Morgunblaðið - 06.10.2000, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Listaklúbbur
Leikhúskjallarans
Didgeridoo
Leikverkið Hátíð morð-
ingjanna frumsýnt
O g
elektróník
DAGSKRÁ Listaklúbbs Leikhús-
kjallarans mánudaginn 9. október
verður helguð hinu forna ástralska
frumbyggjahljóðfæri Didgeridoo
eða Yidaki. Yfir fjörutíu nöfn eru til
yfir þetta hljóðfæri en þessi tvö eru
þekktust. Didgeridoo var notað í lok-
uðum, kynjaskiptum athöfnum þeg-
ar sagðar voru sögur af forfeðrunum
í formi söngljóðs (manikay) og til að
herma eftir hljóðum úr náttúrunni í
þeim tilgangi að viðhalda andlegu og
líkamlegu jafnvægi.
Didgeridoo er langt rör búið til úr
greinum Eucalyptus-trjáa. Eucal-
yptusinn er holaður út af termítum
sem éta sig í gegnum miðju trésins
og gera sér bú neðst í því. Hljóðfærið
er búið til með því að hreinsa út
termítana og fjarlægja ytri börkinn.
Rönd af býflugnavaxi er síðan sett á
brún annars endans sem munn-
stykki.
Buzby Birchall frá Skotlandi, sem
nam þessa fomu tækni í Ástralíu,
leikur á Didgeridoo og fræðir gesti
um list frumbyggjanna. Einnig
verða spilaðar upptökur með frum-
byggjasöng við undirleik Yidaki.
Buzby hefur spilað og kennt víða um
heim og heldur nú námskeið á veg-
um Ki-amhússins. I Leikhúskjall-
aranum á mánudagskvöldið fær
hann til liðs við sigraftónlistarmann-
inn Darra og munu þeir blanda sam-
an nútíð og fortíð, elektróník og yid-
aki.
Húsið verður opnað kl. 19:30 og
hefst dagskráin kl. 20:30. Allir vel-
komnir!
LEIKVERKIÐ Hátíð morðingj-
anna verður frumsýnt í kvöld,
föstudaginn 6. október, í Leikhús-
inu Ægisgötu 7, Reykjavík, í upp-
setningu Leikskólans.
Hátíð morðingjanna er samheiti
yfir tvö verk franska skáldsins Jean
Genet sem Leikskólinn hefur valið
til uppfærslu þetta leikárið. Verkin
tvö eru Vinnukonurnar og NáVígi,
fyrsta leikrit skáldsins. Vinnukon-
urnar eru mörgum kunnar sökum
vinsælda þeirra, dýptar og dillandi
kímni en NáVígi (Haute Surveill-
ance) hefur ekki verið sett upp hér á
Islandi áður og er ekki síðra hvað
viðkemur þétt ofnum sagnavef og
fáránleika, segir í fréttatilkynn-
ingu. Það var leikhópurinn í sam-
vinnu við leikstjórann sem þýddi.
Hátíð morðingjanna fléttar sam-
an leikritunum tveimur og niður-
staðan er leikhús fáránleikans, leik-
húsið sem J. Genet er brenni-
merktur. Þetta er dramatísk saga
fanga, bæði frjálsra og þeirra sem
lokaðir eru inni, því allir eiga víst
sína fangelsismúra. Fylgst er með
þeim í vonlausri baráttu fyrir frels-
inu, upplifun þeirra á ástinni, dauð-
anum og vináttunni. Átök sem að-
eins geta endað á einn veg. Það er
spennandi að fá að fylgjast með því
sem mannskepnan tekur upp á þeg-
ar örvæntingin er öllu öðru sterkari
og alvaran jafnt sem gleðin nær
hámarki, segir ennfremur.
Leikskólinn er félag ungra
áhugaleikara sem stofnað var árið
1997 og hefur unnið síðan við ýmis
verkefni. Hópurinn samanstendur
nú af fimm leikurum: Önnu Svövu
Knútsdóttur, Bjartmari Þórðar-
syni, Arnari Steini Þorsteinssyni,
Ragnari Hanssyni og Sverri Sverr-
issyni. Aðrir aðstandendur eru
Stefán Hallur Stefánsson, sem sér
um ljós, Björn Snorri Rosdahl sér
um hljóðmynd, Marta Luiza
Macuga hannar búninga og leik-
mynd, aðstoðarleikstjóri er Kol-
brún Ósk Skaptadóttir og leikstjóri
er Agnar Jón Egilsson.
Sýningar hefjast í kvöld, föstu-
dagskvöldið 6. október, og munu
standa yfir í u.þ.b. mánuð. Miðaverð
er 1.000 kr. Sýningar hefjast kl. 20.
Námskeið fyrir umsækjendur um
atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs
á vegum umsjónarnefndar fólksbif-
reiða á höfuðborgarsvæðinu.
