Morgunblaðið - 06.10.2000, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ
24 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
VIÐSKIPTI
Kristinn Ingi Jónsson frá MTS og Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri Kópavogsbæjar.
Kópavogs-
bær með
nýtt félags-
málakerfi
KÓPAVOGSBÆR hefur tekið í
notkun nýtt félagsmálakerfi frá
MTS á íslandi, sem kallast Félags-
málastjórinn. Þetta er alhliða skrán-
ingar- og upplýsingakerfi fýrir fé-
lagsþjónustu og inniheldur kerfið
meðal annars umsýslu á málefnum
fatlaðra, viðbótarlánum, húsaleigu-
bótum og öllu því sem félagssvið
sveitarfélaganna hafa í sinni umsjá.
Áður hafa Akureyri, Garðabær,
Mosfellsbær og nokkur smæiri
sveitarfélög tekið kerfið í notkun.
Kerfið var kynnt á samnorrænni
ráðstefnu um félagsmál og vakti
kerfið verðskuldaða athygli.
Afkomuviðvör-
un frá Xerox
Osló. Morgunblaðið.
ENN eitt bandarískt stórfyrir-
tæki hefur nú sent frá sér af-
komuviðvörun, en Xerox-ljósrit-
unarvélaframleiðandinn tilkynnti
í vikunni að afkoma þriðja árs-
fjórðungs yrði ekki í samræmi
við væntingar. Gengi hlutabréfa
fyrirtækisins lækkaði um 18% í
kjölfarið.
Ástæðurnar eru að sögn
forsvarsmanna fyrirtækisins veik
evra og minni sala en venjulega.
Búist er við tapi upp á 15-20 sent
á hlut, en sérfræðingar bjuggust
við hagnaði upp á 12 sent á hlut á
þriðja fjórðungi ársins. Viðvörun
Xerox nú er sú fimmta frá fyrir-
tækinu á jafnmörgum ársfjórð-
ungum og CNN bendir á að auk-
in rafræn samskipti hafi áhrif til
hins verra á afkomu Xerox sem
hingað til hefur einbeitt sér að
framleiðslu ljósritunarvéla, en
reynir nú að auka hlutdeild sína á
öðrum mörkuðum. Forstjóri fyr-
irtækisins hefur lýst því yfir að
hugsanlega verði gripið til þess
ráðs að selja hluta af eignum fyr-
irtækisins til að mæta versnandi
afkomu.
Næststærsti
stálframleiðandi
í heimi
MEÐ samruna sænsk-enska fyrir-
tækisins Avesta Sheffield og stál-
framleiðsluhluta finnska fyrirtækisins
Outokumpu verður til næststærsta
stálframleiðslufyrirtæki heims. Dag-
ens industri og ft.com greina frá
þessu. Nýja fyrirtækið fær nýtt nafn,
Avestapolarit, og verður skráð í
Finnlandi. Hlutabréf þess verða skráð
í Kauphöllinni í Stokkhólmi að mark-
aðsverðmæti um 1,3 miUjarðar evra
eða um 95 milljarðar íslenskra króna.
Hluthafar Outokumpu munu eiga
55% í nýja fyrirtækinu en hluthafai-
Avesta Sheffield 45%. Stærsti hlut-
hafi verður Corus, enskt-hollenskt
fyrirtæki með 23% hlut, en finnska
ríkið mun eiga 22%.
Að því er fram kemur á ft.eom
eykst spum eftir ryðfríu stáli um 5%
á ári og eru vaxtarmöguleikar miklir í
Asíu og Suður-Ameiíku. Nýja fyrir-
tækið mun líklega framleiða 1,7 millj-
ónir tonna af ryðfríu stáli á ári en
stærsti framleiðandinn, þýska fyrir-
tækið ThyssenKrupp, framleiðir 2,2
milljónir tonna á ári.
Samlegðaráhrif eru talin nema sem
samsvarar 7 milljörðum íslenski-a
króna á ári. Velta sameinaðs fyrir-
tækis er um 200 milljarðar íslenskra
króna.
Nýtt skipurit hjá
Landsbankanum
BANKARÁÐ Landsbankans hefur
samþykkt nýtt skipurit fyrir bank-
ann, sem þegar hefur tekið gildi.
Nýja skipulagið felur í sér að starf-
semi bankans er skipt í þrjú afmörk-
uð tekjusvið, en þrjú stoðsvið veita
þjónustu þvert á tekjusviðin. Þá hef-
ur svæðum bankans verið fækkað úr
níu í sex í nýja skipuritinu.
