Morgunblaðið - 12.12.2000, Blaðsíða 96
Maestro
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIDSLA 5691122, NETFANG: RITSTJiSMBLJS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Tjónið í brunanum í Isfélaginu f Eyjum á annan milljarð króna
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Eldhafíð var gríðarlegt í brunanum í húsi ísfélagsins á laugardagskvöld. Slökkvistarf var erfitt og því lauk ekki fyrr en í gærmorgun.
STJÓRNENDUR ísfélagsins í
Vestmannaeyjum lýstu því yfir á
fundi með starfsfólki sínu í gær í
Alþýðuhúsinu að hreinsunar- og
uppbyggingarstarf yrði hafið, eftir
stórbrunann á laugardagskvöld,
þannig að loðnufrysting gæti hafist
á komandi vertíð. Stefnt er að svip-
aðri afkastagetu í frystingunni og
4ður, eða um 300 tonnum á sólar-
ring. Aðstaða til bolfiskvinnslu
gjöreyðilagðist í eldinum og óvíst
um þá vinnslu félagsins. ísfélagið
varð fyrir gíðarlegu tjóni, sem met-
ið er á annan milljarð króna og er
þetta í þriðja sinn á fímmtíu árum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Flestir starfsmenn mættu á fund þar sem stjórnendur ísfélagsins skýrðu stöðuna og helstu framtíðarhorfur. Á
fremsta bekk situr fjölskylda Sigurðar heitins Einarssonar, sem var forstjóri og aðaleigandi fyrirtækisins.
sem fyrirtækið verður fyrir miklu
brunatjóni. Eldsupptök eru ókunn
en rannsókn hófst í rústunum í gær
með aðstoð tæknideildar lögregl-
unnar í Reykjavík. Eldsins í fisk-
vinnsluhúsi ísfélagsins varð vart
um tíuleytið á laugardagskvöld og
var slökkvistarf gríðarlega erfitt.
Þegar mest lét komu um 100
manns að slökkvistarfinu og lauk
því í raun ekki fyrr en í gærmorgun
þegar tókst að slökkva endanlega í
síðustu glæðunum.
Bruninn er reiðarslag fyrir Vest-
mannaeyjar þar sem Isfélagið er
einn stærsti atvinnurekandi bæjar-
ins. Starfsmenn félagsins eru um
115 og fjölmenntu þeir á fundinn,
sem Isfélagið stóð fyrir ásamt sam-
einuðu verkalýðsfélagi í Eyjum.
Við stórbruna sem þennan eiga
starfsmenn að falla af launaskrá og
fara á atvinnuleysisskrá til að fá
bætur, en forráðamenn ísfélagsins
hafa lýst sig reiðubúna að greiða
starfsfólkinu kauptryggingu í stað
atvinnuleysisbóta, sem fengist end-
urgreidd hjá Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði. Að sögn Jóhanns Péturs
Andersen, framkvæmdastjóra ís-
félagsins, er félagið með rekstrar-
stöðvunartryggingu, sem dekkar
mögulegt framlegðartap.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum, segir að allir
séu reiðubúnir að leggja fram
hjálparhönd við þessar erfiðu að-
stæður. Hann segir að ef ísfélagið
þurfi á aðstoð að halda við upp-
byggingarstarfið muni bærinn
stöðva framkvæmdir við nýtt
íþróttahús, sem staðið hafa yfir,
þannig að verktakinn geti aðstoðað
við uppbygginguna.
■ Eldur í ísfélaginu/
2,16 og 46-49
Byggja á upp aðstöðu
fyrir loðnufrysting’u
Unnið að því að
starfsmenn fái
kauptryggingu
í stað bóta
Mótmælaaðgerðir
á Reykjanesbraut
Seinkun
á milli-
landaflugi
FRESTA varð millilandaflugi vegna
mótmælaaðgerða á Reykjanesbraut
seinnipartinn í gær. Flugleiðir
brugðu á það ráð að senda áhafnir
flugvélanna með Fokker-flugvél
Flugfélags íslands frá Reykjavík til
Keflavíkur.
Guðjón Amgrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að áætlunarvélar
til Bandaríkjanna hafi tafist um allt að
Í-IV2 klukkustund á meðan beðið var
eftir farþegum. Um 15 farþegar
misstu af flugi síðdegis í gær en Guð-
jón sagði það litlu meira en venjulegt
er. Guðjón sagði að áætlun Flugleiða
raskist h'tið af þessum völdum.
Erlendir ferðamenn sem ætluðu
með flugi til Bandaríkjanna komust
ekki leiðar sinnar þegar hópur fólks
lokaði Reykjanesbraut til að knýja á
um tvöföldun hennar. Karl Bjama-
son, bflstjóri hjá Kynnisferðum sf.,
sagði að fyrirtækið hefði frétt af mót-
mælunum í fjölmiðlum um morgun-
inn og gert ráðstafanir vegna þeirra.
Mótmælin hefðu hins vegar hafist
fyrr en hann hafði ætlað og því sæti
hann nú fastur í bílalest. Fyrirtækið
brá þá á það ráð að láta farþegana
ganga frá eystri vegtálmanum til hins
vestari þar sem hópferðabíll beið
þeirra.
■ Hundruð manna/6
--------------
/
Asthildur at-
vinnumaður
vestanhafs
ÁSTHILDUR Helgadóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, mun leika
með liðinu Carolina Tempest í at-
vinnudeild í kvennaknattspyrnu í
Bandaríkjunum sem hleypt verður
af stokkunum í apríl á næsta ári.
Liðin átta, sem leika munu í
deildinni, hafa valið sér leikmenn
síðustu tvo daga úr hópi 198
kvenna sem boðið var til æfinga
vegna þess. Alls komust 128
kvennanna að. Með liði Ásthildar
munu einnig leika tvær af þekkt-
ustu knattspyrnukonum heims,
Michelle Akers frá Bandarfkj-
unum og Hege Riise frá Noregi.
■ Ásthildur/Cl
5TÍ«JAKSTAC/R