Morgunblaðið - 23.09.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000 65
ÍDAG
BRIDS
I nisjoii (iuðmnndur
Páll Arnarson
ÍSLAND vann Suður-Afr-
íku 21-9 í sjöttu umferð
riðlakeppninnar á ÓL.
Suður-Afríka vai- í hópi
þeirra þjóða sem fyrirfram
var búist við að myndu
taka þátt í baráttunni um
sæti í 16 liða úrslitum og
því var mikilvægt að vinna
góðan sigur á þessari
sterku bridsþjóð. Craig
Gower og Henry Mansell
eru þekktustu spilarar
Suður-Afríkumanna og
þeir mættu Þresti Ingi-
marssyni og Magnúsi
Magnússyni í opna saln-
um. Lánið var með þeim
Mansell og Gower í þessu
spili:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
A 108642
»5
♦ K8
* D9762
Vestur Austur
♦ ÁG9 * KD53
v 863 v Á72
♦ ÁG6 ♦ 753
* K1086 * G43
Suður
A 7
v KDG1094
♦ D10942
*Á
Vestur Norður Austur Suður
Magnús Mansell Þröstur Gower
- Pass Pass lhjarta
Dobl 1 spaði Pass 2tíglar
Pass 2björtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Mansell leið ekki vel
þegar Gower stökk í fjögur
hjörtu, enda vafalaust í
fyrsta skipti sem hann hef-
ur „preferað" yfir í einspil
og verið hækkaður í geim.
En enginn doblaði. Magn-
ús kom út með lauf og
Gower spilaði strax tígli að
K8 í borði og lét áttuna
þegar Magnús.fylgdi með
smáspili. Hún hélt og nú
var einfalt að reka út rauðu
ásana og leggja upp. Tíu
slagir og 620.
„Ótrúlegt," sagði Magn-
ús að leik loknum, „að
komast í þetta geim eftir
þessar sagnir og hitta svo í
tígulinn líka. Við töpum á
þessu spili.“
Nei; Magnús var ekld
sannspár í þeim efnum. Á
hinu borðinu voru Sverrir
Armannsson og Aðalsteinn
Jörgensen í miklu stuði og
Aðalsteinn opnaði einfald-
lega á fjórum hjörtum á
suðurspilin. Enginn hafði
neitt við það að athuga og
eftir lauf út spilaði Aðal-
steinn líka tígli á áttuna.
„Gott hjá þér að hitta á
tígulinn," sögðum við fé-
lagarnir þakklátir í upp-
gjörinu.
„Hitta?“ Aðalsteinn var
undrandi: „Er þetta ekki
þvinguð íferð?“
Auðvitað, þegar betur er
að gáð, því ef tígli er spilað
á kóng og austur drepur
með ás vantar innkomu til
að svína fyrir tígulgosann í
austur. Svo báðir sagnhaf-
ar kunnu sitt fag.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæii,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Arnað heilla
70
ÁRA afmæli. Á
morgun, 24. septem-
ber, verður sjötugur Olafur
Þórðarson, Lerkigrund 6,
Akranesi. Hann og eigin-
kona hans, Valgerður Jó-
hannsdóttir, munu taka á
móti gestum á afmælisdag-
inn í Frímúrai-ahúsinu Still-
holti 4, klukkan 16-19.
Ljósmynd: Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júlí sl. í Fríkirkj-
unni í Reykjavík af sr. Þór
Haukssyni Kristín Guð-
mundsdóttir og Hjalti Þór
Hannesson.
Hlutavelta
Þessir duglegu drengir
héldu tombólu og söfnuðu
920 kr. til styrktar Rauða
krossi Islands. Þeir heita
Hrafnkell ívarsson og
Valgarður ívarsson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þessar duglegu stúlkur
héldu tombólu og söfnuðu
804 kr. til styrktar Rauða
krossi fslands. Þær heita
Katrín M. Ammendrup og
Sara Rós Jakobsdóttir.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 5.967 kr.
til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Birgitta Gunn-
arsdóttir og Thelma Rut Elíasdóttir.
UOÐABROT
LEIÐSLA
Og andinn mig hreif upp á háfjallalind,
og ég horfði sem öm yfir fold,
og mín sál var lík ístærri svalandi lind,
og ég sá ekki duft eða mold.
