Morgunblaðið - 06.10.2000, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Dominique Ambroise við eitt verka sinna.
Helgi sýnir
í Listhúsinu
í Laugardal
MÁLVERKASÝNING Helga
Hálfdánarsonar hefur verið opnuð í
Galleríi í Listhúsinu í Laugardal
og stendur til 5. nóvember.
Myndlistarmaðurinn Helgi Hálf-
dánarson er fæddur árið 1949.
Hann stundaði nám í olíumálun í
Myndlistarskóla Reykjavíkur ’84-
’87 og var á ýmsum námskeiðum
þar, í Myndlista- og handíðaskólan-
um og í T.H. Aachen í Þýskalandi.
Helgi fór markvisst af stað með ol-
íumálunina fyrir tveimur árum og
er þetta fjórða sýning hans á þeim
tíma. Helgi er einnig verkfræðing-
ur og vinnur við forritun hjá HÍ.
Gallerí í Listhúsi í Laugardal er
opið alla daga frá 9-19. Lokað á
sunnudögum.
Ljóðatónleik-
ar í Hvera-
gerðiskirkju
BJÖRG Þórhallsdóttir sópransöng-
kona og Þórhildur Björnsdóttir
píanóleikari halda tónleika í Hvera-
gerðiskirkju fostudaginn 6. október
kl. 20.
Á efnisskránni eru sönglög eftir
Haydn, Schubert, Strauss, Fauré og
Britten við ljóð eftir Shakespeare,
Goethe, Victor Hugo, W.H. Áuden
o.fl. Aðgangseyrir er 1.000 kr. en
nemendur Tónlistarskólans og elli-
lífeyrisþegar fá ókeypis aðgang.
Sýnir olíu-
málverk í
Galleríi Fold
DOMINIQUE Ambroise opnar
laugardaginn 7. október kl. 15
sýningu á olíumálverkum í
Baksalnum í Galleríi Fold, Rauð-
arárstíg 14. Sýninguna nefnir
listakonan Tilveruland.
Dominique Ambroise fæddist í
Frakklandi árið 1951. Hún hefur
staðgóða myndlistarmenntun, er
með mastersgráðu í myndlist frá
York University í Kanada en áð-
ur stundaði hún nám við Uni-
versité de Censier í Paris, Uni-
versité d’Aix Marseilles og
Université de Moncton í Kanada.
Dominique Ambroise hefur áð-
ur haldið ellefu einkasýningar, en
þetta er þriðja einkasýning henn-
ar hér á landi. Hún hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga í Kan-
ada, Evrópu og Asíu. Dominique
Ambroise er búsett hér á landi.
Gallerf Fold er opið daglega
frá kl. 10 til 18, laugardaga frá
kl. 10 til 17 og sunnudaga frá kl.
14 til 17.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
22. október.
---------------
Síðasta
sýningarhelgi
SÝNINGU Þórðar Hall á málverk-
um, sem stendur yllr í Listasafni
Kópavogs, lýkur sunnudaginn 8.
október. Sýningin er opin daglega
frákl. 11-17.
www.naten.is • ATH: Kynning í Ápóteki Kefíavikur'
NATEN - fæðubótarefnið sem fólk talar um ! 1
„Kílóin af án
fyrirhafnar"
„Þegar ég byrjaði að taka NATEN
léttist ég um 12 kíló á einu ári án
nokkurrar fyrirhafnar! Ég hef meira
úthald og meiri orku og langur
vinnudagur minn er núna miklu léttari.
NATEN 1-2*3 léttir líf mitt og ég er
öll hressari"
Anna Þóra Pálsdóttir
Verslunarmaöur
K
tæst i apótekum og sérverslunum um larnJ allt!
Heldur þú að
rj vítamín séu nóg?
Z Kynning oy kynningaralslátlur _ .
í Apóteki Kellavikur í dag !\I/Vf LiNI
Kynning og kynningarafsláttur
f Apóteki Keflavikur í dag
frá kl 14 - 17.
Flogið og brotlent
Morgunblaðið/Arni Sæberg
„Vala Þórsdóttir nálgast þetta efni á dirfsku-
fullan og persónuiegan hátt,“ segir í dómnum.
