Morgunblaðið - 06.10.2000, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBE R 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
Boban horfír á myndir CNN frá mótmælunum / Belgrad þar sem Vladan bróðir hans cr í hópi mótmælenda.
Boban Acimovic, forritari hjá mbl.is, fylgist vel
með hinni hröðu atburðarás í heimalandi sínu
„Sá bróður minn á
tröppum þinghússins“
Halldór Ásgrímsson telur engan vafa
á að Kostunica taki við sem forseti
Trúnaðarbréf
vonandi afhent
sem fyrst
„ALLT í einu sá ég bróður minn á
tröppum þinghússins, hlaupandi í
átt að myndavélinni, reynandi að
skýla vitum sínum fyrir táragas-
inu,“ segir Boban Acimovic, for-
ritari hjá fréttavef Morgunblaðsins.
Hann var með annað augað á sjón-
varpsskjánum í vinnunni í gær og
fylgdist af áhuga með mótmælunum
í höfuðborg fóðurlands síns, Serbíu.
Skyndilega sá hann Vladan, 22 ára
bróður sinn, í hringiðu atburðanna.
„Árni Matthíasson, vinnufélagi
minn, kveikti á sjónvarpinu og stillti
á CNN. Ég gaut augunum á skjáinn
af og til og var að fylgjast með hvað
væri að gerast. Allt í einu sá ég
bróður minn,“ sagði Boban. „Fyrst
var ég ekki viss um að þetta væri
hann en eftir klukkutíma sýndi CNN
sömu myndimar aftur og þá sá ég
greinilega að þetta var hann, þekkti
meira segja fötin sem hann var í.“
Stjórn Milosevic
er búin að vera
Þegar Boban er spurður hvort
hann hafí verið hræddur um öryggi
bróður síns segist hann hafa verið
það á því augnabliki þegar hann sá
hann í sjónvarpinu. „En nú hef ég
minni áhyggjur af því að aðstæður
virðast vera að þróast í rétta átt.
Eftir því sem ég veit best er enginn
að skjóta á fólk og ef ekki kemur til
þess verður allt, í lagi þótt menn
hljóti kannski einhveijar skrámur.
Það hafa orðið talsverðar skemmdir
en lögreglan og herinn gera ekki
neitt. Ég held að venjulegir lög-
reglumenn geri sér grein fyrir að
stjóm Milosevies er búin að vera.
Þeir em að færa sig nær fólkinu."
Bræðumir sáust síðast í júlí í sum-
ar þegar Boban fór í sumarfrí heim
til Pozarevac, heimabæjar síns og
fæðingarbæjar Milosevic forseta. I
fyrrahaust dvaldi Vladan hér á Iandi
hjá Boban, eiginkonu hans og tveim-
ur börnum um 1-2 mánaða skeið.
Afmælisóskin rættist
Vissi Boban af bróður sínum með-
al mótmælendanna?
„Nei, ég varð hissa. En bróðir
minn gekk í andspyrnuhreyfinguna
Otpor, sem þýðir andspyma, nýlega
og hann hefur verið mjög virkur
undanfarna daga og tekið þátt í
mótmælaaðgerðum á hveijum degi.
Hann hafði ekki áhuga á pólitík áð-
ur fyrr og var að velta því fyrir sér
af hveiju ég hefði svona mikinn
áhuga á stjórnmálum. Ég sagði að
mér líkaði ekki við stjórnmál og að
þurfa að hafa áhuga á þeim en þau
em hluti af lífínu. Maður verður að
hafa áhuga á þeim af því að þau
snúast um líf manns og framtíð. Ef
maður situr og bíður kemur ekki
betri framtíð. Ef ég væri í Serbíu
væri ég sennilega við lilið hans í
Belgrad.
Heimabær okkar, Pozarevac, Eld-
bær, er líka heimabær Milosevic, en
hann beið líka ósigur í kosningunum
þar. Vladan var mjög virkur í kosn-
ingabaráttunni. Það var kosið á af-
mælisdagiim minn og ég óskaði mér
þess í afmælisgjöf að Milosevic
mundi tapa kosningunum og óskin
rættist.“
Boban fluttist hingað til lands
með fjölskyldu sína haustið 1998 og
hóf hann störf við forritun hjá
fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is
fyrir u.þ.b. ári.
