Morgunblaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 33 LISTIR LEIKLIST Stúdentaleikhúsið STRÆTI Höfundur: Jim Cartwright. Þýð- andi: Arni Ibscn. Leikstjóri: Elvar Logi Hannesson. Loftkastalinn. 29. október 2000. ÞAÐ er ekki um að villast, Stúd- entaleikhúsið er komið til að vera - enn einu sinni. Eftir frábæra upp- færslu á Tartuffe síðastliðið vor ráð- ast þau nú í stóra, mannmarga og viðamikla sýningu og láta sig ekki muna um að innrétta leikhús í einu af ónýttum rýmum í húsakynnum Loftkastalans. Vonandi er krafturinn og vinnu- gleðin sem greinilega er til staðar Sögur af herra- mönnum LEIKLIST L e i k f é I a g Hveragerðis HERRAMENNIRNIR Leikgerð Onnu Jórunnar Stefánsdóttur í leikstjórn Ylfu Lindar Gylfadóttur og Jóninnu Margrétar Guðmundsdóttur. Hveragerði 28.október. ÞAÐ er greinilegt að Leikfé- lag Hveragerðis sinnir hlut- verki sínu í bæjarfélaginu af al- úð. Sýningin sem hér um ræðir er alfarið skipuð börnum og unglingum úr Hveragerði og ber þess merki; jákvætt merki um lifandi þátttöku félagsins í samfélagi sínu. Af sýningunni má ráða að mikill áhugi barnanna á þátt- töku í starfi Leikfélagsins hefur ráðið vali á verkefninu. Herra- mennirnir eru leikrænar pers- ónur, hver með sín sterku sér- kenni sem gerir auðvelt að túlka þær í leik og búningum. Hen'a Subbi, Herra Hávær, Heira Hroki, Herra Kjaftaskur, Herra Gleyminn, Herra Hnýs- inn, Herra Rugli, Herra Skell- ur, Heira Snyi'tinn og Herra Þrifinn. Allir leikendur stóðu sig með prýði og komu sínum Herra ágætlega til skila. Anna Jórunn hefur síðan búið til litla sögu í kringum þetta og skapað lítinn bæ, Bestabæ, þar sem bæjarbúar búa með Herra- mönnunum. Þar mátti sjá versl- unareigendur, lögregluþjón, blaðsöludreng og iðnaðarmenn sem tóku öll höndum saman og reyndu að venja Herramennina af verstu ósiðunum. Það tókst bærilega eftir ýmsar spaugileg- ar uppákomur. Umgjörð sýn- ingarinnar var lífleg og litaglöð og búningar persónanna gáfu skýrt til kynna hver var á ferð- inni hverju sinni. Greinilegt var að áhorfendur kunnu vel að meta og klöppuðu leikendum lof í lofa í lokin. Þeir áttu það vel skilið. Hávar Sigurjónsson Saumastofan sýnd í Borgarfírði LEIKDEILD Ungmennafélagsins Islendings frumsýnir Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson í félags- heimilinu Brún í Bæjarsveit nk. föstudag, 3. nóvember, kl. 21. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð. Næstu sýningar verða sunnudaginn 5. nóv., föstudaginn 10. nóv. og laug- ardaginn 11. nóv. kl. 21 ogsunnudag- inn 12. nóv. kl. 14. Leikdeild Umf. Is- lendings hefur starfað síðan 1976 og sett upp leikrit annað hvert ár. Ongstræti tilverunnar nægileg til að gera félagið að langlíf- um og varanlegum pósti í leiklistar- flórunni. Minna hefur borið á Jim Cart- wiight undanfarið en þegar hann var ljúflingur íslenskra atvinnuleikhúsa fyrir nokkrum árum. Þó tel ég að óhætt sé að spá bæði Stræti og Bar- Pari langra lífdaga á verkefnaskrám áhugaleikfélaga. Persónur og kring- umstæður dregur Cartwright einatt skýrum dráttum og hlutverkin lang- flest bitastæð. Og þó hann sé kannski ekki djúpvitrasti samfélags- rýnir í flokki leikskálda, né næmast- ur á fínhreyfingar sálartötursins þá búa verk hans yfir skáldlegum krafti og samúð með mannskepnunni, sér- staklega þegar brölt hennar er hvað óliðlegast. Þetta er áberandi í Stræti, svipmynd af örvæntingarfullum til- raunum vonleysingja úr enskri lág- stétt til að gleyma hlutskipti sínu og skemmta sér, eða í það minnsta slökkva á sálinni eina kvöldstund. Sýningin er ákaflega vel saman sett. Leikurinn var afar jafngóður þó margir eigi reyndar aðdáanlega spretti, svo margir að betra er að láta þá upptalningu eiga sig. Um- fram allt var sönn „ensamble“-til- finning í hópnum, sýningin er greini- lega sameiginlegt átak sem hópurinn allur stendur með og ber fram fyrir áhorfendur með stolti og gleði. Um- gjörðin er stílhrein og búningar við hæfi. Elvar Logi og leikhópur hans vel- ur að leggja áherslu á léttleika og húmor verksins. Þetta er skiljanlegt val, sérstaklega hvað varðar eldri persónurnar sem ungir leikararnir hafa varla tök á að ná í botninn á. Þó þótti mér sem stundum mætti sýn- ingin reyna aðeins minna að vera skemmtileg. Grínið og fjörið setur ákveðna fjarlægð á ömurleikann og sorgina í lífi persónanna sem gerir áhorfendum kannski erfitt fyrir að lifa sig inn í hlutskipti þeirra. Hin prýðilega vel spilandi hljómsveit hafði áhrif í sömu átt, truflaði sam- band sviðs og salar, bæði með frammíköllum og sambandi sínu við persónurnar, en líka stundum með stemmningstónlistinni, gerði sýning- una að meira „sjói“ en kannski er æskilegt. Endirinn, þegar persón- urnar eygja von um fullkomnara líf með sönnum tilfinningum, ást og skilningi, missir nokkuð af áhrifa- mætti sínum ef ástandið sem þær vilja flýja hefur verið málað svo grallaralegum litum. En hvað sem þessum efasemdum líður þá er sýningin sjálfri sér sam- kvæm og heilsteypt listaverk sem Stúdentaleikhúsið má vera stolt af. Það er óhætt að hvetja leikhúsunn- endur til að leggja leið sína vestur í bæ og fylgjast með næturlífinu í Strætinu eina kvöldstund. Þorgeir Tryggvason Hreinlætistækja- 10-50% dagar afsláttur af hreinlætis- og blöndunartækjum damixa BLANCO HUSASMIÐJAN www.husa.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.