Morgunblaðið - 06.10.2000, Page 1

Morgunblaðið - 06.10.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913 229. TBL. 88. ÁRG. FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Stjórnarandstaðan í Serbíu tekur völdin í Belgrad - Ekki ljóst hvar Milosevic er niðurkominn „Serbía hefur verið frels- uð, lýðræðið hefur sigrað“ Belgrad. Reuters, AFP, AP. AP Lögregla reyndi að dreifa mannQöldanum, sem sótti að þinghúsinu, með því að skjóta að honum táragassprengjum. Fólkið gerði samt aðra atlögu að húsinu og innan stundar gáfust lögreglumennirnir upp. Lögðu þeir flestir frá sér hjálmana og vopnin og gengu til liðs við mótmælendur. „SERBÍA hefur verið frelsuð, kommúnisminn er fallinn," sagði Vojislav Kostunica, sem flestir Serbar líta á sem réttkjörinn for- seta landsins, er hann ávarpaði mikinn mann- fjölda, allt að milljón manna, sem hafði safnast saman í Belgrad til að krefjast af- sagnar Slobod- ans Milosevie, forseta Júgóslavíu. Sagði Kostunica, að Milosevic væri flúinn að heiman og var orðrómur um, að hann hefði flúið land en Zoran Djindjic, einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sagði, að hann væri í bænum Bor í Austur-Serbíu ásamt nánustu sam- starfsmönnum sínum. Varaði hann við því, að Milosevic kynni að vera að leggja á ráðin um „valdarán". „Serbía hefur verið frelsuð. Kommúnisminn er fallinn, lýðræðið hefur sigrað. Við erum nú að upplifa síðustu fjörbrot Milosevic-stjórnar- innar,“ sagði Kostunica en hann hvatti fólkið til að vera um kyrrt þar til yfir lyki. Bað hann það að fara ekki út í auðmannahverfíð þar sem Milosevic býr. „Hann er flúinn að heiman,“ sagði Kostunica. Afnám refsiaðgerða Kostunica skoraði einnig á vest- ræn ríki að aflétta strax refsiaðgerð- um á Serbíu en lagði áherslu á, að Serbar þyrftu hvorki aðstoð frá Washington né Moskvu. Hubert Vedrine, utanríkisráðherra Frakk- lands, tilkynnti í gær, að Evrópu- sambandið væri reiðubúið að aflétta refsiaðgerðum á Serbíu og Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, sagði, að það yrði gert strax og ljóst væri, að Milosevic væri farinn frá. Lögreglumenn til liðs við mótmælendur Fólk fór að safnast saman í Bel- grad strax í gærmorgun og komu miklar bílalestir utan af landsbyggð- inni. Fólkið, sem kom til að krefjast GRÍÐARLEG spenna ríkti um hríð í Belgrad í gær er andstæðingar stjórnar Slobodans Milosevic for- seta gerðu áhlaup á þing- húsið, en seint 1' gærkvöldi var ástandið orðið rólegra. Morgun- blaðið ræddi þá símleiðis við Þorkel Diego Þorkelsson, sem hefur starfað hjá alþjóðaráði Rauða krossins (ICRC) í Belgrad í rúmt ár. „Þetta er heldur að róast núna en þess, að endi yrði bundinn á einræði Milosevic, fyllti öll torg og stræti í miðborginni og hefur verið áætlað, að allt að milljón manna hafi tekið þátt í mótmælunum. Voru þau frið- samleg framan af en í odda skarst er fólkið reyndi að komast inn í þing- húsið. Skaut lögreglan táragas- sprengjum að mannfjöldanum en gafst fljótlega upp og gengu sumir lögreglumenn til liðs við mótmæl- endur. Annar hópur lagði undir sig ríkissjónvarpið, málpípu Milosevic, það er mikið fjölmenni í miðborg- inni,“ sagði Þorkell sem býr skammt frá henni. „Mér skilst að leiðtogamir hafí