Morgunblaðið - 12.12.2000, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Meðal þeirra fyrstu sem sáu brimann í Isfélagshúsinu
Forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar
Ætla má að kjör
á endurtrygg--
ingum versni
GUNNAR Felixson, forstjóri
Tryggingamiðstöðvarinnar hf., seg-
ir alveg ljóst að gífurlega mikið tjón
hafi orðið í brunanum hjá Isfélag-
inu í Vestmannaeyjum, þótt ekki sé
hægt að segja á þessari stundu um
hversu háar fjárhæðir er að ræða.
Frystihúsið er tryggt hjá Trygg-
ingamiðstöðinni og kom fram í til-
kynningu félagsins til Verðbréfa-
þings íslands í gær að áhrif
tjónsins á afkomu Tryggingamið-
stöðvarinnar á þessu ári verða í
mesta lagi 40 milljónir króna. Það
sem þar er umfram fellur á end-
urtryggjendur.
Að sögn Gunnars má ætla að
endurtryggingakjör félagsins í
framtíðinni muni versna vegna
þessa tjóns. Að hans sögn er
Tryggingamiðstöðin með endur-
tryggingar hjá 5-6 evrópskum end-
urtryggingafélögum.
í fréttum Búnaðarbankans á
Netinu í gær segir að ætla megi að
tjónið muni jafnvel hafa áhrif á
endurtryggingakjör annarra vá-
tryggingafélaga vegna smæðar
markaðarins. Gunnar sagðist ekki
geta lagt mat á það. Hann sagði að
fjölmargir þættir á mörkuðum
hefðu áhrif á endurtryggingakjörin
á hverjum tíma. Þannig gætu mikil
tjón úti í Evrópu haft áhrif á end-
urtryggingakjör hér á landi.
------------------------
A
Atak í fræðslu-
málum
ófaglærðra
LAGT hefur verið fram á Alþingi rík-
isstjórnarfrumvarp sem ætlað er að
tryggja Atvinnuleysistryggingasjóði
heimild til að verja ákveðinni fjárhæð
til að styrkja átak í fræðslumálum
ófaglærðra á árunum 2001 tO 2003
samkvæmt samkomulagi milli Sam-
taka atvinnulífsins og Flóabandalags-
ins annars vegar og Verkamanna-
sambands Islands hins vegar.
Fjárhæð framlagsins ákvarðast við
afgreiðslu fjárlaga hvers árs. Þannig
er gert ráð fyrir að um 104 millj. kr.
renni til fræðslusjóða Samtaka at-
vinnulífsins, Verkamannasambands-
ins og Flóabandalagsins á næsta ári,
53 millj. 2002 og 43 millj. kr. árið 2003.
„Pabbi,
siáðu,
þao er að
kvikna í“
BJARNI Sveinsson, sjóntaður í
Vestmannaeyjum, og tólf ára dótt-
ir hans, Sigrún, voru meðal þeirra
allra fyrstu sem sáu eldsúlur stiga
upp úr þaki Isfélagshússins á
laugardagskvöldið. Þau voru
stödd við veitingaskálann Skýlið
sem er þar skammt frá og létu
lögreglumenn vita sem komu að-
vífandi á bifreið sinni og tilkynntu
þeir slökkviliðinu um eldinn. Þetta
var nokkrar mínútur fyrir kl. 22
um kvöldið.
„Við vorum að fara inn í Skýlið
um svona korter fyrir tíu. Keypt-
um þar smáræði og þegar við
komum aftur út að bflnum varð
okkur litið að húsinu. Þá vantaði
klukkuna svona fjórar mínútur í
tíu. Þá heyrði ég smádynk og sá
járnplötu skjótast upp. Það var
eins og platan hefði rifnað af,
svört reykjarsúla steig upp með
neistaflugi. Sekúndubroti síðar
kemur upp 10-15 metra há eldsúla
sem datt strax niður aftur. Þetta
var eins og gos og var svo ótrú-
legt að ég trúði þessu ekki fyrst.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Feðginin Bjarni Sveinsson og Sigrún Bjarnadóttir við hús ísfélagsins.
Síðan kom eldurinn upp á fleiri
stöðum og alit í einu logaði öll
hlið hússins. Það var eins og eitt-
hvað hefði legið í loftinu, einhver
undarleg lykt sem við fundum,
þegar maður hugsar um þetta til
baka. Það var alla vega eitthvað
sem kom í veg fyrir það að við
stigum strax upp í bflinn eins og
við erum vön að gera, heldur lit-
um að húsinu og sáum þetta þá
gerast,“ segir Bjarni.