Tekjusviðin þrjú skiptast í fjárfest-
ingabanka, viðskiptabanka og LB-
verðbréf, en stoðsviðin skiptast í upp-
lýsingasvið, fjárhags- og rekstrarsvið
og stai’fsþróunar- og fræðslusvið.
The Heritable and General Invest-
ment Bank, sem Landsbankinn eign-
aðist nýverið meirihluta í, færist nú í
skipurit bankans og mun tilheyra
LB-verðbréfum.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að nýja
skipuritið sé minniháttar aðlögun að
gildandi skipulagi bankans, sem tók
gildi 1. október í fyrra.
„Það hefur reynst vel og við erum í
rauninni að skerpa áherslurnar á
tekjusviðunum og færa Heritable-
bankann inn í skipui’itið. Það er þetta
tvennt sem við erum að gera. Það
þriðja sem skiptir auðvitað máli, sem
hluti af áframhaldandi hagræðingu
og umbótum í rekstri, er að fækka
svæðunum úr níu í sex. Þar með spar-
ast í yfirstjórnarkostnaði og jafnari
dreifing næst á milli svæða. Með
þessu gerist það líka að forstjóri Her-
itable, Martin H. Young, kemur inn í
yfirstjómarteymi hjá Landsbankan-
um, enda er ekki litið eingöngu á
hann sem bankastjóra heldur líka
sem þátttakanda í stefnumótun og
störfum samstæðunnar.“
Forstjóra
Storebrand
saaft upp
Ósló. Morgunbladið.
Nýherji hf. og IM ehf.
rifta samkomulagi
FORSTJÓRA norska trygginga- og
fjárfestingarfélagins Storebrand var
sagt upp í fyrradag. Norska fjár-
málaeftirlitið, Kredittilsynet, til-
kynnti í fyrradag að Áge Korsvold
hefði misnotað stöðu sína og gerst
sekur um ólögleg viðskipti með
hlutabréf í Storebrand.
Undanfarna daga hafa norskir
fjölmiðlar fjallað mikið um kaup
Korsvolds á kauprétti á hlutabréfum
í Storebrand af Steen & Strpm, sem
stjórnað er af vini Korsvolds, Stein
Erik Hagen, og einnig er áberandi í
norsku viðskiptalífi. Viðskiptin fóru
fram á árunum 1998-2000 og í ein-
hverjum tilvikum á verði langt undir
markaðsverði.
Viðskipti af þessu tagi eru bönnuð
samkvæmt norskum verðbréfavið-
skiptalögum, að því er fram kemur í
niðurstöðu fjármálaeftiriitsins. Eftir
að málið komst í fjölmiðla drógu fé-
lagarnir nýjustu viðskiptin til baka.
Stjóm Storebrand lýsti fullum
stuðningi við Korsvold á þriðjudag
og sagði hann ekki hafa gerst brot-
legan við lög áður en fréttist af
ákvörðun fjármálaeftirlitsins. Á
fundi sínum í fyrradag ákvað stjóm-
in hins vegar að láta Korsvold hætta
störfum þar sem það væri mikilvægt
til að endurvinna traust viðskipta-
vina og starfsmanna. Nú heyrast
raddir um að stjómarformaðurinn,
Jon R. Gundersen, skuli segja af sér
þar sem rangt hafi verið af honum að
lýsa stuðningi við Korsvold fyrir til-
kynningu fjármálaeftirlitsins.
Korsvold tók nýlega sæti sem
stjórnarformaður Orkla, annars
norsks stórfyrirtækis, og átti hlut-
verk hans þar að vera að lægja öld-
urnar vegna meintra ólöglegra við-
skipta innan þess fyrirtækis. Ekki er
ljóst hver framtíð Korsvolds innan
Orkla verður.
Korsvold er hæfur til að þiggja
biðlaun og nema þau 7 milljónum
norskra króna, að því er Aftenposten
greinir frá. Upphæðin samsvarar 63
milljónum íslenskra króna. Að auki
samsvara lífeyrisréttindi hans a.m.k.
135 milljónum íslenskra króna.
Greint er frá því í norskum fjölmiðl-
um að Storebrand gefi Korsvold
einnig verulegan afslátt af einbýlis-
húsi með öllum innanstokksmunum.
Korsvold hefur stýrt Storebrand í
6 ár en þar starfa um 1.300 manns.
Hann er talinn hafa staðið sig vel að
mörgu leyti en hefur m.a. hlotið
gagnrýni fyrir að veita sambýlis-
konu sinni stöðuhækkun innan fyrir-
tækisins án þess að stjórninni væri
greint frá því. Einkaviðskipti Kors-
volds með hlutabréf hafa einnig ver-
ið gagnrýnd en viðskiptin við Hagen
eru aðeins hluti af þeim.
