Morgunblaðið - 15.10.2000, Síða 44
44 SUNNUPAGUR 15. OKTÓBER 2000
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ
Ármúla 20, 2. hæð. Sími 568 3040. Fax 588 3888.
Opið sunnudag kl. 12-15
Guðmundur Þórðarson hdl., lögg. fasteignasali.
Ingimundur Jónsson sölustjóri.
Höfum fjársterka kaupendur að öllum stærðum
og gerðum íbúða
LAUGARNESVEGUR
Einbýlishús, 160 fm, á tveimur hæðum,
ásamt 25 fm bílskúr á þessum eftirsótta
stað. Verð 18 millj.
Raðhús
GLÓSALIR Glæsilegt 190 fm raðhús
á tveimur hæðum, með innbyggðum
bilskúr, á frábærum útsýnisstað. Selst
tilbúið að utan og með grófjafnaðri lóð en
fokhelt að innan. Verð 13,5 millj.
HVERFISGATA Góð tveggja
herbergja íbúð á fjórðu hæð i fimm hæða
blokk. Verð 5,7 millj.
Atvinnuhúsnæði
DALVEGUR Fyrir fjárfesta tvö
verslunarbil, sem bæði eru í útleigu, á
þessum eftirsótta stað samt. 144,6 fm.
Verð 18 millj., áhvilandi 11 millj.
langtfmalán.
4 herbergja
BÓLSTAÐARHLÍÐ Falleg ibúð á
1. hæð, nýtt eldhús, parket á gólfum.
Verð 12,8 millj.
3 herbergja
DRÁPUHLÍÐ Góð 3ja herbergja
íbúð á jarðhæð, með sérinngangi. Verð,
9,9 millj.
2 herbergja
HOFSVALLAGATA Góð 2ja
herbergja (búð á annarri hæð I fjölbýli.
HVERFISGATA Fjórar ca 50 fm
2ja herbergja Ibúðir og þrjú verslunarbil,
samtals ca 200 fm, á jarðhæð f litlu
fjölbýli. Verð 40 millj,. áhvílandi 24 millj.
Eignin selst I einu lagi. Jafnframt er til sölu
ein 2ja herbergja íbúð til viðbótar I sama
húsi. Verð 5,7 millj.
LYNGÁS GARÐABÆ 190 fm
atvinnuhúsnæði á 1. hæð með möguleika
á 60 fm millilofti. Húsnæðið er
fullfrágengið með malbikuðu bllaplani.
SÓLTÚN 190 fm atvinnuhúsnæði I
kjallara. Fæst með yfirtöku skulda og
greiðslu með bfl eða viðskiptaneti. Verð
13 millj.
UMHAMAR
FASTEIGNASALA
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði
Sími 520 7500
Asparlundur
Laufrimi 10A
- Gb. - opið hús ^
Nýkomin í einkas. mjög fallegt og vel
skipulagt 200 fm einb. á einni hæð
ásamt 53 fm góðum bílskúr. Frábær
staðsetning. Fallegur ræktaður garður.
Verð 24,9 millj. Guðrún tekur vel á
móti gestum í dag á milli 14-17.
Rvk.- opið hús
Nýkomið í einkas. glæsil. 102 fm
endaíbúð á neðri hæð í mjög góðu
fjölb. Sérinng. Þvottaherb. í íbúð.
Parket, vandaðar innr. Flísalagt bað-
herb. Góður sérgarður. Fráb. staðsetn-
ing. Halldóra og Maríus taka vel á
móti gestum í dag á milli 14-17.
Arnarás - Garðabær
Lúxus íbúðir 2ja-3ja-4ra herb. með bílskýli
Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra
útsýnisstað við Arnarvoginn. 8 íbúða
hús, 2ja, 3ja og 4ra herbergja lúxus-
íbúðir, ásamt stæði í bílakjallara. Ibúð-
irnar eru teiknaðar af arkitektastofunni
Úti og Inni, og afhendast fullbúnar án
gólfefna, með sérsmíðuðum innrétt-
ingum og vönduðum tækjum. Verktaki
Markhús. Upplýsingar og teikningar á
skrifst. Hraunhamars.
Skútahraun - Hf. - atvh.