Hann segir að dóttir sín hafi séð
eldinn rétt á undan honum. Hún
segist hafa séð járnplötu þeytast
upp í loftið og hafa þá sagt:
„Pabbi, sjáðu, það er að kvikna í.“
Bjarni segir að það hafi komið
honum verulega á óvart, vitandi
að ekki væri eldsmatur þar sem
virðist hafa kviknað í fyrst. Hann
segir að þetta hafi verið óhugn-
anleg lífsreynsla og Sigrún hafi
verið lengi að jafna sig á eftir.
Fulltrúar Verzlunarskólans fóru yfír samningstilboð með samninganefnd kennara í gær
Útfærsla tilboðsins
verður skoðuð nánar
ÁKVEÐIÐ var á sáttafundi samn-
inganefnda skólanefndar Verzlunar-
skóla íslands og Félags framhalds-
skólakennara í gær að fulltrúar
Verzlunarskólans legðu fram ná-
kvæmari útfærslu á samningstilboði,
sem skólinn hefur gert kennurum, á
sáttafundi á morgun. Samninga-
nefndirnar komu saman til fundar
hjá ríkissáttasemjara kl. 14 í gær til
að ræða samningstilboð sem Verzl-
unarskólinn lagði fram íyrir helgi.
Enginn árangur varð aftur á móti
af sáttafundi samninganefndar
Félags framhaldsskólakennara og
samninganefndar ríkisins í gær.
Sáttasemjari ákvað þó að boða deilu-
aðila til sáttafundar á ný kl. 15 í dag.
„Það fór vel á með okkur og það er
boðaður annar fundur á miðvikudag-
inn,“ sagði Þorvarður Eh'asson,
skólastjóri Verzlunarskólans, að
loknum fundi samninganefndar
skólanefndar Verzlunarskólans með
samninganefnd kennara í gær. „Við
tókum að okkur að leggja fram
frekari útfærslu á tilboðinu og fara
nánar út í það sem ekki er gerð grein
fyrir í upphaflegu tilboði þar sem við
munum setja fram hvenær við
treystum okkur til að tímasetja ein-
stakar áfangahækkanir en í upphaf-
legu tilboði okkar lögðum við ein-
göngu fram tilboð um lokatölu,"
sagði hann.
Þegar hann var spurður um hve
miklar hækkanir fælust í tilboðinu og
hversu stór hluti væri tilfærsla úr yf-
irvinnu og öðrum greiðslum inn í
dagvinnulaun sagðist Þorvarður ekki
geta greint frá því fyrr en að loknum
næsta fundi sem hefst kl. 14 á morg-
un.
Gunnar Bjömsson, formaður
samninganefndar ríkisins, segir að
tilboð Verzlunarskólans byggist á
samskonar hugmyndafræði og ríkið
hafi lagt áherslu á í viðræðum við
kennara, sem feli í sér að leysa upp
þær nákvæmu skilgreiningar á
vinnutíma sem verið hafa í kennara-
samningunum. Hann kveðst þó ekki
geta svarað því hvort þetta samn-
ingstilboð hafi áhrif á kjaradeilu rík-
isins og kennara. Komið hafi fram að
kennarar vilja fá frekari upplýsingar
um forsendur á bak við tilboð Verzl-
unarskólans.
Óskuðu eftir frekari
skýringum
Sérstök samninganefnd annast
viðræðumar fyrir hönd kennara við
Verzlunarskólann. Elna Katrín Jóns-
dóttir, formaður Félags framhalds-
skólakennara, er formaður nefndar-
innar en auk hennar sitja tveir
verzlunarskólakennarar í nefndinni.
Elna Katrín sagði að á fundinum með
fulltrúum Verzlunarskólans í gær
hefðu kennarar óskað eftir frekari
skýringum á þeirri samningshug-
mynd sem skólanefnd Verzlunar-
skólans hefði sett fram og kallað til-
boð. „Það var farið yfir langan lista
atriða sem samninganefnd kennara
telur nauðsynlegt að komi fram til
þess að hægt sé að meta hvað í þessu
felst,“ sagði hún.