Idar Kreutzer fjármálastjóri fyr-
irtækisins hefur tekið tímabundið
við forstjórastarfinu af Korsvold en
ekki er ljóst hver tekur við starfinu
til frambúðar.
NÝHERJI hf. og Information Man-
agement ehf. (IM) hafa ákveðið að
rifta samkomulagi því sem fólst í
viljayfirlýsingu aðilanna og undirrit-
að var 1. september síðastliðinn.
Samkomulagið var um kaup Nýherja
á 63% hlut í IM og sameiningu hóp-
vinnulausnadeildar Nýherja við IM.
Leitum áfram að
framtaksfjárfestum
Ragnar Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri IM, segir að ákveðið hafi verið
að gera hlé á viðræðum um sam-
komulagið þar sem menn hafi ekki
verið sammála um öll atriði. Hann
segir að ágreiningurinn á milli
GENGI hlutabréfa í netfyrirtækinu
Letsbuyit hefur lækkað um 34% frá
því bréf fyrirtækisins voru skráð á
Neuer Markt hlutabréfamarkaðinn í
Þýskalandi, að því er fram kemur á
sænska viðskiptavefnum e24. Hópur
íslenskra fjárfesta á hlut í Letsbuyit.
Útboðsgengi hlutabréfanna var
ákveðið 3,5 evrur á hlut eftir tölu-
verðan tíma en gengið er nú um 2,3.
Á fyrsta viðskiptadegi í júlí fór geng-
ið upp í 6,5 og nemur lækkunin frá
því hámarki um 65% eða um 26 mil-
Nýherja og IM sé ekki stór en þó sé
áherslumunur varðandi nokkur at-
riði þó samkomulag hafi náðst um
flest. „IM hefur byggt upp mikla
þekkingu á ákveðnum sviðum varð-
andi upplýsingastjórnun, sem tengist
bæði Outlook Exchange umhverfinu
og vef- og gagnagnmnstengslum en
þessir þættir verða stórir og eftir-
sóknarverðir í framtíðinni. Við mun-
um því halda áfram að leita að fram-
taksfjárfestum sem geta auk
fjármagns gefið fyrirtækinu mögu-
leika á auknum tengslum erlendis."
Ragnar segir hugsanlegt að við-
ræður milli Nýherja og IM verði
teknar upp að nýju innan nokkurra
ljörðum íslenskra króna að markað-
svirði.
í desember og febrúar sl. var
starfsmönnum gefinn kostur á að
fjárfesta í fyrirtækinu á verðinu 3,45
evrur á hlut. Starfsmennirnir
keyptu fyrir sem samsvarar yfir 750
milljónum íslenskra króna en hluta-
bréfin eru núna um 500 milljóna
króna virði. Samkvæmt heimildum
e24 voru viðskipti starfsmanna í
mörgum tilfellum fjármögnuð með
lánum.
vikna. Þá muni fyrirtækin eiga ýmis
tækifæri til samstarfs og muni áfram
vinna saman á þeim grundvelli.
Ekki strandaði á
einu frekar en óðru
Bjarki A. Brynjarsson, fram-
kvæmdastjóri nýsköpunarsviðs Ný-
herja, segir að viðræður milli Ný-
herja og IM hafi ekki strandað á einu
frekar en öðru. Við því megi ávallt
búast, þegar gengið sé frá viljayfir-
lýsingu um samstarf milli fyrirtækja,
að ekki náist saman í samningaferl-
inu sem við taki. Möguleiki sé þó að
áframhald verði á samstarfi Nýherja
oglM.
Samningur
um sam-
bankalán
FULLTRÚAR Frjálsa fjárfesting-
arbankans hf. undirrituðu á dögun-
um 20 milljón dollara sambankaláns-
samning sem Íslandsbanki-FBA og
LB Kiel í Kaupmannahöfn höfðu
umsjón með. Undirritunin fór fram í
Kaupmannahöfn. Auk Islands-
banka-FBA og LB Kiel, sem eru um-
sjónaraðilar lánsins, komu þýsku
bankarnir Hamburgische Landes-
bank og Landesbank Saar að lán-
veitingunni. Lánið er til þriggja ára
en Frjálsi fjárfestingarbankinn hef-
ur rétt til að framlengja lánstímann.
Letsbuyit
lækkar stöðugt
Ósló. Morgunblaðið.