Morgunblaðið - 01.11.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 43
JON HILMAR
SIGÞÓRSSON
+ Jón Hilmar Sig-
þdrsson fæddist í
Reykjavík 21. oktd-
ber 1955. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 16. oktd-
ber síðastliðinn og
fdr útför hans fram
frá Langholtskirkju
24. oktdber.
Okkur langar í örfá-
um orðum að minnast
vinar okkar og sam-
starfsmanns Jóns
Hilmars Sigþórssonar.
Þegar haustar að og
veturinn boðar komu sína kveður Jón
okkur langt um aldur fram. Þó að við
vissum hve sjúkdómurinn var eríiður
þá kemur andlátsfregnin á óvart því
maðurinn er þannig gerður að við
höldum í vonina meðan lífíð endist.
Jón var trúaður og ég held að hann
hafi haft fullvissu um að það væri ann-
ar staður sem tæki við þegar við fær-
um héðan. En hvernig sem það er þá
erum við viss um að Jón lendir þang-
að sem betra og skemmtilegra fólkið
fer. Jón var lærður smiður en hann
var ekki bara smiður heldur var hann
smiður af guðs náð. Hann gat gert allt
sem hugur og hönd þurftu að vinna
saman að. Mér er minnisstætt þegar
við Jón kynntumst fyrst. Þá var hann
að byrja að vinna með mér sem park-
etmaður. Ég var vanur því að menn
þyrftu langa æfingu til þess að ná tök-
um á því sem til þarf að inna það starf
vel af hendi, en ekki hann Jón. Þegar
ég hafði verið með honum í u.þ.b. tvo
tíma þá vissi ég að ég hafði þar ekkert
meira að gera, hann sá strax hvemig
átti að vinna verkið. Svona var allt
sem Jón kom nálægt, hann vissi alltaf
hvemig best var að standa að hlutun-
um svo að þeir væm sem best af
hendi leystir. Það var afskaplega gott
að vinna með honum Jóni, í öll þau ár
sem við unnum saman man ég aldrei
eftir öðm en það væri gaman í vinn-
unni, ekki af þvi að vinnan væri svo
skemmtileg heldur af því að hann
gerði vinnuna skemmtilega. Dagur-
inn byrjaði og endaði á léttu nótunum.
Hann gat gert spaug úr öllu, meira að
segja eftir að hann greindist með
krabbann gat hann spaugað með
sjúkdóminn og hann kvartaði minna
en sumir sem ekkert amar að. Jón var
vinafastur og átti marga góða vini og
kunningja sem hann ræktaði sam-
bandið við. Fjallaferðimar og veiði-
ferðimar með félögunum vom í miklu
uppáhaldi. En öll ferðalög enda um
síðir og hann Jón hefur nú farið í sitt
síðasta ferðalag. En ég veit að þeir
gleyma ekki vini sínum og minnast
allra spaugsyrðana og hnyttnu til-
svarana hans, hann verður áreiðan-
lega með þeim í öllum þeirra ferðum
um ókomin ár. Hann vai- hjálpfús við
vini sína, alltaf boðinn og búinn til að
rétta hjálparhönd. Hræddur er ég um
að við höfum ekki þakkað það sem
skildi heldur tekið sem sjálfsagðan
hlut. Jón var ungur þegar hann missti
pabba sinn. Ef til vill var það þess
vegna sem honum var svo umhugað
um að vera góður faðir. Þó að árin
væm alltof fá sem honum auðnaðist
að vei-a með Halla sínum þá var hann
meira með honum en mai'gir feður
a
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
gera á miklu fleiri árum.
Og þegar árin líða og
Halli verður fullorðinn
þá veit ég að stundun-
um með pabba gleymir
hann ekki. Þegar við
sitjum hér og skrifum
þessar línur og látum
hugann reika kemur
svo margt skemmtilegt
upp í hugann, þannig
vildi Jón líka öragglega
láta minnast sín, hann
var lítið gefin fyrir vol
og vfl. Elsku Helga,
Halli og aðrir ástvinir,
ykkar missir er mestur
en allar góðu minningarnar sitja eftir
hjá okkur öllum og létta okkur sorg-
ina. Við emm heppinn að hafa fengið
að vera samferðamenn Jóns Hilmars.
Sigurður og Þurý.
