Morgunblaðið - 06.10.2000, Side 10

Morgunblaðið - 06.10.2000, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Fjármálaráðherra segir fjárlagaafganginn einsdæmi í íslenskri hagsögu Morgunblaðið/ Ásdís Geir H. Haarde fjármálaráðherra flytur framsöguræðu sína um frumvarp til ijárlaga ársins 2001 á Alþingi í gær. Viðskiptahallinn ofarlega í huga stjórnarandstæðinga FRAM kom í máli stjórnarandstæð- inga á Alþingi í gær, þegar fram fór fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp ríkisstjómarinnar, að þeir teldu að nota hefði mátt hluta áætlaðs tekju- afgangs af ríkissjóði til að rétta kjör þeirra sem verst stæðu í samfélag- inu. Beindu þeir sjónum sínum einn- ig mjög að viðskiptahallanum en stjórnarliðar lögðu hins vegar áherslu á að staða ríkisfjármála væri afar traust. Geir H. Haarde fjármálaráðherra sagði í framsöguræðu sinni að fjár- lagafrumvarpið gerði ráð fyrir 30 milljarða króna tekjuafgangi, sem svaraði til 4,2% af landsframleiðslu. Lánsfjárafgangur væri enn meiri, eða tæplega 35 milljarðar. Svo mikill afgangur á fjárlögum væri einsdæmi í íslenskri hagsögu. Ríkisstjórnin myndi hins vegar áfram fylgja að- haldssamri stefnu í ríkisfjármálum til að tryggja stöðugleikann í efna- hagsmálum og greiða niður skuldir. Kom einnig fram í framsögu ráð- herra að verið væri að skoða í fjár- málaráðuneytinu möguleika til lækkunar tekju- og eignarskatta, einkum hjá fyrirtækjum og afnáms stimpilgjalda með það í huga að komi tO framkvæmda á kjörtímabilinu. Sagði hann vaxandi kerfislægan af- gang á 'ríkissjóði og allt tal um að mikill afgangur á ríkissjóði væri ein- göngu tengdur efnahagsuppsveiíl- unni og viðskiptahallanum væri því út í hött. Viðskiptahallinn var þó Össuri Skarphéðinssyni, formanni Samfylk- ingar, ofarlega í huga í gær en hann verður skv. þjóðhagsáætlun 54 millj- arðar á þessu ári. Sagði Össur vafa- samt hvort hægt væri til lengdar að fjármagna hann með erlendum lán- tökum. Kvaðst hann óttast að við- skiptahallinn ætti eftir að leiða til er- lendra skulda ríkissjóðs enda margt sem benti til að hann væri orðinn við- varandi. Eftirspurn eftir vinnuafli á markaði og önnur þenslueinkenni yllu áhyggjum. „Þannig að það er auðvitað margt sem bendir til þess að sú rósrauða mynd sem hæstvirtur fjármálaráðherra dró hér upp áðan sé ekki að öllu leyti í samræmi við veruleikann," sagði Össur. Svartasti bletturinn á fjárlagafrumvarpinu væri hins vegar aukin skattlagning þeirra sem minnst hefðu á milli handanna. Jón Kristjánsson, formaður fjár- laganefndai- og þingmaður Fram- " • ’Kr. Í 1 : ' ‘i * ■', * VH J í' j ! ■U J:1 jgf ALÞINGI sóknarflokks, sagði það alrangt að áætlaður tekjuafgangur væri ein- göngu tilkominn vegna halla á við- skiptum við útlönd. Það sýndu allar mælingar. Viðskiptahallinn væri reyndar varhugaverður en margt benti hins vegar til þess að innlend eftirspurn færi minnkandi. Jón sagði það ekki þurfa að koma á óvart að mikill þrýstingur hefði verið á um aukin útgjöld ríkisins. í sjálfu sér mætti líka vel finna mörg verðug verkefni. Við þær aðstæður sem nú væru uppi í efnahagsmálum væri hins vegar mikilvægt að nota tekju- afganginn til að borga niður skuldir ríkissjóðs. Þegai- Jón Bjamason, þingmaður Vinstri grænna, spurði Jón að því hvort framsóknarmenn ætluðu raunverulega að standa að sölu Landssímans svaraði hann því þannig að það væri ekki leyndarmál að það hefði verið unnið að sölu Sím- ans á vegum ríkisstjórnarinnar. Sagði Jón að Framsóknarflokkur- inn hefði viljað tryggja að allir lands- menn hefðu sama aðgang að gagna- flutninganetinu á sama verði. Málinu væri ekki lokið en ef hægt væri að