En er ekki erfítt að sitja hér uppi
á fslandi og einbeita sér að vinnunni
þegar svo söguleg tíðindi eru að
verða í heimalandinu?
„Dagurinn í dag er búinn að vera
sérstakur, það var auðveldara und-
anfama daga,“ segir Boban. „Ég
hlusta mikið á útvarpsstöðina B-92 á
Netinu en hún er þekkt fyrir það
hvað henni hefur oft verið lokað af
stjómvöldum. Það er eina leiðin til
að fá nákvæmar upplýsingar um
það sem er að gerast heima. Ég hélt
alltaf að það þyrfti að hrekja Milos-
evic á brott með valdi en ef þetta era
endalokin, þá er það góður endir.
Vonandi er völdum hans að linna án
þess að það verði atburðir eins og
urðu á Torgi hins himneska friðar.
Ég held að það sé enginn nógu vit-
laus til að grípa til slikra aðgerða;
þetta er komið of langt til þess að
slíkt gerist. Hættan var mest þegar
aðgerðir vom að hefjast. Ég held að
Milosevic reyni að flýja og að land
eins og Hvíta-Rússland komi til
greina. Menn hafa talað um
Kazakstan og Kfna en ég held ekki
að Kína muni taka við honum, það
mundi spilla samskiptum þeirra við
Bandaríkjamenn. En mér er svosem
sama hvert hann fer, bara ef hann
fer. Mér er líka nokkuð sama um
hvort hann verður dreginn fyrir
stríðsglæpadómstólinn í Ila:ig cn ég
vildi gjarnan sjá hann leiddan fyrir
rétt heima í Serbíu, í sínu eigin
landi. Það yrði verra fyrir hann. 10
milljónir Serba hafa þurft að þola
mikið vegna hans. Margir voru
teknir nauðugir í heriim og sendir í
stríð ogþað er um 1 milljón serb-
neskra flóttamanna í Iandinu.
Venjulegt fólk ber ekki ábyrgð á of-
beldisverkum eins og nauðgunum
og barnamorðum heldur bijálaðir
menn og fangar sem stjórnvöld
sendu í herinn. Það gera fleiri þjóð-
ir. Vonandi verður Serbía opið land
og í vináttu við aðrar þjóðir í heim-
inum.“
„VIÐ höfum afskaplega lítil sam-
skipti haft við Júgóslavíu og erum
ekki í þeirri aðstöðu, eins og flestai'
aðrar þjóðir í Evrópu, að vera þar
með sendifulltrúa eða sendiráð. En
það er alveg ljóst að um leið og þama
kemst á eðlilegt ástand, þá munum
við senda okkar sendiherra til að af-
henda nýjum leiðtoga sitt trúnaðar-
bréf. Eg er ekki í nokkrum vafa um að
það verður Kostunica. Ég trúi því að
það sé engin leið fyi-ir Milosevic að
halda völdum,“ sagði Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi um at-
burðina í Belgrad.
Halldór sagði að margt benti nú til
þess að íbúum Serbíu væri að takast
að styrkja Vojislav Kostunica, sem
sigraði í forsetakosningunum 24.
september, í sessi og koma Slobodan
Milosevic frá völdum. „Það var vitað
mál að ef stjórnlagadómstóllinn
kvæði upp slíkan úrskurð kæmi til
óeirða en stóra spumingin núna er
hvað herinn og lögreglan gerir. Eins
og ástandið er núna er ekki að sjá
nein viðbrögð af þeirra hálfu. Lög-
reglan virðist ekki ætla að grípa inn í
nema farið verði að ræna verslanir og
eigum manna. Eins og þetta stendur
núna, em þetta gleðileg tíðindi, að því
ÁÆTLAÐ er að samanlagðar fjár-
festingar Landsvirkjunar og Reyðar-
áls vegna Noral-verkefnisins verði
allt að 30 milljarðar kr. á ári á tíma-
bilinu 2003-2008 og að um 40% fjár-
festinganna verði af innlendum upp-
mna. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu Þjóðhagsstofnunar um áhrif
virkjunar og álvers á íslenskt efna-
hagslíf sem var m.a. til umræðu á
fundum Egiis Myklebust, aðalfor-
stjóra Norsk Hydro, og tveggja hátt-
settra fulltrúa fyrirtækisins með
stjómvöldum í gær.
