsið.
Eyrbekkingar hafa lifað í sátt
við Fangelsið að Litla-Hrauni síð-
an 1929 og verður það vonandi um
ókomna framtíð.
í framtíðinni vonast Fanga-
varðafélag íslands til að leitað
verði eftir áliti hjá félaginu þegar
umræða um stéttina fer fram og að
okkur gefist kostur á að koma okk-
ar áliti á framfæri og fá að verja
okkar félagsmenn þegar ósannindi
og rógur kemst á kreik.“
Kuldaúlpurnar
eru komnar
Verð frá kr. 7.900
Nýbýlavegi 12,
Kóp., sími 554 4433.
VELVAKAJYDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hrein snilld
EG var svo lánsamur að
fara á tónleika með Herði
Torfasyni í íslensku óper-
unni síðastliðið fóstudags-
kvöld og vil lýsa yfir
ánægju minni með frammi-
stöðu hans. Hörður brást
ekki aðdáendum sínum og
voru tónleikarnir hrein
snilld. Hörður er listamað-
ur fram í fingurgóma, frá-
bær leikari og lagasmiður
og hefur notalega nærveru.
Hann söng og lék hvert lag-
ið af mikilli innlifun og
stemmningin var einstök
þegar gömlu lögin hans óm-
uðu um salinn. Hörður
heldur aðra tónleika í Óper-
unni næstkomandi föstu-
dagskvöld og ég hvet listun-
nendur til að láta þann
viðburð ekki fram hjá sér
fara. Af gefnu tilefni er rétt
að koma því á framfæri að
mér finnst móðgun við al-
menning að um frjálst
sætaval sé að ræða á listvið-
burði og get ekki séð hvað
stendur í vegi fyrir því að
miðarnir séu númeraðir.
Mikill troðningur og langar
biðraðir myndast þegar
fólki er egnt í kapphlaup
um bestu sætin en slflct ætti
að vera liðin tíð. En ég end-
urtek að tónleikamir voru
snilld.
Þ.Þ.
Fleirtala/eintala
ÞAÐ er skrýtið að sjá á
prenti orðið örorkumöt í
fleirtölu í staðinn fyrir ör-
orkumat í eintölu. Þetta á
einnig við um mörg önnur
orð. Mér skilst að þetta sé
rétt íslenska en það er
hræðilegt að sjá þessu
skellt framan í mann, feit-
letruðu, á síðum dagblað-
anna. Mér finnst að það
ætti að forða útlendingum
frá því að læra íslensku af
fyrirsögnum á síðum dag-
blaðanna.
251031-3129
Hugmyndakerfl
framtíðarinnar
PÉTUR hafði samband við
Velvakanda og langaði að
koma eftirfarandi á fram-
færi eftir að hann heyrði er-
indi eftir Ama Bergmann í
útvarpinu fyrir stuttu um
Sovétríkin. Munurinn á
stefnunum, sem berjast um
yftrráð í heiminum, gerir
hugmyndakerfi framtíðar-
innar að knýjandi spum-
ingu því kommúnistinn seg-
ir: Allt þitt er mitt,
kapítalistinn segir: Ailt mitt
er mitt og kristindómurinn
segir: Allt mitt er þitt.
Bifreiðaútsölur
SIGURÐUR hafði sam-
band við Velvakanda og
vildi vara fólk við bifreiða-
útsölum, sérstaklega efna-
minna fólk. Það þarf að at-
huga upphaflega verðið á
bílunum og bera það saman
við útsöluverðið. Árgerð
1999 er jafnvel dýrari en
staðgreiðsluverð á árgerð
2000. Einnig vill hann
minna á afföllin á bílum. Af-
föllin á bílum er 1% á mán-
uði, því ætti tveggja ára bíll
að lækka um 24%. Skrán-
ingardagur bílsins skiptir
líka máli. Þá hefst notkun
bílsins og affoll miðast við
þann dag, 1%. Annað í
þessu máli em bílaleigubíl-
arnir sem era í endursölu.
Það er oft ekki látið vita að
þeir séu bílaleigubílar en
það er mikið atriði að fólk
viti hvað það er að fá í hend-
umar.
Karlmanns-
eða kvenmannsnafn?
