Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BENEDIKT ODDSSON + Benedikt Odds- son fæddist í Keflavík 8. maí 1970. Hann lést af slysför- um 30. nóvember sið- astliðinn og fór útför hans fram frá Kefla- víkurkirlgu 7. des- ember. Það er kannski skrýtið hvað sumt fólk getur verið manni mik- ils virði, enda þótt samband við það sé lít- ið svo árum skipti, en þannig er því farið með vin minn, Bensa eins og hann var alltaf kallaður. Síðustu daga hafa ótal minningar um hann streymt fram í huga mér, og langar mig til að kveðja hann með nokkrum fábrotnum orðum og þakka þau ánægjulegu kynni sem við áttum. Kynni okkar Bensa hófust árið 1988 á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þar sem ég innfæddur Vestmanna- eyingur fór með hann í tjaldið til fjölskyldu minnar. Mér er einstak- lega minnisstætt, þar sem mikið er rætt um íþróttir og fótbolta í minni fjölskyldu, hve Bensi hafði lúmskt gaman af að tala um og æsa alla upp með því að segja frá hve KR-ingar væru miklu betri en ÍBV, þá var Gunnar bróðir hans að spila með KR og sýndi það sig hve stoltur hann var af bróður sínum, Bensi sá sér strax leik á borði og náði að æsa alla upp í tjaldinu, án þess að mikil alvara væri þar á bak við. Upp frá þessu kom Bensi á hverja þjóðhátíð næstu árin og gisti hann þá heima hjá mér og foreldrum mín- um , enda þekkti hann orðið alla í fjölskyldunni og var orðinn ómiss- andi í tjaldið og grilimatinn heima áður en haldið var af stað inn í dal, og naut hann þess að segja félögum sínum hve notalegt og gott hann hefði það. Þó samband okkar hafi ekki verið mikið hin síðari ár, þá ylja ég mér við minningarnar frá ótal gleði- stundum og sé Bensa fyrir mér sól- brúnan og brosandi, þennan skemmtilega og hressa félaga og vin, sem við fylgdumst með úr fjar- lægð hin síðari ár. Nú síðast í sumar hitti hann frænku mína sem vinnur hjá Atlanta og bað fyrir kveðju til okkar, og yljaði það okkur um hjartarætur. Elsku Bensi, það var alltaf jafn notalegt að hitta þig og alltaf leið mér vel í návist þinni, þakka þér elsku vinur fyrir þær stundir sem við áttum saman og mun ég aldrei gleyma þér. Þú munt ávallt eiga vissan stað í hjarta mínu. Allri fjölskyldu hans og aðstand- endum votta ég mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg og söknuði, því að þeirra er missirinn mestur. Þó að kali heitur hver Hylji dali jökull ber Steinar tali og allt hvað er. Aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Anna Sigga Grímsdóttir. Ég hlustaði á frétt- ina í útvarpinu. Mig setti hijóða, eitt slysið enn á „Brautinni". Það sótti að mér mikill kvíði. Þekki ég fólkið? Stundu síðar hringir Óli sonur minn og til- kynnir mér að Bensi vinur sinn hafi dáið í bílslysi á Reykjanes- brautinni. Það er skelfilegt að öll þessi slys skuli verða á þess- um vegi. Hvað veldur? Hvað er til úrbóta? Þessar og ótal aðrar spurningar vakna. Það hafa of marg- ar fórnir verið færðar á þessum fjöl- farna vegakafla, nú þarf að fara að framkvæma aðgerðir til úrbóta. Ég kynntist Bensa ungum dreng, fallegum og góðum. Ég sá hann vaxa og þroskast, verða ærslafenginn ungling og ungan stoltan sjómann, sem brenndi lífskertið í báða enda. Ég fylgdist alltaf með honum úr fjarska, fékk fréttir af honum frá Ola syni mínum og síðar kveðjur frá honum með manninum mínum, en þeirra leiðir lágu saman við störf í seinni tíð. Óli og Bensi brölluðu margt saman í æsku og ekki allt í þökk foreldranna, en brosið hans Bensa og faðmlagið var alltaf jafn hlýtt. Hann Bensi breytti lífsstíl sín- um fyrir sjö og hálfu ári, sneri blaðinu við líkt og ég hafði gert 15 árum áður. Eftir það töluðum við sama tungumálið og áttum sameig- inleg áhugamál um að njóta þess að vera til og lifa heilbrigðu lífi. Fjar- læg búseta gerði það að verkum að við hittumst ekki eins