Morgunblaðið - 06.10.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.10.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 11 Þrír hæstráðendur Norsk Hydro funduðu um stöðu Noral-verkefnisins hér á landi Morgunblaðið/RAX Frá fundinum í Stjórnarráðinu í gær. F.v.: Jostein Flo, Egil Myklebust og Eyvind Reiten frá Norsk Hydro, Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Davíð Oddsson forsætisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Þórður Friðjónsson, forsijóri Þjóðhagsstofnunar, og Eiður Guðnason sendiherra. Vinnan gengur vel o g allt er samkvæmt áætlun Undirbúningur Noral-verkefnisins gengur vel og framvinda þess er í fullu samræmi við yfirlýsingar þar að lútandi, að því er kom fram á fundi Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Egil Myklebust, aðalforstjóra Norsk Hydro, í gær. Björn Ingi Hrafnsson sat fundinn og segir frá heimsókn hæstráðanda Hydro og tveggja annarra fulltrúa fyrirtækisins hingað til lands. ÞETTA er samdóma niðurstaða Myklebust og Valgerðar Sverrisdótt- ur eftir íslandsheimsókn þriggja hæstráðenda Norsk Hydro í gær og fundi þeirra með íslenskum ráðherr- um, embættismönnum og sérfræð- ingum vegna fyrirhugaðra virkjunar- framkvæmda á Kárahnjúkum og byggingai' álvers í Reyðarfirði. Myklebust kom hingað til lands í gærmorgun á einkaþotu Norsk Hydro ásamt tveimur háttsettum stjórnendum íyrirtækisins, þeim Eyvind Reiten, forstjóra álsviðs, og Jostein Flo sem hefur yfirumsjón með Islandsverkefninu af hálfu Hydro. Fundur með fjórum ráðherrum Þegar í bítið áttu þremenningamir fund með fjórum ráðherrum ríkis- stjórnarinnar í Stjómarráðinu, þeim Davíð Oddssyni forsætisráðherra, Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráð- herra, Geir H. Haarde fjármálaráð- herra og Valgerði Sverrisdóttur, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra. Auk þeiira sátu fundinn Þórður Friðjóns- son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar og formaður samninganefndar íslenskra stjórnvalda í stóriðjumálum, og Eið- ur Guðnason sendiherra. Eftir fundinn sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra við Morgunblaðið að um mjög góðar og upplýsandi við- ræður hefði verið að ræða. „Það er mikilvægt að svo háttsettir fulltrúar Norsk Hydro komi hingað til lands og ræði málin við okkur,“ sagði Davíð. ,Á fundinum vai- farið vítt og breitt yfir stöðu mála og báðir aðilar gerðu grein íyrir sínum sjónar- miðum.“ Forsætisráðherra sagði að fram hefði komið að á þessu stigi málsins sæju menn engin Ijón á veginum, sem komið gætu í veg fyrir að af fram- kvæmdum yrði, en auðvitað væri Ijóst að mörgum spumingum er ósvarað enn. Yfir stæði ákveðið ferli og það væri nauðsynlegt til að fá þessum spumingum svarað. „Við reyndum að skýra okkar sjón- armið, ekki síst hvað samfélagsleg áhi-if þessa verkefnis varðar. Það er margt í okkar þjóðfélagi sem er frá- bragðið þvi sem gerist á hinum Norð- urlöndunum og margt er hér léttara í vöfum. íslensk stjórnvöld telja mikil- vægt í þessum efnum að líta til þess sem verður, í stað þess sem nú er. Það liggur fyrir, að okkar mati, að ef bjóðast munu í tengslum við þessar framkvæmdir góð og vel launuð störf mun verða sóst eftir þeim,“ sagði Davíð ennfremur. Viðskiptahalli og verðbólga myndu aukast Eftir fundinn í stjórnarráðinu fóra fulltrúar Norsk Hydro til fundai- við stjómendur Landsvirkjunar og sátu síðan með þeim hádegisverð. Eftir hádegi kynnti Christian Roth, stjómarformaður ÍSAL, Norð- mönnunum reynslu þess íyrirtækis af starfsemi sinni á íslandi og Smári Geirsson, formaður Sambands sveit- arfélaga á Austurlandi, fjallaði um viðhorf Austfirðinga í stóriðjumálum. Þar á eftir hittu Norðmennimir Þórð Friðjónsson, forstjóra Þjóð- hagsstofnunar, Val Valsson, banka- stjóra