Morgunblaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Tæplega fjórðungs aukning í verslun erlendra ferðamanna á Islandi
Skapar allt að
tvö hundruð árs-
verk í verslun
Morgunblaöió/Ámi Sæberg
Frá blaðamannafundi Samtaka verslunarinnar í gær. Stefán S. Guðjónsson
framkvæmdasljóri og Haukur Þór Hauksson formaður.
/-------------\
Bónus
fyrir
korthafa
Nú getur þú greitt mefi EUROCARD og
MasterCard greiðslukortum f Bónus!
Súrefoisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía
SAMTÖK verslunarinnar eru að
fara af stað með herferð sem er ætl-
að að hvetja íslendinga til að versla
á íslandi. Á blaðamannafundi sem
samtökin efndu til í gær var greint
frá því að sala til erlendra ferða-
manna hér á landi hafi aukist um
tæplega 23% á fyrstu sex mánuðum
þessa árs í samanburði við sama
tímabil á síðasta ári. Þá kom fram að
aukningin hafi verið mest í innflutt-
um varningi og merkjavöru. Að mati
forsvarsmanna Samtaka verslunar-
innar sýnir þetta að gott sé að versla
á íslandi og að íslendingar hafi ekki
ástæðu til að fara utan til að versla
ódýrt. Fram kom í máli þeirra að
áætla megi, samkvæmt tölum um
endurgreiddan virðisaukaskatt, að
velta verslunar erlendra ferða-
manna hér á landi nemi árlega um
tveimur og hálfum milljarði króna
og að allt að 200 ársverk skapist í
versluninni vegna þessara viðskipta.
Konur duglegri en karlar að fara í
verslunar- eða stórborgarferðir
Fram kom á fundinum í gær að
samkvæmt neyslu- og lífsháttar-
könnun Gallups hafi um 35% íslend-
inga farið utan í verslunarferðir árið
1999. Stefán S. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar-
innar, sagði að samtökin gerðu ráð
fyrir að íslendingar hafi eytt u.þ.b. 5
milljörðum króna í þessum ferðum.
Islenskar konur eru um 61%
þeirra sem ætla í verslunar- eða
stórborgarferðir nú á haustmánuð-
um en karlar um 39%, samkvæmt
könnun Gallup, sem greint var frá á
blaðamannafundi Samtaka verslun-
arinnar í gær.
Gott að versla á íslandi
Haukur Þór Hauksson, formaður
Samtaka verslunarinnar, sagði á
blaðamannafundinum í gær að
meirihluti þess varnings sem ferða-
menn keyptu hér á landi væri inn-
fluttar vörur, en minjagripir, ullar-
vara og fleira þess háttar væri
minnkandi hluti heildarsölunnar, þó
svo að ekki væri um minnkandi um-
svif í sölu þess varnings að ræða.
„Þetta sýnir að hér á landi er gott að
versla," sagði Haukur. „Við erum
einmitt að hleypa af stokkunum her-
ferð sem er ætlað að sýna íslending-
um fram á að hér á landi er hagstætt
verðlag á ýmsum varningi. Verslanir
hér eru hátæknivæddar og með
góða þjónustu og það er síst óhag-
stæðara að versla hér en víða er-
lendis."
Þjóðverjar þeir einu sem versluðu
minna en árið áður
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum verslunarinnar versluðu
Bandaríkjamenn mest á íslandi á
fyrstu sjö mánuðum þessa árs og
nam verslun þeirra um 30,3% af
heildarverslun ferðamanna hér á
landi. Bandaríkjamenn versluðu
nærri þrefalt meira en Norðmenn
og Svíar, sem versluðu næst mest,
um 10,5% af heildarversluninni
hvorir fyrir sig. Bretar voru í fjórða
sæti með um 7,1% af heildinni, Danir
í því fimmta, um 6,3%, og Þjóðverjar
í sjötta sæti og nam verslun þeirra
um 5,8% af heildinni. Verslun ann-
arra þjóða var innan við 5% af heild-
arverslun ferðamanna hér á landi.
Þjóðverjar nöfðu þá sérstöðu
meðal þeirra þjóða sem komust á
blað yfir verslun ferðamanna hér á
HAGNAÐUR af rekstri íslands-
banka-FBA nam 1.686,5 milljónum
króna fyrir skatta fyrstu níu mán-
uði ársins, eða 1.196,5 milljónum
króna eftir skatta, samkvæmt
óendurskoðuðu árshlutauppgjöri.
Hagnaður minnkar þannig á milli
ára en á sama tíma í fyrra nam
samanlagður hagnaður íslands-
banka hf. og Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins hf. 2.433,7 milljónum
króna fyrir skatta og 2.081 milljón
eftir skatta.
Vaxtatekjur bankans námu
17.637 milljónum króna fyrstu níu
mánuði ársins og vaxtagjöldin
námu 12.670 milljónum króna.
Framlag í afskriftarreikning út-
lána nam 809 milljónum króna á
tímabilinu.
landi að þeir voru eina þjóðin sem
verslun hér á landi dróst saman hjá.
Haukur Þór Hauksson sagði á
blaðamannafundinum í gær að það
væri væntanlega vegna samdráttar í
sölu á íslenskum hestum. Verslun
annarra þjóða jókst á milli ára. Mest
aukning var meðal Lúxemborgara,
en verslun þeirra rúmlega þrefald-
aðist á milli ára en nam hins vegar
einungis um 1,3% af heildarverslun
ferðamanna hér á landi. Verslun
Kanadamanna jókst næst mest á
milli ára, eða um tæp 78%, en versl-
un þeirra var um 2,3% af heildinni.
