Morgunblaðið - 06.10.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 43
H
bjartsýn. Hún taldi oftar en ekki
kjarkinn í okkur þegar við stóðum á
tímamótum og lagði hönd á plóg við
eitt og annað og í þeim efnum vílaði
hún ekkert fyrir sér.
Hún var kona sem dæmdi ekki
fólk við fyrstu kynni, hún trúði á það
góða í náunganum og var alltaf til
taks fyrir aðra. Hún mátti ekkert
aumt sjá.
Þannig lagði hún sitt af mörkum
við ýmis góðgerðarstörf og aðstoðaði
á margan hátt þá sem minna máttu
sín.
Hún lærði snemma í lífinu að vera
sjálfstæð og ég held að hún hafi ver-
ið okkur stelpunum góð fyrirmynd í
þeim efnum og við lært mikið af því
að þekkja hana.
Amma var mjög óeigingjörn kona
og ég held að við stöndum öll sem
eitt í þakkarskuld við hana. Hún hef-
ur haft mikil áhrif á líf okkar allra og
reynst okkur traustur vinur á gleði-
og sorgarstundum.
Hún kenndi okkur að gefast ekki
upp og vera bjartsýn innan hóflegra
skynsemismarka ásamt því að nota
hugmyndaflugið. Hún kenndi okkur
líka margt annað, t.a.m. að þekkja
fjöll og fugla, hlusta á óperutónlist
og að búa til balletta svo fátt eitt sé
nefnt.
Það rifjast upp margar stundir
með ömmu á þessum tímamótum og
ylja þær manni um hjartarætur því
svo oft var amma að gera eitthvað
íyrir okkur þótt auðvitað rifjist líka
upp stundir þar sem vinnugleðin réð
ríkjum og við hjálpuðumst að við að
koma einhverju í framkvæmd á
hverjum tíma fyrir sig.
Amma var heldur engin venjuleg
amma, að minnsta kosti áttu ekki
margir svona ömmur sem keyrðu
snjósleða upp um fjöll og firnindi og
fóru með heilan skóla á skauta á
Þingvallavatni. Það var einhvern
veginn ekkert mál að koma hlutun-
um í framkvæmd með ömmu, það
var bara að gera hlutina svona eða
hinsegin og þá var þetta komið! Ég
var svo lánsöm að kynnast ömmu ná-
ið þegar ég var orðin fullorðin. Við
bjuggum saman um tíma eftir að ég
fluttist heim að námi loknu erlendis.
Ég gat ekki annað en dáðst að krafti
hennar og elju. Við áttum góðar
stundir í eldhúsinu og ræddum
heima og geima yfír tebolla og oft
skoðuðum við saman myndirnar
hennar.
Síðustu ár hafa verið ömmu erfið
þar sem líkaminn hefur ekki hlýtt
huganum.
Viljastyrkurinn var svo mikill að
þrátt fyrir líkamlega vanheilsu lét
hún ekki deigan síga. Hún fylgdist
vel með þjóðfélagsmálum og var
með það á hreinu hvað hver
fjölskyldumeðlimur var að bedrífa
þá dagana. Amma var sannkallað
sameiningartákn fjölskyldunnar.
Það er stórt skarð höggvið í fjöl-
skylduna nú þegar amma hefur
kvatt þennan heim. En minningin
um góða konu lifir. Guð geymi hana.
Anna Sigríður
Símonardóttir Melsteð.
Hún amma mín var einstök kona,
sjálfstæð, ósérhlífin og hjálpsöm.
Lundin var létt og stutt í brosið,
jafnvel þegar á móti blés.
Ungri þótti mér gott að hafa hana
nálægt mér og forréttindi að hafa
fengið að kynnast henni og hennar
verkum. Af henni lærði ég að meta
hversdagslega hluti á annan og betri
hátt en flestir gera og mun ég njóta
þess alla tíð.
En hún var ekki bara amma mín.
Hún var einnig langamma barnanna
minna og mun minning hennar lifa í
hjörtum okkar.
Helga S. Melsteð.
• Fleirí minningargreinar
um Helgu Símonardtittur Melsteð
bíða birtingar ogmunu birtast (
blaðinu næstu daga.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR EINARSSON,
Greniteig 9,
Keflavfk,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mið-
vikudaginn 4. október.