Nýkomið í einkas. glæsil. húseignir á
sérlóð. Um er að ræða skrifst. (versl.),
athv.húsnæði. Samtals ca 4720 fm
Húsið skiptist þannig skrifst. (versl.),
mötuneyti ca 1200 fm. Atv.húsnæði, 6
metra lofthæð, innkeyrsludyr, ca 3500
fm Mikið áhv. Verð aðeins 53.000 pr.
fm' Zá
JON OLAFSSON
Um ýmsa samferða-
menn gildir óhjákvæmi-
lega að jafnvel ævilöng
náin kynni skilja ekki
einlægt ýkja mikið eftir,
oft lítið og stundum ekki
neitt. En aðrir eru svo
barmafullir af lífi, fjör-
ugum hugmyndum og
elskulegri meiningu, að
við þurfum ekki að kom-
ast í tæri við þá nema
rétt örskotsstund - og
góð minning, sem föinar
ekki, er orðin til.
Þetta er ekki sagt tii
þess að dæma mann-
eskjumar, fjarri því, heldur miklu
fremur til þess að velta því fyrir sér,
hve misjafnlega vel þær spila saman.
Ég skal ekkert vera að vefja það, að
saknaðarendurminningar um kaupa-
mennsku mína hjá heiðurshjónunum
Jóni og Margréti í Eystra-Geldinga-
holti, uppúr miðri öldinni sem senn
fer að kveðja, hafa ekki skilið við mig
þá áratugi, sem liðnir eru síðan.
Þegar ég er að sofna á kvöldin, veit
ég stundum ekki fyrri til en hugur
minn er farinn á flug eitthvert langt í
burt; ég er á auga lifandi bili kominn á
staði, þar sem mér hefur einhvern
tíma liðið vel og ég hefi fundið til ör-
yggis, og þá gjarnan austur í Gnúp-
verjahrepp. Þetta segja sálfræðingar
að sé hollt fyrir heilsuna. En árum
saman dreymdi mig stundum sama
di-auminn, að Ólafur heitinn rifi upp
dymar á strákaherberginu og segði:
„Búið að sæKja kýrnar. Mál að fara að
mjólka!" Og það var ekki vondur
draumur.
Góðir kunnleikar með frændsemi
voru með Valgerði heitinni, ömmu
Valgeirs Astráðssonar, bekkjarbróð-
ur míns í bamaskóla í Reykjavík, og
heimilisfólkinu í Geldingaholti, og
hafði hann ungur verið sendur austur
á sumrin að vera í snúningum, sem
kallað var. Það fólst oftar en ekki í því
að reka kýmar og moka fjósið, þótt
sitthvað fleira félli til.
Það þótti raunar snjallræði að
senda krakka í sveit; foreldrar í þann
tíð höfðu ótrú á að láta börn sín reika
iðjulaus um götur höfuðstaðarins, -
það var ekki að vita hverju þau tækju
uppá, þau gætu jafnvel farið að
reykja, - og því var gripið til þess að
koma þeim fyrir á góðum sveitaheim-
ilum yfir sumartímann. Þetta hét að
vera í sveit á sumrin og varð mörgum
kaupstaðarbörnum til ómældrar
blessunar, eiginlega hálfgert forskot í
lífinu.
Guðbergur Bergsson, rithöfundur,
segir á einum stað, að ferðataska að-
komukrakkans hafi einlægt verið sett
undir rúm. Má ég bæta því við, að
stundum heyrðist því fleygt, að
krakkinn væri vigtaður, og aftur þeg-
ar hann fór heim um haustið, svo
hægt væri að sjá hvað hann hefði
þyngst mikið í sveitinni.
Hvoragt þetta var við-
haft í Geldingaholti,
sem var stórbýli í hrað-
fara sókn til nútíma-
legra hátta. Það var nóg
pláss fyrir töskurnar og
það sagði sig sjálft, að
krakkinn mundi slást
við í sveitinni.