oft, en er leiðir okkar lágu saman sá ég hvað hann blómstraði og fallegu augun, hlýja brosið og faðmlagið innilegra en nokkru sinni fyrr. Ég hitti Bensa um það leyti, sem hann ákvað að fara til Tulsa í Oklahoma og læra flugvirkj- un, þaðan sem hann útskrifaðist með góðum vitnisburði eftir að hafa stundað mámið af dugnaði og sam- viskusemi. Ég man er ég hitti hann á kaffihúsi með dóttur sína, hvað hann var stoltur faðir, bjartsýnn á fram- tíðina. Augun ljómuðu af gleði og áhuga. Bensi fékk góða vinnu og var vel liðinn í starfi. Hann var þakk- látur fyrir og kunni að meta allan þann lærdóm og reynslu, sem hann öðlaðist við störf sín í Sádi-Arabíu, þótt hann hefði kosið að vera meira með dóttur sinni, sem hann elskaði svo heitt. Bensi var nýkominn í frí eftir langa fjarveru frá íslandi. Hann var á leiðinni heim eftir að hafa náð í sína elskulegu dóttur. Enn eitt slys á Reykjanesbraut, þrjár manneskjur í blóma lífsins deyja og við biðjum öll þess að elsku litla stúlkan, sem ein lifði þennan hrylling, megi ná heilsu á ný að fullu. Bensi lifði yndislegu lífi síðustu ár, hann var svo sáttur, hann blómstraði hreinlega. Ég hef ekki séð neinn sem bar svona mikla ham- ingju utan á sér. Hann hafði tekið tilsögn í einu og öllu og uppskar dásamlegt líf. Elsku Bensi, hafðu þökk fyrir allt, þú kenndir mér mikið, hjartkæri strákurinn minn. Handrit afmælÍB- og minningargreina skulu vera vei frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsima 5691116, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fyígi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Hýasintuskreytingar - Jólagjafir Kertaskreytingar Opið til kl. 22 til jóla Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Guð veri með elsku dóttur þinni, foreldrum, bróður og mágkonu og litlu bömunum þeirra og Huldu ömmu, sem var svo stolt af Bensa sínum. Ég bið almáttugan Guð að vera með öllum þeim, sem eiga í sorg á þessari stundu eftir þetta hörmu- lega slys á Reykjanesbrautinni. Ég kveð þig elsku Bensi minn með bæninni, sem gaf okkur svo mikið. Guð gefi mér æðruleysi tilaðsættamigviðþað, semégfæekkibreytt, Kjark til að breyta því, seméggetbreytt og vit til að greina þar á milli. Guð blessi minningu þína. Heiða Ámadóttir. Elsku Bensi, ég trúi því ekki enn að þú sért farinn. Ég gleymi aldrei þeim degi er ég fékk fréttimar um að þú hefðir látist í bílslysi á Reykja- nesbraut. Ég var í vinnunni þennan dag og vissi að það hafði orðið slys á brautinni og ég man að ég sagði við stelpumar hve ég óskaði þess að enginn sem ég þekkti hefði verið í því. En svo kem ég heim og er ný sest í sófann þegar vinkona mín hringir í mig og segir mér frá slys- inu og að þú hefðir farist í því. Ég gat engan veginn trúað því, ekki Bensi því hann var svo ódauðlegur. Svo í vantrú minni hringdi ég í sím- ann þinn en það var ekkert svar. Og þá vissi ég... Það er djúpt skarð sem þú skilur eftir, Bensi minn, skarð sem verður aldrei fyllt og þú munt alltaf eiga stóran hlut í hjarta mínu. Ég gleymi því ekki þegar þú varst hjá mér eitt kvöldið í sumar, hve mig langaði að segja þér hvað mér þætti vænt um þig en einhvem veginn var það bara á vörunum á mér og fór aldrei lengra. Ég vona að þú vitir það núna, Bensi, hvað mér þótti vænt um þig. Ég man hve oft þú sagðir við mig að það væri eins og við hefðum þekkst alla ævi því við gátum talað saman um allt milli him- ins og jai-ðar þótt við hefðum þekkst í aðeins stuttan tíma. Það er alveg öruggt að við höfum þekkst í öðm lífi og munum kynnast aftur í því næsta. Og öll bréfin sem þú sendir mér meðan þú varst að vinna í París, hvað mér þótti vænt um þau og ég mun geyma þau alla ævi. Hvernig getur lífið verið svona ósanngjarnt, því varstu tekinn í burt svona snemma? Þú varst engan veginn á leiðinni að fara, það var allt