Morgunblaðið - 06.10.2000, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Svona, svona, þér er alveg óhætt að setja hana niður, Dóri minn,
hún getur alveg labbað sjálf.
Trio klæðaskápur
úr kirsubeijaviði/melamíni. B207
x D60 x H225 sm kr. 59.680,-.
Impala klæðaskápur úr kirsuberjaviði/melamíni með
fellihurðum. B231 x D60 x H225 sm kr. 69.410,-.
Bíldshöfða, 110 Reykjavík
sími 510 8000 www.husgagnahollin.is
Norræn dýralæknaráðstefna
Heilsa dýra
og manna
Rögnvaldur Ingólfsson
RÁÐSTEFNA um
vandamál tengd líf-
rænni ræktun
hefst í dag að Hótel Örk í
Hveragerði og lýkur á
morgun. Það er NKVet,
sem er norræn nefnd um
samstarf í dýralækninga-
vísindum sem stendur að
þessari ráðstefnu. Rögn-
valdur Ingólfsson dýra-
læknir er fulltrúi Islands í
þessari norrænu nefnd.
Hann var spurður um hver
væru helstu vandamál
tengd lífrænni ræktun?
„Húsdýrahald með líf-
rænum skilyrðum er nokk-
uð ólíkt húsdýrahaldi þar
sem notuð eru lyf og til-
búinn áburður. Það þótti
því tímabært að norrænir
dýralæknar veltu fyrir sér þeim
sérstöku vandamálum sem tengd
gætu verið lífrænni ræktun, þá
bæði hvað varðar dýravemd og
hvemig við getum komið í veg fyr-
ir sjúkdóma og hugsanlega læknað
sjúkdóma í dýmm. I lífrænni
ræktun em þau vandamál hvað
varðar lækningar á húsdýmm að
flest sýklalyf, lyf gegn sníkjudýr-
um og bólgueyðandi lyf má ekki
nota, þannig að reyna verður að
koma í veg fyrir sjúkdómana með
stjómun búskaparins og bólusetn-
ingum og lækna sjúk dýr án nú-
tímalyfja. Um þetta verður m.a.
fjallað á ráðstefnunni í dag.“
- Hvaðfleira verður fjallað um?
„Fjallað verður um velferð dýra
í lífrænni ræktun, sérstaklega
verður komið inn á fóðran húsdýra
og sjúkdóma sem tengdir em fóðr-
un. Orkugildi lífræns fóðurs er oft
lægra en fóðurs sem framleitt er
með tilbúnum áburði og mun Grét-
ar Hrafn Harðarson dýralæknir
fjalla um það sérstaklega með til-
lliti til mjólkurkúa. Síðan verðum
við að huga að heilnæmi lífrænna
vara. Við lífræna ræktun er notað
meira af lífrænum áburði og hús-
dýraáburði í framleiðslu bæði fóð-
urs og grænmetis en ella. Þetta
breytir hugsanlega örvemgróðri í
matvælunum. Það er að segja eyk-
ur áhættuna á að sjúkdómsvald-
andi bakteríur úr húsdýraáburði
geti borist á borð neytenda og
valdið sjúkdómum eins og salmon-
ellu, e.coli og campylobacter."
-Eru þá lífrænt ræktuð mat-
væli ekki eins holl ogaf erlátið?
„Um þetta verður fjallað á ráð-
stefnunni. Það em margir sem
halda því fram að vegna þess að
minna af vamarefnum og lyfjum
sé notað í framleiðslunni sé heil-
næmi þessara matvæla meira og
mun Peter Marckman frá Dan-
mörku taka það efni til sérstakrar
umfjöllunar."
- Hvert erþitt álit á þessu efni?
„Það er augljós kostur að nota
lítið af lyfjum og vamarefnum í
framleiðslunni og það er reynt í
allri framleiðslu í dag. Hins vegar
hafamenn nokkrar áhyggjur af því
að nota húsdýraáburð og annan líf-
rænan áburð við þessa
framleiðslu vegna
hugsanlegrar sjúk-
dómahættu. Þessu
tengder umræða um
óhefðbundnar lækning-
ar á dýmm og mun Tor-
leiv Löken dýralæknir
frá Noregi fjalla um það
efni.“
- Eru óhefðbundnar
lækningar á dýrum stundaðar hér
á landi?
„Já, ég tel að einstaka dýra-
læknar hafí reynt t.d. nálastungur
og nudd m.a.“
- Eru slíkar lækningar komnar
lengra á veg á hinum Norðurlönd-
unum?
► Rögnvaldur Ingólfsson fædd-
ist 4. júní 1947 í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1967 og prófi í dýralækningum
frá dýralæknaháskólanum í
Osló árið 1973. Einnig lauk
hann meistaraprófi í matvæla-
fræði frá háskólanum í Bristol
árið 1991. Hann hefur starfað
sem héraðsdýralæknir en tók
við stöðu sviðsstjóra matvæla-
sviðs heilbrigðiseftirlits Reykja-
víkur árið 1996 og hefur starfað
þar síðan. Rögnvaldur er kvænt-
ur Kristjönu Emilíu Kristjáns-
dóttur starfskonu á Hrafnistu
og eiga þau þrjú börn.
„Menn em farnir að hugsa til
þess en sú þróun er þó komin stutt
á veg þar líka.“
- Hvert er hlutverk hinnar nor-
rænu nefndar NKVet?
„NKVet hefur aðallega beitt sér
fyrir fundum eða ráðstefnum um
málefni sem snerta alla norræna
dýralækna með einum eða öðmm
hætti, svo sem notkun fúkkalyfja
og myndunar ónæmis gegn fúkka-
lyfjum og áhrif alþjóðaverslunar á
bæði dýrasjúkdóma og manna-
sjúkdóma sem berast með matvæl-
um. Síðasti fundur nefndarinnar á
íslandi var árið 1994 þar sem fjall-
að var um hæggenga veimsjúk-
dóma, svo sem visnu og mæðiveiki.
Ráðstefnan núna var ákveðin á ár-
inu 1999 og hefur sérstök nefnd
dýralækna frá öllum Norðurlönd-
um annast undirbúninginn og for-
maður nefndarinnar er Gunnar
Þorkelsson héraðsdýralæknir á
Kirkjubæjarklaustri."
- Hvaða efhi er „heitast" afþeim
sem fjallað er um á ráðstefnunni?
„Umræðan um heilnæmi lífrænt
ræktaðra matvæla hlýtur að vera
það sem margir telji mikilvægast.
Einnig verður spennandi að heyra
um hvað lyfjaiðnaðurinn getur
boðið upp á af lyfjum sem sam-
ræmast lífrænni ræktun en Bern-
harð Laxdal dýralæknir mun fjalla
um það efni. Að lokinni ráðstefnu
verða pallborðsumræður og mun
formaður NKVet, Vib-
eke Dantzer, stjóma
þeim. Að lokum verður
farið í ferð þar sem hf-
rænn búskapur á Suð-
urlandi verður skoðað-
ur. Þess má geta að
nefndinni þótti Hvera-
gerði kjörinn staður til
halda svona ráðstefnu
vegna nálægðar við
landbúnaðinn, lífrænan sem hefð-
bundinn. í gærkvöldi var ráð-
stefnugestum kynnt vistvæn fram-
leiðsla íslenskra garðyrkjubænda í
gróðurhúsi og boðið að smakka á
íslenskum garðaávöxtum sem
ræktaðir em með vistvænum
hætti.“
Umræðan um
lífrænt rækt-
uð matvæli
„heitasta"
umfjöllunar-
efnið á ráð-
stefnunni