NAFNIÐ Kristel var kven-
mannsnafn fyrir norðan hér
áður fyrr en nú era aUa
vega tveir Islendingar, karl
og kona, sem bera þetta
nafn. Annars vegar er það
Kristel Dögg og hins vegar
Kristel Blær. Mig langar
því að vita, hvort er þetta
karlmanns- eða kven-
mannsnafn?
Emelía.
Athugasemd
MIG langar að gera at-
hugasemd við nafnið
Þrastalundur sem birtist í
Velvakanda fyrir stuttu.
Þar var Þrastalundur skrif-
að Þrastarlundur. Það vHl
oft brenna við að bætt sé
inn í orð aukastöfum. Þetta
þarf að passa mjög vel.
Pétur Pétursson.
K.N. krafínn
um trú sína
EITT sinn var trúboði
nokkur íslenskur á ferð á
Mountain og segir sagan,
að það hafi verið Jakob
mormónapostuli er svo var
nefndur. Kom hann á
bæinn þar sem K.N. var
vinnumaður og var vísað til
hans út í fjós en hann var þá
einmitt að moka flórinn.
Flutti trúboðinn honum
boðskap sinn af mikilli and-
agiften K.N. hélt þegjandi
áfram mokstrinum. Loks
krafðist trúboðinn þess, að
K.N. gerði honum grein
fyrir trú sinni fyrst hann
daufheyrðist þannig við
kenningu hans. Mælti K.N.
þá fram vísu þessa af mikilli
alvöra: Kýrrassa tók ég
trú/ traust hefir reynst
mér sú/1 flórnum því fæ ég
að standa/ fyrir náð heilags
anda. Annað „vísuorðið" er
einnig þannig í sumum upp-
skriftum: „Trú þeirri held
ég nú.“ og til munu vera
fleiri útgáfur af því. Einnig
mun það rétt til getið hjá
dr. Sigurði Nordal, að K.N.
hafi haft í huga nafn á bækl-
ingi einum sem út kom á
Akureyri 1859 og hét „Leið-
arvísir til að þekkja ein-
kenni á mjólkurkúm", en
gekk í daglegu taU undir
nafninu „Kýrrassabókirí*
vegna myndanna sem í hon-
um vora.
S.I.
SKÁK
Umsjón Helgi \ss
Grétarssun
FIDE hélt ekki eingöngu heimsbikar-
mót fyrir karlpeninginn því einnig
fengu sterkustu konur heims að
spreyta sig í þessari nýju og spennandi
keppni. Staðan kom upp í einvígi
sænsku skákdrottningarinnar Piu
Cramling (2.484), hvítt, og kínversku
stúlkunnar Xu Yuhua (2.505) en hún
vann mótið. 23...Hxd4! 24.Hxf2 24.
Dxd4 tapar einnig manni eftir
24...Dxc2+ 25. Kal Bxdl. 24...Hxd3
25.Hxd3 Rxf2 26.Hxd5 g6 27.Hd2 Rh3
28.Be4 Hc7 29.b3 Kf8 30.Kb2 Ke7
31.a4 b6 32.Ba8 Bf5 33.Bf3 h5 34.Bd5
Hd7 35.Kc3 g5 og hvítur gafst upp
saddur h'fdaga.
Taflfélagið Hellir heldur eitt af sín-
um vinsælu atkvöldum mánudaginn
25. september og hefst mótið kl. 20:00 í
HellisheimiHnu, Þönglabakka 1. Allir
velkomnir.
Svartur á leik.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJA var ungum kennt að
ekki væri hægt að kaupa ham-
ingjuna fýrir peninga. „Peningar
skipta ekki öllu máli í lífinu...“ var
jafnan viðkvæðið, en að fenginni
reynslu vill Víkverji bæta við:
„...nema þegar mann vantar þá!“
Víkveiji þekkir nefnilega til heimila
sem hafa flosnað upp vegna fjár-
hagserfiðleika og hann þekkir pers-
ónulega fólk, sem býr við sára fá-
tækt og á vart ofan í sig eða á. Þetta
fólk á stundum erfitt með að brosa,
enda gefast fá tilefni til þess í öllu
baslinu. Þessar bláköldu staðreynd-
ir blasa víða við þrátt fýrir allt tal
um góðæri í landinu.