Námskeið fyrir verðandi atvinnuleyfishafa verða haldin á
næstunni á vegum umsjónarnefndar fólksbifreiða á höf-
uðborgarsvæðinu. Námskeiðin verða tvö ef þátttaka leyfir
og haldin annars vegar frá 24. október til 9. nóvember og
hins vegar frá 14. nóvember til 30. nóvember nk. Nám-
skeiðin standa í þrisvar sinnum þrjá daga hvort og verður
kennt frá þriðjudegi til fimmtudags í viku hverri. Tuttugu
bílstjórar fá inngöngu á hvort námskeið. Að meginstefnu
verður miðað við að þeir taki sæti á námskeiðunum sem
lengstan aksturstíma hafa á leigubifreiðum sem launþegar.
Námskeiðin verða haldin af Ökuskólanum í Mjódd í Þara-
bakka 3. Kenndar verða eftirfarandi greinar: Bókhald, þjón-
usta, þjónusta við fatlaða, lög og eftirlit, vinnuvernd,
ferðaþjónusta, löggæslumál, skyndihjálp og reglur ESB,
þær sem tengjast greininni. Með nánara kennslufyrirkomu-
lag og námsefni er vísað til Ökuskólans í Mjódd. Nám-
skeiðsgjald er kr. 30.000 á hvern þátttakanda.
Hér með er auglýst eftir umsóknum á námskeiðin og skal
þeim skilað í afgreiðslu Ökuskólans í Mjódd á sérstökum
eyðublöðum sem þar fást. Umsóknir þurfa að hafa borist í
síðasta lagi þann 15. október nk. kl. 15:00.
Með umsóknum skulu fylgja eftirtalin gögn:
• Staðfest Ijósrit af fram- og bakhlið ökuskírteinis.
• Sakavottorð.
• Búforræðisvottorð.
• Vottorð um afgreiðsluleyfi hjá viðurkenndri bifreiðastöð.
• Heilbrigðisvottorð frá trúnaðarlækni umsjónarnefndar.
• Vottorð um að hafa stundað leiguakstur a.m.k. í eitt ár.
• Staðfesting viðskiptabanka um að hann treysti undirrit-
uðum/aðri til að stunda atvinnurekstur.
Nánari upplýsingar um námskeiðið og þau réttindi
sem það veitir eru birtar á öllum bifreiðastöðvum
á starfssvæði nefndarinnar.
Smákrimminn
og strákurinn
KVIKMYNDIR
Háskólabfó
KIKUJIRO (KIKUJIRO
NO NATSU) ★★V2
Leikstjóri Takeshi Kitano. Hand-
ritshöfundur Takeshi Kitano. Aðal-
leikendur Takeshi Kitano, Yusuke
Sekiguchi, Kayoko Kishimoto. Jap-
an. Árgerð 1999.
SUMARFRÍIÐ í skolanum boðar
aðeins leiðindi fyrir Masao litla
(Yusuke Sekiguchi). Leikfélagamir
famir á ströndina með foreldrum sín-
um, göturnar auðar. Stendur einn
uppi í lífsbaráttunni ásamt ömmu
sinni, sem lítinn tíma hefur aflögu fyr-
ir hann frá brauðstritinu. Foreldra
sína hefur Masao litli aldrei séð, held-
ur því út í heiminn með mynd af henni
í farangrinum. í slagtogi með strákn-
um er Kikujiro (Takeshi Kitano),
furðufugl og smákrimmi, í eilífum úti-
stöðum við umhverfi sitt og síblank-
ur. Þeir hafa ýmigust hvor á öðram til
að byrja með, á langri leið finna þeir
gagnkvæma vináttu.
Leikstjórinn, handritshöfundurinn
og aðalleikarinn, „Beat“ Takeshi Kit-
ano, er álitinn einn fremsti kvik-
myndagerðarmaður Japana samtím-
ans. Frægui- fyrir afar ofbeldisfullar
myndir, sem m.a. hafa haft áhrif á
vestræna leikstjóra á borð við Quent-
in Tarantino. Hér situr hann á strák
KVIKMYjVDIR
Regnboginn
FRÖKEN JÚLÍA (MISS
JULIE) ★★
Leikstjóri Mike Figgis. Hand-
ritshöfundur Helen Cooper, byggt
á samnefndu leikriti e. August
Strindberg. Aðalleikendur Saffron
Burrows, Peter Mullan, Maria
Doyle Kennedy. Bandaríkin.
Árgerð 1999.
FRÆGASTA leikhúsverk Strind-
bergs er ekki vel fallið til kvikmynda-
gerðar og leikstjóranum Mike Figgis
tekst ekki að losa það úr viðjum fjal-
anna, nýta möguleika kvikmyndar-
innar. Gerist á einni örlaganóttu er
Júlía (Saffron Burrows), glæsileg,
dóttir sænsks aðalsmanns, hættir sér
út fyrir sín siðferðilegu mörk í ýms-
um skilningi; blandar geði við hjúin er
KVÍKÍVÍYNDÁHÁTÍÐ í"rEYKJAVÍK
Óróanótt
þau skemmta sér í ljósárafjarlægð frá
hennar aristókratíska umhverfi -
þótt allt sé undir sama þaki.
