Morgunblaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fjölbreyttar útgáfubækur bókaútgáfunnar Æskunnar haustið 2000 Þrjár nyjar barnabækur o g ævi- saga Olafs biskups Skúlasonar Adda Árni Þorgrímur Steina Björnsdóttir Árnason Þráinsson BÓKAÚTGÁFAN Æskan gefur út eftirtaldar bækur í haust. Geitungurinn 3 eftir Ái'na Árna- son með teikningum eftir Halldór Baldursson er þriðja heftið í flokki verkefnahefta handa börnum sem vilja læra að lesa. Heftið er 48 bls. í brotinu A4. LÍ SONG eftir Öddu Steinu Björnsdóttur með teikningum eftir Margréti Laxness segir frá Song, fjölskyldu hans og vinum. Þau eiga heima í litlu þorpi í Kína, skammt neðan varnargarðs við stöðuvatn. Eftir að rignt hefur dögum saman brestur garðurinn og vatn fossar fram og færir þorpið á kaf. Bókin er gefín út í samvinnu við Rauða kross Islands. Kýrin sem hvarf er verðlauna- saga eftir Þorgrím Þráinsson rithöf- und og Þórarin F. Gylfason mynd- listarmann úr barnabókasamkeppni Búnaðarbankans, Sjóvá-Almennra og Æskunnar 2000. Sagan greinir frá Rúti litla sem fær bréf frá frænku sinni þess efnis að hún vilji gefa honum kálf í afmælisgjöf, kálf sem ekki er enn fæddur. Bókin er 32 bls. Svartiskóli er fyrsta bók ungra höfunda, þeirra Ólafs Sindra Ólafs- sonar og Ragnars Þór Péturssonar. Bókin er í tölvuskeytastíl um ungl- inginn Kobba sem er uppfullur af ástríðum og pælingum um lífið, samferðafólk og umhverfi. Bókin er 200 bls. Þýddar barnabækur I flokki þýddra barna- og ungl- ingabóka koma út ellefu bækur á vegum Æskunnar ehf.: Veröldin okkar eftir Angelu Wilkes í þýðingu Árna Árnasonar, Guðna Kolbeinssonar og Sigrúnar Á. Eiríksdóttur er myndskreytt bók með fjölfræðilegu efni íyrir börn. í bókinni eru yfir 800 litmyndir, skýrt lesmál og einföld verkefni. Bókin er 320 bls. Fyrsta orðabókin er heppileg bók til að kenna bömum helstu orðin í hversdaglegum orðaforða. Bókin 48 bls., með skýrum myndum og ein- földu og litríku útliti. Malla fer í leikskóla og Malla fer í sund eftir Lucy Cousins fjallar um Möllu mús sem börnin þekkja úr sjónvarpinu. Með því að lyfta flipa eða toga í sepa þá eru börnin í leik með Möllu við að mála og leika sér eins og börn gera í leikskóla. Hvor bók er 16 bls. Fingurætan eftir Dick King Smith með teikningum eftir Arthur Robins. Sagan gerist á norðlægum slóðum. Þar stafar mannfólkinu mikil ógn af jarðálfinum Úlfi fingur- ætu. Þetta er bók fyrir unga lesend- ur. Bókin er 64 bls. Litli ofurhuginn eftir Jon Blake með teikningum eftir Martin Chatt- erton segir frá dóttur mesta ofur- huga í heimi sem þráir að sýna jafn ótrúleg ofdirfskuatriði og pabbi hennar. Þetta er bók fyrir unga les- endur. Bókin er 64 bls. Eva & Adam - kvöl og pína ájól- um eftir þá Máns Gahrton og Johan Unenge í þýðingu Andrésar Ind- riðasonar er fimmta bókin sem Æskan ehf. gefur út um unglingana Evu og Adam. Bókin er 140 bls. Pési vinur minn og töfraskórnir & arabahöfðinginn vinur minn eru tvær sögur í sömu bók eftir Ulf Stark í þýðingu Sigrúnar Á. Eiríks- dóttur. Sögurnar eru að nokkru leyti byggðar á reynslu höfundar. Ymsar hliðar vináttunnar eru tekn- ar fyrir. Bókin er 176 bls. Ógnaröfl - 2. hluti, bækur 1, 2 og 3 eftir Chris Wooding í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Ógnaröfl er bókaflokkur um ævintýri, ástir og svik. Guðni Kolbeinsson hlaut barnabókaverðlaun Reykjavíkur fyiir þýðingu sína á 1. hluta Ógnar- Oafla. Hvor bók er 180 bls. Ævisögur og endurminningar Undir merki Almennu útgáfunnar koma út tvær bækur. Magnús organisti eftir Aðalgeir Kristjánsson greinir frá Magnúsi Einarssyni sem var brautryðjandi í söng- og tónlistarlífi Akureyrar um og fyrir síðustu aldamót. Bókin er 248bls. Ólafur biskup - æviþættir. Ólafur Skúlason biskup lýsir hér lífshlaupi sínu, lýsir kynnum af fjöl- mörgu fólki, fjallar um menn og málefni og átök sem áttu sér stað innan kirkjunnar á starfstíma hans. Björn Jónsson skráði. Bókin er 400 bls. Þýdd skáldverk og handbækur Undir merki Almennu útgáfunnar koma út: Fyrir norðan lög og rétt eftir Ejnar Mikkelsen í þýðingu Hlés Guðjónssonar. „Hinn þekkti danski heimskautafari Ejnar Mikkelsen skrifaði þessa áhrifamiklu skáld- sögu um veiðimanninn Sachawachi- ak og innrás siðmenningarinnar í líf hans. Bókin er 158 bls. Gegn einelti - handbók fyrir skóla. Höfundar: Sonia Sharp og Peter K. Smith. Ingibjörg Markús- dóttir sálfræðingur þýddi. „í bók- inni er fjallað um hagnýtar leiðir fyrir skóla í baráttunni gegn einelti. Bókin er 104 bls. Birgir - hvernig skólinn kemur til móts við ofvirkan, misþroska dreng er bók sem byggist á rann- sóknarverkefni Margrétar Jóels- dóttur sérkennara. Bókin greinir frá tilviksrannsókn hennar um níu ára ofvirkan og misþroska dreng með sérstaka námsörðugleika. Bók- in er 206 bls. Félagsstarf og frístundir ís- lenskra unglinga eftir Þórólf Þórlindsson, Kjartan Ólafsson, Við- ar Halldórsson og Ingu Dóru Sig- fúsdóttur greinir frá könnun sem fór fram árið 1997 að frumkvæði íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur. Bókin er 160 bls. Sungið með fullri reisn BRESKA kvikmyndin „The Full Monty,“ eða Með fullri reisn eins og hún hét á íslensku naut gífurlegra vinsælda víðast hvar fyrir nokkrum árum. í sumar gafst landsmönnum sið- an tækifæri á að virða fyrir sér ís- lenska útgáfu verksins og er sög- usviðið þá gert að bæ úti á landi. Með fullri reisn hefur nú einnig ver- ið sett á fjalirnar í Bandaríkjunum og er þar orðið að söngleik á fjölum Eugene O’Neill-leikhússins á Broadway í New York. „Kristalnætur44 minnst í Goethe-Zentrum FYRIR Þjóðverjum er 9. nóvember ekki eingöngu gleðidagur þar sem fólk minnist falls Berlínarmúrsins 1989. Þetta er einnig dagur sorgar og ógnar því að kvöldi þessa dags árið 1938 hófst hin svokallaða „Kristalnótt" sem markaði upphafið að ofsóknum nasista á hendur gyð- ingum. Þessa nótt var kveikt í bænahús- um gyðinga um gjörvallt Þýskaland og verslanir í eigu gyðinga voru rændar og lagðar í rúst. Til að minnast hinna skelfilegu viðburða fyrir rétt rúmlega 62 árum verður þýska heimildarkvikmyndin „Herr Zwilling und Frau Zucker- mann“ sýnd í Goethe-Zentrum á Lindargötu 46, annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30. Myndin, sem í fyi-ra var tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaun- anna