Haustið er komið og laufin farin að
falla af trjánum. Eins er með vin okk-
ar Jón, hann hefur kvatt þetta líf. Eft-
ir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm
varð hann að lúta í lægra haldi. Að
setjast niður og skrifa minningar-
grein um sinn besta vin er ekki auð-
velt og virkilega sárt. Við kynntumst
Jóni og Helgu fyrst í gegn um rallið
en svo fór að okkar samskipti urðu
miklu meiri en bara þar, því við ferð-
uðumst saman bæði innanlands og ut-
an. Jón var frábær ferðafélagi, því
kynntumst við í gegn um tíðina, alveg
sama á hverju gekk, alltaf var hægt
að ganga að brosinu hjá Jóni vísu og
það var gjaman viðkvæðið hjá honum
„gaman að þessu, ég hefði ekki viljað
missa af þessu“. Einnig var skemmti-
legt að fylgjast með honum þegar
kom að því að smíða eitthvað. Fyrstu
árin vom það rallbflamir sem bám
handbragði hans vitni, alltaf snyrti-
legir og vel unnir, risið í Drekavogin-
um og síðan húsbfllinn sem hlaut
nafnið Vinurinn. Minningamar úr
sleðaferðunum em einnig ómetanleg-
ar. Þær urðu hálfu skemmtilegri þeg-
ar maður sá hvað hann naut þeirra.
Kæri vinur, þín verður sárt saknað,
en við lítum á það sem Guðs gjöf að
hafa fengið að kynnast þér og um-
gangast.
Eisku Helga og Halli, aðrir ætt-
ingjar og vinir, ykkarmissir er mikill
og við biðjum algóðan Guð að gefa
ykkur styrk í sorginni.
Rver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast
þér.
(Ingibj.Sig.)
Kristín, Birgir og böm.
Elsku frændi, friðurinn er þinn. Þó
að sorgin sé ólýsanlega sár, þá er ekki
annað hægt en gleðjast við að hugsa
um þig. Léttleikinn var þitt aðals-
merki svo ég tali ekki um hjálpsem-
ina. Hvort það var fyrsta íbúðin eða
kaup á bflum, ekkert var sjálfsagðara
en að leita til þín. Það lýsir þér betur
en nokkur orð. Það er ekki allt hve
lengi maður lifir, heldur hvemig mað-
ur lifir lífinu. Þitt lífshlaup er öðmm
til eftirbréytni. Bömin mín fá svo
sannariega að vita hvaða mann þú
hafðir að geyma og verða þau án efa
ríkari á eftir. Allt tekur enda í þessu
lífi og einhvem tíma á ég eftir að finna
fyrii' því, þá verður ekki ónýtt að eiga
mann eins og þig að. Það lygnir alltaf
á eftir storminum, megi þú öðlast
innri Mð og horfa stoltur yfir fjöl-
skyldu þína og ættingja, alveg eins og
við eram stolt af þér.
Hvfl í friði.
Elsku Helga og Halli, missir ykkar
er mikfll, meira en nokkur orð fá lýst.
Megi guð styrkja ykkur.
Sigþór Hilmar Guðnason
og fjölskylda.
Kynni okkar Jóns Hilmai's Sig-
þórssonar hófust fyrir aldarfjórðungi
eða svo, en stuttu eftir að ég hitti þá
sem varð konan mín, kynntist ég
þeirri traustu og hlýju vináttu sem
sem lengi hefur verið með fjölskyld-
um hennar og Jóns Hilmars.
Fyrsta vitneskjan um tilvist hans
og fólks hans varð með þeim hætti, að
er ég kom á heimili tengdaforeldra
minna sá ég að þar var uppi mynd af
móður með bamahóp og allt var fólk-
ið alvarlegt og sorgbitið. Oddný móðir
hans hélt á Sigþóm yngstu systur
hans nýskírðri, en sorgin sem yfir
myndinni var átti þá skýringu að
nokkm áður en hún var tekin eða
þann 30. janúar 1962 varð m/b Særún
fyrir áfalli í Látraröst. Brúna tók af
skipinu í brotsjó og fórst fjölskyldu-
faðirinn sem á myndina vantaði, Sig-
þór Guðnason skipstjóri.
Þótt Jón Hflmar hafi þannig ungur
orðið að kynnast sorginni, þá var það
öðm nær að hún væri áberandi þáttur
í lífi hans eða einkennandi fyrir lífs-
hlaup hans. Hann var ávallt glaðleg-
ur, brá gjaman fyrir sig gamansemi
og glettni og var hnyttinn í tilsvömm.
Með honum var gaman að vinna, sem
og að hlæja og skemmta sér.