LEIKLIST
Kaffileikhúsið/
The Icelandic
Take Away Theatre
HÁALOFT
Höfundur: Vala Þórsdóttir. Leik-
syóri: Ágústa Skúladóttir. Leikari:
Vala Þórsdóttir. Leikmynd og bún-
ingar: Rannveig Gylfadóttir. Tún-
list: Pétur Hallgrímsson. Hönnun
lýsingar: Jóhann Bjarni Pálmason.
Tæknimaður: Koibrún Ósk Skafta-
dóttir. Hljóðfæraleikur af bandi:
Pétur Hallgrímsson, Dean Ferell
og Úlfur Eldjárn. Kaffileikhúsið,
miðvikudaginn 4. október.
HÁALOFT geymir gersemar,
kóngulóarvefi, gamla muni, kistur
fullar af minningum og ævintýrum,
ryk og sérkennilega lykt, myrkur og
ljósglætu frá þakglugga sem vísar
upp í himininn. Allt fer í háaloft
endrum og sinnum og hjá sumum
oftar en öðrum, þar til brotlent er
niðri í kjallara."
Þannig hljómar brot af skemmti-
legum texta sem prentaður er aftan
á kort sem gefið er út í tilefni af sýn-
ingunni á einleik Völu Þórsdóttur
sem ber titilinn Háaloft, og undir-
titilinn: - geðveikur, svartur gaman-
leikur. Háaloft er saga ungrar konu
með geðhvörf, sjúkdóm sem ein-
kennist af geðsveiflum þar sem hug-
urinn sveiflast allt frá dýpsta þung-
lyndi til hæstu hæða oflætis eða
„maníu“. Titillinn er afar vel til fund-
inn og skírskotar út fyrir sig í ýmsar
áttir; minnir mann til dæmis á
„brjáluðu konuna á háaloftinu" í
frægri skáldsögu bresku skáldkon-
unnar Charlotte Bronte.
Vala nálgast þetta efni á dirfsku-
fullan og persónulegan hátt, vísar til
reynslu vina sinna og vandamanna
og hefur lagst í mikla rannsóknar-
vinnu og sjálfsskoðun í tilraun sinni
til að koma flóknum efnivið til skila á
leikrænan hátt. En þótt vandasamt
sé að ná utan um efni eins og þetta er
það einnig gjöfult því háttalag þeirra
sem þjást af geðhvörfum er oft á tíð-
um „leikrænt“ og býður upp á tilþrif
og leiktúlkun sem spannar óvenju
breiðan skala mannlegra tilfinninga
og tjáningar.
Vala velur að láta hið kómíska og
hið tragíska vega salt í verki sínu, þó
er áherslan heldur meiri á oflætið en
þunglyndið; við sjáum persónuna,
Karítas, meira þegar hún er „uppi“
en þegar hún hefur „brotlent". En
þótt dvalið sé meira „uppi á háalofti"
en niðri í kjallara eru oflætis-atriðin
fleyguð öðru hverju með stuttum,
dempuðum en áhrifaríkum atriðum
þar sem örvæntingin ríkir. Vala túlk-
ar af öryggi og innsæi allar hliðar
geðhvarfanna og er sannfærandi á
gleðistundum jafnt sem þegar
myrkrið tekur völdin. Texti Völu er
vel skrifaður og hnitmiðaður, hvergi
óþarfa málalengingar.
Eins og í Englum alheimsins, eftir
Einar Má Guð-
mundsson, er Vala
einnig að kanna mörk
heilbrigðrar og
sjúkrar hegðunar;
hinir „heilbrigðu“
hegða sér oft á tíðum
undarlega og hinum
sjúku leyfist varla að
sýna eðlilega gleði og
kátínu án þess að þeir
séu sakaðir um að
vera „uppi“. Tekið er
á fordómum samfé-
lagsins og árekstrum
hinna veiku við óbil-
gjarnt skrifræði op-
inberra stofnana.
I heild er hér um
áhrifaríka sýningu að
ræða og aðstandend-
um sínum til sóma.
Leikmynd Rannveig-
ar Gylfadóttur fellur
vel inn í rými Kaffi-
leikhússins og bún-
ingar hennar eru
skemmtilegir og hug-
að að hverju smáat-
riði, eins og skóm og
skartgripum. Ljósa-
hönnun Jóhanns
Bjarna Pálmasonar
tekur mið af efni-
viðnum og birtustigið
sveiflast í takt við
persónuna. Tónlist
Péturs Hallgríms-
sonar eykur vídd við
verkið og styður það vel. Ágústa
Skúladóttir leikstjóri hefur alla
þræði í hendi sér og fléttar þá fag-
mannlega saman. Tæknimaður og
sýningarstjóri var Kolbrún Ósk
Skaftadóttir og brást henni hvergi
bogalistin.