tryggja slíkan aðgang þá væri flokk- urinn ekki endilega andsnúinn sölu Landssímans. Jón Bjarnason, sem var talsmaður VG í umræðunni í gær, vék að við- skiptahallanum í ræðu sinni eins og margir kollegar hans. Ekki þyrfti að fara mörgum orðum um það hvernig færi ef viðskiptahalli yrði viðvarandi og menn hlytu því að hafa af honum áhyggjur. „Um leið og hægir á hag- kerfinu mun íjármagnseftirspurn minnka og við það gæti dregið úr fjármagnsflæði sem hingað til hefur fjármagnað viðskiptahallann og haldið gengi krónunnar uppi. Með öðrum orðum, herra forseti, um leið og þensla hættir gæti viðskiptahall- inn orðið að blýlóðum sem geta dreg- ið hagkerfið niður,“ sagði hann. Jón gerði fjármál sveitarfélag- anna einnig að umtalsefni og innti eftir niðurstöðum nefndar sem falið var að endurskoða tekjustofna sveit- arfélaganna. Gagnrýndi hann að fjárlagafrumvarpið tæki ekki tillit til breyttrar verkaskiptingar sveitarfé- laga og rflds. Kom síðar fram í máli Jóns Kristjánssonar, sem gegnir for- mennsku í áðurnefndri nefnd, að von væri á niðurstöðum hennar síðar á þessu hausti. Tekjuafgangurinn „froðufé“ Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, fagnaði því að gert væri ráð fyrir tekjuafgangi í fjárlagafrumvarpinu. Afgangurinn væri hins vegar froðufé, tilkomið vegna viðskiptahalla og ofþenslu. Taldi Sverrir ekki staðið nægilega fast á bremsunni. Verðbólga og þensla lékju íslensk fyrirtæki grátt. Samkeppnisstaða þeirra hefði versn- að þó að þar hefði þróun evrunnar reyndar einnig haft áhrif. Sverrir benti á að verðbólga mældist þrefalt hærri hér en í helstu viðskiptalönd- um. Sagði hann gengi krónunnar í vanda statt, eins og hefði sýnt sig á liðnu sumri þegar spákaupmenn gerðu áhlaup á krónuna. Sagði hann gengisfall íslensku krónunnar alvar- legasta ógnunarefnið en verið gæti að við því yrði ekki spornað. Einar Öddur Kristjánsson, Sjálf- stæðisflokki, minntist þess að nú væru tíu ár liðin síðan Sjálfstæðis- flokkurinn tók við fjármálaráðuneyt- inu. A þessu tímabili hefðu útgjöld ríkisins hækkað mest í þremur mála- flokkum og það vekti athygli að þar væri m.a. um að ræða útgjöld til há- skóla- og rannsóknarstofnana, sem og málefna fatlaðra. Þetta væri at- hyglisvert í ljósi þess að stjórnar- andstaðan kvartaði sáran yfir því að útgjöld til þessara málaflokka væru ekki nægilega há. Helsta útgjaldaaukningin hefði hins vegar átt sér stað í erlendum samskiptum, fyrst og fremst með nýjum embættum, nefndum og þar fram eftir götunum. Sagði Einar Oddur að þetta væri sjálfsagt allt gott og blessað en það vekti athygli að á sama tíma hefði aðstoð vegna hungursneyðar og fátæktar erlendis dregist saman. „Og það sem meira er, ég heyri engan mótmæla þessu,“ sagði Einar Oddur. Lagði hann áherslu á mikilvægi aðhalds og gagnrýndi m.a. samþykkt laga um fæðingarorlof á síðasta þingi, og það sem hann kallaði „Schengen-vitleysuna“. Höfum aðeins séð forsmekkinn að hinu nýja hagkerfí GEIR H. Haarde fjármálaráð- herra gerði hið nýja hagkerfi að sérstöku umtalsefni í ræðu á Al- þingi í gær, en þá fór fram fyrsta umræða um fjárlög 2001. Sagði hann það sína niðurstöðu að íslendingar væru vissulega að njóta jákvæðra áhrifa þess. Um það vitnuðu stórfelldar framfarir í hinum ýmsu há- tæknigreinum undanfarin ár. „Við höfum hins vegar aðeins séð forsmekkinn að jákvæðum áhrifum hinnar nýju tækni í hin- um hefðbundnu atvinnugreinum til þessa dags,“ sagði Geir. „Ég tel að við munum á næstu árum upplifa miklar breytingar í at- vinnulífinu, ekki einungis í nýju hátæknigreinunum, heldur ekki síður í hefðbundnari gi-einum at- vinnulífsins sem eiga í vaxandi mæli eftir