Morgunblaðið - 06.10.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 5
UMRÆÐAN
Dauðinn í lífínu
NÚ þegar veturinn
er að hefjast enn á ný
og myrkrið að sækja á
er eðlilegt að við för-
um að leita meira inn á
við, leita birtunnar
innra með okkur sjálf-
um og í augum þeirra
sem eru okkur næstir.
Vetrardagur hefur
annan gang en sumar-
dagur og þennan tíma
sem haustið varir get-
ur verið ágætt að
staldra við og skoða
hvað við viljum gera
öðru vísi en síðastlið-
inn vetur og hvernig
okkur gengur að taka
á lífmu á þroskaðri hátt en áður.
Við viljum oft spóla dálítið í nýj-
um lífsháttum ef við erum þá á ann-
að borð opin fyrir því að vaxa með
hverri nýrri árstíð. Það getur verið
erfitt að trúa því að við getum sjálf
breytt einhverju og stundum viljum
við líka gleyma því hvað er raun-
verulega mikilvægt í lífinu.
Innri auður
Það er til mjög merkileg bók sem
heitir „Tíbetska bókin um lífið og
dauðann" (The tibetan book of liv-
ing and dying) eftir tíbetskan meist-
ara, Sogyal Rinpoche. Hann talar
um svo margt sem á erindi til okkar
allra og vakti mig til djúprar um-
hugsunar. Bókin er að hluta til leið-
sögn varðandi það hvernig við get-
um sem best verið til staðar fyrir
deyjandi manneskju.
A endanum er ekkert annað sem
við tökum með okkur yfir landa-
mæri lífs og dauða heldur en sá and-
legi auður sem við höfum ræktað
innra með okkur.
Þegar fólk stendur
frammi fyrir dauðanum
er það oft tilbúið að
fyrirgefa og sættast við
lífið, hjartað opnast og
verður umburðarlynd-
ara og hinn deyjandi
sér líf sitt í öðru ljósi en
áður. Þetta gerist enn
frekar ef einhver er til-
búinn að hlusta og
hvetja hann til að tala
um líðan sína og hugs-
anir. Ég býst við að
margir óski sér þess á
banabeðnum að hafa
Guðrún talað um þessa hluti
Arnalds fyrr, velt þeim fyrir sér
í þessu ljósi, gefið lífinu
meira tækifæri til að umvefja sig.
Litlu
dauðastundirnar
Við hin sem erum ekki komin al-
veg eins nálægt dauðanum og sá
sem liggur banaleguna erum alltaf
að upplifa dauðann í smækkaðri
mynd. Og við getum notað þessar
litlu dauðastundir til að búa okkur
undir þessa mikilvægu stund í lífi
okkar allra og til að lifa meira til
fulls. Breytingar, áföll, fæðing,
dauði annarrar manneskju, ungl-
ingsárin, erfiður dagur í vinnunni,
eiginmaður eða eiginkona sem ekki
skilur okkur, veikindi, líkamlegur
sársauki, sorgamðbrögð, þegar við
missum kjarkinn. Allt eru þetta
dæmi um stundir þar sem dauðinn
heimsækir okkur á vissan hátt.
Skammtímaflótti
- flóttaleiðirnar
Og viðbrögð okkar vilja oft verða
þau að afneita dauðanum eða leggja
á flótta - til dæmis með því að leita í
Skynjun
Líföndun er upplifun,
segir Guðrún Arnalds,
og færir okkur nærþví
að skynja landamæri lífs
og dauða.
eitthvað sem dreifir huganum;
skemmtanir, fíkniefni, kynlíf, annað
fólk, vera stöðugt að vinna, reyna að
bjarga vinum okkar eða einhverjum
úr fjölskyldunni sem kannski vill
ekkert láta bjarga sér, fara í ferða-
lag, jafnvel eignast fleiri börn. En
árangurinn af þessum flóttaleiðum
er oftast ekki annar en sá að þær
duga ekki nema í stuttan tíma, ef
þær gera það, og það sem tekur við
er kvíðahnútur í maganum sem við
getum ekki skilgreint eða einhver
önnur líkamleg vanlíðan sem getur
svo endað í veikindum, tilfinninga-
lægðum eða þunglyndi, einmana-
leika, aðskilnaðartilfinningu og jafn-
vel hugleiðingum um sjálfsmorð.
Að horfast í augu
við sannleikann
í stað þess að flýja þegar dauðinn
bankar upp á með þessum hætti og
fresta þannig óþægindunum og gera
þau að draugum sem við vitum síðan
ekkert hvaðan koma gætum við
reynt að horfast í augu við þennan
litla dauða. Leyfa þessu sem okkur
finnst óþægilegt, sorglegt, gremju-
legt, óréttlátt, ljótt eða fallegt að
snerta okkur í stað þess að brynja
okkur gegn því. Það er ekki hægt að
elska með hörðnuðu hjarta. En á
þessum stundum er líka oft mikil-
vægt að hafa einhvern sem hlustar
með fullri athygli og hvetur okkur
til að halda áfram.