Eitt vorið fékk ég að
fara til dvalar í Geld-
ingaholti, og það sama
hlutskiptí féll Bimi Ól-
afi, syni mínum, í skaut
löngu síðar, og þar
kynntist ég sérstakri,
heillandi veröld. Ibúðarhús, fjós og
hlaða sambyggt í beinni röð utan í lít-
illi hæð og löng bæjarstétt íyrir íram-
an. Heiðurshjónin Ólaíúr og Pálína í
gamla bænum, ásamt dótturbami
sínu og uppeldisdóttur; Jón, erfða-
prinsinn, sem var augasteinn foreldra
sinna, búfræðingur frá Hólum, og
Margrét, kona hans, i nýja húsinu
með bömin sín fjögur (maddama Sig-
þrúður fæddist seinna); - og gengt á
milli heimilanna um miklar umferðar-
dyr. Síminn var á veggnum frammi á
gangi við eldhúsdyr Pálínu og stund-
um skrapp Magga léttstíg þangað
fram og hringdi þrjár langar. Um-
hverfið viðbrigða fagurt, fjallasýn
raunar óviðjafnanleg, og hafði þegar
verið ráðist í ræktun stórra túna, og
hér og hvar á ættaróðalinu vora göm-
ul útihús af torfi og gijóti með tim-
burþili og í gættunum óviðjafnanleg-
ur ilmur af sauðataði og gömlu heyi.
Tvö svona gömul hús vora sitt hvor-
um megin við traðirnar heim að bæn-
um, eins og hluti af landslaginu, líkust
hátíðlegu hliði á ósigrandi virki, og
hétu hestarétt. Eitt túnið hét
Lambhústún og annað Ærhústún. I
austur Hamrar, með fjárhúsum og
hlöðu í þeim sama, gamla stfl, allt
menjar frá fomum tíma, þegar vetr-
arbeit sauðfjárins var við lýði.
Fyrsta sumarið mitt svaf ég í stof-
unni og þar var góður bókaskápur og
af bókum sem ég las man ég eftir
Horfnum góðhestum eftir Ásgeir frá
Gottorp, en Nonni er sjálfúr ágætur
hestamaður og hefur ánægju af því að
ríða út. Pabbi og mamma komu í
heimsókn sumarið eftir og höfðu
eignast kvikmyndatökuvél og pabbi
tók ógleymanlega mynd af Nonna,
þar sem hann hleypir margverðlaun-
uðum góðhesti sínum, Gulltoppi, á
skeið eftir tröðunum að hestaréttinni
og Snati gamli var í sólskinsskapi og
vildi hlaupa með og á þessu mynd-
skeiði, sem við skoðuðum æ ofaní æ
fyrir sunnan í fjölda mörg ár á eftir,
er Nonni á glæsilegum skeiðsprettin-
um alltaf að líta um öxl til að sveia
hundinum og skipa honum að þegja
og skammast sín og fara heim til sín.
Magga, - sem er eins og allir vita
alveg hvellskýr og þar eftir gaman-
E
EIŒAMIÐIIMN
■wsSöSSp 5 40«
Laufásvegur - einb/tvíb.
Vorum að fá þetta virðulega einbýlishús í einkasölu. Flúsið er 310 fm,
auk 24 fm bílskúrs. Falleg og gróin lóö. Á 1. hæð eru m.a. 2 saml.
stofur, eldhús o.fl. Á efri hæð eru m.a. 5 herbergi, tvö baðherbergi
o.fl. I kj. er m.a. 3ja herbergja íbúð. Gróinn og fallegur garður. Húsið
er teiknað af Sigurði Guðmundssyni, arkitekt. Virðuleg eign á eftirsótt-
um stað. 9777
söm, að ekki sé nú talað um hvað hún
er flink eftirherma, og músíkölsk og
kann allar milliraddirnar í sálmabók-
inni utanað og syngur með sálmana í
útvarpsmessunni, - hún sagði okkur
ijósamönnunum, að því ágætari við-
tökur sem mjólkin frá okkur fengi við
flokkun í Mjólkurbúinu á Selfossi,
þeim mun betur yrði gert við okkur,
og ef mjólkin reyndist fyrsta flokks,
yrði bókstaflega dekrað við okkur;
þannig mætti eiginlega segja að við
væram „uppá prósentur", og þetta
varð til þess að við uppnefndum
mjólkina og kölluðum „prósentur";
þegar kýr mjólkaði vel hét það að hún
gæfi af sér miklar „prósentur"; þegar
mjólkurbfllinn kom eftir brúsunum
við mjólkurhúsvegginn, þá var kallað
að bfllinn væri að koma að sækja
„prósenturnar". Löngu síðar fundu
íslenskir útgerðarmenn og atvinnu-
rekendur upp, seint og um síðir og án
þess að vera hlátur í hug, svipað fyrir-
komulag við launagreiðslur - og
nefndu þetta „afkastahvetjandi
launakerfi", og töluðu um það í sjón-
varpinu, áhyggjufullir á svip.