Að sögn hennar líta kennarar ekki
svo á að um hefðbundið tilboð sé að
ræða, enda sé þar engin grein gerð
fyrir launatöflu, upphafshækkunum
launa, áfangahækkunum á samn-
ingstímabilinu og engin tilraun sé
heldur gerð til að greina á milli
launahækkana og tilfærslu milli
vinnuþátta o.fl. „Hins vegar er þetta
hugmynd sem við skoðum ekkert síð-
ur en hvað annað. Þetta var ágætur
fundur en niðurstaðan varð sú að
samningsaðilar myndu hittast á mið-
vikudaginn og þá ætlar Verzlunar-
skólinn að leggja fram nánari út-
færslu á sínu tilboði," sagði hún.
Kennsluskylduafsláttur hverfl
Elna Katrín sagði að á stuttum
fundi með samninganefnd ríkisins í
gær hefði verið rætt um þau atriði
sem bæri í milli og svolítið hefði einn-
ig verið rætt um hvort hægt væri að
finna einhvern flöt á sameiginlegri
markmiðasetningu. „En það er raun-
verulega ekkert nýtt þar í augsýn,“
sagði hún. Tilboðið sem samninga-
nefnd skólanefndar Verzlunarskól-
ans lagði fram í seinustu viku er svo-
hljóðandi: „Dagvinnutími verði 1.800
klst. á ári og til ráðstöfunar fyrir
skólastjóra. Þar af verði 80 klst. varið
til endurmenntunar. Miðað við 1.509
vikustundir skulu vera 62,9 stöðu-
gildi við skólann. Kennsla umfram 24
stundir á viku verði greidd með yf-
irvinnukaupi. Kennslustund í yfir-
vinnu skal teljast sem ein klukku-
stund. Engar aðrar greiðslur vegna
skipulagningar, kennslu, prófa eða
annarra starfa tengdra námi nem-
enda. Mánaðarlaun verði kr. 263.000
í lok samningstímans 2003. Skóla-
stjórn hefji viðræður við stjórn Líf-
eyrissjóðs ríkisins um réttindamál."
Fjallað er um þessar tillögur á
heimasíðu Kennarasambandsins í
gær og þar segir m.a.: „Tvennt er
skýrt í samningshugmyndum VÍ frá
6. desember sl. Gert er ráð fyrir því
að kennsluskylda allra verði fram-
vegis 24 stundir á viku, þ.e. að
kennsluskylduafsláttur vegna starfs-
aldurs og lífaldurs hverfi. Þetta
myndi t.d. þýða að til þess að gegna
100% starfi við kennslu þyrfti sex-
tugur kennari að kenna um 7
kennslustundum á viku meira en
starfssystkini í öðrum framhalds-
skólum eða um 28 kennslustundum
meira á mánuði. Reikna má annan
kennsluskylduafslátt hlutfallslega til
þess að glöggva sig á málinu. Á
samningafundi í síðustu viku þegar
VÍ lagði fram tilboð sitt lét skóla-
stjóri VÍ þess þó getið að hann teldi
ekki fært að taka til baka þegar
áunninn kennsluafslátt.
Hitt atriðið, sem kemur skýrt fram
í tilboði VÍ, er tillaga um að meta
hverja ýfirvinnustund í kennslu (40
mín. kst.) sem eina klukkustund í
stað 1,45 klst. Miðað við þessa breyt-
ingu yrði undirbúnings- og úr-
vinnslutími hverrar kennslustundar
20 mínútur í stað 47 mínútna. Ekki
kemrn- fram hvort hugsunin er að
dreifa ávinningi af þessari tilfærslu á
alla kennara burtséð frá því hvort
þeir kenna yfu'vinnukennslu eða
ekki. Ekkert mat er á tilfærslu þess-
aii um áhrif til hækkunar á laun.
I tilboði sínu ræðir VÍ um að með-
almánaðarlaun verði kr. 263.000 árið
2003. Eins og sjá má af ofangreindu
er engin tilraun gerð til þess að skýra
þessa tölu eða tíunda hversu stór
hluti hækkunar dagvinnulauna er
fenginn með tilfærslum, hversu stór
hluti er fenginn með hreinum launa-
hækkunum eða hvort og þá hvernig
meiningin sé að greiða fyrir þá stór-
felldu starfskjararýrnun sem það
hefði í för með sér að innleiða 24
stunda kennsluskyldu alla starfsævi
kennaravið VÍ.“