að nýta sér kosti nýja hagkerfisins og skila aukinni framleiðni." Upplýsti Geir að í næsta mán- uði myndi fjármálaráðuneytið halda ráðstefnu þar sem fjallað yrði um nýja hagkerfið og áhrif þess, bæði hér á landi og í Bandaríkjunum. Meðal ræðu- manna þar yrði dr. Martin Baily en hann væri helsti efnahagsráð- gjafi Bandaríkjaforseta og for- maður ráðgjafanefndar forset- ans í efnahagsmálum. Beðist af- sökunará sjónvarps- viðtali GEIR H. Haarde fjármálaráð- k herra upplýsti á Alþingi í gær- i kvöldi að hann hefði fýrr um dag- I inn fengið upphringingu frá í: bankastjóra Landsbankans, Hall- dóri Kristjánssyni, þar sem Hall- dór bað ráðheirann afsökunar á viðtali sem Stöð 2 hafði við starfs- mann Landsbréfa í fyrrakvöld. Greindi Geir frá þessu við umræð- ur um fjárlagafrumvarpið eftir að Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar, hafði gert viðbrögð L markaðarins við frumvarpinu að I umtalsefni. í frétt Stöðvar 2 í fyrrakvöld var f rætt við starfsmenn Landsbréfa og Kaupþings og sagði fréttamaður- inn í kynningu að mennirnir sem fylgdust með púlsinum á íslenska fjármálamarkaðnum segðu að fjár- lagafrumvarpið, eins og það væri fram sett, ógnaði gengi íslensku krónunnar. Sagði starfsmaður Landsbréfa síðan að ef ríkið hefði , ætlað að greiða niður erlendar § skuldir eingöngu þá væri krónan | náttúrlega í mikilli hættu. Landsbréf sendu frá sér athuga- semd síðdegis í gær vegna málsins en viðtalið hafði fyrst borið á góma í fjárlagaumræðunni á Alþingi í gærmorgun. I athugasemdinni vísa Landsbréf því á bug að ummæli starfsmanns fyrirtækisins í um- ræddu viðtali hafi verið óábyrg eða að um hrakspár hafi verið að ræða. Jákvæðar umsagnir klipptar burt „I fyrsta lagi vísaði starfsmaður- inn til þess að óvissa hefði skapast á fjármálamarkaðinum í kjölfar þess að frumvarpið var birt,“ segir í athugasemd Landsbréfa. „I öðru lagi að áframhaldandi aukið framboð húsbréfa leiddi til hækk- andi ávöxtunarkröfu að gefinni óbreyttri eftirspurn og í þriðja lagi að ef ríkisssjóður hefði einvörð- I ungu ætlað að nýta lánsfjárafgang | til greiða niður erlendar skuldir § hefði það ógnað gengi krónunnar." Sepr ennfremur að Landsbréf telji fjárlagafrumvarpið í flestu já; kvætt fyrir fjármálamarkaðinn. I frumvarpinu sé staðfest aðhalds- söm ríkisfjármálastefna, markmið um aukinn þjóðhagslegan sparnað og áframhaldandi einkavæðingu. Allt séu þetta þættir sem fyrirtæk- ið hafi mælt með á undanförnum 1 misserum. Áform um niðurgreiðsl- 1 ur erlendra skulda þarfnist þó nán- | ari skýringa og hafi valdið óvissu. Jákvæðar umsagnir starfsmanns Landsbréfa um fjárlagafrumvarpið hafi hins vegar verið klipptar út úr viðtalinu sem sýnt var í fréttum Stöðvar 2 og því sé ekki hægt að túlka það sem eftir starfsmannin- um var haft sem heildarumsögn Landsbréfa um frumvarpið. --------------- Snarpari fjár- ® lagaumræða FYRSTA umræða um fjárlög ársins 2001 í gær var öllu snarpari en hefur verið undanfarin ár þó að hún tæki sennilega álíka langan tíma í heild- ina. Hafði tekist samkomulag um það milli þingflokka að stytta ræður ráðherra og talsmanna þingflokka í því augnamiði að skerpa á umræð- unni og að gefa fleiri þingmönnum tækifæri til að komast að áður en langt liði fram á dag. Fyrirkomulag umræðunnar fól í sér að í fyrstu umferð fékk fjármála- ráðherra aðeins 35 mínútur til um- ráða í stað klukkutíma í fyrra, tals- menn þingflokkanna 20 mínútur í stað 40 í fyrra og aðrir 10 mínútur í stað 15 í fyrra. Jafnframt var aðeins talsmönnum þingflokkanna og fjár- málaráðherra heimil andsvör í fyrstu umferð umræðunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.