Mér þótti sem hefði ég gengið upp gil
fullt með grjótflug og hræfuglaljóð,
fullt með þokur og töfrandi tröllheimaspil,
unz á tindinum hæsta ég stóð.
Mér þótti sem hefði ég þolað allt stríð,
allt, sem þola má skjálfandi reyr,
og mér fannst sem ég þekkti’ ekki háska né hríð
og að hjarta mitt bifðist ei meir.
Ég andaði himinsins helgasta blæ,
og minn hugur svalg voðalegt þor,
og öll hjarta míns dulin og deyjandi fræ
urðu dýrðleg sem Ijómandi vor.
En mín sál var þó kyrr, því að kraftanna flug
eins og kyrrasta jafnvægi stóð,
og mér söng einhver fylling í svellandi hug
eins og samhljóða gullhörpuljóð.
Eins og heilög guðs ritning lá hauður og sær,
allt var himnesku gullletri skráð,
meðan dagstjarnan kvaddi svo dásemdarskær
eins og deyjandi guðs sonar náð.
Matthías Jochumsson.
STJÖRMUSPA
eftir Frances Drake
VOG
Aímælisbarn dagsins:
Þú ert snöggur að leggja
hlutina niðurfyrir þér og út-
sjónarsemin sér til þess að
hlutimir komist í fram-
kvæmd á hagstæðasta hátt.
Hrútur
(21. mars -19. apríl) ^
Nú er hentugur tími til þess
að sækja það sem þig hefur
lengi langað til að eignast.
Gættu þess bara að ganga
ekki á annarra rétt í leiðinni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að sýna svolítið meiri
sveigjanleika sérstaklega í
garð samstarfsmanna þinna
sem þegar allt kemur til alls
eru að keppa að sama marki
ogþú.____________________
Tvíburar t ^
(21.maí-20.júní) Aa
Það er ekkert sem mælir á
móti þvi að þú berir mál þín
undir aðra en gættu þess
bara að viðkomandi hafi hags-
muni þína eina að leiðarljósi.
Krobbi
(21. júnf-22. júlí)
Fjármálin og fjölskyldumálin
eru efst á blaði nú sem endra-
nær. Þitt er að finna tíma til
að sinna hvorutveggju þannig
að hlutirnir gangi sem eðli-
legast fyrir sig.
Ljón
(23.júlí-22. ágúst) M
Reyndu að gera þér grein fyr-
ir þeim áhrifum sem þú hefur
á aðra bæði í ræðu og riti því
það hjálpar þér til þess að
koma málstað þínum á fram-
færi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) <C$L
Þú þarft að finna þér tíma
fyrir sjálfan þig því allt það
áreiti sem þú verður nú fyrir
er of mikið þegar til lengdar
lætur.
VoE 'TkVX
(23. sept. - 22. okt.)
Allt sem þú gerir hefur áhrif á
umhverfi þitt og því berð þú
mikla ábyrgð gagnvart öðru
fólki. Sýndu því tillitssemi og
umburðarlyndi.
Sporðdreki
(23. okt. -21. nóv.)
Það er gott að hugsa sig tvisv-
ar um áður en ákvörðun er
tekin sérstaklega þegar þú
ert þreyttur þvi þá er meiri
hætta á mistökum.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) mO
Ný tækifæri eru alltaf að
bjóðast og í sjálfu sér ert þú
tilbúinn til þess að nýta þau.
Vandinn er bara að velja það
besta.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4K
Enginn ræður sínum nætur-
stað en vissulega getur þú
haft úrslitaáhrif á gang þíns
lífs. Hafðu bjartsýni ávallt að
leiðarljósi.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Þú þarft að huga vel að stöðu
þinni jafnvel þó það þýði að
þú látir vandamál sem vind
um eyru þjóta. Hjálpaðu
sjálfum þér fyrst._______
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) MJBfr
Það getur verið óþægilegt að
láta róta of mikið upp í málum
sem þú telur að þú hafir af-
greitt fyrir löngu. En hafirðu
gert það ætti ekkert að hrófla
við þér.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni \isindalegra staðreynda.
