Morgunblaðið - 23.09.2000, Síða 70
70 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Æsilegur steggjahrekkur
Brúarhopp
ÞEIR ERU ekki margir sem hafa
lent í því að vera bæði gæsaðir
OG steggjaðir! Rðsbjörg Þdrðar-
dóttir varð fyrir þessari sér-
kennilegu lífsreynslu áður en hún
gifti sig í sumar. Karlkynsfélagar
hennar sættu sig engan veginn
við að vinkonurnar fengju að
sprella svolítið með hana fyrir
stóra daginn og tóku sig því til,
brugðu út af vananum og steggj-
uðu hana. Hrekkurinn fólst í því
þeir fóru með hana nauðuga
að brúnni við Kaldá, settu hana í
klifurbelti og tengdu línu í hana.
Línan var bundin við bita undir
brúnni og þaðan var henni varp-
að fram af og féll hún nokkra
metra í frjálsu falli uns línan tók
fallið og Rósbjörg sveiflaðist eins
og pendúll undir brúnni. Fyllsta
öryggis var að sjálfsögðu gætt
við framkvæmd þessa háskalega
hrekks. Eftir að Rósbjörg náði
fótfestu var haldið með hana í
bústað við Esjurætur þar sem
henni var haldin vegleg grill-
veisla. Helgina eftir var siðan
komið að vinkonum Rósbjargar
að hrekkja hana og skemmta.
Morgunblaðið/Vilhelm Gunnarsson
Rósbjörg var bundin við línuna.
r
Fríl því aö kvikmynöin
Myrkraöansarinn v
hlaut Gullpálmann
á kvikmynöahatiöinniv ,
i Cannesivor hefur
Björk Guómundsdottir
haft i no^u aö snúast
viö aö kynna myndina
og tónlistína í henni.
Auk þess vinnur hun aö
gerö nýrrar plötu
sem kemur ut i april
á næsta árí,
Gudrun Hálfdánardottir
hítti Björk að mali
i New York.
ER ÞJANINGIN ÞESS VI
BJORK GUÐMUNDSDOTTI
í VIÐTALI
í SUNNUDAGSBLAÐINU
MYNDBQND
Ekta
B-mynd
Loftþéttni
(Airtight)
Spennumynd
★%
Leikstjóri: Ian Barry. Aðalhlut-
verk: Grayson McCough, Andrew
McFarlane og Tasma Walton. (90
mín) Bandaríkin, 1999. Sam mynd-
bönd. Bönnuð innan 16 ára.
LOFTÞÉTTNI segir heilmikla
sögu, en hún gerist í framtíðinni.
Svo illa vill til að mannskepnan hef-
ur í græðgi sinni og
óforsjálni eyðilagt
jarðskorpuna með
kjarnorkufikti,
þannig að banvæn-
ar eiturgufur
streymdu út og
þrýstu öllu súrefni
langt upp í gufu-
hvolfið. Eftirlifandi
manneskjur þurfa
því að búa í sérstökum neðanjarðar-
borgum þangað sem hreinu lofti er
dælt úr hæstu hæðum. Sérstök súr-
efnislögregla gætir öryggis borgar-
anna, og starfar aðalsöguhetjan, Rat
Lucci, þeirra á meðal. Þegar snjall
vísindamaður finnur leið til þess að
framleiða súrefni þarf Rat að koma í
veg fyrir að vondu peningakarlarnir
nái að sölsa uppfinninguna undir sig.
Þetta er ekta B-mynd, sem er for-
vitnileg fyrir þær sakir að ekki er
eingöngu lögð áhersla á spennandi
atbiu-ðarás, heldur er talsvert dútl-
að við stíl og umgjörð. Sá stíll sem
er eins og ódýr eftiröpun af stílnum í
„Blade Runner“ sem einkenndist af
sterkum vísunum í noir-kvikmynda-
hefðina. Loftþéttni er þannig í besta
falli sniðug mynd sem grípur athygl-
ina fyrir þær sakir.
Heiða Jóhannsdóttir
Fjölskyldu-
heiður
Winslow-drengurinn
(Winslow Boy)
Drama
★★
Leikstjórn og handrit: David Mam-
et eftir leikriti Terrence Rattigan.
Aðalhlutverk: Nigel Hawthorne,
Jeremy Northam. (104 mín.) Bret-
land 1999. Skífan. Öllum leyfð.
ÞAÐ ER ávallt með nokkrum
áhuga sem ný mynd eftir David Mam-
et er skoðuð. Hann hefur margsýnt
það og sannað að
hann er yfirburða-
handritshöfundur
og þegar hann hef-
ur tekið sig til og
sest í leikstjórastól-
inn hefur útkoman
oftar en ekki orðið
sérlega spennandi.
Vonbrigðin með
Winslow-drenginn
urðu því allmikil. Ungum dreng úr
virtri millistéttarfjölskyldu er vísað
úr einkaherskóla þegar hann er sak-
aður um að hafa stolið póstávísunum
frá skólanum. Þetta er mikil hneisa
fyrir fjölskylduna og skaðlegt mann-
orði hennar, en þegar drengurinn ber
á móti þessu gera faðir hans og systir
hvað þau geta til að hreinsa mannorð
hans. Efni myndarinnar, sem er
byggð á leikverld, er vissulega áhuga-
vert, leikurinn fyrsta flokks og vinnu-
brögðin vönduð. Þeir kostir fá þó ekki
þeirri staðreynd breytt að myndin er
langdregin og hreint út sagt hrútleið-
inleg. Það er leiðinlegt að þurfa að
víðurkenna slíkan ókost á handverki
annars eins fagmanns og Mamets en
þessi verður bara að flokkast með
hans slakari myndum. Synd og
skömm.
Skarphéðinn Guðmundsson