Dauðinn minnir okkur á að
gera okkar besta
Flest viljum við sem minnst rifja
það upp að við eigum eftir að kveðja
þetta líf í fyllingu tímans og horfum
með lítilli hrifiningu á öll merki
öldrunar eða ýtum hugsuninni frá
okkur með því að segja: „Já, já við
deyjum öll en það þýðir nú lítið að
vera að velta sér upp úr því.“ Dauð-
inn er ekki vinsælt umræðuefni.
Samt er hann kannski það eina sem
er raunverulegt í þessu lífi fyrir ut-
an fæðinguna. Margar andlegar
þroskaleiðir leggja mikla áherslu á
mikilvægi þess að undirbúa okkur
fyrir dauðann. Og dauðinn minnir
okkur stöðugt á það að gera okkar
besta og elska til fulls meðan við lif-
um.
Endurfæðing - líföndun
Líföndun (á ensku rebirthing eða
breath integration) var upphaflega
þróuð með það í huga að hjálpa fólki
að losa um spennu sem líkaminn
geymir frá fæðingu og kannski sér-
staklega með þá í huga sem hefðu
átt erfiða fæðingu.
Síðan þessi aðferð var þróuð höf-
um við lært margt um áhrif öndunar
og hvað það gerir líkama okkar að
anda of grunnt - nokkuð sem flestir
eiga sameiginlegt. Og þótt hægt sé
að nota líföndun til að nálgast fæð-
ingarerfiðleika er það ekki lengur
mai'kmiðið í sjálfu sér heldur að
anda til fulls, lifa til fulls og sættast
við allt sem við höfum hingað til
hafnað og aðskilið frá okkur, hvort
sem það er gleði eða sorg. Aukin
öndun hlýtur alltaf að vei’a skref í
átt til þess að auka lífsflæðið og um
leið að verða meðvituð um hvar stífl-
ui-nar liggja og ef lífsfljótið fær að
streyma áfram losna stíflurnar
smám saman. Líföndun er ákveðin
tækni sem getur eins og svo margt
annað sem hefur verið þróað í gegn-
um tíðina hjálpað okkur að takast á
við breytingar, gera okkur betur
grein fyi'ir tilfinningum okkar og
losa um spennu sem hefur safnast
upp í hraða lífsins.
Fyrir einhvern sem vill reyna líf-
öndun er mikilvægt að hafa reynda
manneskju hjá sér sem leiðir mann í
gegnum ferlið, er til staðar og hvet-
ur mann til að halda áfram og hjálp-
ar til svo þessi nýja lífsreynsla verði
sem ánægjulegust.
Hvorum megin?
Líföndun er upplifun sem færir
okkur nær því að skynja þessi
landamæri lífs og dauða og fær okk-
ur til að velja meðvitað hvort við
viljum lifa eða deyja. Lifa til fulls
eða vera dálítið dáin í lífinu. Bara
með því að hoi'fast í augu við dauð-
ann getum við lifað alveg til fulls.
Kyrr hugur og sátt við lífið gerir
okkur fært að njóta návistar við þá
sem eni okkur næstir, gefa þeim
okkar besta þannig að allt sem við
framkvæmum verður hnitmiðað og
tilgangsríkt. Þessi kyi-ri hugur kem-
ur ekki af því að brynja okkur gegn
því sem gerir okkur óróleg. Öllum
litlum dauðastundum hlýtur að
fylgja lítil fæðing.
Höfundur er nuddari, hómópati og
leiðbeinandi í liTrindun,
GOJU-RYU
KARATE
Karatedeild Fylkis
Byrjendanámskeiðin eru hafin
Stundaskra:
Börn byrjendur:
Mán. og Föstud. kl. 18:15
Fullnrðnlr byrjendun
Mán., mið. og Föstud. kl. 19:15
Upplýsingar í síma:
896 3010 eða 567 6467
Á morgun frá 10 - 16
A morgun, laugardag, efnum við til sölusýningar í verslun okkar
að Nóatúni 4. Þar gefsttækifæri til að skoða allt það nýjasta
sem við bjóðum, bæði tölvur, prentara, faxtæki, farsíma,
þráðlausa síma, eldunartæki, kæliskápa, uppþvottavélar,
þvottavélar, þurrkara, ryksugur, smátæki, lampa og margtfleira.
Veittur verður ríflegur staðgreiðsluafsláttur þennan dag.
Sama dag hefst rýmingarsöluvika þar sem hægt er að gera mjög
góð kaup á eldri gerðum tækja, m.a. eldunartækjum, smátækjum,
sjónvarpstækjum, hljómtækjum, myndbandstækjum, símum,
tölvum og lömpum. Sannkölluð tombóluverð.
Athugið: Við seljum nokkrar gerðir Fujitsu Siemens tölva á
einstöku afsláttarverði. Gríptu gæsina meðan hún gefst!
Látið sjá ykkur og njótið dagsins með okkur.
Það verður heitt á könnunni.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is