Háaloft er þriðji einleikurinn sem
sýndur er í Kaffileikhúsinu á þessu
leikári. Þetta er leikform sem gerir
miklar kröfur til leikarans og er þeg-
ar best tekst til afar áhugavert fyrir
áhorfandann sem fær að lifa sig inn í
allar víddir og öll blæbrigði í túlkun
eins leikara. Hérna haldast allir
þættir í hendur til að gera upplifun
áhorfandans sterka og áhrifamikla:
Áleitið efni, vel skrifaður texti, góður
leikur og vönduð umgjörð.
Soffía Auður Birgisdóttir
Tvö dans-
verk sýnd í
Tjarnarbíoi
í TENGSLUM við IETM-
listaþingið, sem stendur fyrir
International Europian Theat-
er Meating, verður haldið dans-
kvöld í Tjarnarbíói í kvöld kl.
21.
Sýnd verða tvö dansverk; Sil-
ent Whisper eftir Nadiu Ban-
ine, Excess Baggage eftir Pet-
er Anderson og stuttmyndin
Örsögur í Reykjavík sem vakið
hefur verðskuldaða athygli
víðsvegar í Evrópu eftir þær
Sveinbjörgu Þórhallsdóttur,
Rögnu Söru Jónsdóttur og
Margréti Söru Guðjónsdóttur.
Stuttmyndin er á dagskrá
Reykjavíkur - menningarborg-
ar 2000.
Síðasta
sýningarhelgi
SÝNINGU Kristínar Pálmadóttur á
ljósmyndaætingum í sal félagsins ís-
lensk grafík, Hafnarhúsinu (hafnar-
megin), lýkur sunnudaginn 8. októ-
ber.
^mb l.i is
ALLTA/= TITTM\TA£> /VÝT7
Lauflétt
MYJVPLIST
Gallerf Reykjavfk,
Skólavörðustfg
OLÍUPASTEL ÓLÖF
BIRNABLÖNDAL
Til 10. október. Opið virka daga frá
kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-16
og sunnudaga frá kl. 14-17.
EKKI verður beinlínis sagt að ol-
íupastelmyndir af þeim toga sem
Ólöf Birna Blöndal málar séu tíma-
mótaverk. Raunar eru þær afar
hefðbundnar, nánast eins og skóla-
bókarlist. Með alla sína skólagöngu
ætti hún að vera mun sjóaðri í fræð-
unum og leyfa sér mun persónulegri
og frjálsari efnistök. En þá er hins að
gæta að þessar pastelmyndir eru
nægilega hógværar til að falla öllum
í geð, enda erfitt að klúðra myndefn-
inu. Þvi má vera að listakonan hitti í
mark með þessum myndum sínum.
Margir kjósa einmitt hlutlausa og
lágværa list upp á veggi hjá sér.
Ólöf fer víða til að leita sér fanga.
Frá Héraði heldur hún til Suður-
lands og þaðan í Húnavatnssýslu og
Mývatnssveit. Segja má að allt land-
ið verði henni hvati til myndgerðar.
Hins vegar er helsti lítill munur á
myndefninu eftir því hvar hún er
stödd og því nýtur fjölbreytni lands-
ins sín ekki sem skyldi. Með meiri
átökum og sterkari meiningum
mundi Ólöf eflaust uppskera dýpri
túlkun og innihaldsríkara yfirbragð,
og með því mun persónulegri mynd-
list. En þá ber þess að gæta að vin-
landslag
v■'y i .
' •; ;
I
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Myndir á sýningu Ólafar Birnu
Blöndai í Galleríi Reykjavík.
sældir haldast sjaldnast í hendur við
djúpa, persónulega listsköpun.
Á þri hafa flestir snillingar sög-
unnar fengið að smakka, hvort sem
þeir hétu Rembrandt eða Mozart.
Því verður Ólöf Birna að gera upp
við sig í hvora leiðina hún vill stefna
myndlist sinni, hina persónulegu eða
vinsælu.
Halldór Björn Runólfsson