sem besta heimildarmynd, er í fullri bíómyndarlengd og með ensk- um texta. I fréttatilkynningu segir: „Sögu- svið myndarinnar er borgin Tsjernóvits í vestanverðri Úkraínu, Úr heimildarmyndinni. skammt frá rúmensku landamærun- um. Borgin, sem áður fyrr var mið- stöð gyðinglegrar menningar í hinu fjölþjóðlega héraði Búkóvínu, heyrði eitt sinn undir Austurríki og síðan undir Rúmeníu áður en hún varð sovésk, þar næst þýsk, svo aft- ur sovésk og loks úkraínsk. Um tíma var helmingur íbúanna gyðing- ar en aðeins fáir þeirra lifðu af þá nauðungarflutninga í einangrunar- búðir sem Þjóðverjar og Rúmenar fyrirskipuðu. Meðal hinna eftirlif- andi eru vinirnir Matthias Zwilling og Rosa Zuckermann sem bæði eru þýskumælandi. Hvert einasta kvöld heimsækir hinn sjötugi Zwilling hina níræðu Zuckermann til að ræða um liðna tíma, stjórnmál og bókmenntir og efnahagsvandamál líðandi stundar. Leikstjórinn Volker Koepp fær gamla fólkið til að segja fi-á þjáning- arfullri ævi sinni. Hann er þolin- móður hlustandi og næmur spyrill sem að auki veitir áhorfandanum innsýn í nær óþekkta veröld í út- jaðri Evrópu. Hann fylgist með há- tíðahöldum í bænahúsi gyðinga og sýnir grafreiti héraðsins en farið var ránshendi um fjölskyldugrafir beggja aðalpersónanna á síðustu ár- um.“ Aðgangur að myndinni er ókeypis og öllum heimill. Nýjar bækur • Út er komið Almanak Þjóð- vinafélagsins 2001 í 127. sinn, en það kom fyrst út í Kaupmannahöfn árið 1874. Alla tíð síðan hefur almanakið komið út á vegum Þjóðvinafélags- ins og um langa hríð í samprenti með Almanaki Háskóla íslands. Auk almanaksins sjálfs hefur ár- bók íslands alltaf verið fastur liður í ritinu og má þannig finna í almanökum Þjóðvinafélagsins sam- fellda yfirsýn yfir sögu 20. aldar og aftur á 19. öld. I fréttatilkynningu segir: „Almanak Þjóðvinafélagsins fyrir árið 2001 er í lengra lagi, 216 bls. að stærð. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur hefur reiknað og búið almanakið sjálft til prentunar, en árbókina fyrir árið 1999 ritar Heimir Þorleifsson sagnfræðingur. I þessari árbók er ítarlega fjallað um alþingiskosningarnar 1999 og stjórnmál ársins. Þá er að venju yfirlit um árferði, atvinnuvegi, íþróttir, verklegar framkvæmdir, mannalát og margt fleira.“ Forseti Hins íslenska þjóðvina- félags er Ólafur Ásgeirsson þjóð- skjalavörður. Umsjónarmaður almanaksins er Jóhannes Hall- dórsson cand.mag. Prentsmiðjan Oddi prentaði ritið og það er Sögu- félag, Fischersundi 3, sem sér um dreiíingu. Almanakið fæst í bókaverslun- um um land allt og kostar 1.450 krónur. Unnt er að gerast áskrifandi hjá Sögufélagi og þar eru einnig fáan- legir eldri árgangar. M-2000 Miðvikudagur BORGARLEIKHÚSIÐ KL. 20 Prag * Bohemia Family Project. Gates eftir Jan Kodet. * Domino Dance Company: Love, They Call It eftir Lenka Ottova. Bergen * Cecilie Lindeman Steen: 180157 56780 eftir Ina Kristel Johannessen. KAFFILEIKHÚSIÐ KL. 21 Óvæntir bólfélagar Ævintýrasveitin Óvæntir bólfélagar í október eru Magga Stína og dverg- arnirsjö, nýhljómsveit sem hún mun skipa barnungum hljóöfæraleikurum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.