NÝTRÚARHREYFIN6AR 0G KRISTIN
TRÚ í HAFNARFJARÐARKIRKJU
Þriggja kvölda námskeið um yoga, spíritisma, vísinda-
kirkju, votta Jehóva, moonisma, endurholdgun,
stjörnuspeki, brain - mind - cult, new age, dulspeki,
djöfladýrkun... og kristna trú.
Leiðbeinandi sr. Þórhallur Heimisson.
Skráning og upplýsingar alla daga frá kl. 10.00- 16.00
í Hafnarfjarðarkirkju í síma 555 1295
Námskeiðið hefst þriðjudag. 3. október
EIGMMIÐLUNIN
..
Stcrhmenn: Svorrir Kristmsson lom. fostwgnosdi, sölustjóri, Þorieifur St.Guðmundsson,B.Sc., sölum.,Guimundur Sigurjónsson
lögfr. og lögg.fostwwKBaii, skjologerð. Stefón Hrofn Stefánsson iögfr., sölum., óskor R. Horðarson, sölumoður, Kiarton
HaBgeirsson, sölumaður, Jóhonno Votóimorsdóttir, ouglýsingor, gjotókeri, Inga Haimesdóttir, simovorslo og ritori, ÍHöf
Steinarsdóttir, smavarsla og öffun skjala, Rokel Dögg Sigurgeirsdóttir, símovorslo og öflun skjala.
Sími A}»{ 9090 • Fax Ö«H 9095 • Síðumúlu 2 I
Ijui’
Vantar eignir
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar
stærðir og gerðir eigna, bæði ibúðar- og atvinnu-
húsnæði, á söluskrá. Um þessar mundir er verð
fasteigna hátt og sterkar greiðslur í boði.
Sýnishorn úr kaupendaskrá:
Nokkur einbýlishús óskast til kaups. Flest einbýlishús á söluskrá
okkar hafa selst á síðustu vikum. Enn eru þó allmargir kaupendur á
kaupendaskrá. í mörgum tilvikum erum staðgreiöslu að ræða.
Sérhæð óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 120-160 fm sérhæð í
vesturborginni eða Þingholtunum. Sterkar greiðslur í boöi.
Sérhæð t Rvik. óskast - eða hæð og ris. Höfum Kaupanda að 120-160
fm sérhæð I Rvík. Hæð og ris kemur einnig vel til greina. Traustur
greiðslur í boði.
íbúð i vesturborginni óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 4ra herb.,
100-120 fm íbúð í vesturborginni. Fleiri stærðir koma til greina. Stað-
greiðsla í boði.
íbúð við Skúlagötu. Kirkjusand eða Neðstaleiti óskast. Traustur kaup-
andi óskar eftir 3ja-4ra herb. 80-120 fm íbúð á ofangreindum svæðum.
Staðgreiðsla í boði.
fbúð > Mosfellsbæ óskast. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að út••
vega 3ja nerb. (búð Mosfellsbæ til kaups.
íbúð £ vesturborgínni óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 3ja herb.
íbúð í vesturborginni. Staðgreiðsla í boði.
2ja-3ja herb. ibúðir óskast. Höfum trausta kaupendur að 2ja og 3ja
herb. íbúðum í Reykjavfk og nágrenni.
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Skrifstofuhæð og verslunarpláss óskast. Traustur kaupandi hefui
beðið okkur að útvega 500 fm skrifstofuhæð til kaups. Æskilegt er að
60-100 fm verslunarpláss á jarðhæð í sama húsi fylgi. Nánari uppi. veita
Óskar og Sverrir.
1500-2000 fm skrifstofupláss óskast. Traust fyrirtæki óskar eftir
1500-2000 fm skrifstofupiássi, gjarnan á tveimur hæðum. Góö bíla-
stæði æskileg. Plássið má vera fullbúið eða tilb. u. tréverk.
Atvinnuhúsnæði óskast. Traustur fjárfestir óskar eftir atvinnuhúsnæði
sem er í útleigu. Eignin má kosta allt að kr. 500.000.000,-.
bébécarT|
Barnavagnar
Hlíðasmára 17
s. 564 6610
Netfotí^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
KOSTABOÐ
ALLT AO 30% AFSLÁTTUR