Sigrún Guðjónsdóttir,
Guðjón Sigurðsson, Steinunn Njálsdóttir,
Bjarni Sigurðsson, Hansborg Þorkelsdóttir,
Sigurður Sigurðsson, Árný Þorsteinsdóttir,
Sveinbjörg Sigurðardóttir,Guðsveinn Ólafur Gestsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
EIRÍKUR TÓMASSON
áður bóndi í Miðdalskoti,
Torfholti 6,
Laugarvatni,
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugar-
daginn 6. október kl. 13.30.
Guðrún Karlsdóttir,
Margrét Eiríksdóttir, Einar G. Friðgeirsson,
Karl Eiríksson, Margrét S. Lárusdóttir,
Ósk Eiríksdóttir, Haraldur R. Haraldsson,
Eiríkur Rúnar Eiríksson, Helga H. Sturlaugsdóttir
og barnabörn.
+
Móðir mín og dóttir,
EDDA HRAFNHILDUR ÁRNADÓTTIR,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 23. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Kolbeinn Árnason,
Herborg Gestsdóttir.
+
Föðurbróðir minn og frændi okkar,
JÓHANNES STEINDÓRSSON
frá Munaðarnesi,
lést á Sjúkrahúsi Hólmavíkur fimmtudaginn 5. október.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Sigurgeir V. Sigurgeirsson,
Guðmundur Jónsson, Sólveig Jónsdóttir.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og vinar,
GUÐNA HELGASONAR
rafverktaka,
Hlyngerði 3,
Reykjavfk.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sigurlína Guðnadóttir,
Ástmundur Kristinn Guðnason,
Helgi Guðnason,
Stefán Kristinn Guðnason,
Kristín Guðnadóttir,
Auðbjörg Guðmundsdóttir
og barnabörn.
María Friðjónsdóttir,
Laurie Guðnason,
Sólveig Indriðadóttir,
Garðar Hilmarsson,
+
Ástkær sonur minn,
STEFÁN GUÐMUNDUR VIGFÚSSON,
Kópavogsbraut 5,
sem lést á heimili sfnu fimmtudaginn 28. sept-
ember, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
mánudaginn 9. október kl. 10.30.
Jóhanna Stefánsdóttir
frá Haga.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTINN PÁLSSON
útgerðarmaður
frá Þingholti,
Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum
miðvikudaginn 4. október.
Þóra Magnúsdóttir,
Magnús Kristinsson, Lóa Skarphéðinsdóttir,
Jóna Dóra Kristinsdóttir, Björgvin Þorsteinsson,
Bergur Páll Kristinsson, Hulda Karen Róbertsdóttir,
Birkir Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma,
ANDREA HELGADÓTTIR
frá Herríðarhóli,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
miðvikudaginn 20. september sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar
ósk.
Bjarni Pálmarsson, Guðbjörg Björnsdóttir,
Helgi Pálmarsson,
ísólfur Pálmarsson, Hrönn Hafliðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Guðný Hjartardóttir,
Sigríður Ágústsdóttir, Guðmundur Þ. Guðmundsson,
Kristinn Ágústsson, Guðfinna Þorgeirsdóttir,
Hallbjörn Ágústsson, EKn Helga Jóhannesdóttir,
Guðrún Ágústsdóttir, Jóel Friðriksson
og systkinabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og
afi,
MAGNÚS HELGASON
stjórnarformaður
í Málningarverksmiðjunni Hörpu,
Einimel 4,
Reykjavik,
lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn
5. október.
Katrín Sigurðardóttir,
Helgi Magnússon, Arna Einarsdóttir,
Sigurður Gylfi Magnússon, Bryndís íris Stefánsdóttir
og barnabörn.
Fjóla Sullivan og
aðstandendur.
+
Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og
frændi,
ÞÓRIR ÁGÚSTSSON
frá Blálandi,
Skagaströnd,
sem lést sunnudaginn 24. september, verður
jarðsunginn frá Hólaneskirkju á Skagaströnd
laugardaginn 7. október kl. 14.00.
lést á Landspítalanum Fossvogi sunnudaginn
24. september.
Jarðarför fór fram í kyrrþey miðvikudaginn
4. október.
+
Systir mín, frænka og mágkona,
SVAVA ARADÓTTIR,
Aflagranda 40,
Reykjavík,