beðið fólk um að sýna stillingu. Ég var niðri í bæ og var að koma af samráðsfundi með fulltrúum Rauða kross Júgóslavíu og er nú að fara út í vömhúsið okk- ar sem er í um 30 kílómetra fjar- lægð frá miðborginni. Við ætlum að hlaða nokkra flutningabíla með til- og þar var hleypt af riokkrum skot- um. Lögreglumennirnir, sem þar voru, tóku flestir ofan hjálmana og fögnuðu mótmælendunum. Eldur logaði í báðum byggingunum í gær en svo virðist sem hann hafi verið slökktur. Engar útsendingar voru frá ríkis- sjónvarpinu í nokkurn tíma eftir að mótmælendur lögðu það undir sig en í gærkvöldi hóf það aftur útsend- ingar á öllum þremur rásunum með þessum orðum: „Þetta er hið nýja búnum matarskömmtum sem eiga að duga manni í einn dag. Það eru hundruð þúsunda manna í miðborginni og við ætlum að reyna að koma í veg fyrir rán með því að dreifa mat. Við vitum að Qöldi fólks verður þarna í alla nótt og sjálfsagt á morgun líka.“ Þorkell sagði lögregluna yfírleitt hafa haft hemil á sér og hörfa frek- ar en að slást við mótmælendur. ríkissjónvarp Serbíu.“ Einu við- brögð stjómvalda í gær voru yfir- lýsing frá Sósíalistaflokki Milosevic, sem Tanjug, hin opinbera frétta- stofa Serbíu, flutti, en þar sagði, að flokkurinn myndi beita „öllu sínu valdi til að koma á friði“. Nokkru síðar tilkynnti Tanjug, að fréttastof- an væri „nú með fólkinu" og talaði um Kostunica sem „kjörinn forseta Júgóslavíu". Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, lýsti í gær yfir fullum stuðn- „Það voru einstaka tilfelli þar sem kom til harðra árekstra, sérstak- lega þegar fólkið var að reyna að komast inn í þinghúsið. Þá beittu lögreglumennirnir táragasi en hörfuðu svo inn íþinghúsið um hríð. Þeir komu svo út og sumir af- hentu fólki hjálmana sína.“ Þorkell sagði margar sögusagnir vera á kreiki og ógerlegt að vita hvað hæft væri í þeim. „Menn eru að bíða eftir því hvaða afstöðu herinn tekur. Um fímmleyt- ið var orðrómur á kreiki um að her- inn væri að búa sig undir að fara inn í borgina, en annaðhvort snerist þeim hugur eða þetta voru aðeins sögusagnir," sagði Þorkell Diego. ingi við stjórnarandstöðuna í Serbíu og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði, að tími Milosevic væri liðinn. Voru ummæli annarra vestrænna leiðtoga í þeim anda en Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sagði, að ástandið í Serbíu væri al- varlegt og „ofbeldið óviðunandi“. Engin afskipti hersins? Óháða fréttastofan Beta í Belgrad sagði í gær og hafði eftir heimildum innan hersins, að hann myndi ekki hafa nein afskipti af byltingunni gegn Milosevic. Lögreglustjórinn í Belgrad hét einnig að beita ekki lög- reglunni nema í því skyni að koma í veg fyrir gripdeildir. Þrjár herflugvélar fóru frá her- flugvelli við Belgrad í gærkvöld og ýtti það undir orðróm um, að Milos- evic hefði flúið land. Getgátur voru þó um, að þær hefðu verið sendar eftir þingmönnum Svartfellinga á júgóslavneska þinginu. Hefur það verið kvatt saman í dag. ■ Lögðu undir sig/2 og 38-39 MORGUNBLAÐID 6. OKTÓBER 2000 Vojislav Kostunica Þorkell Diego starfsmaður Rauða krossins í Belgrad „Sumir afhentu fólki hjálmana sína“ Þorkell Diego Þorkelsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.