Hin gömlu sannindi um að pen-
ingar og hamingja fari ekki alltaf
saman geta þó vel átt við í mörgum
tilfellum. í ágætri Rabb-grein Ey-
steins Bjömssonar í Lesbók Morg-
unblaðsins síðastliðinn laugardag,
undir yfirskriftinni „Um peninga“,
er fjallað um þessi mál og tekur
Víkveiji heilshugar undir þau við-
horf sem þar koma fram. Greinin
hefst á tilvitnun í indíánahöfðingj-
ann Stóra-Björn: „Þá fyrst þegar
síðasta tréð hefur verið fellt og síð-
asti fiskurinn veiddur mun hvíti
maðurinn geta skilið að það er ekki
hægt að éta peningaseðla.“
I Lesbókarrabbinu segir höfund-
ur ennfremur meðal annars: „Nei,
mannskepnan er aldrei til friðs og
fólk er ekki fyrr komið með fullar
hendur fjár en það veit ekki sitt
rjúkandi ráð. Margir ruglast í rím-
inu við það að geta allt í einu fengið
svo margar óskir sínar uppfylltar.
Stærri og faUegri hús, fleiri og betri
bíla. Skarpgreindir hafa að vísu vak-
ið athygli á því að ekki er hægt að
sitja í nema einum stól í einu, sofa í
nema einu rúmi og aka nema einum
bíl í senn...“
Þetta er auðvitað laukrétt, en
menn verða þá að hafa aura til að
kaupa sér einn stól, eitt rúm og einn
bfl. Það er vaxandi misrétti og mis-
skipting auðsins sem rennur Vík-
verja til rifja.
XXX
SJÁLFSAGT eru ýmsar ólíkar
ástæður fyrir því að sumt fólk
býr við bág kjör í þessu landi all-
snægtanna. Víkveiji hjó til dæmis
eftir orðum Ólafs Ólafssonar, fyrr-
verandi landlæknis, í grein í Morg-
unblaðinu nú í vikunni þar sem höf-
undur fjallar um kjör eftirlaunafólks
í landinu þar sem segir meðal ann-
ars: „Full ástæða væri að nefna
fleiri þætti er hafa veruleg áhrif á
lífskjör og jafnvel frumþarfir fólks
svo sem hæsta verð á matvörum,
lyfjum, bifreiðatryggingum, bifreið-
um og bensíni á Islandi. Miklar
hækkanir hafa valdið búsifjum, sér-
staklega meðal láglaunafólks þar á
meðal margra eldri borgara og ör-
yrkja, og skerða viðnámsþrótt og
lífsgleðina. Tími er kominn til að
þessir hópar sameinist til baráttu
gegn frekari skerðingu lífslqara og
hefji aðgerðir gegn augljósu sam-
ráði stærstu fyrirtækja um verð-
lagningu á vörum og þjónustu..."
Þótt full ástæða sé til að taka
undir orð fyrrverandi landlæknis
um að tímabært sé að láglaunahóp-
ar sameinist gegn frekari skerðingu
lífskjara efast Víkverji um að sá
dagur renni upp að slík draumsýn
verði að veruleika í nánustu framtíð.
íslenskir neytendur, jafnt láglauna-
hópar sem aðrir, virðast ótrúlega
sljóir og værukærir í verðlagsmál-
um og er skemmst að minnast þess
viðhorfs framkvæmdastjóra sam-
taka vörubifreiðastjóra á íslandi að
þýðingarlaust sé að boða til mót-
mælaaðgerða hér á landi vegna
eldsneytisverðs, á svipaðan hátt og
bflstjórar í Evrópu gerðu nýverið,
enda skorti samstöðu og hefðina
fyrir slíku á Islandi.
Víkverji hefur stundum velt því
fyrir sér hvort þessi djúpa virðing
Islendinga fyrir tilskipunum „að of-
an“ og sú tilhneiging að beygja sig
endalaust í duftið og kyssa vöndinn
séu leifar af aldalöngum yfirgangi
danskra einokunarkaupmanna. Að
þrælsóttinn sé gróinn fastur í þjóð-
arsálina og orðinn að sérstöku geni,
sem færist sjálfkrafa á milli kyn-
slóða? Það væri ef til vill verðugt
viðfangsefni fyrir íslenska erfða-
greiningu að finna „þrælsóttagenið“
í íslendingum og reyna að stökk-
breyta því svo að afkomendur okkar
þurfi ekki um alla framtíð að búa við
þennan sérkennilega undirlægju-
hátt sem virðist okkur í blóð borinn.