of mikið líf í þér. En ég veit að það tekur eitt- hvað annað við og þér var ætlað ann- að hlutverk þar sem þú átt að auðga líf annarra eins og þú gerðir meðan þú varst hér. Þú varst besti vinur sem nokkur hefði geta hugsað sér og umhyggja þín fyrir öðram og fyrir lífinu sjálfu fylgdi þér hvert sem þú fórst. Þú áttir til alveg óþrjótandi hvatningarorð fyrir hvem sem var og lást aldrei á þeim, enda held ég að fáir hafi átt eins marga vini og þú. Og þú varst svo einlægur á allan hátt og áttir svo auðvelt með að tjá tilfinningar þínar á svo skemmtileg- an hátt að það var alveg öfundsvert. Það era því alveg orð á tæra að þeir deyja ungir sem guðirnir elska og Guð hefur svo sannarlega elskað þig. Ég trúi því að þú hafir verið engill sem var kallaður heim og nú vakirðu yfir þeim sem eftir lifa og átt ekki í vandræðum með það. Þó að sökn- uðurinn sé sár og erfitt að skilja þetta allt saman og sætta sig við það er það léttir í hjarta mínu að vita það, að þú verður þarna til þess að taka á móti mér þegar minn tími kemur. Elsku hjartans Bensi, það er með með söknuð í hjarta sem ég kveð þig og ég þakka Guði fyrir þann allt of stutta en dýrmæta tíma sem við áttum saman í sumar. Guð, viltu halda verndarhendi þinni yfir fjölskyldu Bensa á þessum erfiðu tímum og þá sérstaklega litla sól- argeislanum hans, henni Sesselju litlu, sem er alveg lifandi eftirmynd föður síns og ég vona að hún fái að heyra það á hverjum degi hversu yndislegan föður hún átti. Ó, engillinn ungi ég ann þér svo heitt, en í vængi þér blása ég verð, svo brjóstið þitt vaxi og verði svo breitt að það beri þig þangað sem Ijósið þú sérð. Láttekki villast burt veginum frá, ekki álfana í þig ni Því öll djásn í heiminum gleðja ei geð, ef engan þú hefur að deila því með. En hvað sem þú gerir og hvert sem þú ferð, hjá þér í huganum alltaf ég verð, hjá þér í huganum ætíð þú ert hjá mér, í mínum huga þú ert. (Ari Harðarson.) Þín vinkona, Brynja. Guð gefi mér æðruleysi tilþessaðsættamigvið það sem ég fæ ekki breytt, kjark til þess að breyta þvísem éggetbreytt og vit til að greina þar á milli. Hvernig á ég að geta sætt mig við það að þú ert farinn, kæri vinur? Þegar hringt var í mig og mér til- kynnt að þú hefðir verið einn af þeim sem látist höfðu í stórslysi á Reykja- nesbraut fannst mér það ekki passa. Þú varst nýkominn heim en nú ert þú farinn til annarra heimkynna. Við hittumst fyrir nokkram dögum þeg- ar ég fór að horfa á Fitness-keppn- ina sem þú varst þátttakandi í. Þar sem ég stóð og horfði á þig fannst mér þú eins og styrkur tijástofn sem var ekki að fella blöðin á þess- um árstíma heldur varst þú eins og tré í fullum blóma. Lífsgleði þín var svo mikil, útgeislun og kraftur að óneitanlega hreifstu mann með þér, enda vannst þú tímaþrautina. Þú sagðir við mig: „Gunnar, nú verður tekið á því“ og það gerðir þú svo sannarlega. Þennan dag ákváðum við að fara saman á vaxtarræktarkeppnina eftir nokkra daga. Við ætluðum að eyða kvöldinu saman vegna þess að þú varst á föram til útlanda að sinna þínu starfi. Þú sagðir mér líka að þú ætlaðir að ná í sólargeislann þinn á fimmtudaginn, hana Sesselju Ernu, og hafa hana hjá þér þar til þú færir út. En svona er þetta líf, elsku vinur, við mennirnir ráðum svo litlu þegar upp er staðið. Það sem ég er svo þakklátur fyrir á þessum dökku dögum sem mér finnst vera núna, er það að hafa átt þig sem vin og félaga, bæði í fjar- lægð og nálægð. Lífshlaup okkar og samvera- stundir geymi ég í hjarta mínu um ókomin ár. Ég er einnig þakklátur foreldram þínum fyrir að lofa mér að vera svo nálægt þér þessa síðustu erfiðu daga. „Guð gefi okkur æðraleysi til þess að sætta okkur við það sem við fáum ekki breytt." Vertu sæll, kæri vinur, Kæra fjöl- skylda, Oddur, Ema, Sesselja Erna, + Einar Örn Birgis fæddist í Reykja- vík 