Myklebust kom hingað til lands í
gærmorgun ásamt þeim Eyvind
Reiten, forstjóra álsviðs Hydro, og
Jostein Flo, yfirmanns Islandsverk-
efna fyrirtækisins. Áttu þeir fund
með fjómm ráðhermm ríkisstjómar-
innar í gærmorgun, en hittu einnig
fulltrúa íslenskra fjárfesta í Hæfi að
máli, auk þess sem þeir áttu fundi
með Landsvirkjun, aðilum vinnu-
markaðarins og fleirum.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að um mjög góðar og upplýs-
andi viðræður hafi verið að ræða.
„Það er mikilvægt að svo háttsettir
undanskildu að fréttir berast af því að
fólk hafi særst og að ein stúlka hafi
látist,“ sagði Halldór.
,Alþjóðasamfélagið viðist standa
nær einhuga á bak við Kostunica og af
viðbrögðum Rússa má vera ljóst að
þeir styðja ekki Milosevic. Þótt þeir
hafi farið mjög gætilega í yfirlýsingar
hafa þeir þó sagt að það sé ljóst að
Kostunica hafi sigrað í kosningunum,
án þess að nefna tölur,“ sagði Halldór.
Verði fullgildir aðilar að
samfélagi Evrópuþjóðanna
Aðspurður um framhaldið ef Milos-
evic hrökklast frá og Kostunica verð-
ur lýstm' réttkjörinn forseti sagði
Halldór að létta þyrfti öllum við-
skiptabönnum af Júgóslavíu og að-
stoða Serba við uppbyggingu efna-
hags og lýðræðis. „Við hljótum að
stefna að því að þeir verði fullgildir
aðilar að samfélagi Evrópuþjóðanna.
Fyrsta skrefið gæti verið að þeir
gengju í Evrópuráðið og í framhaldi
af því að þeir tækju eðlilegan þátt í
starfsemi ÖSE [Oryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu] og öðrum
stofnunum Evrópu. Þeir þurfa á því
að halda að fá efnahagslega aðstoð,
sem mér finnst nauðsynlegt og eðli-
legt að veita.“
fulltrúar Norsk Hydro komi hingað
til lands og ræði málin við okkur,“
sagði Davíð. „Á fundinum var farið
vítt og breitt yfir stöðu mála og báðir
aðilar gerðu grein fyrir sínum sjónar-
miðum,“ sagði hann.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, sagði að ekkert
hik væri á mönnum varðandi áform
um Kárahnjúkavirkjun og álver í
Reyðarfirði, unnið væri samkvæmt
áætlun og stefnt væri að lokaákvörð-
un eins og áður árið 2002.
Egil Myklebust sagði við Morgun-
blaðið að sér hefði þótt nauðsynlegt
að koma sjálfur hingað til lands og fá
þannig tilfinningu fyrir Noral-verk-
efninu.
„Ég hef fylgst með þessu máli frá
upphafi, en ekki áður átt beinan þátt í
viðræðum. Nú hef ég fengið tækifæri
til að kynnast sjónarmiðum íslenskra
aðila og verð að segja að ég er mjög
ánægður. Þetta hefur verið annasam-
ur og góður dagur, allir málsaðilar
skilja þau miklu tækifæri sem felast í
þessu verkefni og um leið áskoranir."
■ Vinnan gengur /11
Hæstráðendur Norsk Hydro hingað
Ráðherra segir ekk-
ert hik á mönnum
/ /
BIOBLAÐD)
Á FÖSTUDÖGUM
»••••••••••••
Islensku ólympíuförunum fagnað
við heimkomuna / B1
Markahrókurinn á ekki von
á markaveislu / B4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.ls
H
i