Verslun Breta jókst um 42% á milli
ára og sagði Stefán S. Guðjónsson að
skýringin á þeirri miklu aukningu
væri væntanlega tilkoma Go-flugfé-
lagsins. Verslun Bandaríkjamanna
jókst um 35% milli ára. Af Norður-
landaþjóðunum jókst verslun Fær-
eyinga mest á milli ára, eða um 31%,
en verslun þeirra nam hins vegar
einungis um 1,2% af heildarverslun-
inni. Verslun Norðmanna jókst um
26%, Finna um 20%, en heildarversl-
un þeirra nam um 2,9% af heildinni.
Verslun Svía jókst um 15% milli ára
og Dana um 9%.
Ullarvörur er sá vöruflokkur sem
í fréttatilkynningu kemur fram
að eins og fram kom í sex mánaða
uppgjöri stafaði minnkun hagnað-
ar af gengistapi á markaðsskulda-
bréfum bankans á fyrri hluta árs-
ins sem öll voru færð niður í
markaðsverð í sex mánaða upp-
gjöri. „Sú þróun er að verða hér á
landi sem víða annars staðar að
það hægir á yfir sumarmánuðina.
Jafnframt urðu sveiflur á verð-
bréfamarkaði sem endurspeglast í
lægri gengishagnaði af annarri
fjármálastarfsemi en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Verðbólga var
minni á 3. ársfjórðungi en á fyrri
helmingi ársins og minnkaði vaxta-
munur því nokkuð þar sem verð-
tryggðar eignir bankans eru meiri
en skuldir. Þetta endurspeglar það
ferðamenn keyptu mest og nam
hann um 40,1% af heildarverslun-
inni, rúmlega tvöfalt meira en fatn-
aður, sem kom næst á eftir með
18,0% hlutdeild þegar allur fatnaður
er tekinn saman. Sala á ullarvarn-
ingi var hins vegar um 75% af heild-
arsölu til ferðamanna á árinu 1996.
Sala á minjagripum nam 5,9% af
heildarsölunni en aðrir vöruflokkar
voru innan við 5% af heildinni. Mest
aukning varð í sölu minjagripa sem
rúmlega tvöfaldaðist á milli ára. Sala
á rafmagnsvörum tvöfaldaðist einn-
ig en nam hins vegar einungis um
2,0% af heildinni. Aukning í sölu ull-
arvara var um 4% á milli ára. Sala á
fatnaði jókst hins vegar um tæp
80%, herrafatnaður um 42% og
dömufatnaður um tæp 12%. Sala á
gjafavörum og íþróttavörum dróst
saman á milli ára.
Ferðamenn keyptu mest á höfuð-
borgarsvæðinu á fyrstu sjö mánuð-
um þessa árs en um 82% verslunar
þeirra var þar á móti tæpum 18% á
landsbyggðinni. Hlutfallsleg aukn-
ing var hins vegar meiri á lands-
byggðinni, eða um 27%, samanborið
við um 21% aukningu á höfuðborg-
arsvæðinu.
sem áður hefur komið fram að
hagnaður af fjármálastarfsemi er
háður sveiflum á fjármagnsmark-
aði hverju sinni,“ að því er segir í
fréttatilkynningu.
Útlit fyrir að arðsemis-
markmið náist ekki
Arðsemi eigin fjár var 12,4%
fyrstu níu mánuði ársins og verði
ekki verulegar breytingar á ytra
umhverfi er útlit fyrir að arðsem-
ismarkmið bankans, um 17-20%
arðsemi fyrir árið, náist ekki.
Eignir bankans námu 284,8 millj-
örðum króna þann 30. september
og höfðu vaxið um 58,8 milljarða
eða 26% frá áramótum. Innlán
hafa vaxið um 19,2% frá áramótum
og útlán um 27,4%.
Ve rkfræð i n g a r - tæknifræðingar
Samlokufundur
um íslenska hlutabréfamarkaðinn
Samlokufundur verður haldinn
fimmtudaginn 2. nóvember, kl. 12.00 - 13.00
í Verkfræðihúsi að Engjateigi 9, Reykjavík.
Dagskrá:
Á samlokufundi fimmtudaginn 2. nóvember mun Almar
Guðmundsson, hagfræðingur Islandsbanka - FBA, fjalla
um (slenska hlutabréfamarkaðinn.
Meðal annars verður komið inn á ávöxtun, ábyrgð
verðbréfafyrirtækja gagnvart viðskiptavinum, framtíð
markaðarins og staða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtækja
gagnvart hlutabréfamarkaðinum.
Fríar veitingar fyrir félagsmenn TFÍ og VFÍ.
Utanfélagsmenn qeta keypt samlokur og drykkjarföng
á sanngjörnu verði.
4
Verkfrœbingafélag íslands Tælmllrsðlngalílau UlanðS
SAMTÖK VERSLUNARINNAR
Haustfundur Útflutningsráðs Sv
Haustfundur Útflutningsráðs Sv verður haldinn í dag miðvikudaginn 1. nóvember
kl. 12.00 í Ársal Hótel Sögu.
Gestur fundarins verður Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður.
Efni: Fiskveiðimál og fiskveiðistjórnun.
Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500. Fundurinn er öllum opinn.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á skrifstofu samtakanna í síma 588 8910 eða á netfang: lindabara@fis.is
Níu mánaða uppgjör Íslandsbanka-FBA
Tæplega 1,2 millj. í hagnað