Frökem Júlía daðrar við Jean (Pet-
er Mullan), herbergisþjón föður síns,
það dregur dilk á eftir sér. Jean, sem
er trúlofaður eldabuskunni Kristínu
(Maria Doyle Kennedy), er kaldrifj-
aður og hatursfullur. Með ískyggi-
legar áætlanir á prjónunum þar sem
Fröken Júlía, sem hann hefur lengi
þráð á laun, verður leiksoppur.
Áhorfandanum er, einsog fyrr seg-
ir, boðið upp á leikhúsferð í kvik-
myndahúsi sem er jafnan nokkuð
hvimleið upplifun. A.m.k. í saman-
burði við myndir á borð við Long
Daýs Journey Into Night (’62), þar
sem maður fann aldrei fyrir nærveru
leikhússins þótt bæði verkin gerist
nánast öll á einu sviði. Figgis, sem hér
Kirkjukór
Grensás-
kirkju í tón-
leikaferð
KIRKJUKÓR Grensáskirkju í
Reykjavík heldur í tónleikaferð til
Stykkishólms sunnudaginn 8. októ-
ber. Sungið verður við messu kl. 14 í
Stykkishólmskirkju ásamt kirkjukór
kirkjunnar.
Kirkjukór Grensáskirkju heldur
síðan tónleika í kirkjunni kl. 17 og
flytur þar metnaðarfulla söngdag-
skrá. Organisti og kórstjórnandi er
Ami Arinbjarnarson.
Allir eru velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
FOSTUDAGUR
Bíóborgin
Kl. 15.50 The Loss of Sexual
Innocence, Buena Vista Social
Club
Kl. 17.50 The Straight Story
Kl. 17.55 The Loss of Sexual
Innocence
Kl. 20 The Loss of Sexual Inn-
ocence, Buena Vista Social Club
Kl. 22 The Straight Story
Kl. 22.05 Happy Together
Háskólabíó
Kl. 18 Une Liaison porno-
graphique, Man is not a Bird
Kl. 20 Une Liaison porno-
gi-aphique, Tuvalu
Kl. 22.00 Une Liaison porno-
graphique
Regnboginn
Kl. 16 Onegin, Condo Paint-
ing, Cosy dens
Kl. 18 Crouching Tiger, Hidd-
en Dragon, Felicia’s Journey
Kl. 22 Ride with the Devil,
Princess Mononoke
Laugarásbíó
KI. 20 Legend of 1900
Kl. 22.10 Legend of 1900
sínum, enda myndin af öðrum toga en
fyrri verk hans. Af og til springur þó
söguþráðurinn upp í ofbeldisfull at-
riði, þau eru stutt en áhrifarík og jafn-
an í bakgrunni. Kitano gerir hinum
óvenjulega félagsskap góð skil. Sagan
er frumleg og nýstárleg í hæsta máta.
Af og til er þessi blanda smáglæpa og
bernskubrellna skemmtileg og
áhugaverð. Leikstjóranum lætur
býsna vel að brydda á ofsanum, en
höndlar engu síður fínni tóna mynd-
arinnar, er t.d. undurmjúkur er hann
finnur móður drengsins. Sem leikari
hefur Kitano fjölmörg blæbrigði uppi
í erminni. Fyndinn og hai'ður, líkt og
myndin hans. Yusuke litli er hálf-
dauðyflislegur við hliðina á honum,
e.t.v. er það ætlunin.
Sæbjörn Valdimarsson
reynir sig á svipuðum slóðum og hann
var fyrir hliðarskrefið Leaving Ls
Vegas, er enginn Lumet. Hann er tví-
mælalaust góður stjórnandi leikara,
einsog kom best fram í fyrrgreindri
mynd, hér nær hann tökum á þeim
báðum, Burrows og Mullen, með mis-
jafnri útkomu. Burrows er há og tign-
arleg, hentar líkamlega vel í hlutverk
hins flókna og undirokaða femínista,
en fer illa með textann og er ósann-
færandi í túlkun sinni á örvænting-
unni og uppgjöfinni í lokin. Mullan
tekst betur upp, öfundin, hatrið og
sárindin yfir hlutskiptinu í lífinu, er
augljós og raddbeitingin styi-k.
Þegar upp er staðið stendur lítið
eftir. Figgis tók fyrir hliðstætt efni í
títtnefndri Leaving Las Vegas, og
gerði það miklu betur. Sjálfseyðing-
arhvötin, stéttaþjóðfélagið og sjálfs-
fyrirlitningin fékk þar maklega með-
höndlun.
Sæbjörn Valdimarsson