Íslandsbanka-FBA, Ara Edwald, framkvæmdastjóra Sam- taka atvinnulífsins og Ara Skúlason, framkvæmdastjóra Alþýðusambands í slands og var á þeim fundi fjallað um efnahags- og fjármál og vinnumark- aðsmál hér á landi. Lokafundur á dagskrá fulltrúa Norsk Hydro var með iðnaðar- og viðskiptaráðherra, en eftir þann fund boðaði ráðherrann til blaðamanna- fundar í Ráðherrabústaðnum við Tjamargötu. A þeim fundi var farið yfir viðræð- ur dagsins og tilgang heimsóknar Norðmannanna hingað til lands, en aukinheldur var kynnt ný skýrsla um efnahagsleg áhrif Noral-verkefnis- ins, sem unnin var fyrir Þjóðhags- stofnun af starfshópi sem skipaður var í júní sl. að frumkvæði iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Helstu niðurstöður skýrslunnar era þær að vinnuaflsþörf vegna fram- kvæmda við virkjun og álver á áran- um 2002-2009, sem og við framleiðslu áls í Reyðarfírði, næmi að jafnaði 0,9% fólks á vinnumarkaði hér á landi, en mest árið 2005, allt að 1,5% afvinnuafli í landinu. Fjárfestingar á byggingartíma yrðu að jafnaði 15- 20% meiri en ef ekki kæmi til verk- efnisins og allt að 40% meiri þegar umsvifin yrðu hvað mest í fram- kvæmdum eystra. Starfshópurinn gerir ráð íyrir að halli á viðskiptum Islendinga við út- lönd aukist vegna fjárfestinga Landsvukjunai- og Reyðaráls og hætta sé á aukinni verðbólgu til skamms tíma vegna áhrifa fram- kvæmdanna, en til lengri tíma litið muni útflutningur álversins draga úr viðskiptahalla og auka þjóðartekjur. Telur staifshópurinn að beinar mót- vægisaðgerðir í ríkisfjármálunum komi til álita gegn þensluáhrifum á framkvæmdatímanum. „Heilmikil vinna“ Valgerður Sverrisdóttir, sem sl. vor kallaði eftir komu háttsettra full- trúa Norsk Hydro hingað til lands vegna málsins, sagði eftir fundinn að greinilegt væri að málin væru í traustum og öraggum farvegi. „Eg lét þessi orð falla og nú er að- alforstjórinn kominn. Svo getur fólk velt því fyrir sér hvort eitthvað sam- band sé þarna á milh. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hann hafi ákveðið að koma hingað til lands og tala augliti til auglitis við þá sem mál- ið varðar,“ sagði hún. höfðun ALMAR Hilmarsson, framkvæmda- stjóri Ágætis hf., innflytjandi Dole- jöklasalatsins sem lá undir gran um að vera orsök salmonellufaraldurs á suðvesturhomi landsins í september sl., segir að enn hafi ekki verið tekin ákvörðun um að höfða skaðabótamál á hendur heilbrigðisyfirvöldum. Ákvörðun um það muni verða tekin þegar öll gögn liggi fyrir í málinu. Þá segir Almar að verið sé að íhuga að höfða mál á hendur hinum sömu yfirvöldum á grandvelli upp- lýsingalaga og stjórnsýslulaga en að sögn Almars bárast fyrirtækinu ekki upplýsingar um niðurstöður rann- sókna á jöklasalatinu þegar þær lágu fyrir né heldur aðrar upplýsingar um framgang málsins. Sem kunnugt er kom ekkert fram Valgerður bætti því við að aldrei hefði staðið til að taka ákvarðanir á þessum fundi eða á þessu stigi máls- ins. „Það er unnið samkvæmt þeirri viljayfirlýsingu sem unnin var og samþykkt í maí síðastliðnum. Mefra er ekki hægt að biðja um, ekki hafa komið upp erfiðleikar og á meðan svo er er ég ánægð. Þetta er mjög stórt verkefni og ég get ekki séð annað en að allir séu staðráðnir í að vinna í því áfram af fullum krafti.