Við hlógum ómælt að íslenskri inn-
ansveitaríyndni, sem smám saman
hafði orðið að sígildum sögum þjóð-
legum, krydduðum viðeigandi eftir-
hermum, og leyndu á sér og vora allar
á dýptina, þótt þær væra ekki flóknar
að efni til: Einn bóndinn hafði helgað
hænum sínum sérstakan matjurta-
garð, en það var ekki fyrr en hann
hafði mokað götur og rakað yfir að
þær komu allar með tölu, annar hafði
keypt sér vörabfl og nágranna-hús-
freyja sagt af því tilefni að það yrði
einhvem veginn að fela peningana,
góð bóndakona hafði haft hug á að fá
tekna ljósmynd af syni sínum og gam-
all bóndi tekið svo til orða, að sér liði
aldrei eins vel og þegar hann væri
búinn að taka svo mikið í nefið, að
hann hefði ekki viðþol fyrir helvítis
kvölum.
Mjólkurbflstjórinn fór, samkvæmt
gamalli hefð, rakleiðis inn til Pálínu
og drakk kaffi og át heimabökuð vín-
arbrauð, sem vora öldungis ótrúlegt
ævintýri, og snúða, sem vora mjög
mjúkir og bragðgóðir, með miklu af
kanel innst. En við gripum mjólkur-
brúsana, sem vógu fullir 40 kfló, og
sveifluðum þeim upp á bílpallinn,
stoltir af því að vera svona sterkir.
Pósturinn kom með bflnum og Mogg-
inn og Tíminn vora vafðir saman í
þéttan vöndul og pappírssnifsi vand-
lega límt utan um. Sagt var, að sumir
skaftfellskir prestar héldu þessum
pappír til haga og skrifuðu á hann
ræður sínar, og talið, að þessum
mönnum búnaðist heldur vel.
Við stungum út úr húsunum á
Hömram og annar stakk skánina og
hinn bar hana út og við kepptumst við
þetta; sá sem stakk flýtti sér eins og
hann gat til þess skaprauna félaga
sínum með því láta hnausana safnast
fyrir, en hinn hljóp á harðaspretti
með taðið á gafflinum fram að dyram,
kastaði því út og hraðaði sér svo inn
króna aftur, af því takmark hans var
að taka sér þar drýgindalega stöðu,
halla sér mæddur fram á kvíslina og
láta sem það væri nú meira dómadags
mótlætíð að þurfa að bíða svona lon
og don eftir næsta köggli. En báðir
vora bullsveittir og sprengmóðir. Og
þetta skotgekk. Svo var drakkið kaffi
af hitabrúsa og steiktir ástarpungar
með rúsínum hafðir með, og þeir vora
svo vel útilátnir, að jafnvel Snati
gamli hafði ekki lyst á meira um það
er lauk. A eftir lögðumst við í græn-
gresið og horfðum upp í himinblá-
mann og á skýin, sem era óvíða fal-
legri en í Gullhreppunum.
I fjárhúsunum og stundum í fjósinu
lékum við Nonni, þessi riddari af
fálkaorðunni, félagsmálagarpur og
veisluglaði sveitarhöfðingi, viður-
hlutamikil mannamót, eins og t.d.
messur, þingsetningar, hrepps-
nefndarfundi, búnaðarþing og bók-
mennatsamkomur. Við gleymdum
aldrei að segja „herra forseti" eða
„háttvirtur þingmaður" eða ,Jiæst-
virtur ráðherra" og við kaupamenn-
imir æfðum okkur í þéringum og
ræsktum okkur virðulega og settum
okkur í stellingar, líkt og við væram í
lafafrakka, og fóram með Gunnars-
hólma Jónasar Hallgrímssonar:
„Skein yfir landi sól á sumarvegi og
silfurbláan Eyjafjallatind gullrauðum
loga glæsti seint á degi.“
Nonni er fjármaður og mikill rækt-