Hann lærði trésmíði og fórst hvað
eina vel úr hendi sem hann tók sér
fyrir hendur. Ekki einasta sóttist
honum hvert verk vel, heldur var
hann jafnframt vandvirkur og ein-
staklega úrræðagóður þegar einfald-
ar lausnir virtust okkur hinum ekki í
sjónmáli. Af smíðum hans þykir mér
einna vænst um göngubrú eina, boga-
dregna og svo forkunnarfagra, að það
er sem maður gangi inn í ævintýra-
heim þegar maður gengur yfir hana.
Þannig skulum við vinir hans trúa að
honum sjálfum líði nú, er hann geng-
ur tfl nýrra heimkynna.
Jón Hilmar var lánsamur í einka-
lífi. Hann og Helga bjuggu sér fallegt
heimili í Drekavoginum þai-sem hann
undi sér vel í faðmi fjölskyldunnar.
íbúðin var og byggð og innréttuð af
þeirri natni og smekkvísi, sem mark-
aði öll hans störf. Þar átti hann svo
athvarf og skjól þegar erfiðleikar og
veikindi steðjuðu að og naut hlýrrar
umhyggju og umönnunar eiginkonu
sinnar. Hafliði sonur þeirra Helgu
stendur nú í hliðstæðum sorgarspor-
um og Jón Hilmar stóð sjálfur í, sem
lítill drengur á myndinni sem getið er
hér að framan. Við Hrönn og Maren
biðjum Guð að sefa sorg Hafliða,
Helgu móður hans, Oddnýjar ömmu
hans og þeirra allra sem þótti vænt
um Jón Hilmar og gefa þeim fljótt
gleði á ný, gjaman líka þeirri lífsgleði,
sem bjó með honum og einkenndi líf
hans og störf.
Kristján Þorbergsson.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT ELÍSABET HJARTARDÓTTIR,
Fannborg 8,
Kóparvogi,
sem andaðist fimmtudaginn 19. október, hefur
verið jarðsett í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Hjörtur Bjarnason, Guðrún Sigurjónsdóttir,
Halldóra Bjarnadóttir, Ragnar Ingimarsson,
Margrét K. Bjarnadóttir,
Svandís Bjarnadóttir, Ólafur Karvel Pálsson,
Guðrún Bjarnadóttir, Geir Lúðvíksson,
Ingimar Bjarnason, Rut Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fóstur-
faðir, tengdafaðir og afi,
PÉTUR GUÐNI EINARSSON
Holtastíg 13,
Bolungarvík,
lést sunnudaginn 29. október.
Helga Aspelund,
Hannes Pétursson, Sólveig Sveinbjörnsdóttir,
Arna Gísladóttir Aspelund,
Einar Pétursson, Aníta Ólafsdóttir,
Hildur Elísabet Pétursdóttir, Svavar Þór Guðmundsson,
Harald Pétursson, Friðþóra Sigfúsdóttir r
og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR,
Kambi 4,
Patreksfirði,
lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar mánudaginn
30. október.
Sæmundur Jóhannsson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Kristján Jóhannsson, Jenný Óladóttir,
Fríða Valdimarsdóttir, Örn Sigfússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
systir,
UNNUR SIGURÐARDÓTTIR
frá Bolungarvík,
Hagamel 31,
Reykjavík,
lést á Landspítala Vífilsstöðum mánudaginn
30. október.
Sigurður Viggó Kristjánsson, Svanhildur Svavarsdóttir,
Kristján Sigurðsson, Inga Valsdóttir,
Svandís Unnur Sigurðardóttir
og systkini.
+
Eiginmaður minn,
KRISTJÁN ÞORLÁKSSON
fyrrv. hvalveiðiskipstjóri
frá Súðavík,
Álfaskeiði 72,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Súðavíkurkirkju laugar-
daginn 4. nóvember kl. 14.00.
Ingibjörg Sigurgeirsdóttir.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
auðsýndu samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
BÁRU SIGFÚSDÓTTUR,
Bjargi við Mývatn.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og
læknum á Fjóðungssjúkrahúsinu Akureyri og
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík.
Jón lllugason, Guðrún Þórarinsdóttir,
Sólveig Ólöf lllugadóttir, Birkír Fanndal Haraldsson,
Hólmfríður Ásdís lllugadóttir, Sigurður Guðbrandsson,
Finnur Sigfús lllugason, Guðrún Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför okkar ástkæru,
ASTU PELTOLU SIGURBRANDSDÓTTUR,
Finnlandi.
Olavi, Vappu og Matti,
Oskari og Eini,
Tapani, Pirjo, Nina og Satu.