“ Myklebust sagði við Morgunblaðið. að sér hefði þótt nauðsynlegt að koma sjálfur hingað til lands og fá þannig tilfinningu fyrir Noral-verkefninu. „Ég hef fylgst með þessu máli frá upphafi, en ekki áður átt beinan þátt í viðræðum. Nú hef ég fengið tækifæri til að kynnast sjónarmiðum íslenskra aðila og verð að segja að ég er mjög ánægður. Þetta hefur verið annasam- ur og góður dagur, allir málsaðilar skiija þau miklu tækifæri sem felast í þessu verkefni og um leið það sem við þarf að kljást." Hann sagði að flest af því væri eðli- legt í verkefni af þessari stærðar- gráðu. Fjölmarga þætti þyrfti að kanna nánar, t.a.m. kostnaðarþætti, tímaáætlanir, markaðsaðstæður, orkuþætti og staðbundnar aðstæður. „Þetta er auðvitað heilmikil vinna og málsaðilar gera sér grein fyrir mikilvægi hennai-. Án hennar er ekki unnt að taka ákvörðun í þessum efnum. En vinnan gengur vel og allt er samkvæmt áætlun," sagði Myklebust. í rannsóknum á nokkrum sýnum úr salatinu í síðasta mánuði sem bentu til þess að það væri sýkt af salmon- ellu. Sóttvarnalæknir hélt því þó fram að faraldsfræðilegar rannsókn- ir bentu til þess að upptökin væri að finna í salatinu sem flutt var inn frá Bandaríkjunum. Haraldur Briem sóttvarnalæknir vildi í samtali við Morgunblaðið ekk- ert tjá sig um hugsanlega málsókn á hendur embættinu og öðram heil- brigðisyfirvöldum. Hann bendir ein- ungis á að enn sé verið að vinna að rannsóknum á upptökum faraldurs- ins í samvinnu við rannsóknarstofur í Bandaríkjunum og í Evrópu. Salm- onellan hefur hlotið auðkennið DT204b og er af gerðinni salmonella typhimurium sem er fjölónæmur Alþjóðleg- ráðstefna í Reykjavík um hafís Gervihnettir auka þekk- ingu á hreyf- ingu hafíss Á RÁÐSTEFNU um hafís, hafís- könnun og hafísþjónustu sem hald- in er á Grand Hótel í Reykjavík um þessar mundir hefur m.a. komið fram að miklar framfarir hafa orðið á notkun gervihnatta við hafísrann- sóknir á undanförnum árum. Að sögn dr. Þórs Jakobssonar, verkefnisstjóra hafísrannsókna Veðurstofu íslands, er með tilkomu gervihnatta nú hægt að fylgjast mun betur með hreyfíngu og breyt- ingu hafíss en áður, hvort sem er á nóttu eða degi til. „Gervihnettir hafa þannig aukið þekkingu á hreyfingu hafíss á norðurslóðunum til muna,“ segir Þór en sú þekking er mikilvæg fyrir sjófarendur á þessum slóðum. Á fjórða tug erlendra sérfræð- inga frá tylft þjóðlanda taka þátt í ráðstefnunni sem hófst á þriðjudag og lauk í gær, föstudag. Era þátt- takendur einkum viðriðnir hafís- þjónustu hver í sínu landi, m.a. fjar- könnun á hafís, hafískortagerð og vöktun til öryggis fyrir skip á norð- lægum slóðum. Áð sögn Þórs hefur fjöldi erinda verið fluttur á ráðstefnunni en þar er einnig rætt um það hvemig frek- ara samstarfi geti verið háttað milli hafísþjónusta í þeim löndum sem fylgjast með hreyfingu hafíss á norðurhveli jarðar. ------4-4-4----- A Arekstur og áflog TILKYNNT var um árekstur og áflog á bílaplani við Kringluna um klukkan fjögur eftir hádegi í gær. Að sögn lögreglu var þar um aft- anákeyrslu að ræða, en árekstur- inn var ekki mjög harður. Ökumaður og farþegi bifreiðar- innar sem ók aftan á hina, karl- menn um tvítugt, munu hafa reiðst og stigið út úr bifreiðinni og dreif að vegfarendur sem vildu forða því að til ryskinga kæmi. Veittist öku- maður að stúlku úr hópi vegfar- enda og var hann handtekinn, en að sögn lögreglu fundust fíkniefni í fórum hans. Einnig fundust ííkni- efni í bifreiðinni og voru báðir menn fluttir á lögreglustöð til yfir- heyrslu. stofn. Er m.a. verið að rannsaka hvort sá stofn hafi fundist víðar en á Islandi og í Englandi en staðfest hef- ur verið að sami stofninn olli salmon- ellufaraldri í Englandi í haust. Sýkingar víða vart Aðspurður sagði Haraldur að salmonellusýkingar hefðu orðið vart víðar á landinu en í Reykjavík í sept- embermánuði og að svo virtist sem um sömu salmonellutegund væri að ræða og greinst hefði í Reykjavík. Meðal annars hefði sýkingar orðið vart á Suðurlandi og Austurlandi en einnig hefði sýkingar orðið vart á hjúkranarheimihnu Hlévangi í Keflavík. Tveir vistmenn greindust með salmonellusýkingu í síðasta mánuði og starfsmaður nokkru síðar. Framkvæmdastjóri Ágætis um salmonellufaraldur Engin ákvörðun um skaðabótamáls
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.