27. september 1973. Hann lést 8. nóvember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Hallgríms- kirkju 23. nóvember. Einar Örn, elsku vinur. Blómknappurinn er tákn alls, líka þess sem ekki springur út, því að allt blómstrar inn- an frá fyrir sjálfsblessun; stundum er samt nauðsynlegt að rifja upp góðleikann, að leggja hönd á blómkrónuna og segja blóminu með orðum og snertingu að það sé yndislegt uns það blómstrar á ný innan frá fyrir sjálfsblessun. (Galway Kinnell.) Systkini er eitt það besta sem maður á í þessu lífi og oft sagt að þau fylgi manni líka í næsta lífi. Gunnar og fjölskylda, ég bið góðan guð að geyma ykkur. Valdimar Gunnar Kristjánsson. Nei ég trúi því ekki, það getur ein- faldlega ekki verið, vora mín fyrstu orð þegar ég fékk þær fréttir að Bensi vinur minn hefði verið einn af þeim sem látist höfðu í þessu hörmu- lega slysi á Reykjanesbrautinni. Mér fannst á þeirri stundu og finnst kannski enn að þar færi hið full- komna óréttlæti. Ég kynntist Bensa fyrst þegar hann var að feta sín fyrstu spor innan samtaka okkar og held ég að ekki sé hallað á neinn, þótt ég segi að þar hafi verið mætt einhver eftirminnilegasta persóna, sem ég man eftir, risastór, vöðva- mikill og ljóshærður enda ekki að ástæðulausu, að hann var kallaður hvíti víkingurinn. Það kom líka fljót- lega í ljós að nafngiftin átti svo sann- arlega við hann, því hann gerði aldr- ei neitt lítið, hvort sem það var að vinna í sjálfum sér eða stunda nám. Það var einfaldlega framkvæmt með þeim hætti að eftir var tekið. Það verður lengi að fenna í sporin, sem hann Bensi skilur eftir sig og í hugum margra mun það aldrei ger- ast, að minnsta kosti ekki hjá þeim ungmennum sem leitað höfðu hafnar hjá okkur eftir erfiða útivist, niður- brotin, rifin og tætt eftir harða rimmu við Bakkus, því ef einhver gat gefið þessu fólki von þá var það Bensi með lýsingum sínum á því hvemig það var, hvað gerðist, og hvemig það er núna. Honum var nefnilega gefinn hæfileikinn, sem okkur langar öll svo í, þ.e. að þora að láta drauma sína rætast. Mér er það alltaf minnisstætt þegar ég eitt sinn var að horfa á hann ganga með barnavagninn á undan sér niður Vesturgötuna. Hvað þetta var eitt- hvað Bensalegt, edrúmennskan kristallaðist einhvernveginn í þessu augnabliki. Hann sagði oft að lykill- inn að edrúmennskunni væri fólginn í því að halda sig við sigurvegarana, enda héldu menn sig við Bensa, því hann hafði unnið hinn fullkomna sig- ur. Sigurinn á sjálfum sér, stærri sigra vinna menn einfaldlega ekki. Fjölskyldan var honum alltaf hug- leikin og var frábært að fylgjast með honum eftir að dóttir hans Sesselja Erna fæddist, því hún átti bókstaf- lega hug hans allan. Dóttmn, for- eldrarnir og Gunni bróðir, þetta er fólkið sem hann Bensi talaði falleg- ast um, og skal fólk ekki velkjast í neinum vafa um að þetta er fólkið sem honum þótti vænst um. Ég tel það mikið lán og mikinn heiður að hafa fengið að ganga þennan spöl í lífinu með honum Bensa og veit að ég mun búa að því alla tíð. Ég votta öllum ástvinum hans innilega sam- úð. Georg (Gosi). Góð tengsl milli systkina era ekki sjálf- gefin en okkar fjöl- skyldur eru svo lán- samar að þekkja slík tengsl. Þar sem þú ert horf- inn á braut er stórt skarð höggvið í þína fjölskyldu. Þú varst einn hlekkurinn í þeirri sterku fjöl- skyldukeðju sem var þinn akkur og upp- spretta. Góður vinur, lífs- gleði, hlátur og góð nærvera er okkur efst í huga þegar við systkinin tökum út úr minning- arbankanum og öruggt er að sá reikningur verður aldrei inni- stæðulaus. Við vitum að þú ert í góðum hönd- um og lifum í þeirri von um að hitt- ast á ný. Hugur okkar er hjá þér og þínum nánustu. Elíza, Ari, Gestur Ben., Hjördís og fjölskyldur. EINAR ÖRN BIRGIS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.